„Halldór Ásmundsson (Stóra-Gerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Halldórs Ásmundsson''' bóndi í Stóra-Gerði fæddist á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, var skírður 24. júlí 1793 og lést 4. maí 1837.<br> Faðir h...)
 
m (Verndaði „Halldór Ásmundsson (Stóra-Gerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 5. mars 2014 kl. 20:02

Halldórs Ásmundsson bóndi í Stóra-Gerði fæddist á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, var skírður 24. júlí 1793 og lést 4. maí 1837.

Faðir hans var Ásmundur bóndi á Kirkjulandi í A-Landeyjum, síðan vinnumaður lengst af á Brúnum, f. 1766 á Kirkjulandi, d. 16. júní 1859, Jónsson bónda á Kirkjulandi, f. 1726, d. 20. mars 1814, Ólafssonar bónda á Kirkjulandi, f. 1701, á lífi 1733, Ólafssonar, og konu Ólafs Ólafssonar, Hallberu húsfreyju, f. 1701, á lífi 1733, Jónsdóttur.
Móðir Ásmundar og kona Jóns á Kirkjulandi var Margrét húsfreyja, f. 1731, d. 30. mars 1787, Ásmundsdóttir bónda á Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 1702, á lífi 1753, Björnssonar, og óþekktrar konu Ásmundar.

Móðir Halldórs og kona Ásmundar á Kirkjulandi var Ingibjörg húsfreyja, f. 1766 í Miðey í A-Landeyjum, d. 1. júlí 1840 á Vilborgarstöðum, Magnúsdóttir bónda í Miðey Jónssonar (ætt ókunn), og óþekktrar konu hans.

Halldór var fósturbarn á Kirkjulandi 1801, vinnumaður í Fagurhól í A-Landeyjum, en var orðinn bóndi í Stóra-Gerði 1835.
Hann var bróðir Magnúsar Ásmundssonar vinnumanns í Kastala, f. 1. maí 1795, d. 15. september 1856, og Gísla Ásmundssonar bónda á Vilborgarstöðum, skírður 26. mars 1801, d. 9. maí 1844.

Kona Halldórs var Helga Stefánsdóttir húsfreyja, f. 5. desember 1783, d. 28. febrúar 1864. Hún var fyrr gift Birni Björnssyni bónda á Steinsstöðum.
Börn Halldórs og Helgu hér:
1. Björn Halldórsson, f. 8. desember 1823, d. 14. desember 1823.
2. Ingibjörg Halldórsdóttir, f. 19. janúar 1824, d. 26. desember 1824.
3. Steindór Halldórsson, f. 7. febrúar 1826, d. 15. febrúar 1826.
4. Stefán Halldórsson, f. 24. júní 1828, d. 18. apríl 1849.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.