„Ritverk Árna Árnasonar/Sigbjörn Björnsson (Ekru)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 37: | Lína 37: | ||
Hann var sjómaður góður, hefir og stundað alls konar landvinnu, en er múrsmiður að iðn, vellátinn í starfi. <br> | Hann var sjómaður góður, hefir og stundað alls konar landvinnu, en er múrsmiður að iðn, vellátinn í starfi. <br> | ||
Það hefir verið sagt að enginn hafi tárast, þegar Sigbjörn hætti fjallaferðum, nema fýllinn á [[Dalfjall]]i grét gleðitárum og fýllinn í [[Heimaklettur|Heimakletti]] hló og grét af gleði.<br> | Það hefir verið sagt að enginn hafi tárast, þegar Sigbjörn hætti fjallaferðum, nema fýllinn á [[Dalfjall]]i grét gleðitárum og fýllinn í [[Heimaklettur|Heimakletti]] hló og grét af gleði.<br> | ||
Sjá [[Sigbjörn Björnsson á Ekru]]. | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. |
Útgáfa síðunnar 23. september 2013 kl. 17:24
Kynning.
Sigbjörn Björnsson múrari á Ekru, fæddist 8. september 1876 að Loftsölum í Mýrdal og lést 21. maí 1962.
Faðir hans var Björn bóndi að Loftsölum í Mýrdal, f. 12. október 1832, d. 26. júní 1900, Björnsson bónda á Rofunum þar, f. 1798 í Kerlingardal þar, Árnasonar bónda í Rofunum, f. 1766, d. 26. júní 1840, Ásbjörnssonar bónda í Kerlingardal Jónssonar.
Móðir Björns bónda á Rofunum og seinni kona Árna Ásbjörnssonar var Arnbjörg húsfreyja, f. 1766, d. 11. ágúst 1843 í Reynisholti, Björnsdóttir.
Móðir Björns á Loftsölum og kona Björns á Rofunum var Guðfinna húsfreyja, f. 23. október 1807 í Skammadal í Mýrdal, d. 28. nóvember 1887 í Fagradal þar, Bjarnadóttir frá Kálfholti í Holtum í Rang., bónda á Reyni í Mýrdal, f. um 1767, Þórðarsonar prests í Kálfholti Sveinssonar og konu séra Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur.
Móðir Guðfinnu húsfreyju á Rofunum og kona Bjarna á Reyni var Soffía húsfreyja frá Breiðabólsstað á Skógarströnd, f. 1776, d. 11. september 1861, Árnadóttir prests, þá á Breiðabólsstað á Skógarströnd, síðar í Holti undir Eyjafjöllum, f. 1732, d. 25. mars 1805, Sigurðssonar, og konu sr. Árna, Kristínar húsfreyju, f. 1743, d. 8. mars 1791, Jakobsdóttur.
Móðir Bjarna í Túni og kona Björns á Loftsölum (1866) var Elín húsfreyja, f. 13. júlí 1830 á Brekkum í Mýrdal, d. 18. febrúar 1908 á Loftsölum, Þórðardóttir bónda á Brekkum, f. 6. janúar 1798 á Brekkum, d. 16. maí 1862 þar, Ólafssonar bónda, síðast á Brekkum, f. 1759, d. 19. febrúar 1823 „í útveri suður á Leiru“ í Gullbr.s., Guðmundssonar, og barnsmóður Ólafs, Ingveldar húsfreyju á Fossi í Mýrdal, f. 1763 á Brekkum, Árnadóttur.
Móðir Elínar og fyrri kona Þórðar á Brekkum var Elín húsfreyja, f. 14. nóvember 1793 á Brekkum, d. 10. apríl 1846 þar, Jónsdóttir bónda á Brekkum, f. 1764, d. 30. október 1835 á Brekkum, Jónssonar og fyrri konu Jóns á Brekkum, Solveigar húsfreyju, f. 1764, Pálsdóttur.
Sigbjörn og Bjarni Björnsson í Túni voru albræður.
Kona Sigbjörns, (1904), var Þóranna Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. maí 1887, d. 9. júní 1920.
Börn Sigbjörns og konu hans Þórönnu:
1. Guðbjörn Jón Sigbjörnsson skipstjóri, f. 28. mars 1907, d. 1. mars 1942, fórst, er v.b. Þuríði formann hrakti upp í Selatanga austan Grindavíkur. Hann var kvæntur Maríu Kristjánsdóttur húsfreyju, f. 8. september 1909, á lífi 2013.
Barn þeirra Maríu var:
a) Þóranna Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. nóvember 1930, d. 28. janúar 2004.
2. Elínborg Guðríður Sigbjörnsdóttir, f. 3. september
1911, d. 11. ágúst 1995, gift Haraldi Hannessyni útgerðarmanni og skipstjóra, f. 24. júní 1911, d. 11. maí 2000.
Börn þeirra Haraldar:
a) Unnur Haraldsdóttir húsfreyja, f. 27. október 1933.
b) Ásta Haraldsdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1934.
c) Hannes Haraldsson skipstjóri, f. 4. október 1938.
d) Sigurbjörg Haraldsdóttir, f. 2. október 1939, d. 11. júlí 1942.
e) Sigurbjörg Haraldsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1945.
3. Þórarinn Ársæll Sigbjörnsson bóndi á Borgareyri í Mjóafirði eystra, fluttust til Eyja 1956 og bjó að Lundi, var verkstjóri, síðan til Grindavíkur, þar sem Þórarinn Ársæll var fiskimatsmaður; átti síðast heima í Garðabæ, f. 18. janúar 1914, d. 7. desember 1992, kvæntur Margréti Sigríði Svövu Sveinsdóttur húsfreyju frá Borgareyri, f. 27. apríl 1914, d. 18. september 2011.
Börn þeirra Margrétar:
a) Sveinn Þórarinsson, vélvirki, f. 10. nóvember 1935.
b) Ólöf Steinunn Þórarinsdóttir, húsfreyja og snyrtifræðingur í Bandaríkjunum, f. 7. febrúar 1947.
c) Jón Mar Þórarinsson kennari, f. 3. júni 1950.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Sigbjörn er rösklega meðalmaður á hæð, en vel þrekinn um herðar og sterklega byggður, enda vel fær maður að kröftum, skolhærður, bar snemma dökkt yfirvaraskegg, breiðleitur.
Hann er skapléttur og broshýr, vinhollur og afhaldinn, góður félagi, iðjusamur og allvel efnum búinn.
Sigbjörn var allgóður veiðimaður og var mikið við alls konar veiðar og bjargferðir, sérstaklega góður undirsetumaður við bjargsig, traustur og sterkur. Hann hefir farið um allt Heimalandið og víðast í úteyjar og getið sér hið besta mann- og drengskaparorð.
Hann var sjómaður góður, hefir og stundað alls konar landvinnu, en er múrsmiður að iðn, vellátinn í starfi.
Það hefir verið sagt að enginn hafi tárast, þegar Sigbjörn hætti fjallaferðum, nema fýllinn á Dalfjalli grét gleðitárum og fýllinn í Heimakletti hló og grét af gleði.
Sjá Sigbjörn Björnsson á Ekru.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
- Garður.is.
- Íslendingabók.is.
- Íslensk skip. Jón Björnsson. Iðunn 1990.
- Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1976.
- Manntöl.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
- Unnur Haraldsdóttir frá Fagurlyst.