„Eggert Gunnarsson (Víðivöllum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 16: | Lína 16: | ||
:''fjallamann góðan kalla. | :''fjallamann góðan kalla. | ||
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Eggert Gunnarsson (Víðivöllum)]] | |||
= Myndir = | |||
<Gallery> | <Gallery> | ||
Mynd:KG-mannamyndir 1725.jpg | Mynd:KG-mannamyndir 1725.jpg | ||
Lína 42: | Lína 28: | ||
</gallery> | </gallery> | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 14. ágúst 2013 kl. 11:37
Eggert Gunnarsson fæddist 4. september 1922 og lést 4. janúar 1991. Foreldrar Eggerts voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir. Eggert var sjöundi í hópi tólf alsystkina, en auk þeirra voru þrjú eldri hálfsystkini.
Eiginkona Eggerts var Jóna Guðrún Ólafsdóttir frá Víðivöllum. Þau bjuggu framan af á Víðivöllum en Eggert byggði hús á Sóleyjargötu 12 og bjuggu þau þar þaðan af. Þau áttu 6 börn; Ólaf, Svövu, Guðfinnu, Gunnar, Sigurlaugu og Óskar.
Eggert var skipasmiður og lærði hann þá iðn af föður sínum. Hann lauk sveinsprófi í iðninni árið 1944. Eggert tók við Dráttarbraut Vestmannaeyja þegar faðir hans þurfti að hætta vegna heilsu.
Óskar Kárason skrifaði formannavísu um Eggert:
- Eggert á lög nú leggur
- liðtækur skipasmiður,
- niður Gunnars á gniði
- gamla Erlingi damlar.
- Nær sá í fisk á færi,
- flæða, ef gefur næði.
- Færan má fírinn bæra
- fjallamann góðan kalla.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Eggert Gunnarsson (Víðivöllum)
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.