„Martea Guðlaug Pétursdóttir (Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Martea ''Guðlaug'' Pétursdóttir''' húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1. mars 1876 og lést 24. júní 1921.
Foreldrar hennar voru [[Pétur Benediktsson (Þorl...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:
Ingibjörg var systir Guðlaugar móður [[Þorlákur Guðmundsson (skósmiður)|Þorláks]] skósmiðs í Eyjum og [[Páll Sigurðsson (trésmiður)|Páls trésmiðs]] föður [[Jóhann Pálsson|Jóhanns skipstjóra]] hér, sem kvæntur er [[Ósk Guðjónsdóttir (Oddsstöðum)|Ósk Guðjónsdóttur]], dóttur Marteu ''Guðlaugar''.

Maður Marteu ''Guðlaugar'' var [[Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)|Guðjón Jónsson]] bóndi, líkkistusmiður og bjargveiðimaður á Oddsstöðum, fæddur 27. desember 1874, dáinn 25. október 1959. Hún var fyrri kona hans.

Maður Marteu ''Guðlaugar'' (1900) var [[Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)|Guðjón Jónsson]] bóndi, líkkistusmiður og bjargveiðimaður á Oddsstöðum, fæddur 27. desember 1874, dáinn 25. október 1959. Hún var fyrri kona hans.

Martea ''Guðlaug'' stýrði fjölmennu heimili. M.a. hvíldi á henni að annast reitingu og aðra meðferð bjargveiðinnar og matartiltekt fyrir hverja sókningu á veiðitímanum.

Martea ''Guðlaug'' stýrði fjölmennu heimili. M.a. hvíldi á henni að annast reitingu og aðra meðferð bjargveiðinnar og matartiltekt fyrir hverja sókningu á veiðitímanum.

Hún veiktist af krabbameini og barðist við sjúkdóminn hátt í áratug, áður en yfir lauk.

Hún veiktist af krabbameini og barðist við sjúkdóminn hátt í áratug, áður en yfir lauk.

Útgáfa síðunnar 14. mars 2013 kl. 13:12

Martea Guðlaug Pétursdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1. mars 1876 og lést 24. júní 1921.
Foreldrar hennar voru Pétur bóndi í Þorlaugargerði Benediktsson frá Búðarhólshjáleigu í A-Landeyjum og síðari kona Péturs Ingibjörg Sigurðardóttir frá Pétursey í Mýrdal.

Sigurður faðir Ingibjargar í Þorlaugargerði var Pálsson, Jónssonar prests „kögguls“ Jónssonar. Páll var því bróðir séra Jóns AustmannsOfanleiti, en kona séra Jóns „kögguls“ og móðir þeirra var Guðný dóttir séra Jóns Steingrímssonar og fyrri konu hans Þórunnar Hannesdóttur Scheving.
Ingibjörg var systir Guðlaugar móður Þorláks skósmiðs í Eyjum og Páls trésmiðs föður Jóhanns skipstjóra hér, sem kvæntur er Ósk Guðjónsdóttur, dóttur Marteu Guðlaugar.

Maður Marteu Guðlaugar (1900) var Guðjón Jónsson bóndi, líkkistusmiður og bjargveiðimaður á Oddsstöðum, fæddur 27. desember 1874, dáinn 25. október 1959. Hún var fyrri kona hans.
Martea Guðlaug stýrði fjölmennu heimili. M.a. hvíldi á henni að annast reitingu og aðra meðferð bjargveiðinnar og matartiltekt fyrir hverja sókningu á veiðitímanum.
Hún veiktist af krabbameini og barðist við sjúkdóminn hátt í áratug, áður en yfir lauk.
Börn Marteu Guðlaugar og Guðjóns voru:
1. Kristófer, fæddur 27. maí 1900, dáinn 11. apríl 1981.
2. Pétur Guðjónsson, fæddur 12. júlí 1902, dáinn 21. ágúst 1982.
3. Jón, fæddur 2. ágúst 1903, dáinn 12 febrúar 1967.
4. Herjólfur Guðjónsson, fæddur 25. desember 1904, dáinn 31. janúar 1950.
5. Fanný Guðjónsdóttir, fædd 4. mars 1906, dáin 26. nóvember 1994.
6. Njála, fædd 22. desember 1909, dáin 16. apríl 1997.
7. Guðmundur, fæddur 28. janúar 1911, dáinn 18. desember 1969.
8. Ósk, fædd 15. júlí 1914, dáin 1. febrúar 2006.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Heimaslóð.
• Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
• Manntöl.
• Íslendingabók.is.
• Garður.is.
• Bára Jóney Guðmundsdóttir.