„Guðjón Hafliðason (Skaftafelli)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 17: | Lína 17: | ||
Mynd:Mynd-Mynd-KG-mannamyndir 17796.jpg | Mynd:Mynd-Mynd-KG-mannamyndir 17796.jpg | ||
Mynd:Mynd-Mynd-KG-mannamyndir 17797.jpg | Mynd:Mynd-Mynd-KG-mannamyndir 17797.jpg | ||
Mynd:KG-mannamyndir 3393.jpg | |||
</gallery> | </gallery> |
Útgáfa síðunnar 18. júlí 2012 kl. 09:14
Guðjón Hafliðason fæddist 8. júlí 1889 að Fjósum í Mýrdal og lést 13. júlí 1963. Eiginkona Guðjóns var Halldóra Þórólfsdóttir. Áttu þau 11 börn; Ingólf, Trausta, Guðbjörgu, Auði, Harald, Rebekku, Elísabetu, Óskar, Önnu, Ester og Hafliða. Þau bjuggu í húsinu Skaftafell við Vestmannabraut og voru fjölskyldumeðlimir gjarnan kenndir við húsið.
Guðjón fór til Vestmannaeyja árið 1911 og gerðist háseti á Íslending hjá Friðriki Jónssyni og var með honum til ársins 1914. Þá byrjar Guðjón formennsku á Mýrdæling I og var með þann bát í fimmtán vertíðir. Eftir það kaupir hann Mýrdæling II og var með hann til ársins 1936. Eftir það hætti hann formennsku.
Myndir
Heimildir
Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
Ljósmyndasafnið.