„Ingibjörg Johnsen“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
Ingibjörg sem var oftast kölluð Imba Johnsen, rak blóma- og gjafavöruverslun í Eyjum í um 50 ár. Hún vann að æskulýðs- og bindindismálum með hundruðum ungmenna í Eyjum. Hún gegndi auk þess margvíslegum trúnaðarstörfum í félagsmálum og stýrði starfi templara um áratuga skeið og starfaði með Stórstúku Íslands, landssamtökum bindindismanna. Ingibjörg vann við barnavernd, tók virkan þátt í starfi kirkju og [[KFUM & K]] og sinnti þannig margs konar þjónustu í Vestmannaeyjum fyrir hugsjónir sínar. | Ingibjörg sem var oftast kölluð Imba Johnsen, rak blóma- og gjafavöruverslun í Eyjum í um 50 ár. Hún vann að æskulýðs- og bindindismálum með hundruðum ungmenna í Eyjum. Hún gegndi auk þess margvíslegum trúnaðarstörfum í félagsmálum og stýrði starfi templara um áratuga skeið og starfaði með Stórstúku Íslands, landssamtökum bindindismanna. Ingibjörg vann við barnavernd, tók virkan þátt í starfi kirkju og [[KFUM & K]] og sinnti þannig margs konar þjónustu í Vestmannaeyjum fyrir hugsjónir sínar. | ||
== Myndir == | |||
<Gallery> | |||
Mynd:KG-mannamyndir224.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir813.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir814.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 1095.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 5309.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 16770.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 16902.jpg | |||
Mynd:Mynd-KG-mannamyndir 17126.jpg | |||
Mynd:Mynd-KG-mannamyndir 17127.jpg | |||
Mynd:Saga Vestm., E., II., 80db.jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 12. júní 2012 kl. 13:49
Ingibjörg Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 1. júlí 1922 og lést 21. júlí 2006. Foreldrar hennar voru Margrét Marta Jónsdóttir (fædd að Kirkjulandi í Landeyjum 5. mars 1895, dáin 15. maí 1948) og Árni J. Johnsen (fæddur í Frydendal 13. október 1892, dáinn 15. apríl 1963).
Systkini Ingibjargar voru sjö og í aldursröð: Gísli fæddur í Frydendal 18. október 1916, Anna Svala fædd á sama stað 19. október 1917, Jón Hlöðver fæddur á sama stað 11. febrúar 1919, Áslaug fædd í Stakkholti 10. júní 1927 og Sigfús Jörundur fæddur í Árdal (við Hilmisgötu 5) 25. nóvember 1930. Það hús byggði faðir þeirra systkina. Guðfinnur Grétar og Jóhannes eru Imbu samfeðra, móðir þeirra hét Olga Karlsdóttir.
Ingibjörg giftist Bjarnhéðni Elíassyni frá Rangárvöllum árið 1945. Börn Ingibjargar og Bjarnhéðins eru Árni, Margrét Áslaug, Þröstur og Elías Bjarnhéðinn. Ingibjörg ólst upp í Suðurgarði en ásamt manni sínum bjó hún í Ásnesi.
Ingibjörg sem var oftast kölluð Imba Johnsen, rak blóma- og gjafavöruverslun í Eyjum í um 50 ár. Hún vann að æskulýðs- og bindindismálum með hundruðum ungmenna í Eyjum. Hún gegndi auk þess margvíslegum trúnaðarstörfum í félagsmálum og stýrði starfi templara um áratuga skeið og starfaði með Stórstúku Íslands, landssamtökum bindindismanna. Ingibjörg vann við barnavernd, tók virkan þátt í starfi kirkju og KFUM & K og sinnti þannig margs konar þjónustu í Vestmannaeyjum fyrir hugsjónir sínar.
Myndir
Heimildir
- Morgunblaðið, 29. júlí 2006, minningargreinar.