„Blik 1978/Húsanöfn í Vestmannaeyjum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: Efnisyfirlit 1978 ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON ==Húsanöfn í Vestmannaeyjum== <br> Frá upphafi fastrar byggðar í Vestmannaeyjum var ...)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 280: Lína 280:
*11 Heiðartún<br>
*11 Heiðartún<br>
* Stuðlaberg (Áður hét hús þetta Oddgeirshólar) <br>
* Stuðlaberg (Áður hét hús þetta Oddgeirshólar) <br>


'''''24''''' '''''Illugagata'''''<br>
'''''24''''' '''''Illugagata'''''<br>

Útgáfa síðunnar 19. desember 2009 kl. 00:03

Efnisyfirlit 1978



ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON

Húsanöfn í Vestmannaeyjum


Frá upphafi fastrar byggðar í Vestmannaeyjum var hverju íbúðarhúsi gefið nafn, sem húsbyggjandinn valdi oft frá æskustöðvum sínum. Stundum kaus hann á íbúðarhúsið sitt nafnið á æsku- eða bernskuheimili sínu, t.d. nafn jarðarinnar þar sem hann hafði alizt upp. Stundum fékk konan að ráða húsnafninu og valdi húsinu þá nafn frá æskusveit sinni.
Á seinni árum hefur þessi siður fallið niður og hvert íbúðarhús í kaupstaðnum fær númer í stað nafns. Við þessu er ekkert að segja, en það er sögulegt atriði, að einhvers staðar sé til skrá yfir þessi húsanöfn, sem óðum eru að hverfa, — skrá, sem almenningur hefur greiðan aðgang að til fróðleiks og ánægju. Þess vegna birtir Blik, ársrit Vestmannaeyja, þessa skrá hér að þessu sinni.
Það er ætlan mín, að Byggðarsafn Vestmannaeyja hafi til nota heildarkort af Vestmannaeyjakaupstað, þar sem fólk getur áttað sig á því, hvar hin númeruðu íbúðarhús hafi staðið, þó að þau séu mörg hver horfin af sjónarsviðinu. Samtals eru þetta um 460 húsanöfn.
Fyrsti maður í Eyjum, sem hóf að safna þessum nöfnum, var frú Ingibjörg húsfreyja Jónsdóttir í Þórlaugargerði. Hún gaf undirrituðum skrá sína og síðan hefi ég haldið þessu starfi hennar áfram með hjálp velviljaðra manna. Þá hefi ég einnig borið þessa skrá saman við húsanafnaskrá bæjarfélagsins, sem byggingarfulltrúinn Valtýr Snæbjörnsson hefur góðfúslega lánað mér. Finni lesendur okkar villur í skrá þessari, eru þeir vinsamlegast beðnir að koma leiðréttingu til mín, því að alltaf skal hafa það heldur, sem sannara reynist.

Þ.Þ.V.

1 Austurvegur (Áður hét stígur þessi Vilborgarstaðavegur).

  • Nr.
  • 5 Laufás
  • 24 Svanhóll
  • 26 Háigarður (Ein af Vilborgarstaðajörðunum)
  • 28 Hlaðbær (Ein af Vilborgarstaðajörðunum)
  • 29 Vilborgarstaðir (Miðhlaðbær)
  • 30 Skáli (Áður jarðarhús á Vilborgarstöðum)
  • 31 Vilborgarstaðir (Norðurbær)
  • 33 Vallartún


2 Ásavegur

  • Nr.
  • 2 Holt
  • 10 Hoffell
  • 11 Sóli
  • 33 Vesturhús vestri (Jarðarhús, sem var rifið 1971)
  • 35 Vesturhús eystri (Jarðarhús, sem var rifið til grunna 1969)


3 Bakkastígur

  • Nr.
  • 1 Höfn (Norðar og vestar en þetta hús stóðu Miðhús (jarðarhús)
  • 5 Einbúi
  • 8 Gjábakki vestari (Jarðarhús)
  • 10 Sætún
  • 17 Gjábakki eystri (Jarðarhús)
  • 19 Brimnes


4 Bárustígur

  • Nr.
  • 2 Drífandi (Verzlunarhús Kaupfélagsins Drífanda frá 1921—1931.
Sjá Blik 1976, bls. 13—44)
  • 3 Verzlunarhús frú Önnu Gunnlaugsson. Áður var þar Verzlun E. Jakobsen
(Sjá Blik 1972, bls. 132)
  • 5 Reynir
  • 6 Verzlunarhús Kaupfélags Vestmannaeyja. Kaupfélag Eyjabúa hóf byggingu þessa húss árið 1933. Stuttu síðar geispaði það golunni. Þá keypti Kaupfélag verkamanna tóftina af Útvegsbanka Íslands. Það var árið 1934.

Það flutti síðan verzlun sína í hið nýbyggða hús árið 1939. Þegar Kaupfélag Vestmannaeyja var stofnað á rústum K/f verkamanna árið 1950, keypti það verzlunarhús þetta af S.Í.S.

  • 7 Verzlunarhús Kaupfélags Vestmannaeyja. Áður átti Neytendafélag Vestmannaeyja þetta hús og rak þar verzlun sína. Þegar stjórnendur þess gáfust upp við reksturinn og fengu K/f Vestmannaeyja til þess að yfirtaka fyrirtækið „með húð og hári“, skuldum og eignum, varð húsið eign þess.
  • 9A Hólshús
  • 9B Hólshús (Gamla tómthúsið)
  • 11 Bifröst
  • 13 Vík
  • 14 Múli
  • 15 Bygging Sparisjóðs Vestmannaeyja og norðan við hana með sama númeri verzlunarhús Verzlunarinnar. Árið 1923 byggði aðventistapresturinn Olsen á lóð þessari hið svokallaða Baðhús til þrifa og heilsubóta Eyjabúum og vertíðarfólki. Þetta var mikilvægt og markvert menningarframtak í bænum með því að baðtæki voru sjaldgæf þá í heimilum Eyjafólks og aðstaða til slíkra þrifa ekki algeng.

Sparisjóður Vestmannaeyja keypti syðri hluta baðhússins með lóðarréttindum árið 1959, braut til grunna hið gamla baðhús, sem þá hafði ekki verið í notkun um árabil, og byggði þar Sparisjóðsbygginguna í kaupstaðnum á árunum 1960—1964. Síðar byggðu hjónin frú Sigurbjörg Ólafsdóttir og Magnús Kristjánsson verzlunarhús við norðurgafl Sparisjóðsbyggingarinnar, þar sem Verzl. Mozart er nú til húsa.

  • 16 Fagridalur
  • 18 Sandprýði


5 Bessastígur

  • Nr.
  • 4 Kirkjuhóll
  • 8 Skógar


6 Birkihlíð

  • Nr.
  • 12 Kirkjuland
  • 21 Ásbyrgi


7 Boðaslóð

  • Nr.
  • 7 Þórshamar


8 Brekastígur

  • Nr.
  • 3 Sólberg
  • 4 Minni-Núpur
  • 5A Reykjadalur
  • 5B Oddhóll
  • 6 Heiðarbýli
  • 7A Árbær
  • 7B Eyvindarholt
  • 7C Efri-Hvoll
  • 8 Heiðarból
  • 10 Hæll (að Hæli)
  • 11A Hallormsstaður
  • 11B Háiskáli
  • 12 Vesturholt
  • 14 Sólheimatunga
  • 15A Byggðarendi
  • 15B Auðstaðir
  • 15C Engidalur
  • 16 Heiðarhóll
  • 17 Betanía
  • 18 Núpsdalur
  • 20 Hnjúkur
  • 21 Sóleyjartunga
  • 22 Baldur
  • 24B Elding
  • 26 Bjarmahlíð
  • 28 Háls
  • 29 Einidrangur
  • 30 Hofsstaðir
  • 36 Arnarnes


9 Búastaðabraut

  • Nr.
  • 2 Nýibær (Jarðarhús)


10 Faxastígur

  • Nr.
  • 3 Hlíðarás
  • 4 Brekka
  • 6 Betel (Safnaðarhús Hvítasunnusafnaðarins, vígt 1. jan. 1926)
  • 7B Uppsalir (Hús feðganna Sigmundar og Finns, og nú Flosa Finnssonar skipasmiðs)
  • 8B Melstaður
  • 10 Arnarhóll
  • 12 Reynisholt
  • 14 Hvíld
  • 15 Höfðabrekka
  • 17 Áshóll
  • 18 Miðbær
  • 19 Brattland
  • 20 Berjanes
  • 21 Sólbrekka
  • 22 Húsadalur
  • 23 Engey (Hús þetta var rifið til grunna stuttu eftir að gosi lauk) *24 Rafnseyri (Áður var hús þetta nr. 15 við Kirkjuveg. Það var flutt árið ?)
  • 27 Blómsturvellir


11 Fjólugata

  • Nr.
  • 2 Arnarstapi


12 Flatir

  • Nr.
  • 10 Bjarmaland
  • 12 Bakki
  • 14 Oddeyri
  • 16 Goðaland


13 Formannabraut (Áður hét gatan Formannasund)

  • Nr.
  • 4 Óskasteinn (Húsið byggt á lóð tómthússins Kuðungs)
  • 5 Reykhúsið
  • 7 Ólakot


14 Hásteinsvegur

  • Nr.
  • 2 Heiðardalur
  • 3 Sólbakki
  • 6 Kiðaberg (Kiðjaberg)
  • 10 Seljaland
  • 11 Framtíð
  • 12 Búrfell
  • 13 Mörk
  • 14 Hólar
  • 15B Dyrhólar
  • 16 Hekla
  • 17 „Fjósið“
  • 18 Laufholt
  • 20 Eyjarhólar
  • 21 Höfði (Áður hét húsið Núpur)
  • 22 Kanastaðir
  • 24 Litlu-Hólar (Litlhólar)
  • 30 Reykhólar
  • 32 Málmey
  • 34 Fagranes
  • 36 Héðinshöfði
  • 38 Nikhóll (Húsið hét áður Skildinganes)
  • 40 Hrafnabjörg
  • 43 Pétursey


15 Heiðarvegur

  • Nr.
  • 2 „Vosbúð“
  • 6 Gata (Götuhús)
  • 10 Vörubílastöð Vestmannaeyja
  • 15 Hótel Vestmannaeyjar (Áður Hótel H.B.)
  • 17 Félagsheimili Vestmannaeyjakaupstaðar (Goodtemplarar í Eyjum byggðu þetta hús á árunum 1948—1950.
  • 27 Breiðabólstaður
  • 29 Stafnsnes
  • 32-44 „Verkamannabústaðir“
  • 35(39) Ljósaland
  • 41 Hulduland
  • 51-61 „Kennarabústaðir“


16 Heimagata

  • Nr.
  • 1 Árnabúð (Húsið var fyrst verzlunarhús Árna Sigfússonar kaupmanns frá Löndum, síðar hús Íslandsbanka og svo Útvegsbanka Íslands. Síðast vörugeymsluhús Haralds Eiríkssonar og Co.)
  • 2A Þingholt (Áður var húsið nr. 5 við Kirkjuveg)
  • 2B Herjólfsbær (Félagsheimili Oddfelló-reglunnar í bænum)
  • 3A Borg (Barnaskóla- og þinghús Eyjabúa frá 1904—1917. Síðar Bíó-hús og svo pósthús og síðast íbúðarhús á báðum hæðum)
  • 3B Nýjahús
  • 4 Tunga (Reyndalsbakarí). (Magnúsarbakarí, jafnframt Hótel Berg)
  • 7 Dvergasteinn (Þetta hús, sem hlaðið var upp úr höggnu móbergi sumarið 1883 eins og Austurbúðin árið 1880, var barnaskólahús Vestmannaeyjakauptúns á árunum 1883—1904. Eftir það íbúðarhús, sjá Blik 1962)
  • 8 Batavía (Áður hét tómthús þetta Brandshús)
  • 9 Merkisteinn
  • 11 Hagi
  • 12A Hvoll (Gamli Hvoll. Sjá nr. 17 við Urðaveg)
  • 12B Blátindur
  • 14 Gilsbakki
  • 17 Bjarnleifshús (Hús þetta var rifið fyrir um það bil 40 árum)
  • 18 Bólstaður
  • 20 Karlsberg
  • 22 Bær
  • 26 Nýjaland
  • 27 Bræðratunga
  • 28 Herðubreið
  • 29 Ásgarður
  • 33 Miðey
  • 34 Litla-Heiði („Gamla-Heiði“)
  • 39 Bólstaðarhlíð
  • 40 Garðshorn
  • 42 Vallanes


17 Helgafellsbraut

  • Nr.
  • 5 Heiðarhvammur
  • 10 Staður
  • 33 Hvassafell


18 Herjólfsgata

  • Nr.
  • 2 Geitháls
  • 5 Grundarhóll


19 Hilmisgata

  • Nr.
  • 3 Haukagil
  • 5 Árdalur
  • 7 Ólafsvík
  • 11 Arnardrangur
  • 17 Akóges (Fundahús Agógesfélagsins)

20 Hólagata

  • Nr.
  • 7 Hólatunga


21 Hrauntún

  • Nr.
  • 20 Ketilsstaðir


22 Hvítingavegur

  • Nr.
  • 2 Haukfell
  • 3 Goðafell
  • 5 Fagrafell
  • 8 Snæfell
  • 10 Hljómskálinn
  • 12 Happastaðir


23 Höfðavegur

  • Nr.
  • 11 Heiðartún
  • Stuðlaberg (Áður hét hús þetta Oddgeirshólar)


24 Illugagata

  • Nr.
  • 54 Lyngholt
  • 60 Hellisholt
  • 61 Saltaberg (Áður var hús þetta nr. 19 við Höfðaveg)
  • 63 Lyngberg


25 Kirkjubæjabraut

  • Nr.
  • 11 Goðasteinn
  • 12 Presthús (Presthús voru áður fyrr Jarðarhús)


26 Kirkjuvegur

  • Nr.
  • 8A Framtíðin (Verzlunarhús)
  • 8B Dagsbrún
  • 9A Steinholt
  • 9B Byggðarholt
  • 9C Eiðar
  • 10 Gróuhús
  • 11 Borgarhóll
  • 12 Bókabúðin (Verzlun Þorsteins Jónssonar (Johnson) og svo sonar hans Óskars Johnson). Á þessari lóð stóð áður tómthúsið Gata, þar sem hreppurinn geymdi þurfalinga sína.
  • 13 Grafarholt
  • 14 Garðhús (Áður hét hús á þessari lóð Garðbær)
  • 15A Einarshöfn
  • 15B Rafnseyri (Fyrir mörgum árum var hús þetta flutt á lóð nr. 24 við Faxastíg. Það stóð vestan við Einarshöfn og þótti standa of nálægt gamla rafstöðvarhúsinu, sem síðast var skólahús Véstjóraskóla Vestmannaeyja og hvarf undir hraun 1973.
  • 17 Gimli
  • 19 Þinghóll
  • 20 „Franski spítalinn“. (Frakkar byggðu þetta sjúkrahús árið 1906. Rekstri þess var lokið, þegar Gísli J. Johnsen afhenti kaupstaðnum til nota „nýja sjúkrahúsið“, (1927), sem nú er ráðhús Vestmannaeyjakaupstaðar.
  • 21 Brynjólfsbúð (Verzlunarhús Brynj. Sigfússonar, kaupmanns og organista. Sjá Blik 1972)
  • 22 Samkomuhús Vestmannaeyja (Frá 1893—1936 stóð á lóð þessari „Gamla Goodtemplarahúsið“, sem byggt var upprunalega á Mylluhól í Stakkagerðistúni. Þar stóð vindmylla eða kornmylla þeirra Stakkagerðisbænda til ársins 1890 eða þar um bil.
  • 23 Hús Útvegsbanka Íslands. Áður stóð þarna í námunda íbúðarhúsið Völlur, sem flutt var á sínum tíma á lóð nr. 30 við Miðstræti
  • 27 Sólvellir (Áður hét hús þetta Höjdalshús, kennt við útlendan mann, sem byggði það)
  • 28 Sunnudalur
  • 29 Sólvangur
  • 31 Grund (Tómthúsið Grund, sem byggt var rétt eftir aldamótin, var rifið árið 1975)
  • 35 Dalur
  • 39A Stóri-Hvammur
  • 39B Litli-Hvammur (Nú er hús þetta nr. 14 við Sólhlíð)
  • 40 Stakkagerði eystra (Húsið var rifið til grunna árið ????)
  • 41 Langi-Hvammur
  • 43 Fagri-Hvammur
  • 45 Breiðablik
  • 49 Ás
  • 50 Ráðhúsið (Sjúkrahús kaupstaðarins frá 1927—1973)
  • 53 Staðarfell
  • 57 Staðarhóll
  • 59 Litlaland
  • 64 Raftsholt
  • 65 Kirkjuhvoll
  • 66 Reynivellir
  • 70 Hergilsey
  • 82 Breiðavík
  • 84 Drangey


27 Landagata

  • Nr.
  • 3A Ingólfshvoll
  • 3B Brautarholt
  • 4 Hraun
  • 5B Sólnes (Áður hét hús þetta Hnausar)
  • 9 Hraungerði
  • 11 Stóru-Lönd
  • 15A Vestri-Lönd
  • 15B Eystri-Lönd eða Litlu-Lönd
  • 17 Akur
  • 20 Gíslholt
  • 22 Skálholt (Hið eldra)
  • 25 Hof
  • 30 Vatnsdalur


28 Miðstrœti

  • Nr.
  • 3 London
  • 4 Bjarmi (Síðast var hús þetta verzlunarhús Helga Benediktssonar. Áður hét húsið Frydendal, — byggt 1886—1887. Það var verzlunarhús K/f Bjarma frá stofnun 1914. Hús þetta var rifið til grunna haustið 1975)
  • 5A Hóll
  • 5B Hlíðarhús. Hús þetta var rifið 1975(?)
  • 9A Strönd
  • 9B Hruni
  • 9C Veggur (Áður hét hús þetta Litlakot)
  • 12 Skjaldborg (Vörugeymslu- og veiðarfærahús)
  • 14 Úrval (Verzlunar- og skrifstofuhús)
  • 15 Steinn (Áður var hús þetta nr. 10 við Vesturveg)
  • 16 Litlibær (Áður var Litlibær nr. 35 við Strandveg)
  • 18 Fögruvellir (Áður nr. 39C við Strandveg)
  • 19 Hólmur (Áður nr. 16 við Vesturveg)
  • 20 Skarð (Áður nr. 43C við Strandveg)
  • 21 Varmahlíð (Áður nr. 18 við Vesturveg)
  • 22 Lundur (Áður nr. 12 við Vesturveg)
  • 24 Sunnuhvoll
  • 26 Landakot (Áður nr. 51 við Strandveg)
  • 28 Sigtún (Áður nr. 53 við Strandveg)
  • 30 Völlur (Hús þetta var upprunalega byggt 1918 á lóð nr. 15 við Vestmannabraut)


29 Njarðarstígur

  • Nr.
  • 1 Þingvellir (Áður hét hús þetta Vísir. Þá var þar rekin samnefnd verzlun. Í þessu húsi rak Gísli J. Johnsen pósthús Vestmannaeyja um árabil, þegar hann var póstmeistari í Eyjum)
  • 2 Boston (Þetta hús var byggt um eða rétt eftir aldamótin síðustu. Þá var það brauðbúð. Síðan var það verzlunarhús E. Jakobsen. Árið 1911 var þar rekin fyrsta símstöðin í Eyjum (Sjá Blik 1972). Árið 1924 hóf Einar Sigurðsson þar verzlunarrekstur, og rak þar verzlun í nokkur ár. (Sjá Blik 1972)
  • 3 Bræðraborg
  • 4 Verzlunarhús (Upprunalega var það verzlunarhús Verzlunarfélags Vestmannaeyja, en síðar verzlunarhús Helga Benediktssonar)
  • 5 Stíghús
  • 6 Sveinsstaðir
  • 10 Pálsborg (Vörugeymslu- og veiðarfærahús K/f Bjarma og síðar Helga Benediktssonar kaupmanns og útgerðarmanns)
  • 15 Sólheimar
  • 16 Klöpp (Íbúðarhús þetta var flutt austur á Urðir árið 1969 og gert þar að hesthúsi. — Hrossarækt!)
  • 17 Nýborg (Íbúðarhús þetta var byggt 1876. Sjá Blik 1960)
  • 18 Mandal(ur)


30 Sjómannasund

  • Nr.
  • 3 Björgvin (Tómthús þetta var byggt árið 1899)
  • 5 Garðstaðir (Húsið var rifið árið 1969)
  • 8 Sjávarborg
  • 10A Sjávargata
  • 10B Sjónarhóll
  • 12 Skel
  • Kuðungur


31 Skildingavegur

  • Nr.
  • 8B Sjávarbrún

32 Sólhlíð

  • Nr.
  • 14 Litli-Hvammur (Áður nr. 39B við Kirkjuveg)
  • 17 Tindastóll
  • 19 Heiði (Stóra-Heiði). Hús þetta var brotið niður til grunna árið 1976 sökum skemmda á því í eldgosinu).


33 Skólavegur

  • Nr.
  • 1 Vöruhús Vestmannaeyja
  • 2 Skrifstofur Flugfélags Íslands og verzlunarhús. (Upprunalega verzlunarhús K/f alþýðu, byggt 1933)
  • 3 Hlíðarendi
  • 4A Straumur
  • 4B Hlíð
  • 7 Ásnes
  • 8 Búðafell
  • 10 Hörgsholt
  • 11 Grundarbrekka
  • 12 Hrísnes
  • 14 Ármót
  • 17 Stakkagerði vestara
  • 18 Mjölnir
  • 19 Ráðagerði
  • 21A Geysir
  • 21B Alþýðuhúsið (Samkomuhús verkalýðsfélaganna)
  • 21C Aðalból
  • 22 Þrúðvangur
  • 23 Nýhöfn
  • 24 Varmadalur
  • 26 Bakkaeyri
  • 27 Grímsstaðir
  • 29 Arnarfell
  • 31 Sléttaból
  • 32 Vegberg
  • 33 Hamar
  • 34 Hrófberg (Húsið var rifið fyrir mörgum árum)
  • 36 Eskihlíð
  • 37 Þingeyri
  • 38 Hólland (?)
  • 41 Búland
  • 45 Kirkjudalur
  • 47 Ásar


35 Strandvegur

  • Nr.
  • 1 Kornhóll
  • 2 Kornloftið (Þetta aldraða hús einokunarverzlunarinnar var byggt 1830)
  • 5 Garðurinn (Þetta íbúðarhús byggði K/f Fram árið 1923)
  • ? Jakobshús (Görn)
  • ? Godthaab (Síðast skrifstofuhús Einars Sigurðssonar útgerðarmanns og eiganda Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja. Það var upprunalega byggt 1833. Það var pósthús 1904—????, eftir að G.J.J. gerðist póstmeistari í Eyjum).
  • 18 Geirseyri (Hús þetta stóð rétt austan við Gömlu-Bæjarbryggjuna og sneri stafni að henni. Fyrsti eigandi þess var K/f Herjólfur. Samvinnufélag þetta byggði það á árunum 1909—1910.
  • 20 „Svarta húsið“, (Bryggjuhúsið), sem stóð vestan við Gömlu-Bæjarbryggjuna gegnt Geirseyri. Það var byggt 1905. Norðmaðurinn Lyder Höydal lét byggja þetta hús, en hann rak verzlun í Eyjakauptúni nokkur ár.
  • 22 Andrahús (Sjóhús, kró)
  • 37 Brimberg
  • 39A Strandberg
  • 41 Sjólyst (Húsið var rifið í marzmán. 1976)
  • 42 Gefjun
  • 43A Valhöll
  • 43B Landlyst (Vesturhluti þessa húss, sem er nú annað elzta hús bæjarins, var byggður 1848. Það var „Stiftelse“, — fæðingarstofnunin nafnkunna, þar sem orsakir ginklofans voru rannsakaðar. Austurhluti hússins mun byggður tveimur árum síðar. Landlyst var bústaður Þorsteins héraðslæknis Jónssonar frá

1867—1905)

  • 43C Skarð (Nú nr. 20 við Miðstræti).
  • 45-47 „Smiður“, áður trévinnuverkstæði og verzlunarhús. Nú félagsheimili Oddfellóreglunnar í Eyjum & skrifstofuhús, verzlunarhús.
  • 49 „Neisti“, (Raftækjaverkstæði. Þetta hús var upprunalega frystihús, sem S.Í.S. byggði og rak í nokkur ár).
  • 50 Sæból (Hús þetta var rifið fyrir hálfri öld eða þar um bil)
  • 51 Landakot (Nú er hús þetta nr. 26 við Miðstræti)
  • 53 Sigtún (Nú er húsið nr. 28 við Miðstræti)
  • 55 Fagurhóll
  • 61 Ólafsvellir
  • 63 Sandur
  • 65 Vosbúð (?)
  • 75 Vélsmiðjan Magni h/f


35 Strembugata

  • Nr.
  • 6 Berghólar


36 Suðurvegur

  • Nr.
  • 22 Víðivellir


37 Túngata

  • Nr.
  • 15 Kirkjulundur
  • 22 Mosfell


38 Urðavegur

  • Nr.
  • 2 Sjóbúð (Hús þetta lét G.J.J. byggja rétt eftir síðustu aldamót. Það var rifið árið 1926. Vörugeymsluhús og sjóbúð)
  • 4 Vegamót (Áður hét hús þetta Nýi-Kastali til aðgreiningar frá hinum enska Kastala frá 15. öld eða svo, sem Englendingar byggðu, eftir að þeir urðu alls ráðandi um verzlunarrekstur í Eyjum)
  • 5 Vinaminni
  • 6 Smiðja Þorsteins Steinssonar; (Áður Thomsenssmiðjan)
  • 7 Gröf (Hús þetta var brennt til ösku fyrir mörgum árum sökum sjúkdóms, sem þar var talinn liggja í landi)
  • 8 Steinar
  • 9 Sæberg (Á húslóð þessari hét tómthús fyrst Vanangur, síðar Péturshús)
  • 11 Reykholt (Hið yngra)
  • 15 Reykholt (Hið eldra)
  • 16 Fagurlyst (vestri)
  • 17A Hvoll (Nýi-Hvoll til aðgreiningar frá nr. 12 við Heimagötu)
  • 17B Hvoll (Litli-Hvoll, bakhús)
  • 18 Fagurlyst (eystri)
  • 20 Ekra
  • 24 Bergstaðir
  • 28A Húsavík (Annar helmingur hússins)
  • 28B Breiðabólstaður (Hinn helmingur hússins)
  • 34 Hjálmholt
  • 36 Skjaldbreið
  • 41 Eiríkshús
  • 43 Skálholt (Hið yngra. Síðast var þar rekið elliheimili kaupstaðarins)


39 Vallargata

  • Nr.
  • 6 Bjarkarlundur


40 Vestmannabraut (Áður hét brautin Breiðholtsvegur)

  • Nr.
  • 1 Brúarhús („Hornið“)
  • 3 Kalmanstjörn
  • 5 Samkomuhús K.F.U.M. og K.
  • 6 Jaðar
  • 8 Geirland
  • 9 Dalbær
  • 10 Lágafell
  • 11 Haukaberg
  • 12 Hólmgarður (Þetta hús var rifið fyrir nokkrum árum)
  • 13A Miðgarður
  • 13B Hellir
  • 15 Völlur. Íbúðarhús þetta var flutt af lóðinni árið 1956, þegar Útvegsbanki Íslands þurfti að fá lóðlóðina og breyta henni í bifreiðastæði bifreiðastæði. Húsið er nú nr. 30 við við Miðstræti.
  • 22 Pósthús og símstöð (Miðstöð)
  • 23 Georgsbúð (Búðin kennd við kaupmanninn, sem byggði hana upprunalega, Georg Gíslason. Nú er hér skóverzlun Axels Lárussonar)
  • 24 Lyfjabúð (Apótekið) (Húsið hét upphaflega Stakkahlíð, byggt á fyrstu árunum eftir aldamótin)
  • 24 Mundahús
  • 25 Sunnuhóll
  • 26 Garðsauki
  • 27 Þórshamar (Hús þetta hét öðru nafni Nýjabíó í daglegu tali fólks, því að þarna rak Þorsteinn Jónsson (Johnson) frá Jómsborg kvikmyndahús um árabil. Síðast var hús þetta vörugeymsluhús Heildv. H. Sigmundsson h/f. Það brotnaði undan þunga gjóskunnar á tímum eldgossins 1973)
  • 29 Hrafnagil
  • 30 Viðey
  • 31 Kaupangur
  • 32 Garðar
  • 33 Víðidalur
  • 34 Fell
  • 35 Þorvaldseyri
  • 36 Sandfell
  • 37 Gunnarshólmi (Síðar var Magnúsarbakarí byggt á lóðinni)
  • 37B Marland (Geymsluhús Einars Sigurðssonar)
  • 38 Mjólkursamsalan (Hús Mjólkursamsölunnar í Rvk.)
  • 40 Skuld (Hús þetta var rifið árið 1971(?)
  • 42 Nýlenda
  • 44 Látur
  • 46A Akurey
  • 46B Skipholt
  • 47 Björk
  • 48A Langholt
  • 48B Ey
  • 49 Stakkholt
  • 51A Uppsalir eystri
  • 51B Uppsalir vestri
  • 52 Breiðholt
  • 53A Laugaland (vestri endi hússins)
  • 53B Einholt (eystri endi hússins)
  • 54 Reykir
  • 55 Uppsalir (Loftur Þórðarson)
  • 56A Lögberg
  • 56B Pétursborg
  • 57 Hjalli
  • 58A Úthlíð
  • 58B Rauðafell
  • 59 Heiðarbrún
  • 60 Hvanneyri
  • 61 Birtingarholt
  • 62 Skaftafell
  • 63A Oddi
  • 63B Bergholt (Gamla-, Litla-)
  • 65A Burstafell
  • 65B Hlíðardalur
  • 67 Bergholt (Stóra-Bergholt)
  • 68 Fagrabrekka
  • 69 Hjarðarholt
  • 71 Lýtingsstaðir


41 Vesturvegur

  • Nr.
  • 2 Sælundur
  • 3A Landamót (Hús þetta brann fyrir nokkrum árum)
  • 3B Framnes
  • 4 Jóhannshús
  • 5A Baldurshagi
  • 5B Laugardalur
  • 6 Sædalur
  • 8 Höfðahús
  • 9A Reynistaður (Húsið rifið fyrir nokkrum árum)
  • 9B Sandgerði (Húsið rifið fyrir nokkrum árum)
  • 10 Steinn (Nú nr. 15 við Miðstræti)
  • 11A Háeyri
  • 11B Litla-Eyri
  • 12 Lundur (Nú er húsið nr. 22 við Miðstræti)
  • 13A Skálanes
  • 13B Hjalteyri
  • 13 Sunnuhvoll (Nú er húsið nr. 24 við Miðstræti)
  • 15A Djúpidalur
  • 15B Reynifell
  • 17C Litla-Hraun
  • 18 Varmahlíð (Nú nr. 20 við Miðstræti)
  • 19 Lambhagi
  • 20 Ártún
  • 21 Túnsberg
  • 23A Setberg(?)
  • 23B Berg
  • 24 Litla-Grund (Hús þetta var rifið fyrir nokkrum árum, þegar Vesturvegurinn var malbikaður)
  • 25 Eyri
  • 26 Selalækur
  • 27 Bjargholt
  • 28 Bjarg (Þetta hús var upprunalega byggt árið 1907 á lóð, sem gæti nú verið nr. 13 við Miðstræti. Það var flutt að Vesturvegi 28 árið 1952)
  • 30 Sunnuhlíð
  • 34 Endi


42 Víðisvegur

  • Nr.
  • 7A Stafholt (Gunnst. Eyjólfsson)
  • 7B Stafholt (Júlíus Jónsson)
  • 7C Stafholt (Sveinn S. Sveinsson)
  • 9 Jómsborg