„Stefán Guðlaugsson (Gerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Lagfærði Gerðisnafnið og bætti við heimildir.)
Ekkert breytingarágrip
Lína 41: Lína 41:
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1995.}}
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1995.}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Útgerðarmenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar í Gerði]]

Útgáfa síðunnar 28. júní 2007 kl. 15:23

Stefán Guðlaugsson, Gerði (Litla-Gerði), fæddist 6. desember 1888 í Stóra-Gerði í Vestmannaeyjum og lést 13. febrúar 1965. Foreldrar hans voru Guðlaugur Jónsson og Margrét Eyjólfsdóttir. Sonur Stefáns var Guðlaugur Stefánsson.

Sinn fyrsta fisk, maríufiskinn, veiddi hann 11 ára. Ekki var fiskurinn stór og gaf hann Eyflalíu Nikulásdóttur í Móhúsum. Hún þakkaði kærlega og bað honum Guðs blessunar og að hann yrði mikill fiskimaður.

Stefán byrjaði sem sagt ungur sjómennsku og byrjar hann sína formennsku á Halkion árið 1919, en Stefán kaupir síðar Halkion II og Halkion III. Hann var einnig formaður á Bjarma til ársins 1956 en þá hafði hann verið formaður í 47 vertíðir.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Stefán:

Á Halkion Stefán sækir sjá,
síst mun hryggðarefni
garpinum reyndar Gerði frá
þótt gutli Rán við stefnu.

Óskar Kárason samdi einnig um Stefán:

Halkíon á Strauma-storð
Stefán löngum treystir,
þó að lemji byrðings borð
bylgju faldar reistir.
Fjörutíu fullan einn
formanns telur vetur,
Gerðis bóndinn garpur hreinn,
geri aðrir betur.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Marka skal Ásinn arkar
elztan Stefán og helztan.
Öld nærri hálfa höldur
hefur Gerðis án refja,
staðið við stýrið glaður,
styrkur og mikilvirkur.
Bjarma nú fær á farma
formanna prýðin sanna.



Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar. Byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1973.
  • Sami í viðtali.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.