„Ingólfur Guðjónsson (Skaftafelli)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
Ingólfur og Jóhanna bjuggu lengst af í [[Lukka|Lukku]] í Vestmannaeyjum en fluttu til Reykjavíkur í [[Heimaeyjargosið|gosinu]] 1973. Í Vestmannaeyjum vann Ingólfur í [[Lifrarsamlagið|Lifrarsamlaginu]], síðan sneri hann sér að hænsnabúskap og garðrækt. Er til Reykjavíkur kom vann hann sem baðvörður í Laugarnesskóla þar til hann hætti störfum vegna aldurs. | Ingólfur og Jóhanna bjuggu lengst af í [[Lukka|Lukku]] í Vestmannaeyjum en fluttu til Reykjavíkur í [[Heimaeyjargosið|gosinu]] 1973. Í Vestmannaeyjum vann Ingólfur í [[Lifrarsamlagið|Lifrarsamlaginu]], síðan sneri hann sér að hænsnabúskap og garðrækt. Er til Reykjavíkur kom vann hann sem baðvörður í Laugarnesskóla þar til hann hætti störfum vegna aldurs. | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Bændur]] | ||
[[Flokkur:Athafnafólk]] | |||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Íbúar við Dalaveg]] |
Útgáfa síðunnar 21. júní 2007 kl. 16:01
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ingólfur Guðjónsson“
Ingólfur Guðjónsson fæddist í Vestmannaeyjum 15. júlí 1913 og ólst upp á Skaftafelli. Hann andaðist á heimili sínu 23. janúar 1999. Foreldrar hans voru Guðjón Hafliðason og Halldóra Þórólfsdóttir. Ingólfur átti tíu systkini og var hann elstur í þeim systkinahópi. Hin eru: Trausti, Guðbjörg, Auður, Haraldur, Rebekka, Elísabet, Óskar, Anna, Ester og Hafliði. Hinn 20. nóvember 1943 kvæntist Ingólfur Jóhönnu Hjartardóttur frá Saurum í Laxárdal, f. 24.8. 1911, d. 27.12. 1998. Ingólfur og Jóhanna eignuðust tvo syni, átta barnabörn og átta barnabarnabörn. Synir þeirra eru Hjörtur Ásgeir, f. 1945, og Jóhannes Esra, f. 1948.
Ingólfur og Jóhanna bjuggu lengst af í Lukku í Vestmannaeyjum en fluttu til Reykjavíkur í gosinu 1973. Í Vestmannaeyjum vann Ingólfur í Lifrarsamlaginu, síðan sneri hann sér að hænsnabúskap og garðrækt. Er til Reykjavíkur kom vann hann sem baðvörður í Laugarnesskóla þar til hann hætti störfum vegna aldurs.