„Anna Jesdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 10: | Lína 10: | ||
Börn þeirra eru: | Börn þeirra eru: | ||
#[[Ágústa Óskarsdóttir|Ágústa]] talsímakona, f. 3. febrúar 1930, | #[[Ágústa Óskarsdóttir|Ágústa]] talsímakona, f. 3. febrúar 1930, | ||
#[[Kári Óskarsson|Kári]] múrarameistari, f. 25. júlí 1931 og | #[[Kári Óskarsson (múrarameistari)|Kári]] múrarameistari, f. 25. júlí 1931 og | ||
#[[Þórir Óskarsson|Þórir]] flugstjóri, f. 19. september 1934. | #[[Þórir Óskarsson (flugstjóri)|Þórir]] flugstjóri, f. 19. september 1934. | ||
== Myndir == | == Myndir == | ||
Núverandi breyting frá og með 22. júlí 2025 kl. 13:10
Anna Jesdóttir fæddist 2. desember 1902 að Eyvindarhólum undir A-Eyjafjöllum og lézt 18. september 1994.
Foreldrar hennar voru Ágústa Eymundsdóttir og Jes A. Gíslason.
Hún fluttist með þeim til Vestmannaeyja árið 1907.
Anna lærði fyrst á píanó hjá Önnu Pálsdóttur í Vestmannaeyjum, síðar hjá Huldu A. Stefánsdóttur á Akureyri veturinn 1917-18. Hún fór í píanónám til Kaupmannahafnar 1921-1924 og lærði þar í einkatímum hjá hinum frábæra pianóleikara og kennara Haraldi Sigurðssyni prófessor við tónlistarskólann í Kaupmannahöfn. Hún fékk hrós frá Haraldi fyrir góðan árangur í píanónáminu og hvatningu til að halda áfram á sömu braut.
Eftir heimkomu frá námi kenndi hún á píanó í mörg ár á heimili sínu Sunnuhóli í Vestmannaeyjum. Einnig spilaði hún í bíó undir þöglu kvikmyndunum og á dansi-böllum, áður en danshljómsveitir komu til sögunnar. Með Lúðrasveit Vestmannaeyja undir stjórn Oddgeirs Kristjánssonar spilaði hún á skemmtunum, sem nefndar voru Kvöldvökur.
Hún spilaði á flygilinn sinn alveg fram á níræðisaldur.
Eiginmaður Önnu var Óskar Kárason.
Börn þeirra eru:
- Ágústa talsímakona, f. 3. febrúar 1930,
- Kári múrarameistari, f. 25. júlí 1931 og
- Þórir flugstjóri, f. 19. september 1934.
Myndir
Heimildir
- Þórir Óskarsson skrifaði samkvæmt upplýsingum frá Ágústu Óskarsdóttur, en Víglundur Þór Þorsteinsson
færði á Heimaslóð.