„María Gísladóttir (Burstafelli)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 20: Lína 20:
#[[Vilhjálmur Vilhjálmsson|Vilhjálmur]], f. 1963.         
#[[Vilhjálmur Vilhjálmsson|Vilhjálmur]], f. 1963.         
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson.]]''
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].''
*[[María Gísladóttir]], munnleg heimild.
*[[María Gísladóttir]], munnleg heimild.
*Niðjatal [[Sigurbjörg Sigurðardóttir|Sigurbjargar Sigurðardóttur]], [[Burstafell]]i, Vestmannaeyjum.
*Niðjatal [[Sigurbjörg Sigurðardóttir|Sigurbjargar Sigurðardóttur]], [[Burstafell]]i, Vestmannaeyjum.

Útgáfa síðunnar 14. júní 2007 kl. 14:17

María Gísladóttir (Maja á Burstafelli) húsfreyja á Burstafelli, fæddist 6. marz 1923 í Neskaupstað.

Ætt og uppruni

Foreldrar hennar voru Gísli verkamaður í Neskaupstað, f. 11. febr. 1889 á Reykjum í Mjóafirði eystri, d. 19. júlí 1955 í Neskaupstað, Jóhanns bónda á Reykjum og Krossi þar, f. 21. sept. 1860 á Sandvíkurparti í Sandvík, S-Múl, d. 3. maí 1924 á Eskifirði, Marteinssonar og konu Jóhanns (9. okt. 1887), Katrínar Gísladóttur húsfreyju, f. 1862. Sambýliskona og síðar (31. október 1926) kona Gísla og móðir Maríu var Þórunn Ólafía Ísfeld húsfreyja, f. 11. des. 1892, d. 2. febr. 1932, Karls bónda að Miðhúsum og Krossi í Mjóafirði eystri, f. 7. okt. 1870, d. 26. okt. 1964, Guðmundssonar og fyrri konu (6. nóv. 1892) Karls, Júlíu (einnig Júníu) Johannsen húsfreyju, f. í Færeyjum 1872, d. í Mjóafirði 13. maí 1898.

Ættbogi í Eyjum

Bróðir Maríu var Páll Ólafur Gíslason bifreiðastjóri, f. 3. marz 1922, d. 25. marz 2002, kvæntur Báru Sigurðardóttur frá Bólstað, f. 1925. Föðursystir þeirra Maríu og Páls var Ingigerður Jóhannsdóttir í Goðasteini, f. 6. sept. 1902. Þær María, Anna Pálína Sigurðardóttir, f. 1920, kona Guðlaugs Guðjónssonar frá Oddsstöðum og Inga Jóhanna Halldórsdóttir, f. 1927, kona Hjörleifs Guðnasonar múrarameistara frá Oddsstöðum voru bræðrabörn. (Sjá Katrínu Gísladóttur)

Lífsferill

María ólst upp í Neskaupstað. Til Eyja fluttist hún 1940. Eftir stofnun heimilis annaðist hún það og börnin framan af starfsævi sinni. Þau Vilhjálmur keyptu Fatahreinsunina StraumSkólavegi 4 árið 1958. Ráku þau þar fatahreinsun og þvottaþjónustu, m.a. fyrir Vestmannaeyjabæ. Eftir gos keyptu þau og ráku þvottahús á Flötunum til ársins 1988, er þau Vilhjálmur urðu að hætta rekstrinum vegna veikinda hans. María býr nú að Sólhlíð (2007).
Maður: Vilhjálmur Árnason, f. 1921.
Börn þeirra:

  1. Óli Árni, f. 1941,
  2. Þór Ísfeld, 1945,
  3. Sæmundur, f. 1948,
  4. Sigurbjörg, f. 1956,
  5. Vilhjálmur, f. 1963.

Heimildir