„Birna Magnea Bogadóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Birna Magnea Bogadóttir''', frá Litlu-Hólum við Hásteinsveg 24, húsfreyja, verslunarmaður fæddist þar 4. apríl 1943.<br> Foreldrar hennar voru Bogi Matthíasson frá Litlu-Hólum við Hásteinsveg 24, vélstjóri, f. 28. september 1911, d. 8. júní 1986, og kona hans Rósa Katrín Kristjana Bjarnadóttir frá Eskifirði, húsfreyja, f. 27. febrúar 1919, d....)
 
m (Verndaði „Birna Magnea Bogadóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 22. ágúst 2024 kl. 15:04

Birna Magnea Bogadóttir, frá Litlu-Hólum við Hásteinsveg 24, húsfreyja, verslunarmaður fæddist þar 4. apríl 1943.
Foreldrar hennar voru Bogi Matthíasson frá Litlu-Hólum við Hásteinsveg 24, vélstjóri, f. 28. september 1911, d. 8. júní 1986, og kona hans Rósa Katrín Kristjana Bjarnadóttir frá Eskifirði, húsfreyja, f. 27. febrúar 1919, d. 8. júní 1986.

Börn Rósu og Boga:
1. Matthías Þór Bogason vélvirki, f. 19. apríl 1941 á Litlu-Hólum. Kona hans Guðný Guðjónsdóttir.
2. Birna Magnea Bogadóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1943 á Litlu-Hólum. Barnsfaðir hennar Sigurður Líndal Viggósson. Maður hennar Guðbjartur Herjólfsson.
3. Rúnar Helgi Bogason vélvirki, f. 6. febrúar 1957. Kona hans Kristný Hulda Guðlaugsdóttir.

Birna eignaðist barn með Sigurði 1961.
Þau Guðbjartur giftu sig, eignuðust eitt barn og Guðbjartur fóstraði son hennar.

I. Barnsfaðir Birnu Magneu er Sigurður Viggósson, tannlæknir, f. 18. október 1941 á Eskifirði.
Barn þeirra:
1. Bogi Sigurðsson, vélaverkfræðingur í Noregi. Fyrrum kona hans Sigríður Garðarsdóttir. Kona hans Ivida Sigurðsson, frá Tékklandi.

II. Maður Birnu Magneu er Guðbjartur Herjólfsson, frá Einlandi, verslunarmaður, f. 30. desember 1938.
Barn þeirra:
2. Herjólfur Guðbjartsson, f. 10. júlí 1979 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.