„Hreggviður Ágústsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Hreggviður Ágústsson''' frá Selnesi á Skaga, Skagafirði, sjómaður, verkamaður, kafari fæddist þar 16. maí 1916, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.<br> Foreldrar hans voru Ágúst Rögnvaldur Hreggviðsson frá Stað í Reykhólasveit, bóndi á Selnesi, síðar bryggjusmiður, verkstjóri, verkamaður á Sauðárkróki, f. 16. maí 1888 á Stað, d. 5. nóvember 1970, og kona hans Inga Sigurrós Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1894 í...) |
m (Verndaði „Hreggviður Ágústsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. janúar 2024 kl. 13:42
Hreggviður Ágústsson frá Selnesi á Skaga, Skagafirði, sjómaður, verkamaður, kafari fæddist þar 16. maí 1916, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
Foreldrar hans voru Ágúst Rögnvaldur Hreggviðsson frá Stað í Reykhólasveit, bóndi á Selnesi, síðar bryggjusmiður, verkstjóri, verkamaður á Sauðárkróki, f. 16. maí 1888 á Stað, d. 5. nóvember 1970, og kona hans Inga Sigurrós Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1894 í Brekkukoti í Efribyggð í Skagafirði, d. 7. júlí 1921.
Þau Jakobína giftu sig 1937, eignuðust tvö börn, en misstu annað þeirra á öðru ári þess. Þau bjuggu í Miklagarði á Sauðárkróki 1938, í Kleif þar 1939 og 1946.
Jakobína lést 1946 og Hreggviður fórst 1951.
I. Kona Hreggviðs, (1. desember 1937), var Jakobína Björnsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. þar 5. febrúar 1918, d. 21. september 1946.
Börn þeirra:
1. Ágúst Hreggviðsson húsasmíðameistari, f. 13. júlí 1937. Kona hans er Hulda Samúelsdóttir.
2. Inga Steina Hreggviðsdóttir, f. 23. apríl 1942, d. 26. júlí 1943.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.