„Jórunn Jónsdóttir (Kirkjuhvoli)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Jórunn Jónsdóttir. '''Jórunn Jónsdóttir''' frá Skagnesi í Mýrdal, vinnukona, bústýra, húsfreyja fæddist þar 9. nóvember 1893 og lést 2. janúar 1981.<br> Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi, f. 31. ágúst 1860 í Skammadal í Mýrdal, d. 10. júní 1929, og kona hans Sigríður Ófeigsdóttir frá Skagnesi, húsfreyja, f. 12. mars 1871, d. 29. október 1942. Jórunn var með foreldrum sínum á Sk...) |
m (Verndaði „Jórunn Jónsdóttir (Kirkjuhvoli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 27. desember 2023 kl. 16:46
Jórunn Jónsdóttir frá Skagnesi í Mýrdal, vinnukona, bústýra, húsfreyja fæddist þar 9. nóvember 1893 og lést 2. janúar 1981.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi, f. 31. ágúst 1860 í Skammadal í Mýrdal, d. 10. júní 1929, og kona hans Sigríður Ófeigsdóttir frá Skagnesi, húsfreyja, f. 12. mars 1871, d. 29. október 1942.
Jórunn var með foreldrum sínum á Skagnesi til 1917.
Hún fór til Eyja 1917, var vinnukona á Kirkjuhvoli við Kirkjuveg 65 1920, í Rvk 1930, bústýra hjá Jóni Júlíusi Jónssyni bónda á Birkibóli í Borgarhreppi, Mýr. frá um 1940.
Hún lést 1981.
I. Sambúðarmaður Jórunnar var Jón Júlíus Jónsson bóndi á Birkibóli, f. 11. júlí 1883, d. 31. nóvember 1975. Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson bóndi á Valbjarnarvöllum, Mýr., f. 29. september 1850, d. 8. maí 1926 og kona hans Sesselja Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. júní 1861, d. 7. apríl 1917.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.