„Kristín Oddsdóttir (Ystabæli)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Kristín Oddsdóttir''' frá Sauðhúsnesi í Álftaveri, V.-Skaft., húsfreyja, vinnukona fæddist þar 24. febrúar 1846 og lést 30. maí 1907 í Garðfjósi í Eyjum.<br> Foreldrar hennar voru Oddur Árnason bóndi í Háholti í Rangárvallasýslu, f. 14. september 1820, d. 30. nóvember 1888, og Auðbjörg Einarsdóttir, síðar húsfreyja í Sólheimahjáleigu í Mýrdal, f. 23. maí 1819 í Pétursey þar, d. 9. nóvember 1884. Kristín va...) |
m (Verndaði „Kristín Oddsdóttir (Ystabæli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 18. desember 2023 kl. 14:39
Kristín Oddsdóttir frá Sauðhúsnesi í Álftaveri, V.-Skaft., húsfreyja, vinnukona fæddist þar 24. febrúar 1846 og lést 30. maí 1907 í Garðfjósi í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Oddur Árnason bóndi í Háholti í Rangárvallasýslu, f. 14. september 1820, d. 30. nóvember 1888, og Auðbjörg Einarsdóttir, síðar húsfreyja í Sólheimahjáleigu í Mýrdal, f. 23. maí 1819 í Pétursey þar, d. 9. nóvember 1884.
Kristín var með móður sinni í Sauðhúsnesi til 1849, í Sólheimahjáleigu 1849-1850, hjá henni og stjúpa sínum þar 1850-1857, fór þá að Skarðshlíð u. Eyjafjöllum, var léttastúlka í Sólheimahjáleigu 1860, var vinnukona í Vatnsdal í Fljótshlíð 1870, húsfreyja í Ystabæli u. Eyjafjöllum 1880, vinnukona í Drangshlíð þar 1890 og til 1893, á Fit u. V.-Eyjafjöllum 1901.
Þau Hjörleifur giftu sig 1875, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Ystabæli.
Kristín fór til Eyja 1904, var vinnukona í Garðsfjósi 1907.
I. Maður Kristínar, (1875), var Hjörleifur Nikulásson bóndi, f. 18. júní 1849, d. 14. desember 1935. Foreldrar hans voru Nikulás Nikulásson bóndi í Berjaneskoti u. Eyjafjöllum, f. 27. júlí 1817, d. 28. janúar 1879, og kona hans Halldóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 16. september 1814, d. 7. október 1867.
Börn þeirra:
1. Auðun Hjörleifsson, f. 1877, d. 8. ágúst 1896.
2. Halldóra Hjörleifsdóttir húsfreyja á Litlalandi, f. 20. mars 1879, d. 3. júlí 1953.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.