„Þórdís Jónsdóttir (Ofanleiti)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Þórdís Jónsdóttir''' vinnukona, lausakona fæddist 20. október 1856 í Skálmarbæjarseli í Álftaveri í V.-Skaft. og lést 23. desember 1935 í Vestra-Þorlaugargerði.<br> Foreldrar hennar voru Jón Loftsson bóndi, f. 24. september 1832 í Hjörleifshöfða, d. 29. mars 1897 á Ketilsstöðum og kona hans Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1832 á Herjólfsstöðum, d. 1. apríl 1883 á Ketilsstöðum. Þórdís var með foreldrum...) |
m (Verndaði „Þórdís Jónsdóttir (Ofanleiti)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 19. september 2023 kl. 20:24
Þórdís Jónsdóttir vinnukona, lausakona fæddist 20. október 1856 í Skálmarbæjarseli í Álftaveri í V.-Skaft. og lést 23. desember 1935 í Vestra-Þorlaugargerði.
Foreldrar hennar voru Jón Loftsson bóndi, f. 24. september 1832 í Hjörleifshöfða, d. 29. mars 1897 á Ketilsstöðum og kona hans Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1832 á Herjólfsstöðum, d. 1. apríl 1883 á Ketilsstöðum.
Þórdís var með foreldrum sínum í Skálmarbæjarseli til 1858, á Ketilsstöðum 1858-1888, vinnukona þar 1897-1899, á Reyni 1899-1901, í Reynisholti 1901-1902, sögð komin frá Kvíabóli 1905, en var ekki á manntali þar.
Þórdís flutti til Eyja 1905, var vinnukona á Ofanleiti 1910 og 1920, lausakona í Vestra-Þorlaugargerði 1930.
Hún lést 1935.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.