„Þorsteinn Loftsson“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Þorsteinn Loftsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 27: | Lína 27: | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar Nýja-Bergholti]] | [[Flokkur: Íbúar í Nýja-Bergholti]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Vestmannabraut]] | [[Flokkur: Íbúar við Vestmannabraut]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Borgarhól]] | [[Flokkur: Íbúar á Borgarhól]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Sandi]] | [[Flokkur: Íbúar á Sandi]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Strandveg]] | [[Flokkur: Íbúar við Strandveg]] |
Útgáfa síðunnar 19. september 2023 kl. 15:26
Þorsteinn Loftsson bifreiðastjóri fæddist 9. febrúar 1904 í Vík í Mýrdal og lést 24. mars 1959.
Foreldrar hans voru Loftur Þorsteinsson trésmiður, málari í Vík, f. 11. mars 1875 í Reynisdal í Mýrdal, d. 19. febrúar 1917, og kona hans Guðlaug Kristín Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 3. maí 1874 í Valdakoti í Sandvíkurhreppi, Árn., d. 9. október 1946.
Börn Guðlaugar og Lofts:
1. Gunnlaugur Loftsson verslunarmaður, kaupmaður, f. 22. apríl 1901, d. 15. apríl 1975.
2. Þorsteinn Loftsson bifreiðastjóri, f. 9. febrúar 1904, d. 24. mars 1959.
3. Daníel Loftsson verkamaður, f. 23. febrúar 1914, d. 9. ágúst 1943.
Þorsteinn var með foreldrum sínum í Vík, en faðir hans lést, er Þorsteinn var tæpra þrettán ára. Hann var með móður sinni í Vík og flutti með henni til Eyja 1924.
Hann var bílstjóri í Eyjum. Þeir Óskar þorsteinsson áttu um skeið saman tvo bíla, sem þeir gerðu út. Hann bjó með móður sinni og Daníel bróður sínum í Nýja Bergholti við Vestmannabraut 67 1930, á Borgarhóli við Kirkjuveg 11 1940, bjó á Sandi við Strandveg 63 1949, en Sveiney kona hans bjó í Reykjavík. Hann flutti til Reykjavíkur, var bílstjóri þar.
Þau Sveiney giftu sig 1929, eignuðust þrjú börn.
I. Kona Þorsteins, (1929), var Sveiney Guðmundsdóttir úr Keflavík, húsfreyja, f. 29. júní 1906, d. 5. ágúst 1991. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson frá Grímsstöðum í Landeyjum, f. 20. mars 1879, d. 26. október 1907, og Anna Sigríður Sveinsdóttir frá Stóra-Klofa í Landsveit, f. 2. ágúst 1888, d. 6. desember 1918.
Börn þeirra:
1. Sveinn Þórir Þorsteinsson, f. 27. desember 1929, d. 14. apríl 2008. Kona hans Hjördís Einarsdóttir.
2. Sólveig Þorsteinsdóttir, f. 4. mars 1931. Maður hennar Sverrir Jónsson.
3. Ólafur Eysteinn Þorsteinsson, f. 18. júní 1933, d. 25. júní 1997. Fyrri kona hans Hólmfríður Björnsdóttir. Kona hans Guðrún Björgvinsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.