„Skálholt-yngra“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
Í seinni heimsstyrjöldinni tók breski herinn húsið herskildi. Það var aðsetur yfirmanna hersins og dvaldi hluti setuliðins í húsinu.
Í seinni heimsstyrjöldinni tók breski herinn húsið herskildi. Það var aðsetur yfirmanna hersins og dvaldi hluti setuliðins í húsinu.
   
[[Mynd:Hof og Skálholt.jpg|thumb|250px|Hof, Skálholt og Verkamannabústaður við Urðaveg.]]
Eftir að herinn fór úr húsinu 1945 eignaðist [[Árni Sigfússon (Skálholti)|Árni Sigfússon]], útgerðarmaður og kaupmaður, húsið og bjó þar ásamt konu sinni [[Ólafía Árnadóttir|Ólafíu Árnadóttur]] og börnum til ársins 1948.

Útgáfa síðunnar 7. september 2006 kl. 09:24

Skálholt við Urðaveg
Skálholt-yngra

Húsið Skálholt - hið yngra - stóð við Urðaveg 43. Það var stórt steinhús, með stórum kjallara, tveimur hæðum og risi. Listar kringum glugga hússins voru skrautlega steyptir, en hús- og kvistgaflar voru bogadregnir.

Húsið reisti Gísli Magnússon, útgerðarmaður, á árunum 1925-26 og kostaði það í kringum 280.000 kr, en það var himinhá upphæð á þeim tíma. Hann bjó í húsinu ásamt konu sinni Sigríði Einarsdóttur til ársins 1940 en þá missti hann eignina sökum heimskreppunnar miklu 1930-40.

Í seinni heimsstyrjöldinni tók breski herinn húsið herskildi. Það var aðsetur yfirmanna hersins og dvaldi hluti setuliðins í húsinu.

Mynd:Hof og Skálholt.jpg
Hof, Skálholt og Verkamannabústaður við Urðaveg.

Eftir að herinn fór úr húsinu 1945 eignaðist Árni Sigfússon, útgerðarmaður og kaupmaður, húsið og bjó þar ásamt konu sinni Ólafíu Árnadóttur og börnum til ársins 1948.

Bæjarsjóður Vestmannaeyja keypti þar á eftir húsið og gerði það að elliheimili bæjarins. Gegndi húsið því hlutverki alveg fram að gosi og fór að lokum undir hraun.

Heimildir