„Óskar Ólafsson (prentari)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Óskar Ólafsson''' frá Bakkastíg 7, prentari fæddist þar 20. febrúar 1951.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson Erlendsson kaupmaður, verkstjóri, afreksmaður í íþróttum, f. 4. ágúst 1918, d. 11. október 1974, og kona hans Jórunn Þórunn Sigurðardóttir frá Hafnarnesi, S.-Múl., húsfreyja, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967. Óskar var með foreldrum sínum.<br> Hann lærði prentverk í...) |
m (Verndaði „Óskar Ólafsson (prentari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 24. október 2022 kl. 16:26
Óskar Ólafsson frá Bakkastíg 7, prentari fæddist þar 20. febrúar 1951.
Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson Erlendsson kaupmaður, verkstjóri, afreksmaður í íþróttum, f. 4. ágúst 1918, d. 11. október 1974, og kona hans Jórunn Þórunn Sigurðardóttir frá Hafnarnesi, S.-Múl., húsfreyja, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967.
Óskar var með foreldrum sínum.
Hann lærði prentverk í Prentsmiðju Hafsteins í Hólum, varð sveinn 1973. Hann vann í Prentsmiðjunni Eyrúnu frá 1. desember 1969 í 52 ár, var prentsmiðjustjóri í 12 ár. Í Gosinu 1973 vann hann hjá Prentsmiðju Björns Jónssonar á Akureyri í 2-3 mánuði og í Oddaprentsmiðju. Þá var hann eina vertíð hjá Ísfélaginu.
Þau Jóhanna giftu sig 1971, eignuðust kjörbarn og Jóhanna átti barn fyrir. Þau bjuggu í fyrstu á Bakkastíg 7, síðan við Dverghamar 10.
I. Kona Óskars, (4. júní 1971), er Jóhanna Ágústsdóttir frá Ásgarði í Reykjavík, húsfreyja, f. 4. október 1949.
Barn Jóhönnu:
1. Geir Sigurðsson prófessor við Háskóla Íslands, f. 13. janúar 1969. Kona hans Vilma, litháensk.
Kjörbarn hjónanna:
2. Kristín Ósk Óskarsdóttir þroskaþjálfi í Eyjum, f. 21. apríl 1981. Fyrrum maður hennar Jón Helgi Sveinsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Óskar.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.