„Landlyst“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Landlyst1.jpg|thumb|250px|Landlyst þegar húsið stóð við Strandveg 43b.]] | |||
Húsið Landlyst er eitt af elstu húsum í Eyjum. Húsið stóð við [[Strandvegur|Strandveg]] 43b fram til ársins 1992, er það var tekið niður og friðlýst. | |||
[[Mynd:Landlyst.jpg|thumb|right|250px|Landlyst á Skansinum.]] | |||
Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni. | |||
Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847. | |||
Húsið var byggt af [[Matthías Markússon|Matthíasi Markússyni]] snikkara og konu hans [[Sólveig Pálsdóttir|Sólveigu Pálsdóttur]] ljósmóður. | |||
Sólveig var send til ljósmæðranáms í Kaupmannahöfn og við heimkomuna var byggt fæðingarheimili við Landlyst með styrk frá danska ríkinu. Þetta kom til vegna landlægs sjúkdóms sem nefndist [[ginklofi]] (stífkrampi) og lagðist hann sérstaklega á ungabörn. Ginklofinn var skæðari í Eyjum en annars staðar hér á landi og ungbarnadauði var mikill. | |||
Sumarið 1847 kom danski læknirinn [[Peter Anton Schleisner]] til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma. | |||
Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið. Eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu. Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu. Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar haldnar þar. | |||
Árið 2000 var Landlyst endurbyggð og komið fyrir á [[Skansinn|Skansinum]]. Þar er nú heilbrigðisminjasafn. | |||
[[Flokkur:Hús]] |
Útgáfa síðunnar 18. ágúst 2006 kl. 15:57
Húsið Landlyst er eitt af elstu húsum í Eyjum. Húsið stóð við Strandveg 43b fram til ársins 1992, er það var tekið niður og friðlýst.
Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni. Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.
Húsið var byggt af Matthíasi Markússyni snikkara og konu hans Sólveigu Pálsdóttur ljósmóður. Sólveig var send til ljósmæðranáms í Kaupmannahöfn og við heimkomuna var byggt fæðingarheimili við Landlyst með styrk frá danska ríkinu. Þetta kom til vegna landlægs sjúkdóms sem nefndist ginklofi (stífkrampi) og lagðist hann sérstaklega á ungabörn. Ginklofinn var skæðari í Eyjum en annars staðar hér á landi og ungbarnadauði var mikill.
Sumarið 1847 kom danski læknirinn Peter Anton Schleisner til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.
Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið. Eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu. Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu. Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar haldnar þar.
Árið 2000 var Landlyst endurbyggð og komið fyrir á Skansinum. Þar er nú heilbrigðisminjasafn.