„Ragnheiður Halldórsdóttir (Höfðabrekku)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ragnheiður Halldórsdóttir''' frá Kotmúla í Fljótshlíð, húsfreyja á Höfðabrekku og í Lambhaga fæddist 5. maí 1892 og lést 9. janúar 1979.<br> Foreldrar hennar voru Halldór Ólafsson bóndi, f. 26. ágúst 1849 á Grjótá í Fljótshlíð, d. 5. mars 1921, og kona hans Aðalheiður Sveinsdóttir frá Valdalæk í V-Hún., húsfreyja, f. þar 3. júlí 1854, d. 5. nóvember 1943. Ragnheiður var hjá foreldrum sínum í Kotmú...) |
m (Verndaði „Ragnheiður Halldórsdóttir (Höfðabrekku)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 19. mars 2022 kl. 20:36
Ragnheiður Halldórsdóttir frá Kotmúla í Fljótshlíð, húsfreyja á Höfðabrekku og í Lambhaga fæddist 5. maí 1892 og lést 9. janúar 1979.
Foreldrar hennar voru Halldór Ólafsson bóndi, f. 26. ágúst 1849 á Grjótá í Fljótshlíð, d. 5. mars 1921, og kona hans Aðalheiður Sveinsdóttir frá Valdalæk í V-Hún., húsfreyja, f. þar 3. júlí 1854, d. 5. nóvember 1943.
Ragnheiður var hjá foreldrum sínum í Kotmúla, var hjú í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi 1910.
Hún flutti til Eyja 1912, var vinnukona í Hlíð.
Þau Magnús giftu sig 1922, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hlíð 1921, á Höfðabrekku við Faxastíg 15 1923 og enn 1941, síðan í Lambhaga við Vesturveg 19, bjuggu síðast í Hlunnavogi 12 í Reykjavík.
Magnús lést 1972 og Ragnheiður 1979.
I. Maður Ragnheiðar, (9. desember 1922), var Magnús Helgi Valtýsson frá Seli í A-Landeyjum, sjómaður, útgerðarmaður, f. 6. október 1894, d. 15. febrúar 1972.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Dóra Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 18. janúar 1923 á Höfðabrekku, d. 15. apríl 2018.
2. Guðbjörg Vallý Magnúsdóttir í Reykjavík, f. 4. október 1928 á Höfðabrekku.
3. Hjördís Magnúsdóttir í Reykjavík, f. 10. maí 1931, d. 27. ágúst 2019.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.