„Þórunn Ólý Óskarsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Þórunn Ólý Óskarsdóttir''' frá Sólhlíð 6, húsfreyja, félagsráðgjafi fæddist þar 11. nóvember 1947.<br> Foreldrar hennar voru Óskar Jónsson (útg...) |
m (Verndaði „Þórunn Ólý Óskarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 5. mars 2021 kl. 10:25
Þórunn Ólý Óskarsdóttir frá Sólhlíð 6, húsfreyja, félagsráðgjafi fæddist þar 11. nóvember 1947.
Foreldrar hennar voru Óskar Jónsson sjómaður, útgerðarmaður, útgerðarstjóri, f. 4. desember 1906 í Hallgeirsey í A.-Landeyjum, d. 8. desember 1988, og kona hans Ásta Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1911 í Hlíð, d. 12. febrúar 1986.
Börn Ástu og Óskars:
1. Guðrún Lísa Óskarsdóttir kennari, f. 1. janúar 1936 í Hlíð.
2. Þórunn Ólý Óskarsdóttir félagsráðgjafi, f. 11. nóvember 1947 í Sólhlíð 6.
Þórunn var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lauk landsprófi í Gagnfræðaskólanum 1963, varð stúdent í Menntaskólanum á Laugarvatni 1967, nam félagsráðgjöf í Stavanger í Noregi og lauk náminu 1977.
Þórunn var forstöðumaður unglingasmiðjunnar Tröð í Reykjavík í 25 ár.
Þau Hafþór giftu sig 1958, eignuðust eitt barn.
Þau bjuggu á Heiðarvegi 25 við Gos 1973, bjuggu í Noregi í nokkur ár. Þau skildu. Þórunn býr í Reykjavík.
1. Maður Þórunnar, (26. maí 1958), var Hafþór Guðjónsson lífefnafræðingur, f. 26. maí 1947.
Barn þeirra:
1. Ásta Hafþórsdóttir gervahönnður við kvikmyndir í Ósló, f. 5. desember 1967, ógift.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
- Þórunn.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.