„Olgeir Jónas Jóhannsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Olgeir Jónas Jóhannsson''' frá Fáskrúðsfirði, múrari fæddist 26. júlí 1933 á Innri-Búðum þar og lést 30. apríl 1991.<br> Foreldrar hans voru Ástvaldur ''Jóhann''...) |
m (Verndaði „Olgeir Jónas Jóhannsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 21. mars 2020 kl. 13:55
Olgeir Jónas Jóhannsson frá Fáskrúðsfirði, múrari fæddist 26. júlí 1933 á Innri-Búðum þar og lést 30. apríl 1991.
Foreldrar hans voru Ástvaldur Jóhann Jónasson sjómaður, f. 28. september 1908 á Hlíðarenda í Breiðdal, S.Múl., d. 16. febrúar 1983, og Jósefína Guðný Þórðardóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1910 á Kleifarstekk í Breiðdal, d. 21. febrúar 1999.
Olgeir var með foreldrum sínum í Innri-Búðum í æsku og enn 1953, lauk landsprófi á Eiðum 1949.
Hann kom til Eyja á vertíð 1950, var sjómaður og vélstjóri, lærði síðar múraraiðn hjá Hjörleifi Guðnasyni, lauk sveinsprófi 1960. Hann stofnaði ásamt Hjörleifi fyrirtækið Bygging h.f., varð síðar byggingafulltrúi bæjarins.
Þau Guðrún fluttu til Reykjavíkur 1972 og þar stundaði Olgeir iðn sína.
Þau Guðrún giftu sig 1955, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 7, byggðu við Heiðarveg 60 og bjuggu þar, en síðar á Háleitisbraut 51 í Reykjavík.
Guðrún lést 1989 og Olgeir 1991.
I. Kona Olgeirs, (20. desember 1955), var Guðrún Jónína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 17. apríl 1932 í Víðidal, d. 6. september 1989.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Jóhann Olgeirsson læknir, f. 14. janúar 1956. Kona hans Edda Björk Arnardóttir.
2. Sigríður Bína Olgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26. janúar 1968.
3. Þórhildur Ýr Olgeirsdóttir, f. 14. nóvember 1969.
4. Gyða Björg Olgeirsdóttir, f. 20. júní 1970.
5. Olga Hrönn Olgeirsdóttir, f. 27. janúar 1973.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.