„Páll Gunnlaugsson (sjómaður)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Páll Gunnlaugsson''' frá Uppsalakoti í Svarfaðardal í Eyjafirðir, sjómaður fæddist þar 11. júní 1895 og drukknaði 24. janúar 1930. <br> Foreldrar hans voru Gunnlaugur...) |
m (Verndaði „Páll Gunnlaugsson (sjómaður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 18. desember 2019 kl. 14:18
Páll Gunnlaugsson frá Uppsalakoti í Svarfaðardal í Eyjafirðir, sjómaður fæddist þar 11. júní 1895 og drukknaði 24. janúar 1930.
Foreldrar hans voru Gunnlaugur Pálsson frá Sveinsstöðum í Svarfaðardal, þá húsmaður í Uppsalakoti, f. 14. janúar 1867, d. 28. ágúst 1914, og kona hans Una Guðríður Rósamunda Jóhannesdóttir húskona, f. 19. október 1869, d. 24. mars 1939.
Páll var með foreldrum sínum í Uppsalakoti 1901, léttadrengur í Uppsölum þar 1910, sjómaður og gestur í Byggðarholti í Eyjum 1920.
Þau Ingveldur giftu sig 1925, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Sjávarborg við giftingu 1925, í Ráðagerði 1927-1930.
Páll fórst með vélbátnum Ara VE-235 í janúar 1930.
I. Kona Páls, (19. desember 1925), var Ingveldur Pálsdóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, húsfreyja, vinnukona, f. þar 28. maí 1900, d. 18. nóvember 1958.
Börn þeirra:
1. Símonía Valgerður Pálsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1925 í Langholti, d. 25. febrúar 1878. Maður hennar Guðmundur Karl Guðmundsson.
2. Hermann Pálsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 23. janúar 1926, d. 12. október 1999. Kona hans Margrét Ólafsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.