„Tryggvi Gunnarsson (Horninu)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 35: | Lína 35: | ||
[[Flokkur:Fólk dáið á 21. öld]] | [[Flokkur:Fólk dáið á 21. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Brúarhúsi]] | [[Flokkur: Íbúar í Brúarhúsi]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í | [[Flokkur: Íbúar í Vallanesi]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Sunnuhlíð]] | [[Flokkur: Íbúar í Sunnuhlíð]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Geirlandi]] | [[Flokkur: Íbúar á Geirlandi]] |
Útgáfa síðunnar 16. desember 2019 kl. 20:03
Gunnlaugur Tryggvi Gunnarsson fæddist 29. apríl 1916 í Miðey og lést 22. mars 2001. Hann bjó í Hraunbúðum síðustu ár lífs síns. Foreldrar Tryggva voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari á Eyrarbakka og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir. Tryggvi var þriðji elstur í hópi tólf alsystkina, en auk þeirra voru þrjú eldri hálfsystkini.
Kona Tryggva var Oddný Ólafía Sigurðardóttir, fædd 15.ágúst 1916 í Vestmannaeyjum. Þau áttu tvo syni, Sigurð Tryggvason og Gunnar Marel Tryggvason, báðir vélstjórar.
Tryggvi lauk gagnfræðaskóla 1934 og tók minna mótorvélstjórapróf árið 1937.
Hann var vélstjóri á Erlingi II. 1937-1945, vélstjóri á togaranum Elliðaey.
Tryggvi var útgerðarmaður og vélstjóri á Erlingi VE-295 frá 1950-1976, vélstjóri Brúarfossi 1976-1978.
Hann kenndi m.a. vélstjórn á vélstjóranámskeiðum Fiskifélags Íslands í Eyjum. Hann vann hjá Fjarhitun Vestmannaeyja seinni hluta starfsævi sinnar, frá 1978-1991.
Tryggvi var einn af stofnendum Vélstjórafélags Vestmannaeyja 1938 og formaður félagsins 1940-1945, og seinna heiðursfélagi félagsins. Hann var bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum 1954-1958 og ritstjóri Eyjablaðsins. Tryggvi var formaður Sósíalistafélags Vestmannaeyja.