„Jón Jónsson (Brautarholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
|||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Jón í Brautarholti A.jpg|200px|thumb| | [[Mynd:Jón í Brautarholti A.jpg|200px|thumb|Jón í Brautarholti]] | ||
[[Mynd:Jónjónsson.jpg|thumb|250px| | [[Mynd:Jónjónsson.jpg|thumb|250px|Jón níræður]]''Sjá [[Jón Jónsson|aðgreiningarsíðuna]] fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson“'' | ||
---- | ---- | ||
Lína 18: | Lína 18: | ||
Jón lést árið 1964, 93 ára að aldri. | Jón lést árið 1964, 93 ára að aldri. | ||
Sjá nánar um Jón við fiskveiðar á Austfjörðum með [[Magnús Guðmundsson | Sjá nánar um Jón við fiskveiðar á Austfjörðum með [[Magnús Guðmundsson|Magnúsi á Vesturhúsum]], - í [[Blik 1969|Bliki 1969/Endurminningar, II. hluti]] og áfram. | ||
== Myndir == | |||
= Myndir = | |||
<Gallery> | <Gallery> | ||
Mynd:KG-mannamyndir 5540.jpg | Mynd:KG-mannamyndir 5540.jpg | ||
Lína 39: | Lína 27: | ||
</gallery> | </gallery> | ||
[[Flokkur:Sjómenn]] | |||
[[Flokkur:Útgerðarmenn]] | |||
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Íbúar í Svaðkoti ]] | |||
[[Flokkur:Íbúar við Landagötu]] |
Útgáfa síðunnar 2. nóvember 2019 kl. 14:53
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson“
Jón Jónsson í Brautarholti fæddist 15. júlí 1869 í Norðurbænum á Vilborgarstöðum og lést 4. september 1964. Jón fluttist með foreldrum sínum að Dölum árið 1880.
Foreldrar hans voru hjónin Jón Jónsson hreppsjóri í Dölum og kona hans Jóhanna Gunnsteinsdóttir. Eina systur átti hann, Dómhildi, en hún flutti ung til Ameríku.
Eiginkona Jóns var Guðríður Bjarnadóttir í Svaðkoti, f. 1875. Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada, Bjarneyju Ragnheiði f. 1905 í Canada, Jónu Jóhönnu f. 1907, d. 2005 og Ólaf Gunnstein f. 1911, d. 1984.
Jón og Guðríður hófu búskap í Svaðkoti hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt Svaðkot á svipuðum stað og Suðurgarður stendur núna. Þetta var lítið einlyft hús.
Jón og Guðríður fluttu til Kanada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu Brautarholt við Landagötu 3b árið 1908.
Jón stundaði sjómennsku, þar af 13 ár á Gideon, gerði út báta, vann við byggingu Fiskimjölsverksmiðjunnar og vann þar síðan til ársins 1933, en gerðist þá ráðsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja í fjölda ára.
Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Álsey. Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef.
Jón lést árið 1964, 93 ára að aldri.
Sjá nánar um Jón við fiskveiðar á Austfjörðum með Magnúsi á Vesturhúsum, - í Bliki 1969/Endurminningar, II. hluti og áfram.