„ÍBV“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(→1999 -) |
||
Lína 1.230: | Lína 1.230: | ||
== 1999 - == | == 1999 - == | ||
=== '''Janúar:''' === | |||
=== '''Hlynur fær Fréttapýramídann''' === | |||
Hlynur Stefánsson hlaut Fréttapýramídann fyrir árið 1998. Hlynur var fyrirliði meistaraflokks ÍBV sem náði glæsilegum árangri á knattspyrnuvellinum með því að vinna bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn 1998. „Fyrir meistaraflokki fór Hlynur Stefánsson fyrirliði sem er einn glæsilegasti íþróttamaður sem Vestmannaeyjar hafa alið,“ segir í umfjöllun blaðsins Frétta. Auk þess að leika með ÍBV lék Hlynur með Nydelfalken í Noregi, Víkingi Reykjavík og Örebro í Svíþjóð áður en hann sneri aftur til ÍBV 1996. Hlynur lauk knattspyrnuferlinum svo í herbúðum KFS. Þá lék Hlynur 25 landsleiki með A-landsliði Íslands. | |||
=== '''Jólasteikin misvel í handboltafólkið''' === | |||
Karlalið ÍBV í handbolta byrjaði árið 1999 með sannfærandi sigri á KA 27:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:12. Að vanda var Sigmar Þröstur Óskarsson markvörður vandanum vaxinn og varði 19 skot. | |||
Kvennaliðinu gekk hins vegar ekki eins vel í sínum fyrsta leik en stelpurnar töpuðu fyrir Val 17:19. Augljóst var að liðið saknaði Ingibjargar Jónsdóttur, fyrirliða sem var erlendis þegar leikurinn fór fram. | |||
=== '''Vallógengið ósigrandi''' === | |||
Á árum áður hélt knattspyrnudeild ÍBV firmakeppni milli jóla og nýárs og var mótið liður í fjáröflun deildarinnar. Mótið var vinsælt enda lögðu fjölmargir áhorfendur leið sína í íþróttamiðstöðina. Vallógengið svokallaða vann mótið fjórða árið í röð, Ófeigur VE endaði í öðru sæti og Glófaxi VE í því þriðja. „Vallógengið vildi að lokum koma á framfæri kæru þakklæti til Helga Bragasonar, sem spilaði fyrir Ófeig Ve og sérstaklega til Hlyns Stefánssonar, sem spilaði fyrir Glófaxa Ve. Án þeirra hefði þetta ekki verið eins skemmtilegt,“ segir í umfjöllun Frétta. | |||
=== '''Stelpurnar áfram en strákarnir úr leik''' === | |||
Kvennalið ÍBV komst áfram í undanúrslit bikarkeppninnar með því að leggja KA að velli í Eyjum 20:15. Leikurinn var í járnum og staðan 9:8 en í seinni hálfleik tóku Eyjakonur leikinn í sínar hendur og unnu með fimm mörkum. Markahæstar voru Amela Hegic með sex mörk, Elísa Sigurðardóttir með fimm og Guðbjörg Guðmannsdóttir með fjögur. | |||
Karlaliðið mætti hins vegar Aftureldingu á útivelli og úr varð hörkurimma. Enda fóru þrjú rauð spjöld á loft strax á fyrstu 23 mínútunum en Eyjamenn voru einu marki yfir hálfleik 11:12. En í síðari hálfleik bitu heimamenn í skjaldarrendur í síðari hálfleik og náðu undirtökunum. Mikil spenna var í lokin, heimamenn voru yfir 27:26 en Eyjamaðurinn Daði Pálsson jafnaði metin. Dómarar dæmdu hins vegar markið ólöglegt og því fögnuðu Mosfellingar sigri. Sigmar Þröstur Óskarsson varði 17 skot en Guðfinnur Kristmannsson skoraði sjö mörk og þeir Svavar Vignisson og Valgarð Thoroddsen sex hvor. | |||
=== '''Komust ekki í úrslit''' === | |||
Fjórði og fimmti flokkur karla lék í Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu. Fjórði flokkur lék í B-riðli en enduðu í þriðja sæti og komust því ekki í úrslit. Fimmti flokkur lék í A-riðli, enduðu í öðru til þriðja sæti en aðeins efsta liðið komst í úrslit. | |||
=== '''Laufey og Þóra B. ekki í ÍBV''' === | |||
Það var greinilega hugur í forráðamönnum kvennaliðs ÍBV því samningaviðræður við tvær sterkar knattspyrnukonur voru langt komnar í janúar. Um var að ræða miðjumanninn Laufeyju Ólafsdóttur og markvörðinn Þóru B. Helgadóttur en á endanum varð ekkert úr vistaskiptum leikmannanna. Laufey átti reyndar eftir að leika með ÍBV síðar. | |||
=== '''Fjórði flokkur 8-liða úrslit''' === | |||
Fjórði flokkur karla lagði eitt besta lið í sínum aldursflokki í handbolta að velli í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar, og það á útivelli. Strákarnir spiluðu mjög vel, Bjarni Einarsson skoraði átta mörk og Kristinn Jónatansson átti góðan leik í markinu. Í liðinu mátti einnig finna þá Kára Kristján Kristjánsson, Davíð Þór Óskarsson, Sigþór Friðriksson og Sindra Haraldsson, sem allir léku síðan með meistaraflokki félagsins. | |||
=== '''ÍBV liðin ekki í úrslit í innanhússboltanum''' === | |||
Meistaraflokkar ÍBV léku í Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu. Stelpurnar unnu tvo leiki en töpuðu fyrir Stjörnunni og Breiðabliki. Þjálfari liðsins Heimir Hallgrímsson sagðist nokkuð sáttur með spilamennsku liðsins. Karlarnir léku í 1. deild og voru í riðli með Keflavík, Selfossi og Val. Strákarnir enduðu í þriðja sæti riðilsins og komust ekki í úrslit. | |||
=== '''Eyjapeyjar kljást á enskri grundu''' === | |||
Eyjapeyjarnir Bjarnólfur Lárusson og Hermann Hreiðarsson mættust í bikarkeppni neðrideilda í Englandi. Bjarnólfur lék með Walsall en Hermann með Brentford og á endanum var það Bjarnólfur sem hafði betur en saman léku þeir með ÍBV nokkrum misserum áður. | |||
=== '''Eyjamenn óstöðvandi á heimavelli''' === | |||
Karlalið ÍBV lagði Val að velli 22:19 í Nissandeildinni í handbolta. Eyjamenn höfðu fyrir leikinn ekki tapað á heimavelli og voru Valsmenn lítil hindrun. | |||
=== '''Góður sigur í hörkuleik''' === | |||
Kvennalið ÍBV lagði Gróttu/KR í leik liða sem bæði voru í neðri hluta deildarinnar. ÍBV var sex mörkum yfir í hálfleik 13:7 en aðeins dró saman með liðunum í síðari hálfleik og lokatölur 23:21. | |||
=== '''Febrúar:''' === | |||
=== '''Áfram gott gengi á heimavelli''' === | |||
Karlalið ÍBV í handboltanum hélt áfram á sigurbraut á heimavelli en Eyjamenn lögðu nágranna sína í Selfossi 28:21. Staðan í hálfleik var 18:10 og sigur Eyjamanna því nokkuð sannfærandi en Sigmar Þröstur varði hvorki meira né minna en 25 skot í leiknum. | |||
=== '''Ekkert bikarævintýri hjá stelpunum''' === | |||
Kvennalið ÍBV í handbolta mætti Fram í undanúrslitum í Eyjum. Leikurinn var jafn og spennandi en Fram reyndist sterkari á lokakaflanum og hafði betur 17:21. Leikmenn ÍBV fóru oft illa að ráði sínu og klúðruðu t.d. fimm vítaskotum í leiknum. | |||
=== '''Hvers á Haraldur að gjalda?''' === | |||
Stundum verður mönnum heitt í hamsi á og við leikvelli landsins, líka í Vestmannaeyjum. Í Fréttum er sagt frá því að í leik ÍBV og Selfoss hafi „hinum dagfarsprúða, Haraldi Óskarssyni,“ sem var á sínum vanalega stað í einu horni hússins, verið hent út úr húsi af dómurum leiksins. Haraldur mun hafa verið með vinsamlegar athugasemdir við dómgæsluna, sem féll í grýttan jarðveg. „Gæti þetta atvik haft það í för með sér að Haraldur yrði settur í heimaleikjabann út þetta tímabil,“ segir í fréttinni. | |||
=== '''Sex efnilegar á landsliðsæfingu''' === | |||
Fjórði flokkur kvenna náði þokkalegum árangri þegar liðið lék í 2. deild en ÍBV vann tvo leiki en tapaði einum. Þá tapaði liðið fyrir Stjörnunni í bikarkeppninni 12:15. Sex leikmenn liðsins tóku þátt í landsliðsæfingu, þær Edda Svavarsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Kristjana Ingibergsdóttir, Aníta Eyþórsdóttir, Elfa Ólafsdóttir og Bjarný Þorvarðardóttir. | |||
=== '''ÍBV býður hagstæða mánaðarsamninga''' === | |||
ÍBV-íþróttafélag býður forráðamönnum barna upp á hagstæða mánaðarsamninga. Með samningnum gerist viðkomandi félagsmaður í ÍBV-íþróttafélagi og hefur rétt til að stunda æfingar. Mánaðargjald er 1.500 kr. á mánuði eða 18.000 kr á ári. Þeir sem ekki gera samning verða að borga 2.000 kr. á mánuði eða 24.000 kr. á ári. | |||
=== '''Eyjamaðurinn sá um Eyjamenn''' === | |||
Karlalið ÍBV tapaði sínum fyrsta heimaleik í handboltanum þegar Stjarnan kom í heimsókn. Í liði Stjörnunnar voru einmitt tveir Eyjapeyjar, þeir Arnar Pétursson og Birkir Ívar Guðmundsson en Birkir Ívar reyndist sínum gömlu félögum erfiður ljár í þúfu. Í hálfleik var staðan 10:11 en lokatölur urðu 21:22. Birkir Ívar varði 25 skot í leiknum en hans lærimeistari, Sigmar Þröstur aðeins 11. | |||
Þetta var ekki góð vika fyrir Eyjamenn því þeir töpuðu einnig fyrir FH á útivelli 25:19 en útivallagrýlan var að leika Eyjamenn grátt þennan veturinn. | |||
=== '''10 milljónir''' === | |||
Í mars 2009 afhentu Krókódílarnir handknattleiksráði ÍBV styrk að upphæð 10 milljónir króna. Styrkurinn sem Krókódílarnir afhentu með formlegum hætti var það | |||
sem safnast hafði með félagsgjöldunum undanfarin fjögur ár. | |||
Krókódílar er óformlegur félagasskapur sem hefur það að markmiði að styðja við handboltann í Vestmannaeyjum. Mánaðarlega greiða þeir félagsgjald og innifalið í félagsgjaldinu er aðgangur að öllum deildarleikjum ÍBV í handboltanum. | |||
En einnig hefur félagsskapurinn að markmiði að hjálpa til með öðrum fjáröflunum. | |||
=== '''Tveir tapleikir og draumurinn úti''' === | |||
Kvennalið ÍBV tapaði einnig tveimur leikjum í þessari sömu viku, fyrst heima gegn stórliði Stjörnunnar og síðan á útivelli gegn FH. Þar með var útséð með að ÍBV myndi blanda sér í toppbaráttuna í deildinni. | |||
=== '''Íslandsmeistarar innanhúss''' === | |||
Stelpurnar í fjórða flokki eru sannarlega efnilegar en þær hafa unnið nokkra titla og nú síðast urðu þær Íslandsmeistarar í innanhússknattspyrnu. Stelpurnar unnu alla sína leiki, enduðu á að leggja Val að velli 3:2 í úrslitaleik en meðal markaskorara var Margrét Lára Viðarsdóttir. „Stelpurnar eru sannkallaðir gullmolar og voru bæði sjálfum sér og ÍBV til mikils sóma jafnt innan vallar sem utan,“ sagði Íris Sæmundsdóttir, þjálfari flokksins. | |||
=== '''Miklar breytingar á kvennaliðinu''' === | |||
Unnið er hörðum höndum að því að styrkja kvennalið ÍBV í knattspyrnu fyrir átökin í sumar en Heimir Hallgrímsson, þjálfari liðsins segir í viðtali í Fréttum að m.a. verði fengnir leikmenn frá Bítlaborginni Liverpool í Englandi. Alls munu sjö leikmenn, sem voru með liðinu í fyrra, ekki leika í ár en Heimir er bjartsýnn á að hægt verði að tefla fram sterku liði í sumar. | |||
=== '''Strákarnir æfðu í USA''' === | |||
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV í karlaknattspyrnunni héldu í æfingaferð til Florída í Bandaríkjunum. Leiknir voru æfingaleikir, m.a. gegn bandarísku atvinnumannaliðinu Miami Fusions þar sem hinn hárfagri Mexíkói Carlos Valderrama leikur en ÍBV hafði betur í leiknum, 2:0. Einnig var leikið gegn Washington Wizards en sá leikur tapaðist 0:2. Margt var brallað í ferðinni, farið á NBA leik, Universal Studios og hluti hópsins fylgdist með geimskoti frá Kennedy Space Center. Sannkölluð ævintýraferð. | |||
=== '''Mars:''' === | |||
=== '''Hlynur íþróttamaður ársins 1998''' === | |||
Í marsbyrjun var Hlynur Stefánsson útnefndur íþróttamaður Vestmannaeyja ársins 1998 en afhendingin fór fram í Þórsheimilinu. Sigurlás Þorleifsson, fyrrum knattspyrnumaður og -þjálfari var jafnframt heiðraður fyrir vel unnin störf. Báðir eiga þeir Hlynur og Sigurlás glæsta ferla að baki í knattspyrnunni, bæði hérlendis og erlendis en Hlynur var fyrirliði ÍBV sem hampaði Íslands- og bikarmeistaratitli 1998. | |||
=== '''Útivallagrýlan erfið''' === | |||
Karlalið ÍBV tapaði fyrir Gróttu/KR 27:26 á útivelli en með sigri hefði ÍBV tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Kvennalið ÍBV tapaði einnig á útivelli, gegn Víkingi 19:17 en ÍBV er í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar tveir leikir eru eftir. | |||
=== '''Hemmi auglýsir Eyjarnar''' === | |||
Knattspyrnukappinn Hermann Hreiðarsson, sem leikur með Brentford tók að sér að prófa legghlífar í enska tímaritinu Match of the Day. Karatemaður var fenginn til að sparka í leggi Eyjamannsins og átti Hemmi að leggja mat á hvaða legghlífar væru bestar. Hermann mætti til leiks í búningi Vallógengisins svokallaða, sem gerði góða hluti í innanhúsmóti sem haldið var ár hvert um árabil í Eyjum. Á búningnum voru merki ýmissa fyrirtækja í Eyjum, sem líklega hafa aldrei fengið aðra eins auglýsingu. | |||
=== '''ÍBV í úrslit''' === | |||
Handboltalið ÍBV tryggði sér sæti í úrslitum með góðum sigri á deildarmeisturum Aftureldingar í Eyjum. Lokatölur urðu 28:25. Kvennalið ÍBV komst einnig í úrslit eftir tvo góða sigra á lokaspretti deildarinnar. Fyrst lagði ÍBV bikarmeistara Fram að velli 26:21 og svo Hauka 24:20. Liðið leikur svo gegn Fram í úrslitakeppninni. | |||
=== '''Deiliskipulag Herjólfsdals''' === | |||
Á árinu réðist bæjarstjórn í deiliskipulag fyrir Herjólfsdal. Eðlilega miðaðist vinnan að nokkru leyti við hátíðahöldin í byrjun ágúst ár hvert en í 11. tölublaði Frétta er farið yfir tillögurnar. Þar segir m.a. að byggja eigi varanlegt svið úr timbri og yrði hæð á danspalli um 1,8 metrar og heildarhæð hámark 8 metrar. Þá er lagt til að varanleg brú sé byggð yfir tjörnina. | |||
=== '''Ekki samstarf við Ölgerðina''' === | |||
Á stjórnarfundi aðalstjórnar 13. mars mætti Einar Friðþjófsson, starfsmaður Shell- og Pepsímótsins. Gerði hann grein fyrir vinnu sinni við undirbúning mótanna. Kom fram hjá honum, að ekki verður um áframhaldandi samstarf að ræða við Ölgerð Egils Skallagrímssonar. – Áður hafði aðalstjórn óskað eftir hærri styrk vegna Pæjumótsins. Í svari Ölgerðarinnr við þessari ósk, segir að ekki sé vilji til að hækka styrkinn, en Ölgerðin muni ekki standa í vegi fyrir samningi ÍBV við önnur fyrirtæki. | |||
=== '''Sviptingar í úrslitakeppninni''' === | |||
Kvennalið ÍBV mætti Fram í úrslitakeppni Íslandsmótsins í handbolta. Fram var með heimaleikjaréttinn og vann fyrsta leikinn örugglega 30:23 en ÍBV svaraði með sannfærandi sigri 32:22. Liðin þurfa því að mætast í oddaleik. | |||
=== '''Loksins útisigur''' === | |||
Karlalið ÍBV hefur ekki riðið feitum hesti frá útileikjum liðsins í Íslandsmótinu í handbolta. En leikmenn ÍBV sýndu góðan leik gegn Fram í síðustu umferð deildarkeppninnar og unnu á útivelli 20:21. Um leið tryggði liðið sér heimaleikjarétt í úrslitarimmu gegn Haukum. | |||
=== '''Birkir Kristins til ÍBV''' === | |||
Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Kristinsson skrifaði undir samning um að leika með knattspyrnuliði ÍBV um sumarið. | |||
=== '''Malarvöllurinn ónýtur?''' === | |||
Knattspyrnumenn ÍBV sendu bæjarráði Vestmannaeyja bréf þar sem þeir benda á slæmt ástand malarvallarins við Löngulág. Endurbætur á vellinum þóttu ekki vel heppnaðar og völlurinn í raun hættulegur. Benda þeir jafnframt á aðstöðumun milli ÍBV og liða á höfuðborgarsvæðinu og hversu dapurlegt það sé að Íslands- og bikarmeistarar skuli búa við slíka æfingaaðstöðu. | |||
=== '''Draumurinn um undanúrslit að engu''' === | |||
Eyjamenn gerðu sér vonir um að komast í undanúrslit Íslandsmótsins en leikið var gegn Haukum í 8-liða úrslitum og var ÍBV með heimaleikjaréttinn. Eyjamenn höfðu betur í fyrsta leiknum, 30:25 en Haukar svöruðu með stórsigri í Hafnarfirði 33:24. Liðin mættust því í oddaleik í Eyjum. Leikurinn stóð hins vegar ekki undir væntingum, Haukar voru einfaldlega betri, voru 10:15 yfir í hálfleik og unnu að lokum 29:34. Þar með féll ÍBV úr keppni en þetta var jafnframt eina tap ÍBV á heimavelli í Íslandsmótinu. | |||
=== '''Slæm byrjun varð ÍBV að falli''' === | |||
Eyjakonur mættu Fram á útivelli í oddaleik í úrslitum Íslandsmótsins. ÍBV byrjaði mjög illa og staðan í hálfleik var 12:3. En seinni hálfleikur var mun betri, þótt sigur Fram hefði aldrei verið í hættu. | |||
=== '''11 Eyjapeyjar með öðrum liðum''' === | |||
ÍBV stóð sig vel í Íslandsmótinu í handbolta og tefldi fram vel samkeppnishæfu liði veturinn 1998-1999 en liðið tapaði ekki leik í deildarkeppninni á heimavelli. Það er ekki síst merkilegt fyrir þá staðreynd að 11 leikmenn annarra liða í Íslandsmótinu, fengu sitt handboltauppeldi í Eyjum. Samkvæmt Fréttum voru þetta þeir Magnús Arnar Arngrímsson, Gunnar Berg Viktorsson og Sebastían Alexandersson sem léku allir með Fram, Arnar Pétursson og Birkir Ívar Guðmundsson léku með Stjörnunni, Hlynur Jóhannesson varði mark HK, Lárus Long lék með FH, Erlingur Richardsson með Val, Björgvin Þór Rúnarsson með Selfossi og þeir Zoltán Bragi Belanyi og Gylfi Bragason með Gróttu/KR. | |||
==== '''Apríl:''' ==== | |||
==== '''Þorbergur hættir hjá ÍBV''' ==== | |||
Þorbergur Aðalsteinsson, sem þjálfað hefur karlalið ÍBV í handbolta síðustu fjögur ár, mun ekki halda áfram með liðið. „Þorbergur hefur skilað góðu starfi og menn skilja sáttir,“ sagði Magnús Bragason, formaður handknattleiksráðs ÍBV í Fréttum en ekki var búið að ráða nýjan þjálfara. | |||
=== '''Simmi hættir''' === | |||
Sigmar Þröstur Óskarsson, einn besti markvörður landsins, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 23 ár í meistaraflokki. Simmi hefur marga fjöruna sopið á þessum tíma en um vorið lauk hann námi við skipstjórnardeild FÍV og því á leið á sjóinn. Simmi hóf ferilinn 15 ára gamall, árið 1976 með Þór og eftir að meistaraflokkarnir voru sameinaðir í ÍBV, stóð Simmi áfram í markinu. Auk þess að spila með þessum tveimur félögum, lék hann með Stjörnunni og KA. „Þetta er búið að vera mjög gaman en það sem mér þykir verst er að hafa ekki náð meistaratitli með ÍBV,“ sagði Simmi í viðtali í Fréttum. | |||
=== '''Gunnar ósáttur og farinn''' === | |||
Gunnar Sigurðsson, sem varði mark knattspyrnuliðs ÍBV, hefur ákveðið að róa á önnur mið eftir að Birkir Kristinsson gekk í raðir liðsins. Gunnar segir viðskilnaðinn ekki hafa verið í góðu en ber þó engan kala til félagsins, eins og fram kemur í viðtali í 15. tölublaði Frétta. Gunnar var ekki lengi að finna sér nýtt lið en hann samdi við sænska 1. deildarliðið IK Brage. | |||
=== '''Venni líka ósáttur''' === | |||
Sigurvin Ólafsson, ákvað einnig að róa á önnur mið en í aðsendri grein segir hann að viðskilnaðurinn hafi endað með leiðindum. Sigurvin, eða Venni gekk í raðir Fram en hann hafði glímt við erfið meiðsli tímabilið á undan. | |||
=== '''Guðfinnur og Guðbjörg best''' === | |||
Lokahóf handboltans fór fram í Kiwanis. Hápunktur kvöldsins var þegar handknattleiksfólk ársins var tilkynnt en heiðurinn kom í hlut þeirra Guðfinns Kristmannssonar og Guðbjargar Guðmannsdóttur. Sigurður Ari Stefánsson og Hind Hannesdóttir fengu Fréttabikarana og þá voru þeir Sigmar Þröstur Óskarsson, Þorbergur Aðalsteinsson og Þorvarður Þorvaldsson allir heiðraðir fyrir vel unnin störf í þágu handboltans. | |||
=== '''ÍBV Norður-Atlantshafsmeistari 1999''' === | |||
Íslandsmeistarar ÍBV í knattspyrnu og Færeyjameistarar í HB, mættust í meistarakeppni landanna tveggja á gervigrasvellinum í Færeyjum. Um 1500 manns mættu á leikinn, sem var hinn fjörugasti. Leiknum lauk með sigri ÍBV eftir vítaspyrnukeppni en lokatölur eftir venjulegan leiktíma var 2:2. | |||
=== '''Maí:''' === | |||
=== '''Fjórði flokkur bikarmeistari''' === | |||
Strákarnir í fjórða flokki í handboltanum stóðu sig vel. Liðið tapaði naumlega í úrslitum Íslandsmótsins gegn KA en unnu bikarmeistaratitilinn eftir framlengdan leik gegn FH 21:17. | |||
=== '''Simmi í liði ársins''' === | |||
Sigmar Þröstur Óskarsson, markvörður ÍBV í handbolta var valinn í lið ársins á lokahófi HSÍ. Þá var kvennaliði ÍBV valið prúðasta lið Íslandsmótsins. | |||
=== '''Misstu af úrslitaleiknum''' === | |||
Karlalið ÍBV tapaði fyrir ÍA í undanúrslitum deildarbikarsins en lokatölur urðu 1:2. Leikurinn fór fram á Helgafellsvelli. | |||
=== '''Gunnari Berg margt til lista lagt''' === | |||
Handknattleiksmanninum Gunnari Berg Viktorssyni er margt til lista lagt en á dögunum fór hann holu í höggi á golfvellinum í Eyjum, á 17. braut. „Ég hélt nú alveg rónni en það sama er ekki hægt að segja um meðspilarann, Sigurð Bragason, hann trompaðist alveg, faðmaði mig og kyssti, slíkur var fögnuðurinn,“ sagði Gunnar Berg í viðtali í Fréttum. | |||
=== '''Steingrímur með fernu''' === | |||
Kvennalið ÍBV tapaði fyrsta leik sínum í Íslandsmótinu í fótbolta þegar liðið sótti geysisterkt lið KR heim. Lokatölur urðu 3:1 fyrir KR. Karlalið ÍBV byrjaði á stórsigri á heimavelli gegn Leiftri, 5:0 þar sem Steingrímur Jóhannesson gerði fjögur mörk. Liðið gerði svo markalaust jafntefli gegn Val á útivelli í næsta leik. | |||
=== '''Úr leik í deildarbikarnum''' === | |||
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV urðu að sætta sig við tap gegn ákveðnum Skagamönnum í deildarbikar karla. Ljósi punkturinn við leikinn er að ÍBV var án nokkurra lykilmanna og var skarð þeirra fyllt með ungum og efnilegum leikmönnum. Bjarni Jóhannsson þjálfari notaði líka alla varamennina þannig að unglingamir í hópnum fengu tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og fá um leið innistæðu í reynslubankann. | |||
=== '''Heppnir að ná stigi''' === | |||
Leikur Vals og ÍBV á Hlíðarenda í Landssímadeildinni fór fram við ágætar aðstæður. Byrjunin var ansi fjörleg, ÍBV fékk kjörið tækifæri strax á annarri mínútu leiksins, þegar Ívar Ingimarsson átti skalla inn í vítateig Vals og Hlynur náði að pota í boltann en markmaður Vals varði. Fleiri urðu marktækifærin en mörkin létu ekki sjá sig og mátti ÍBV þakka fyrir að halda heim með annað stigið. | |||
=== '''Júní''' === | |||
=== '''Gámakaup og styrkir''' === | |||
Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar mætti á stjórnarfund aðalstjórnar 10. júní. Gerði hann grein fyrir störfum nefndarinnar. Þá sagði hann að þjóðhátíðarnefnd hefði ákveðið að kaupa vörugáma til að byggja nýtt svið. Eldri gámarnir væru orðnir lélegir. | |||
Á sama fundi samþykkti aðalstjórn að veita 100 þúsund króna styrk til utanferða yngri flokka félagsins. Skuli sú upphæð skiptast jafnt milli karla og kvenna. Þá var samþykkt á næsta fundi að kostnaður við ferðir á önnur mót en Íslandsmót verði ekki greiddur af ÍBV íþróttafélagi. | |||
=== '''Sorglegt''' === | |||
Liðsmenn ÍBV vilja sennilega gleyma leik sínum gegn Blikum í Kópavogi í Landssímadeildinni. Ástæðan einföld, leikurinn var afspyrnuslakur af hálfu Eyjamanna. Leikurinn fór 1 - 0 fyrir heimamenn og var sigurinn síst of stór. | |||
Sorglegt var að horfa upp á jafn gott lið og ÍBV spila jafn ömurlega og í þessum leik. Leikmenn virtust mjög þungir og spiluðu engan veginn sem eitt lið. Voru mjög óöruggir á boltann og þar af leiðandi náðu þeir aldrei að skapa sér góð marktækifæri með hröðum og góðum sóknarleik. Vonandi verður þessi leikur Eyjamönnum lokaaðvörun fyrir framhaldið. Því annars hlýtur spurningin að vera: Hvað er að strákar? | |||
=== '''2. flokkur karla''' === | |||
Annar flokkur karla hóf Íslandsmótið í a-riðli með því að gera jafntefli gegn KR-ingum á heimavelli á mánudagskvöld. Strákarnir sýndu ágætis tilþrif en þegar á heildina er litið var jafntefli nokkuð sanngjörn úrslit. Mark ÍBV skoraði Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Þess má geta að þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum, þar af tveir KR-ingar. | |||
=== '''Stelpurnar öflugar''' === | |||
Annar flokkur kvenna lék sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu nú í vikunni. Eyjastúlkur mættu liði Stjörnunnar í hörkuleik og sigruðu sannfærandi, 3-2. Mörk ÍBV skoruðu; Kelly Shimmen tvö og Bryndís Jóhannesdóttir eitt. | |||
=== '''Grátlegt hjá þriðja flokki''' === | |||
Þriðji flokkur karla lék gegn Keflvíkingum í Eyjum í júníbyrjun og voru miklar sviptingar í leiknum. Eyjapeyjar rúlluðu gestunum upp í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi, 3-0. Í síðari hálfleik gekk allt á afturfótunum og máttu heimamenn þola tap í leiknum, 3-4. Mörk IBV skoruðu þeir; Bjarni Rúnar tvö og Haraldur eitt. | |||
=== '''Hásteinsvöllur ólöglegur''' === | |||
Knattspyrnuvöllurinn við Hástein fullnægir ekki þeim skilyrðum sem sett eru um slík mannvirki að kröfum KSÍ. - Talsverðar endurbætur þarf að gera á áhorfendasvæði, aðgengi fyrir leikmenn og aðstöðu fyrir miðasölu. Sótt hefur verið um undanþágu til KSÍ vegna þessa. KSÍ hefur ítrekað krafist endurbóta og segir að einungis sé heimilt að veita undanþágu ef staðfest framkvæmdaáætlun liggi fyrir um endurbætur. ÍBV fær frest fram til 15. júlí til að leggja fram staðfesta framkvæmdaáætlun um endurbætur. Ef sú áætlun liggur þá ekki fyrir má eins búast við að ÍBV verði ekki leyft að leika sína heimaleiki á Hásteinsvelli. | |||
=== '''Fjöldi viðurkenninga á lokahófi''' === | |||
Lokahóf yngri flokkanna í handbolta var haldið um mánaðarmótin maí/júní. Þau hlutu viðurkenningar að þessu sinni: | |||
'''3. flokkur karla''': Sigurður Ari Stefánsson hlaut FRÉTTABIKAR karla en önnur verðlaun voru ekki veitt í þessum flokki. | |||
'''3. flokkur kvenna''': Hind Hannesdóttir hlaut FRÉTTABIKAR kvenna. Besti leikmaður: Hind Hannesdóttir. Mestu framfarir: Aníta Ársælsdóttir. Efnilegust: Anna Rós Hallgrímsd. | |||
'''4. flokkur kvenna:''' Besta ástundun: Aníta Eyþórsdóttir. Mestu framfarir: Hildur Ólafsdóttir. Efnilegust: Bjarný Þorvarðardóttir. | |||
'''4. flokkur karla:''' Mestu framfarir: Sigþór Friðriksson. Efnilegasti: Kristinn Jónatansson. Besti leikmaður: Einar Hlöðver Sigurðsson. | |||
'''5.flokkur kvenna''': Mestu framfarir: Erna Sævarsdóttir. Besta ástundun: Kristín I Grímsdóttir. Prúðasti leikmaður: Karítas Þórarinsdóttir. | |||
'''5. flokkur karla:''' Mestu framfarir: Jens Kristinn Elíasson. Besta ástundun: Benedikt Ó. Steingrímsson. Prúðasti leikmaður: Hilmar Á. Björnsson. | |||
'''6. flokkur kvenna - eldri:''' Prúðasti leikmaður: Anna M. Kristinsdóttir. Mestu framfarir: Karen Birgisdóttir. Besta ástundun: Hildur B. Bjarkadóttir, Sæunn Magnúsdóttir og Svala Jónsdóttir. | |||
'''6. flokkur kvenna - yngri''': Prúðasti leikmaður: Þórunn Sigurðardóttir. Mestu framfarir: Hekla Hannesdóttir. Besta ástundun: Ester Óskarsdóttir og Helena S. Magnúsdóttir. | |||
'''6. flokkur karla - eldri:''' Prúðasti leikmaður: Gísli Stefánsson. Mestu framfarir: Daði Ólafsson. Besta ástundun: Daði Ólafsson, Eyþór Björgvinsson, Pálmi Harðarson og Grétar Stefánsson. | |||
'''6. flokkur karla - yngri:''' Prúðasti leikmaður: Óttar Steingrímsson. Mestu framfarir: Daði Magnússon og Egill Jóhannsson. Besta ástundun: Sæþór Garðarsson. | |||
=== '''Tap í frábærum leik''' === | |||
Það var ljóst strax á fyrstu mínútu leiks ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli í meistaradeild kvenna að bæði liðin ætluðu sér ekkert nema sigur og að fyrir höndum var stórskemmtilegur leikur. Fyrri hálfleikur stóð fyllilega undir þeim væntingum en enginn átti von á eins stórkostlegum seinni hálfleik og raun varð á. I fyrri hálfleik var staðan 1- 0 heimakonum í vil en í seinni hálfleik urðu mörkin 8 og höfðu gestirnir betur en lokatölur urðu 4-5 . Er seinni hálfleikur einn sá skemmtilegasti sem sést hefur í kvennaknattspyrnu í Vestmannaeyjum og ekki hafa karlarnir gert betur það sem af er tímabilinu. | |||
=== '''ESSO og IBV undirrita nýjan samstarfssaming til 2ja ára''' === | |||
Olíufélagið hf. ESSO og knattspyrnudeild ÍBV undirrituðu nýjan samstarfssamning sinn til tveggja ára. ESSO er stærsti styrktaraðili knattspyrnudeildar ÍBV eins og undanfarin 11 ár. Samningurinn var undirritaður við nýja bensínstöð ESSO í Ártúnshöfða í Reykjavík með pompi og pragt. Samstarf Olíufélagsins hf. ESSO og knattspyrnudeildar ÍBV hefur nú staðið yfir í 11 ár. í upphafi samstarfsins var ÍBV að berjast í bökkum í næstefstu deild en þrátt fyrir misjafnt gengi liðsins í gegnum tíðina hefur ESSO ávallt haldið tryggð við ÍBV enda Eyjamenn einstaklega atorkusamir við að koma sér í kastljós fjölmiðla. Á síðustu tveimur árum hefur samvinnan svo skilað sér í íslandsmeistaratitlum og bikarmeistaratitli ÍBV. Samvinna ESSO og IBV í gegnum tíðina hefur verið einstök. Eins og góðu hjónabandi sæmir styrkjast stoðirnar og samheldnin eftir því sem árunum fjölgar. Áfram skal haldið á sömu braut. Enn á ný hafa ESSO og ÍBV ákveðið að halda áfram farsælu samstarfi sínu. Olíufélagið hf. ESSO verður áfram stærsti styrktaraðili ÍBV og bera allir karlaflokkar, frá meistaraflokki og niður í 7. flokk, merki Olíufélagsins hf. ESSO á brjósti IBV búninga deildarinnar auk þess að vera áberandi á einn og annan hátt í starfi deildarinnar. | |||
=== '''Ánægja með Pæjumótið''' === | |||
Forsvarsmenn KA-Pæjumótsins eru mjög ánægðir með hvernig mótið gekk fyrir sig. Þrátt fyrir þriggja daga rigningu og stífan vind tókst að ljúka mótinu á tilsettum tíma. Björn Elíasson, sem var í stjórn mótsins, segir mótið hafa gengið mjög vel fyrir sig, miðað við hvernig veðrið var. „Vegna bleytu á laugardeginum gripum við til varaáætlunar, færðum leikina aftar á daginn, styttum leiktímann og tókst að Ijúka Ieikjum dagsins um hálfníuleytið um kvöldið. Þetta tókst því eins vel og hægt var að búast við og á allt okkar starfsfólk mikið hrós skilið, ekki síður en þátttakendurnir sem sýndu bæði skilning og þolinmæði. Sérstaklega ber að þakka húsvörðum skólanna og svo fólki úti í bæ sem tók að sér að þurrka fatnað af liðunum. Auðvitað koma alltaf upp einhver mál þar sem ekki eru allir ánægðir en í móti með 850 þátttakendum væri nú bara óeðlilegt ef ekki kæmi slíkt upp á. Mér fannst aftur á móti ótrúlegt hve lítið fór úrskeiðis, miðað við hvernig veðrið var. Og núna erum við að fá inn á póstinn okkar á netinu hrós og þakkir, bæði frá þátttakendum og fararstjórum. Við getum því ekki verið annað en ánægð með hvernig til tókst," sagði Björn Elíasson. | |||
Í Pæjumótinu lenti 3. flokkur A: ÍBV í 3. sæti og þar varð Elva Dögg Grímsdóttir í öðru sæti yfir markahæstu menn með 7 mörk. | |||
3. flokkur B: ÍBV lenti þar í 4.sæti og Ásta Hrönn Guðmannsdóttir varð markahæst með 7 mörk. | |||
4. flokkur A: ÍBV-liðið lék hreint út sagt frábærlega og sigraði mjög sannfærandi lið KR í úrslitaleik, 4-0. Margrét Lára Viðarsdóttir varð langmarkahæst með 22 mörk og Thelma Sigurðardóttir varð í öðru sæti með 15 mörk. | |||
5. flokkur A: ÍBV sigraði Val í úrslitaleik, 4-3, eftir vítaspyrnukeppni. | |||
5.flokkur B: ÍBV lenti í 5. sæti | |||
6. flokkur A: ÍBV sigraði þar með glæsibrag | |||
6. flokkur B: Þar voru Eyjastúlkur með tvö lið, ÍBV og ÍBV-2. ÍBV-2 sigraði og ÍBV varð í 3. sæti. Elísabet Þorvaldsdóttir varð markahæst með 12 mörk og þær Berglind Þorvaldsdóttir og Bylgja Haraldsdóttir voru jafnar í þriðja sætinu með 8 mörk skoruð. | |||
=== '''Sigur í grófum leik''' === | |||
Eyjamenn mættu grimmir til leiks gegn Fram á Hásteinsvelli í Landssímadeildinni. Þessi grimmd entist þó aðeins fyrri hálfleikinn en sá tími hefði átt að nægja Eyjamönnum til að gera út um leikinn. En færin nýttust illa og var staðan í leikhléi 1 - 0 Eyjamönnum í vil. Seinni hálfleikur var jafnari en um leið var hann einn grófasti leikur ÍBV í langan tíma og var uppskeran 4 gul spjöld og eitt mark sem á einhvern óskiljanlegan hátt var dæmt af. | |||
Bjarni Jóhannsson, þjálfari, gerði umtalsverðar breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Fram. Hlynur Stefánsson fór úr vörn á miðjuna og Guðni Rúnar tók sæti hans í vörninni. Bjarni Geir Viðarsson kom nýr inn í byrjunarlið í stöðu hægri bakvarðar og Ívar Bjarklind var færður fram í stöðu framliggjandi miðjumanns. | |||
=== '''Heppnin ekki með Eyjastúlkum''' === | |||
ÍBV-stelpurnar urðu að sætta sig við tap þegar þær mættu Val. Lokatölur urðu 2- 1 en í hálfleik var staðan 1 - 1 . Fljótlega í upphafi fyrri hálfleiks fékk ÍBV á sig hálf klaufalegt mark og tók það liðið nokkum tíma að ná vindi í seglin á ný. Það tókst þó og með mikilli baráttu tókst Eyjastúlkum að jafna með marki Karenar Burke. Strax á fyrstu mínútum seinni hálfleiks tókst Valsstúlkum að skora mark sem tryggði þeim þrjú stig úr leiknum. Þrátt fyrir mótlætið gáfust ÍB V-stelpumar ekki upp. Þær náðu að skapa sér nokkur góð færi en því miður höfðu þær ekki heppnina með sér að þessu sinni. | |||
=== '''Í kröppum dansi''' === | |||
Bikarmeistarar ÍB V komust í hann krappan þegar þeir mættu 3. deildarliði Leiknis á útivelli í fyrrakvöld í 32 liða úrslitum bikarkeppninnar. Jafnt var undir lok leiksins, 2 - 2, en á lokamínútunum tókst Eyjamönnum að skora tvö mörk og gera þannig út um leikinn. | |||
=== '''Gullkorn''' === | |||
Gullkorn frá Jóa Pé. Þeir félagar í handknattleiksráði voru að ræða um verðandi andstæðinga Íslands í Evrópukeppninni í handknattleik og Jóhann Pétursson hræddist aðeins eitt lið og sagði: „Ég vona aðeins að Íslendingar dragist ekki á móti Kúbu í Evrópukeppninni!!" | |||
=== '''Alltaf stórleikur þegar spilað er við KR''' === | |||
Sannkallaður stórslagur í Landssímadeildinni og þarf ekki að taka fram hvað leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið. Með sigri KR hefðu þeir stungið af í deildinni og skilið IBV eftir. Eyjamenn voru ekki á þeim buxunum að láta KR-ingum þetta eftir og höfðu sigur, 2 - 1, en staðan var jöfn í hálfleik, 1-1. Eyjamenn komu virkilega vel stemmdir til leiks og var ekki liðin nema um mínúta af leiknum þegar þeir fengu sitt fyrsta tækifæri. Vantaði Inga Sigurðsson ekki nema eina tommu upp á að pota boltanum í netið. Boltinn kom þvert fyrir mark KR-inga rétt utan marklínu en því miður náði Ingi ekki til boltans sem kominn var framhjá Kristjáni markmanni. | |||
KR-liðið er mjög léttleikandi enda eru þeir með marga snjalla leikmenn innanborðs. Það var því strax ljóst að framundan var spennandi leikur. Eftir hrapalleg mistök í vörn Eyjamanna náðu strákarnir hans Atla að sýna klærnar og skora mark. Þá voru aðeins sex mínútur liðnar af leiknum. Markið sló heimamenn út af laginu en þeir náðu þó að berja frá sér og fengu fljótlega tvö mjög góð færi. | |||
Jöfnunarmark ÍBV kom eftir hornspyrnu frá Baldri Bragasyni sem loksins er á ná sér á strik í nýju liði. Hlynur fyrirliði náði boltanum og stýrði honum í netið og jöfnunarmarkið var staðreynd. Staðan varl-1 í leikhléi. | |||
ÍBV var ekki á sama máli og þegar níu mínútur voru eftir af leiknum, skoraði Ívar Ingimarsson, sigurmark ÍBV með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu frá Baldri Bragasyni. Sigurinn á KR kostaði sitt, Ingi fékk rautt í lokin fyrir klaufalegt og óþarft brot og Hlynur fór meiddur af velli og verður frá í einhvern tíma. | |||
=== '''Ójafn leikur''' === | |||
í Landssímadeild kvenna áttust við Fjölnir og ÍBV um miðjan júní. Leikurinn var mjög ójafn frá upphafi til enda og hefði sigur ÍBV getað orðið miklu stærri. Kelly Schimmen skoraði tvö mörk fyrir ÍBV strax í upphafi leiks og var staðan, 0 - 2, í hálfleik. ÍBV-stelpur sóttu án afláts í síðari hálfleik, en náðu aðeins að bæta einu marki við og var þar að verki Fanný Yngvadóttir. | |||
=== '''Mikilvægur sigur''' === | |||
Þriðji flokkur karla lék hér heima gegn Val seinnipart júní. Var leikurinn bráðskemmtilegur á að horfa. Lið Vals er talið eitt það sterkasta á landinu í dag, en Eyjapeyjar sýndu góða takta í leiknum og sigruðu að lokum, 4-3. Bjarni Einarsson átti stórleik í liði ÍBV og skoraði öll fjögur mörk ÍBV í leiknum. | |||
=== '''Skellur hjá fjórða flokki''' === | |||
Fjórði flokkur karla fékk Breiðablik í heimsókn og fengu strákarnir stóran skell. A-liðið mátti sætta sig við sjö marka tap, 4-11 og b-liðið tapaði, 2-4. | |||
=== '''Upprúllun''' === | |||
Fjórði flokkur kvenna lék tvo leiki í síðustu helgina í júní. A-liðið lék gegn Fram og sigraði, 21-2 og síðan léku stelpumar gegn Grindavík og vann a-liðið, 9-2 og b-liðið vann, 6-1. | |||
=== '''Sigur gegn Víkingi''' === | |||
Í lok júní fékk meistaraflokkur ÍBV karla nýliða Víkings í Landssímadeildinni í heimsók á Hásteinsvöll. ráðnir að breyta því í þessum leik. ÍBV byrjaði betur, þeir héldu boltanum nokkuð vel og voru grimmari í návígum. Það var svo þvert gegn gangi leiksins að heimamenn skoruðu og var það fyrir klaufagang í vörn ÍB V. Ekki í fyrsta skipti og var þetta á 13. mínútu. Markið kom eins og köld vatnsgusa í andlit Eyjamanna, en þeir náðu þó að koma sér fljótlega inn í leikinn aftur með marki Guðna Rúnars Helgasonar, sem skoraði með innanfótarskoti eftir misskilning milli markmanns og varnarmanns Víkings. | |||
Seint í síðari hálfleik bætti Guðni Rúnar svo við öðru marki og sigur ÍBV 2-1 í höfn. | |||
=== '''Stórsigur í bikarkeppninni og fjör á eftir''' === | |||
Eyjastúlkur mættu Fjölni í Coca Cola bikar kvenna um í lok mánaðar. ÍBV-liðið fór á kostum og sigraði stórt, 0 - 7. Kelly Schimmen gerði þrennu í leiknum, Karen Burke, Lára D. Konráðsdóttir og Lisa gerðu eitt mark hver og eitt mark var sjálfsmark. Staðan í leikhléi var, 0-3. Heimir Hallgrímsson, þjálfari IB V, var ánægður með sínar stelpur í leiknum. „Þetta var góður leikur af okkar hálfu og stelpumar gerðu bara það sem þær áttu að gera. Yfirburðir okkar voru miklir og Fjölnisstúlkur áttu aldrei neinn möguleika," sagði Heimir. Líf og fjör hjá stelpunum Eftir leikinn urðu stelpurnar eftir í höfuðborginni og var margt á döfinni. Á föstudagskvöldinu fóm þær út að borða saman á Pasta Basta og í framhaldi af því var kíkt á skemmtistaði borgarinnar. A laugardeginum var farið í LaserTag og keilu og síðan sigldu stelpurnar niður Hvítá. Á sunnudeginum var brunað til Grindavíkur og farið á hestaleigu og svo endað í Bláa lóninu. Já, þær kunna sko að skemmta sér þessar stelpur! | |||
=== '''Júlí''' === | |||
=== Jafntefli gegn Breiðabliki === | |||
Eyjastúlkur fengu frískt lið Breiðabliks í heimsókn í Landssímadeildinni í byrjun júlí. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa enda mjög léttleikandi lið þarna á ferðinni. Leikurinn endaði í jafntefli, 1-1. | |||
=== '''Að éta það sem úti frýs!''' === | |||
Um miðjan júlí birtist lesendabréf í Eyjafréttum frá einum stuðningsmanni ÍBV: | |||
„Ég rak upp stór augu þegar ég fletti á forsíðu íþróttablaðsins í Morgunblaðinu laugardaginn 17. júlí 1999, það gat ekki verið að ég væri vöknuð. „Geta bara étið það sem úti frýs" var fyrirsögnin á viðtali sem Björn Ingi Hrafnsson tók við Bjarna Jóhannsson þjálfara ÍBV, þar er Bjarni að tala til þeirra sem gagnrýna leikskipulag liðsins^ Ég varð hálf ill að sjá hvemig þjálfari liðsins míns talaði til okkar stuðningsmanna sinna. Ég hreinlega veit ekki hvað þessir menn halda að þeir séu orðnir. Ef ég, sem stuðningsmaður, má ekki orðið gagnrýna leik eða leikskipulag minna manna og hafa mína skoðun, þá held ég að það sé best fyrir alla unnendur þessa leiks að finna sér annað áhugamál, þetta er jú hluti af „programmet". ÍBV er það lið sem hefur nú síðustu ár getað státað sig af frábærum stuðningsmönnum, sem hafa getað gert nánast hvaða knattspyrnuvöll sem er að sínum heimavelli. Einhvern tíma hefði verið talið að sá árangur sem ÍBV hefur náð væri ekki hægt að ná nema með hjálp stuðningsmanna, en nú er greinilega komið annað hljóð í strokkinn. Þessir menn sem stjórna liðinu verða að gera sér | |||
að hafa fyrir því að halda stuðningsmönnunum en ég er ekki viss um að þeir líði svona framkomu. Ég hef alltaf haft stórt ÍBV hjarta en nú eru tilfinningarnar í garð liðsins orðnar blendnar. Þetta hefur alltaf verið gaman en nú er gamanið búið. Er ekki nokkur maður að þessu lengur af því að hann hefur gaman að þessu, er þetta allt gert einungis fyrir aurana. Mér finnst mjög mikilvægt að stjórnarmenn og þjálfari ÍBV liðsins fari núna að hugsa sinn gang áður en þeir mála sig algjörlega út í horn. Ef þjálfarinn getur ekki tekið gagnrýni þá held ég að hann sé ekki á réttri hillu í lífinu, hann ætti að leita sér að nýrri vinnu. | |||
Með íþróttakveðju, Þórunn Ragnarsdóttír Sörlaskjóli 5 107 Reykjavík“ | |||
=== '''Góður sigur hjá 2. flokki''' === | |||
Annar flokkur karla lék gegn ÍA á heimavelli. Eyjapeyjar voru sprækir í þessum leik og sigruðu gestina með tveimur mörkum gegn einu. Mörk ÍBV skoruðu þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Elías Ingi Björgvinsson. | |||
=== '''5. flokkur''' === | |||
Fimmti flokkur karla fékk lið Grindavíkur í heimsókn. Úrslit urðu sem hér segir: A-lið: ÍBV-Grindavík 2-1. Mörk ÍBV Einar Kr. og Viðar. alt A-lið: ÍBV-Grindavík 3-4 Mörk ÍBV Egill 2, Hjálmar l. C-lið: ÍBV-Grindavík 1-2. Mark ÍBV skoraði Daði. | |||
=== '''Jóhann nýr formaður''' === | === '''Jóhann nýr formaður''' === |
Útgáfa síðunnar 16. júlí 2019 kl. 17:52
Undanfari og upphaf
Eins og nafn Íþróttabandalags Vestmannaeyja gefur til kynna er þetta bandalag margra mismunandi hópa. Mörg félög höfðu verið í Eyjum bæði fyrir stofnun bandalagsins og einnig hafa mörg félög starfað í gegnum árin samhliða ÍBV. Félögin Þór og Týr höfðu verið starfandi frá öðrum og þriðja áratug 20. aldarinnar og hvatt hvort annað áfram með stöðugri samkeppni. Þessi félög, ásamt öðrum sértækari, höfðu haft með sér félög sem kepptu á landsmótum. Hétu félögin Íþróttaráð Vestmannaeyja, ÍRV, og undir stjórn Einars ríka var keppt fyrir hönd KV á landsmótum. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar varð hnignun í íþróttamálum í Eyjum vegna þess að ungt fólk fékk vinnu hjá hernum og við síldveiðar á Norðurlandi. Með nýjum íþróttalögum var óskað eftir því að samband íþróttafélaga í Vestmannaeyjum væri stofnað. Hinn 6. maí 1945 var stofnað bandalag íþróttafélaga í Vestmannaeyjum, Íþróttabandalag Vestmannaeyja. Félögin höfðu eitthvað keppt í eigin nafni upp á meginlandinu fyrir stofnun bandalagsins en nú skyldi keppa í nafni ÍBV utan héraðs.
Fyrsta sumarið (árið 1945), sem héraðssamband ÍBV var við stjórnvölinn, var vel skipulögð starfsemi og vissu félögin strax um vorið hvenær þau ættu að sjá um mót, hvort sem var í knattspyrnu, handknattleik eða frjálsum íþróttum. Ekki var keppt í sundi þetta sumar því viðgerðir stóðu yfir á lauginni en strax um haustið hófst sundkennsla hjá Friðriki Jessyni.
Knattspyrnan þurfti að heyja baráttu við fiskinn sem laðaði menn á vertíðir. Það var þó á hásumrin sem menn gáfu sér tíma til að sparka í nokkra bolta. Handknattleikurinn var hins vegar mjög vinsæll og þetta tiltekna sumar hafði uppgangur aldrei verið meiri. Mörg mót voru haldin og voru margir áhorfendur og þá aðallega eldri konur. Frjálsar íþróttir höfðu vaxið í vinsældum frá 1930 og á fjórða og fimmta áratugnum voru Vestmannaeyingar stórveldi í frjálsum íþróttum og unnu til fjölda verðlauna.
Eftir að íþróttafélögin Þór og Týr sameinuðust um áramótin 1996-1997 í eitt félag, ÍBV íþróttafélag, hætti Íþróttabandalagið öllum rekstri á eiginlegri íþróttastarfsemi, en knattspyrnudeild hafði verið haldið úti innan bandalagsins um árabil og séð um rekstur á meistarflokki í knattspyrnu. Fluttist öll íþróttastarfsemi til aðildarfélaga bandalagsins. Starfsemi bandalagsins varð þá eins og til hennar var stofnað í upphafi að vera einskonar regnhlífarsamtök allra íþróttafélaganna í Eyjum og er með aðild að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands fyrir hönd aðildarfélaganna.
Knattspyrnan hefur verið ein aðalíþróttagreinin sem iðkuð hefur verið í Vestmannaeyjum, en hin síðari ár hefur handboltanum vax mjög ásmegin.
Saga ÍBV íþróttafélags í 20 ár - Þar sem hjartað slær
Gísli Valtýsson tók saman.
Í 20 ára sögu ÍBV íþróttafélags er margs að minnast. Í annál félagsins má sjá að félagið er í sjálfu sér stórveldi á íþróttasviðinu, ekki síst í ljósi þess að íbúar Vestmannaeyja eru aðeins 4300 talsins. Í meistaraflokkunum hefur félagið landað 33 titlum, Íslands-, bikar-, Lengju-, Fótbolta.net-, Futsal- og meistarar meistaranna. Þar af 7 Íslandsmeistaratitlum í efstu deildum handbolta og fótbolta.
Í yngri flokkunum hefur félagið eignast 24 Íslandsmeistaratitla í hinum ýmsu keppnum í handbolta og fótbolta og 6 bikarmeistaratitla auk annarra titla í hinum ýmsu mótum. Samtals hefur ÍBV íþróttafélag hlotið 87 meistaratitla af ýmsum toga.
Þá hefur félagið eignast landsliðsfólk í öllum landsliðum Íslands í handbolta og fótbolta, frá yngstu flokkunum og uppúr, - fleiri en tölu verður á komið og verið Vestmannaeyjum og félagi sínum til mikils sóma.
Fimm sinnum hefur karlalið ÍBV íþróttafélags tekið þátt í Evrópukeppnum í knattspyrnu og tvö skipti komist áfram í 2. umferð.
Karlalið ÍBV í handbolta hefur fjórum sinnum tekið þátt í Evópukeppnum og konurnar einnig fjórum sinnum. Árið 2004 komst kvennaliðið alla leið í undanúrslit.
En titlar eru ekki allt, félagið hefur rekið gríðarlega umfangsmikið barna- og unglingastarf í handbolta og fótbolta, þar sem allir eru velkomnir. Tvö af stærstu knattspyrnumótum hvers árs á Íslandi eru haldin í Vestmannaeyjum á vegum félagsins, Orkumótið fyrir drengi og TM mótið fyrir stúlkur. Þá er á hverju hausti haldið í Eyjum eitt stærsta handboltamót yngri flokkanna, Eyjablikksmótið.
Um hver áramót er gamla árið kvatt með brennu og flugeldasýningu í Hásteinsgryfjunni og glæsilegasta þrettándahátíð landsins er í Eyjum á vegum ÍBV. Ekki má svo gleyma stærstu útihátíð landsins, Þjóðhátíðinni, sem enga á sína líka. ÍBV íþróttafélag er því gríðarlega stór hluti af mannlífinu í Eyjum og dregur mörg þúsund manns til Eyja á hina ýmsu viðburði sína og bætir efnahag Vestmannaeyja um stórar fjárhæðir.
Sennilega er ÍBV það „vörumerki“ í Eyjum, sem flestir landsmenn þekkja.
Aðdragandinn
Stofnun ÍBV íþróttafélags hafði nokkurra ára aðdraganda. Eftir talsverðar byggingaframkvæmdir íþróttafélaganna, Þórs og Týs á árunum eftir 1986, var fjárhagsstaða félaganna orðinn nokkuð þung. Árið 1991 tók Knattspyrnufélagið Týr í notkun nýbyggðan íþróttasal við félagsheimili sitt. Sú framkvæmd reyndist félaginu ofviða og var félagið komið í greiðsluþrot á árinu 1996. Sú staða varð til þess að mikill þungi fór í sameiningaviðræður Þórs og Týs, sem að lokum leiddi til sameiningar þeirra. Nokkur ár þar á undan höfðu þau kastað á milli sín hugmyndum um skiptingu handbolta og knattspyrnu milli félaganna; og/eða að stofna tvö félög, handbolta- og knattspyrnufélag og einnig var rætt um sameiningu Þórs og Týs. Sýndist þar sitt hverjum.
Tillögur um framtíðarstarf félaganna
Haustið 1993 varð að samkomulagi milli stjórna félaganna Þórs og Týs og stjórnar Íþróttabandalagsins að fara þess á leit við Stefán Konráðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra ÍSÍ, að hann gerði úttekt á starfi félaganna Þórs og Týs vegna mikillar umræðu sem verið hafði í Vestmannaeyjum um skipulagsmál íþróttahreyfingarinnar.
Á fundi Stefáns með forvígismönnum íþróttahreyfingarinnar í Eyjum, þann 8. nóvember 1993, kom fram að aðaláherslan yrði lögð á að hann mæti hvort til greina kæmi að sameina eða samtengja starfsemi Þórs og Týs, og ÍBV í flokkaíþróttum þannig að aukinn árangur yrði samhliða hagræðingu í starfi.
Í desember skilaði Stefán síðan af sér úttektinni þar sem nokkrum möguleikum var velt upp, m.a. að félögin sæju áfram um yngri flokkana, þau skiptu á milli sín íþróttagreinum, eða eins og lagt var til í róttækustu tillögunni að félögin yrðu lögð niður í núverandi mynd og stofnuð sérgreinafélög innan Íþróttabandalagsins. Stefán lagði til að reynt yrði til þrautar að halda sig við hinar leiðirnar á tveimur næstu árum, og lagði fram hugmyndir að uppbyggingu. Ef starfsemin léttist ekki og árangur batnaði ekki á þessu tímabili, teldi hann eðlilegt að fara leið B, sem hann nefndi svo, að leggja félögin niður.
78% vildu sameina undir merki ÍBV
Í nóvember 1993, áður en tillögur Stefáns Konráðssonar höfðu verið birtar, efndi blaðið Fréttir til skoðanakönnunar í Vestmannaeyjum um viðhorf bæjarbúa til íþróttahreyfingarinnar, en spurt var hvort fólk vildi breytingar á skipulagi hennar. Af 250 aðilum, sem spurðir voru, svaraði 171 og svörin voru nokkuð afdráttarlaus. 78% vildu sameina íþróttahreyfinguna undir nafni ÍBV, 12% vildu halda óbreyttu fyrirkomulagi og 10% vildu að annað félagið tæki að sér handboltann og hitt fótboltann.
Sameining í sjálfu sér einföld
Viðræður stjórna Týs og Þórs strönduðu þegar á leið árið 1994. Þar mun mestu hafa um ráðið að stjórn Týs hafði þau skilaboð frá félagsmönnum að Týr yrði að fá fótboltann, yrði greinunum skipt milli félaganna, ekki kæmi til greina að draga um íþróttagreinarnar eins og rætt hafði verið um. Þetta tóku forsvarsmenn Þórs ekki í mál og því var viðræðum hætt.
Einn af forkólfum íþróttahreyfingarinnar í Eyjum og stjórnarmaður í Íþróttabandalaginu,
Stefán Jónsson, tjáði sig um málið í heilsíðugrein Fréttum 1. desember 1994, þegar ljóst var orðið að frekari sameiningaviðræður voru út úr myndinni. Hann mælir með því að bæði félögin verði lögð niður eða sameinuð í einu félagi. „ÍBV er andlit okkar út á við og að því þurfum við að hyggja og sameina krafta okkar innanbæjar. Þá sameinuðust kraftar þeirra fjölmörgu sem vinna að framgangi íþrótta í einn farveg sem skilaði sér í öflugum íþróttabæ og við ættum möguleika á að tefla fram íþróttafólki í fremstu röð.“
Síðar í sömu grein segir svo:
„Sameining er í sjálfu sér einföld. Félögin Þór og Týr yrðu lögð niður og eignir þeirra rynnu til ÍBV. Um er að ræða tvö félagsheimili, tvo grasvelli og fleira. Bæjarsjóður yfirtæki skuldir félaganna en á móti yrði íþróttahreyfingin að sætta sig við að rammasamningi yrði seinkað um tvö ár.“
Bæjarstjórnin vildi leggja Þór og Týr niður
Bæjarstjórn Vestmannaeyja óskaði í nóvember árið 1995 eftir viðræðum við íþróttafélögin tvö um væntanlega lausn á fjárhagsvanda íþróttahreyfingarinnar. Þau skilyrði sem bærinn setti félögunum, voru nokkuð afdráttarlaus, ef af þeim stuðningi yrði, skyldu bæði félögin lögð niður. Þessi tillaga var felld á félagsfundi hjá Þór.
„Eftir félagsfund hjá okkur sáum við að ekki var hægt að uppfylla það skilyrði og greindum við fulltrúum bæjarins frá því,“ sagði Stefán Agnarsson, formaður Þórs í Fréttum 16. nóvember 1995. „Við erum opnir fyrir öllu nema að leggja félagið niður. Við sjáum ekki að af því verði sparnaður og svo erum við hræddir við að missa fólk sem borið hefur hitann og þungann af starfinu hjá okkur. Það er hætt við að grasrótin noti tækifærið og hætti, verði félagið lagt niður,“ sagði Stefán ennfremur.
En í herbúðum Týs kvað við annan tón. Helgi Sigurlásson, formaður Týs, sagði ljóst að Þórarar hefðu slúttað þessum viðræðum, hefðu ekki einu sinni viljað sjá hvað væri í pakkanum sem bærinn bauð. Hann bætti einnig við að ljóst væri að dæmið gengi ekki upp hjá hvorugu félaginu.
„Það er út úr kortinu að sýna reikninga frá síðasta aðalfundi og segjast skulda 1,8 milljónir eins og Þórarar gera. En skuldastaða félaganna er aukaatriði, það þarf að efla íþróttirnar í bænum og það verður ekki gert með öðrum hætti en að bærinn komi til liðs við okkur eins og hann hefur boðist til. Hefðu menn verið tilbúnir til að skoða alla möguleika, eins og t.d. þá að leggja félögin niður, hefðum við fengið að sjá hvað það í raun og veru var sem bærinn bauð upp á. En það vildu Þórararnir ekki einu sinni líta á,“ sagði Helgi.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, sem ásamt Guðjóni Hjörleifssyni bæjarstjóra, tók þátt í þessum viðræðum af bæjarins hálfu, sagðist líta svo á að þeim væri lokið. Vegna afstöðu Þórs væri þetta endapunktur þess sem þeim hefði verið ætlað að gera.
Bæjarstjórn gerir félögunum tilboð
Í byrjun júlí árið 1996 gerði Vestmannaeyjabær, félagi sem stofnað yrði á grunni Þórs og Týs, kauptilboð í félagsheimili félaganna Þórs og Týs, ásamt og íþróttavöllum, að upphæð krónur 52 milljónir. Í tillögu bæjarstjórnar segir að þetta sé gert til að greiða fyrir og auðvelda sameiningu félaganna og megi skoðast sem aðkoma bæjarsjóðs að fjármálum hins nýja félags. Og tilgangurinn sé að stuðla að öflugri uppbyggingu á íþrótta- og æskulýðsstarfsemi. Í tilboðinu segir að rammasamningur sem í gildi sé, um uppbyggingu íþróttamannvirkja milli bæjarstjórnar og Íþróttabandalagsins falli úr gildi og sé það skilyrði fyrir tilboði bæjarins. Kauptilboðið er tvíþætt, annars vegar býðst bærinn til að kaupa félagsheimilin á 37 milljónir króna á þessu ári og íþróttavellina á næsta ári fyrir 15 milljónir gegn kvaðalausu afsali þeirra annað en áhvílandi veðskuldum. Tilboðið gilti til 18. júlí sama ár.
Samþykkt með tárum
Fundur í Knattspyrnufélaginu Tý nokkrum dögum síðar, samþykkti að ganga að þessi tilboði Vestmannaeyjabæjar. Meira hik var á fundi hjá Íþróttafélaginu Þór sem haldin var 5. september. Fannst fundarmönnum að félaginu væri stillt upp við vegg. Á aðalfundum félaganna sem haldnir voru 10. nóvember samþykktu bæði félögin formlega að sameinast um stofnun nýs íþróttafélags. Ekkert hik var á félagsfundi Týs, tilboðið var samþykkt með samhljóða 38 atkvæðum. Hjá Þór var tillagan samþykkt með 20 atkvæðum gegn 10 og fjórir sátu hjá. Í fundargerð Þórs frá aðalfundinum segir að tár hafi blikað á hvörmum margra félagsmanna, þegar samþykkt var að ganga að tilboði Vestmannaeyjabæjar.
Lausn á tilvistarkreppu
Í blaðinu Fréttum eftir að niðurstaða aðalfundanna lá fyrir sagði Magnús Bragason, formaður handknattleiksráðs Íþróttabandalagsins að hjá þessu hafi ekki verið komist vegna þróunar síðustu ára. „Vestmannaeyjabær hefði mátt koma inn í dæmið með meiri peninga því einhverjar milljónir standa út af," sagði Magnús í viðtali við Fréttir og segist óttast að það geti bitnað á hreyfingunni meðan verið er að hreinsa upp skuldir sem eftir eru. „Enn eru nokkrir hnútar óleystir með fyrirkomulag nýja félagsins en ef allir vinna heilshugar að því að leysa þá verður sameiningin til mikils góðs," bætti Magnús við.
Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, segir sameiningu hafa verið draum þeirra sem starfa fyrir ÍBV í mörg ár. „Nú er það orðið að veruleika og ekkert eftir nema að bretta upp ermarnar og fara að vinna. Hvet ég alla sem vilja styðja ÍBV til að koma til starfa með okkur," sagði Jóhannes.
Þór Vilhjálmsson, sem situr í samninganefndinni fyrir hönd Þórs, sagði að sú staða sem íþróttahreyfingin var komin í hafi ekki getað gengið lengur. „Það varð að finna lausn á þeirri tilvistarkreppu sem hreyfingin var komin í. Ég ber þá von í brjósti að bæjarbúar séu tilbúnir að leggja okkur lið. Það skiptir ekki bara íþróttahreyfinguna miklu að hún verði virkilega öflug, heldur bæjarfélagið allt,"sagði Þór.
„Ég er ánægður með að þetta skuli vera gengið í gegn," sagði Guðjón Rögnvaldsson sem var fulltrúi Týs í samninganefndinni. „Sameiningin á eftir að verða til heilla fyrir íþróttahreyfinguna og bæinn í heild. Næst er að finna menn í stjórn til að stýra þeirri miklu vinnu sem er framundan. Ég hef fundið mikinn stuðning við sameininguna og heyri ekki annað en að menn ætli að koma heilsteyptir inn í nýja félagið," sagði Guðjón.
Þar með er lokið kafla í íþróttasögu Vestmannaeyja sem hófst með stofnun Íþróttafélagsins Þórs þann 9. september árið 1913.
Stofnfundur KH ÍBV
„Eins og ykkur er öllum kunnugt hafa staðið yfir nokkur undanfarin ár töluverðar umræður um að þörf væri á því að endurskipuleggja starfsemi íþróttahreyfingarinnar í Vestmannaeyjum. Margt hefur breyst í þjóðfélaginu og ekki síst í því umhverfi sem hreyfingin hefur starfað í. Okkur verður að sjálfsögðu að bera gæfa til að staðna ekki og gera það sem við teljum íþróttunum fyrir bestu með það að takmarki að Eyjamenn verði ávallt í fremstu röð, íþróttafólki og bæjarbúum til heilla," sagði Þór Vilhjálmsson á stofnfundi Knattspyrnu- og handboltafélags ÍBV, skammstafað KH ÍBV sem var vinnuheiti félagsins, - sem haldinn var í Bæjarleikhúsinu 30. desember 1996.
Um 130 manns sóttu fundinn og var stofnun félagsins samþykkt með lófataki. Sjö manna stjórn var kosin á fundinum og Þór formaður hennar. Með honum í stjórn voru kosin: Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Óskar Freyr Brynjarsson, Eyþór Harðarson, Jóhannes Ólafsson, Birgir Guðjónsson og Arndís Sigurðardóttir.
1997 - Fyrsta starfsárið
Týsmerkið breyttist í ÍBV merkið
Þrettándinn var haldinn með pomp og prakt. Mikið var um dýrðir á Þrettándagleðinni að venju. Jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði og ótrúleg kynjaveröld kvöddu jólin með eftirminnilegum hætti í mikilli veðurblíðu og hefur aldrei annar eins mannfjöldi verið viðstaddur þrettándagleði. Týrarar, sem hingað til höfðu séð um þrettándann, tendruðu blys á Molda í síðasta sinn og það var tímanna tákn um breytta tíma að sjá Týsmerkið breytast í ÍBVmerkið.
Völva Frétta segir stráka fara í atvinnumennsku á árinu
Á íþróttasviðinu sá Völva Frétta fram á viðburðaríkt ár. Í handboltanum munu þau óvæntu stórtíðindi gerast að ÍBV mun ná mjög langt í Íslandsmótinu og slá í gegn. Kvennahandboltanum mun hins vegar ganga illa. Í knattspyrnunni sjáum við fram á sumar sem býður upp á mikla dramatík innan leikvallar sem utan og mikið mun ganga á, án þess að Völvan vildi fara nánar út í þá sálma. Völvan segist sjá ÍBV á svipuðum slóðum og í fyrra áður en yfir lýkur. Ekkert bikarævintýri verður í sumar eins og í fyrra en hins vegar mun framganga ÍBV í Evrópukeppninni vekja mikla athygli og verða til þess að við missum stráka í atvinnumennsku í haust.
Leikmenn löglegir með KH ÍBV
Með tilkomu nýja félagsins vöknuðu spurningar hvernig yrði með þá leikmenn sem áður léku með Þór og Tý. Yrðu þeir löglegir með nýja félaginu. Blaðið Fréttir leitaði upplýsinga hjá KSÍ og HSÍ: Leikmenn ÍBV í knattspyrnu og handbolta í meistaraflokki og yngri flokkunum, sem hingað til hafa verið skráðir í Tý eða Þór, eru löglegir með Knattspyrnu- og handknattleiksfélagi ÍBV, samkvæmt upplýsingum frá KSÍ, HSÍ og ÍSÍ. Forráðamenn íþróttahreyfingarinnar í Eyjum hafa óttast að þar sem leikmenn ÍBV hafa hingað til verið skráðir í Tý og Þór, séu þeir ólöglegir eftir að Týr og Þór heyra sögunni til. Sá ótti reyndist ástæðulaus þar sem ráðstafanir hafa verið gerðar af stóru sérsamböndunum, KSÍ og HSÍ, þess efnis að þessar breytingar hafi engin áhrif á stöðu leikmanna ÍBV. Á ársþingi KSÍ í haust var samþykkt að KH ÍBV tæki sæti núverandi sameiginlegra liða Týs og Þórs í mótum á vegum KSÍ frá og með árinu 1997. Að sögn Einars Friðþjófssonar sem á sæti í stjórn KSÍ, tryggir þetta að leikmenn ÍBV, sem voru skráðir í Tý og Þór, séu löglegir með KH ÍBV. Atli Hilmarsson á skrifstofu HSÍ ÍBV segir að erindi hafi borist frá KH ÍBV um þetta mál. Gengið hafi verið frá því hjá HSÍ til bráðabirgða að þeir sem eru skráðir í Þór og Týr séu löglegir með KH ÍBV. „Við gengum þannig frá málinu að ekki sé hægt að kæra ÍBV fyrir ólöglega leikmenn. Formlega verður gengið frá þessu á ársþingi HSÍ í maí nk.," sagði Atli. Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, segir kjarna málsins vera að um leið og stóru sérsamböndin, HSÍ og KSÍ, hafí lagt blessun sína yfir málið, þurfi Eyjamenn ekki að hafa áhyggjur. „Allir samgleðjast Eyjamönnum. Ég hef ekki nokkra trú á því að menn kæri Eyjamenn á sama tíma og þeir stíga þetta farsæla skref að sameina íþróttahreyfinguna. Ef KSÍ og HSÍ hafa gengið frá sínum málum gagnvart þessu nýja félagi ættu allir leikmenn þess að vera löglegir, sagði Stefán.
Fyrsti leikur KH ÍBV
- Grátlegur endir á góðum leik Fyrsti leikur KH ÍBV í Íslandsmóti, var gegn KR í meistaraflokki kvenna í handbolta. Leiknum lauk með KR sigri, 17-18, í hörku spennandi leik þar sem úrslitin réðust á síðustu sekúndunum. Eyjastelpur léku einn sinn besta leik í langan tíma og höfðu yfir í hálfleik, 10-9. Jafnræði var á öllum tölum í seinni hálfleik. KR skoraði sigurmark leiksins úr vítakasti á lokasekúndu leiksins, naumara gat það ekki verið. Eyjastelpur voru að vonum sársvekktar að hafa tapað enda voru þær að keppast við að lenda meðal átta efstu liða og komast í úrslitakeppnina. Sem stendur er liðið í 9. sæti. Í Fréttum sagði að endurkoma Söru Guðjónsdóttur í liðið hafi haft mjög jákvæð áhrif og mikill styrkur í henni. Hún var markahæst hjá ÍBV með 5 mörk. Ingibjörg Jónsdóttir skoraði 3, Stefanía Guðjónsdóttir 3, María Rós Friðriksdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2 og Elísa Sigurðardóttir 1. ÍBV stelpur eru komnar í 8 liða úrslit bikarkeppninnar og mæta þar KR á útivelli. Þá fær ÍBV tækifæri til þess að hefna fyrir tapið.
Sigur á Selfyssingum
Það hafði loðað við meistaraflokk karla í handbolta að tapa frestuðum leikjum. Það var því góð tilbreyting að vinna Selfyssinga í tvífrestuðum leik, 28-24. Í Fréttum sagði að leikurinn hefði reyndar ekki verið upp á marga fiska „en stigin telja, það er mikilvægast," sagði Arnar Pétursson, leikmaður ÍBV. Selfyssingar byrjuðu betur og skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. En þá tóku Eyjamenn við sér og höfðu eins marks forystu í hálfleik, 12-11. Eftir að staðan var jöfn 13-13 tók Gunnar Berg til sinna ráða og ÍBV náði fjögurra marka forystu, 14-18, og tókst að halda henni út leikinn. Varnarleikur ÍBV var hreinasta hörmung en sóknarleikurinn betri. Það var ÍBV til happs að Selfyssingar voru arfaslakir. Mörk ÍBV: Gunnar Berg 9, Belanyi 7/3, Svavar 3, Erlingur 2, Daði 2, Guðfinnur 2, Sigurður 2 og Arnar 1. ÍBV er nú í 5. sæti með 16 stig eftir 14 leiki.
Stjórnsýslan verður í Þórsheimilinu
Guðmundur Þ.B. Ólafsson var fyrsti framkvæmdastjóri nýja félagsins. Hann var í viðtali í blaðinu Fréttum í lok janúar, þar sem hann fór yfir starfið og stöðu félagsins. „Fyrstu verkefnin hafa aðallega falist í að að móta starfið sem snýr að knattspyrnudeildinni og handknattleiksdeildinni. Forsendur hafa breyst því þessar tvær deildir taka nú inn á sig alla yngri flokkana sem voru áður í umsjá Týs og Þórs. Það sem snýr að aðalskrifstofunni þá er öll stjórnsýsla nýja félagsins í Þórsheimilinu en við sjáum um reksturinn á báðum heimilunum. Búið er að ráða starfsmenn í Týsheimilið og góð nýting er á íþróttasalnum. Verið er að hafa samband við helstu styrktaraðila og kennitalan er klár," sagði Guðmundur.
Nýja félagið byrjar með tóma sjóði.
Nýja félagið byrjaði sína starfsemi með tóman sjóð. Aðspurður sagði Guðmundur að vissulega væri það ekki sú staða sem menn höfðu vonast eftir í upphafi. Þegar farið var af stað með nýtt félag var það á þeim forsendum að það hefði úr einhverjum fjármunum að spila í byrjun. Svo er ekki og því séu nokkrir mánuðir í að félagið fái inn tekjur af starfseminni. „Fram að því verðum við að treysta á skilning bæjarbúa og þreyja þorrann. Við höfum víðast hvar fengið góð viðbrögð enda hafa flestir skilning á því að við erum að reyna að búa til farveg fyrir nýja og betri tíma. En það er alveg ljóst að miðað við hvernig rekstrarumhverfið var orðið var kominn tími til að stokka upp spilin í íþróttahreyfingunni," sagði Guðmundur. Sökum þess að nýja félagið byrjar með budduna tóma má búast við því að lengri tíma taki að ýta félaginu úr vör.
Undirbúningur gengur vel.
Að sögn Guðmundar gekk vel að fá fólk til starfa í Pæjumótsnefnd, Shellmótsnefnd, þjóðhátíðarnefnd og stuðningskvennadeild. Flestir þeir sem talað hefur verið við hafa tekið vel í að starfa áfram en einnig er vonast til að ný andlit bætist við. „Þeir sem hafa unnið mikið fyrir Tý og Þór í gegnum tíðina verða margir áfram. En sumir ætla að taka sér frí og höfðu reyndar ákveðið það fyrir löngu. Það er ljóst að við þurfum á öllu góðu fólki að halda og það mætti endilega hafa samband við okkur. Vonandi gera allir sér grein fyrir því að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa, það er mikil vinna framundan," sagði Guðmundur.
20 milljón kr. gat?
Eins og kemur fram í viðtali Frétta við framkvæmdastjóra KH ÍBV, byrjaði nýja félagið á núlli. Vonast hafði verið eftir því að nýja félagið hefði eitthvað á milli handanna í byrjun en svo er ekki. Hins vegar er ljóst, samkvæmt heimildum blaðsins, að töluvert af skuldum standa enn út af borðinu þegar búið verður að gera dæmið upp að fullu með sameininguna. Það mun vera í verkahring skilanefndarinnar að klára þau mál og er verið að vinna í því að finna flöt á því máli. Líklega er vel á annan tug milljóna um að ræða sem verður að klára með einum eða öðrum hætti, samkvæmt heimildum blaðsins.
ÍBV íþróttafélag
Þegar nýja félagið var stofnað, var notast við vinnuheitið Knattspyrnu- og handknattleiksfélag ÍBV. Leitað var eftir tillögum frá bæjarbúum að nafni á félaginu. Yfirgnæfandi meirihluti bæjarbúa valdi nafnið ÍBV íþróttafélag. Á framhaldsaðalfundi félagsins 4. febrúar var það nafn á félaginu samþykkt. Reyndar segir í bókun fundarins að bæjarbúar hafi valið nafnið Íþróttafélagið ÍBV, en þv verðí var síðar breytt í ÍBV íþróttafélag.
Hvernig væri að prófa aða Íslandsmeistarar?
Karlalið KH ÍBV í handbolta var fullt bjartsýni í upphafi árs, eftir sannfærandi sigur á Gróttu í Íslandsmótinu. – „Ég er búinn að segja við strákana, af hverju ekki að prófa að verða Íslandsmeistarar? Strákarnir eru í rosalega góðu formi, þeir eru ekki að glíma í leikjunum heldur spila góðan handbolta, hafa gaman af því sem þeir eru að gera, eiga fullt af trixum og geta gert ýmislegt. Ég lofa náttúrulega engu en við sýndum það á Opna-Reykjavíkurmótinu í haust að ÍBV getur náð langt," sagði Zoltan Belanyi, hornamaðurinn knái í viðtali við blaðið Fréttir. KH ÍBV vann stórsigur á Gróttu á útivelli, 28-19. Þá segir í blaðinu að með sigrinum hafi ÍBV komist í 4. sæti með 18 stig, jafnmörg og Fram en ÍBV á leik til góða. ÍBV breytti stöðunni úr 3-3 í 7-3 og lagði grunninn að góðum sigri. Á þessum kafla var lok lok og læs í vörninni og svo vart keyrt á hraðaupphlaupum þar sem Belanýi var drjúgur. Langt er síðan vörn ÍBV hefur verið jafn öflug og í þessum leik sem lofar góðu um framhaldið. Staðan í hálfleik var 12-8 fyrir ÍBV og enn dró í sundur með liðunum í seinni hálfleik. Mestur varð munurinn tíu mörk. Á lokakaflanum fengu ungu varamennirnir að spreyta sig og stóðu sig vel. Allir leikmenn ÍBV spiluðu vel í leiknum, liðið lék sem ein heild og enginn sem skar sig úr. Markaskorunin dreifðist mikið sem er jákvætt. Meira að segja Sigmar Þröstur, sem átti góðan leik í markinu, komst á blað. ÍBV liðinu hefur vaxið ásmegin í síðustu leikjum og greinilegt að strákarnir eru að komast í toppform á hárréttum tíma. Metnaðurinn er svo mikill að flestir þeirra eru að æfa aukalega til að komast í enn betra form. Það segir ýmislegt. Kæmi ekki á óvart að ÍBV færi a.m.k. í undanúrslit. Og ef þeir taka Belanýi á orðinu væri virkilega gaman að prófa að verða Íslandsmeistari! Ekki satt? Mörk ÍBV: Zoltan Belanyi 8/4, Gunnar Berg 3, Arnar P. 3, Svavar 3, Haraldur 2, Ingólfur 2, Guðfinnur 2, Sigurður 2, Erlingur 2, Daði 1, Sigmar Þröstur 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 13/1. Birkir Ívar 1.
Knattspyrnuliðið í mótun
Strax í upphafi árs var knattspyrnudeild KH ÍBV komin á fullt með að móta liðið fyrir sumarið. Ljóst var að Friðrik Sæbjörnsson yrði ekki með liðinu næsta sumar en hann hafði ráðið sig til sjós. Nökkvi Sveinsson segist vera hættur og Jón Bragi Arnarsson hefur lagt skóna á hilluna. Eftir er að ganga frá samningum við markmennina Gunnar Sigurðsson og Friðrik Friðriksson og einnig Sumarliða Árnason. Óvíst er með markmennina en Sumarliði verður áfram í herbúðum KH ÍBV. Þá er Kristinn Hafliðason að spila í Þýskalandi í vetur en verður tilbúinn í slaginn með KH ÍBV í sumar. Búið er að ganga frá samningum við Leif Geir Hafsteinsson og Ívar Bjarklind. Þá hafa þeir Sverrir Sverrisson og Guðni Rúnar Helgason gengið til liðs við ÍBV.
Kvennaliðið til Portúgals
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu ætlar sér stóra hluti næsta sumar. Stelpurnar hófu æfingar fyrir áramót undir stjórn Sigurlásar Þorleifssonar og hafa aldrei byrjað svo snemma. Reynt verður að fá liðsstyrk frá útlöndum fyrir sumarið og jafnvel innanlands. Stelpurnar munu halda til Portúgals yfir páskana í æfingabúðir og er þetta í fyrsta skipti sem 1. deildarlið ÍBV kvenna í knattspyrnu mun fara út fyrir landsteinana í æfingabúðir, sem sýnir að metnaðurinn er mikill.
Fjölliðamót yngri flokka
Í Fréttum er sagt frá því að 2. fl. ÍBV hafi leikið tvo útileiki í fjölliðamóti um síðustu helgi. ÍBV tapaði fyrst fyrir FH 30-22 og svo fyrir Víkingi 23- 22. Sigurður Bragason skoraði samtals 18 mörk í leikjunum og Jón Þór Klemensson 7. 3. fl. ÍBV lék einnig tvo útileiki um helgina. ÍBV tapaði fyrir Gróttu 23-21 en sigraði Hauka 19-18. Jóhann Halldórsson skoraði samtals 10 mörk en Ríkharð Guðmundsson var markahæstur í fyrri leiknum með 8 mörk og Gottskálk Ágústsson í þeim seinni með 7 mörk.
Morgunkaffi ÍBV á miðvikudögum á kr. 300
Í byrjun janúar birtist auglýsing í Fréttum þar sem auglýst er morgunkaffi alla miðvikudaga kl. 9.30 í Þórsheimilinu. Á boðstólum er kaffi, kakó og te. „Allir eru velkomnir og það er gott fyrir okkur sem erum að koma nýja félaginu af stað að hitta sem flesta sem vilja leggja nýja félaginu lið. Veitingarnar kosta einungis 300 kr. Seinasta miðvikudag var rjómaterta, vöfflur með rjóma og sultu og grillaðar samlokur með skinku og osti. Sjáumst hress í Þórsheimilinu. ÍBV“
Töpuðu á hörmulegri dómgæslu
Þannig hljóðaði fyrirsögn í blaðinu Fréttum eftir leiki KH ÍBV í meistaraflokki kvenna í handbolta, en þær vermdu botnsætið í 1. deild kvenna eftir tvo tapleiki á þremur dögum, fyrst gegn Víkingi á útivelli og svo gegn FH heima. Eyjastúlkur voru í eltingaleik allan tímann. Víkingur náði góðri forystu en ÍBV jafnaði 6-6. Víkingstúlkur breyttu stöðunni í 12-7 og lögðu grunninn að 5 marka sigri, 21-16. Ingibjörg Jónsdóttir var langbest hjá ÍBV og skoraði 9 mörk. Sara Guðjónsdóttir skoraði 4, Stefanía Guðjónsdóttir 2 og María Rós Friðriksdóttir 1 mark. Liðið fékk svo FH í heimsókn. Sá leikur var í járnum í fyrri hálfleik og hafði FH yfir í hálfleik, 12-11.1 seinni hálfleik tókst ÍBV að minnka muninn í eitt mark í lokin en umdeildir brottrekstrar Eyjastúlkna eyðilögðu leikinn fyrir ÍBV. Svo fór að FH vann leikinn 25- 23. Jón Bragi Arnarsson, þjálfari IBV, var ánægður með leikinn, sérstaklega varnarleikinn og þá var sóknin ágæt. „Stelpurnar voru óheppnar með skotin og við brenndum af fjórum vítaköstum, sem kann ekki góðri lukku að stýra. En við töpuðum leiknum á hörmulegri dómgæslu. Það er verið að senda hingað tvítuga óreynda stráka sem valda ekki sínu hlutverki og þeir klúðruðu okkar möguleikum með óskiljanlegum brottrekstrum. En mórallinn er góður í liðinu og þetta er allt upp á við hjá okkur núna. Þá var ég mjög ánægður með stuðning áhorfenda," sagði Jón Bragi. Ingibjörg fyrirliði fór fyrir sínu liði og var langbest. Hún skoraði 7 mörk, Guðbjörg Guðmannsdóttir átti einnig góðan leik og skoraði 6 og þær Sara og María Rós 4 mörk hvor.
ÍBV íþróttafélag með íþrótta- og handboltaskóla í fyrsta sinn
Skólinn var ætlaður fyrir 5 til 8 ára börn. Aldrei hafa svo ungir iðkendur fengið tækifæri til að kynnast handboltaíþróttinni, segir í frétt í Fréttum. Ekki er bara handbolti í skólanum heldur fá börnin, stelpur og strákar, að kynnast fjölbreyttum æfingum. Að sögn Stefaníu Guðjónsdóttur kennara, sem sér um íþrótta- og handboltaskólann ásamt Arnari Péturssyni, er um alhliða æfingar að ræða til að örva hreyfiþroska krakkanna. Bæði er um einstaklings- og hópæfingar að ræða. „Um 60 krakkar eru í skólanum og erum við mjög ánægð með þátttökuna. Það hefur háð handboltanum að geta ekki tekið krakkana nógu ung inn. Þetta er í fyrsta skipti sem við prófum svona ungan aldur og hefur gengið mjög vel. Sérstaklega er gaman hversu margir fimm ára krakkar eru í skólanum. Um einn tíma er að ræða í viku, á föstudögum klukkan fjögur. Við vitum að sá tími hentar ekki öllum foreldrum. Ekki er of seint að láta skrá sig. Aðeins kostar 1500 kr. í skólann fram að páskum og eru öll börn á aldrinum 5 til 8 ára velkomin. Við erum með einvala leiðbeinendur með okkur og faglega staðið að málum," sagði Stefanía.
Hundóánægður þjálfari þrátt fyrir sigur
Þrátt fyrir öruggan sigur ÍBV íþróttafélags á handboltaliði ÍR í 1. deild karla í Eyjum þann 15. febrúar, 27-22, var það brúnaþungur þjálfari ÍBV sem gekk af velli að leik loknum. Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við Fréttir að hann ætlaði að messa yfir mannskapnum fyrir að hafa unnið leikinn með aðeins 5 marka mun. Strákarnir hefðu gert sig seka um að slaka á í lokin og í stað þess að vinna með 7 til 8 marka mun varð munurinn aðeins 5 mörk. Slíkt getur skipt máli í lokin. „Ég ákvað að skipta inn á og leyfa sem flestum að vera með. Ég var ekki sáttur við leik okkar og í stað þess að liggja undir því að gera ekki breytingar þegar illa gekk, ákvað ég að gefa ungu strákunum tækifæri. Það er slæmt að fá á sig 13 mörk í fyrri hálfleik gegn svona liði. Það gengur ekki að treysta alltaf á að hlutirnir gangi í seinni hálfleik," sagði Þorbergur. Á lokakaflanum leystist leikurinn upp í vitleysu og ÍBV hefði átt að vinna leikinn með stærri mun en raunin varð, eða 27-22.
Reksturinn í samræmi við fjárhagslega getu
Í endaðan febrúar birtist fréttatilkynning í bæjarblöðunum frá ÍBV íþróttafélagi, svohljóðandi: Eins og kunnug er þá hefur verið stofnað nýtt íþróttafélag hér í Vestmannaeyjum, „ÍBV-íþróttafélag", en nýja félagið er félag sem Týrarar og Þórarar hafa sameinast í. Vonandi á nýja félagið eftir að njóta stuðnings bæjarbúa og fyrirtækja í ríkum mæli, en slíkur stuðningur er nauðsynlegur bakhjarl svo félagið geti staðið myndarlega að því uppbyggingarstarfi sem því er ætlað, bæjarfélaginu til hagsbóta. Við sem störfum fyrir félagið, viljum leggja metnað okkar í að reka félagið með sem skynsamlegustum hætti. Liður í þeirri ætlan okkar er meðal annars sú að rekstrinum verði hagað í samræmi við fjárhagslega getu á hverjum tíma. Ljóst má vera að róðurinn verður þungur í upphafi en með hjálp bæjarbúa og fyrirtækja má gera ráð fyrir að strax á þessu ári verði byrjunarerfiðleikarnir yfirstignir. Þá er rétt að geta þess að félagið hefur látið prenta sérstakar úttektarbeiðnir og er fyrirtækjum bent á að einungis þeir sem slíkar beiðnir hafa undir höndum hafa heimild til að skuldbinda félagið vegna úttekta og verða reikningar ekki greiddir nema þeim fylgi útfyllt beiðni. Að endingu viljum við geta þess að það er von okkar að fá að njóta velvildar og stuðnings sem flestra í mikilvægu starfi félagsins, því án slíks stuðnings gerum við ekki mikið. Með bestu kveðjum og þakkir fyrir stuðninginn við íþróttirnar í gegnum tíðina.
Reikningur fyrir pizzur
Það er ekki öll vitleysan eins. Í marsbyrjun barst handknattleiksráði ÍBV karla, reikningur frá handknattleiksdeild HK upp á 61.680 kr. vegna leiks HK og ÍBV í janúar, sem „ÍBV mætti ekki til" eins og stendur á sundurliðuðum reikningnum. Þar af er reikningur fyrir 10 pizzur upp á 15.800 kr. Nokkur blaðaskrif urðu um þennan leik. Vél sem ÍBV átti að fara með, áætlunarvél frá Flugleiðum, fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli en lenti aldrei í Eyjum vegna ófærðar. Að sögn formanns handboltaráðs ÍBV reyndu þeir að halda því opnu eins lengi og kostur var að komast til Reykjavíkur en flugvélin hafi að lokum ekki getað lent. HK menn voru ósáttir við hve tilkynningin um þetta barst þeim seint og segjast hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þessa. Handknattleiksdeild ÍBV bendir hins vegar á að hún fái aldrei formlega tilkynningu um að leikjum sem fram eiga að fara í Eyjum sé frestað heldur vita þeir að það ræðst einfaldlega af flugi. Leikur HK og ÍBV fór fram daginn eftir og þá vann HK ansi óvænt. Þess má geta að ÍBV og HK eiga að leika í Eyjum á miðvikudaginn í síðustu umferð Íslandsmótsins. ÍBV er í toppbaráttunni en HK í botnslagnum. Í bréfi HK til ÍBV segir: „Hér með sendi ég ykkur þann kostnað sem HK varð fyrir vegna leiks HK og ÍBV sem ekki var leikinn þrátt fyrir að fært væri frá Vestmannaeyjum um daginn. Hafa verður hugfast að ÍBV lét HK ekki vita að þeir kæmu ekki, þrátt fyrir að Eyjamönnum hafi verið það ljóst kl. 17.00 þann dag. Því hagaði HK undirbúningi sínum eins og á venjulegum leikdegi. Engu að síður erum við hjá HK tilbúnir að láta þennan kostnað jafnast út við þann kostnað sem ÍBV varð fyrir þegar þeir mættu HK í bikarkeppni HSÍ." Sundurliðun á reikningi HK er þessi: 10 pizzur (m/3 áleggsteg.) sem selja átti áhorfendum kr. 15.800,- 5 menn sem hengja upp auglýsingar og koma upp aðstöðu fyrir blaðamenn: kr. 3.000,- Léttar veitingar fyrir leikmenn m.fl. á veitingastað fyrir leik, 900 kr. pr. mann kr. 12.600,- Aukastarfsmaður í Digranesi vegna leiksins kr. 3.880,- Útleiga á sal í 2 klst. kr. 10.000,- Greiðsla til dómara, akstur og dómgæsla kr. 16.400,- Samtals kostnaður við leik HK-ÍBVsem ÍBVmætti ekki til kr. 62.680,- Eyþór Harðarson, gjaldkeri handknattleiksdeildar ÍBV, segist hafa skellihlegið þegar hann las bréf HK. Krafa HK sé glórulaus og algjörlega út í hött. ÍBV hafi á sínum tíma, þegar ljóst var að flugvélin, sem var að ná í ÍBV liðið gat ekki lent í Eyjum, látið HK vita um leið og útséð var að leiknum yrði að fresta. Eyþór sagði auðvelt að lesa á milli línanna í þessu máli. HK og ÍBV hefðu leikið í bikarkeppninni í haust í Kópavogi. Þær reglur gilda í bikarkeppni að innkomu á leikina er skipt jafnt á milli liðanna en heimaliðið fær ekki allan ágóðann eins og tíðkast í deildarkeppni. ÍBV hefur hins vegar enn ekki fengið greiddan sinn hluta af bikarleiknum frá því í haust og HK vilji nota það sem skiptimynt í þessum skrípaleik.
Gott tak á KA
Karlalið ÍBV í handbolta gerði góða ferð norður í byrjun febrúar. Liðið burstaði KA 26-17, og er þetta versta afhroð KA á heimavelli í 1. deild frá upphafi, hvorki meira né minna. Og enginn leikur sér að því að fara norður og hirða tvö stig en ÍBV hefur ekki tapað fyrir KA tvö ár í röð. Síðasta keppnistímabil gerðu ÍBV og KA jafntefli fyrir norðan og ÍBV vann í Eyjum og hélt þar með sæti sínu í deildinni. Síðastliðið haust burstaði ÍBV svo KA á heimavelli og svo aftur fyrir norðan um helgina. Blaðið Fréttir hefur eftir Þorbergi þjálfara, að þeir hefðu lagt mikla áherslu á fyrir leikinn að liðið spilaði meira sem liðsheild, að fækka mistökunum í sókninni til að losna við að fá á sig hraðaupphlaup og að berja meira frá sér í vörninni. Þetta gekk eftir. Sóknir ÍBV voru langar og agaðar þar sem Arnar Pétursson sýndi hvers hann er megnugur og stjórnaði sókninni eins og herforingi. ÍBV hafði undirtökin allan tímann. Staðan í hálfleik var 13- 10. KA tókst að minnka muninn í eitt mark í byrjun seinni hálfleiks en þá fór aftur að draga í sundur með liðunum. Íþróttafréttamaður Frétta, Þorsteinn Gunnarsson skrifaði í blaðið að á lokasprettinum hafi Eyjamenn farið hamförum og sýnt allar sínar bestu hliðar. „Við spiluðum sem liðsheild og það gekk eftir. Nú tökum við stefnuna á 3. sætið," sagði Sigurður Friðriksson hjá ÍBV eftir leikinn. Arnar, Belanyi og Sigmar Þröstur áttu allir stórleik en allir leikmenn liðsins léku skínandi vel. Sérstaklega var varnarleikurinn sterkur og sóknin er öll að koma til. Eftir slakt gengi í undanförnum leikjum tóku strákarnir sig verulega á og sýndu og sönnuðu að á góðum degi er ÍBV eitt besta lið landsins. Eftir sigurinn á KA var ÍBV með 24 stig í 4. sæti, aðeins 3 stigum á eftir KA sem er í 3. sæti og einn leik til góða, gegn Haukum. Mörk ÍBV: Zoltan Belanyi 9/3, Arnar Pétursson 6, Gunnar Berg Viktorsson 3, Daði Pálsson 2, Erlingur Richardsson 2, Svavar Vignisson 2, Guðfinnur Kristmannsson 1, Sigurður Friðriksson l. Sigmar Þröstur varði 15 skot.
Heimspeki- og sálfræðineminn og knattspyrnumaðurinn Ívar Bjarklind
Blaðið Fréttir birti viðtal við Ívar Bjarklind í febrúarmánuði, eftir að hann ákvað að leika áfram með knattspyrnuliði ÍBV. Hann verður að teljast óvenjulegur knattspyrnumaður að því leyti að hann leggur stund á nám í heimspeki og sálarfræði við Háskóla Íslands, en slíkt telst til undantekninga hjá 1. deildarleikmönnum. Blaðamaður Frétta tók hús á Ívari þar sem hann var við nám sitt í Háskólanum, nánar tiltekið í Odda, og spurðu hann fyrst um æskuslóðirnar. „Ég er fæddur og uppalinn á Akureyri og lít á mig sem Akureyring. Ég var í KA og lék með þeim í gegnum alla yngri flokka upp í meistaraflokk. Tvö undanfarin sumur hef ég svo verið búsettur í Vestmannaeyjum og leikið með liði ÍBV. Samskiptin við Eyjamenn hafa verið mjög góð og þetta er afbragðsfólk sem hefur verið mjög gaman að kynnast." Aðspurður um muninn á samfélögunum á Akureyri og í Vestmannaeyjum segir Ívar: „Hvað snertir aðkomumenn þá eru samfélögin ekki ósvipuð. Þau eru ámóta gestrisin og vinsamleg aðkomufólki en þó á ólíkan hátt. Samfélag Eyjamanna litast auðvitað mjög af því að fólkið býr á lítilli eyju í nálægð fiskimiða þar sem mest allt atvinnulíf snýst um fiskveiðar og fiskvinnslu, og að sjálfsögðu knattspyrnu á sumrin. Því má segja að samfélagið kunni að virðast svolítið lokað án þess að vera óvinsamlegt. Akureyringar virðast á hinn bóginn svolítið góðir með sig og kannski framhleypnari, en eru samt vinsamlegir." Þegar talið best að knattspyrnunni og þeim persónuleikum sem hana iðka, segir Ívar. „í knattspyrnunni er fullt af skemmtilegum einstaklingum sem gaman er að umgangast en málið er að þeir hafa kannski ekki alveg sömu áhugamál og ég. Þess vegna koma stundir þegar maður bara hreinlega finnur sig ekki í andrúmslofti knattspyrnunnar. og þá reynir á að sýna ákveðið æðruleysi því að mennirnir eru auðvitað eins misjafnir og þeir eru margir. Ég hugsa því æ oftar um það hvort maður þurfi ekki að fara að taka sér frí frá knattspyrnuamstri og sinna öðrum hugðarefnum sem setið hafa á hakanum." Oft hefur sá orðrómur heyrst meðal svokallaðra „antísportísta" að knattspyrna og andlegir burðir geti ekki farið saman. Ívar vill síður ræða þau mál af einhverri alvöru en segir að það megi þó alveg viðurkennast að það gæti leynst sannleikskorn í þeim orðrómi. „Knattspyrnumenn er samt ekki hægt að setja alla undir sama hatt og það er hæpið að kalla þá á einu bretti óvitræna. Og þó að lítið fari fyrir knattspyrnumönnum í þessu námi þá segir það lítið um gáfnafar þeirra en kannski meira um áhugasvið."
Ívar er á fyrsta ári í Háskólanum og telur að hann hafi fundið sig vel í sálarfræði og heimspeki en hefur enn ekki gert upp við sig hvora greinina hann muni leggja aðaláherslu á. En hvað er það sem heillar hann mest í fræðunum? „Það er mjög spennandi að „stúdera" manneskjuna og í því sambandi hefur siðfræðin heillað mig." En koma fræðin eitthvað að gagni í knattspyrnunni? „Það er helst að maður leggi sitt af mörkum til betri siðmenningar knattspyrnumanna sem stundum er ekki ýkja rishá. En það má einnig velta því fyrir sér hvort það yrði knattspyrnunni til góðs ef fleiri knattspyrnumenn myndu leggja stund á siðfræði eða hvort knattspyrnan myndi ekki bara missa eitthvað mikilvægt í staðinn."
Lá við að þakið færi af Höllinni
Karlalið ÍBV í handbolta fór mikinn þessa fyrstu daga marsmánaðar. Eftir að hafa rasskellt KA endurtóku þeir leikinn gegn Haukum nokkrum dögum síðar, burstuðu þá 28-19. „Nú er hið unga og efnilega Eyjalið loksins tekið alvarlega“ sögðu Fréttir eftir leikinn. Haukar létu dómgæsluna fara mjög í taugarnar á sér og fengu þrír þeirra rauð spjöld, Baumruk fyrir brot í lok fyrri hálfleiks og svo Aron eftir 45 mín. fyrir tuð og Einar í lokin. Það lá við að þakið færi af höllinni af hrifningu þegar Baumruk var vísað af velli en það virtist hafa verið eitt af markmiðum ÍBV að koma honum útaf í leiknum. Og þegar Aron fauk einnig af velli hrundi leikur Hauka eins og spilaborg. Mörk ÍBV: Zoltan Belanyi 12/7, Svavar Vignisson 5, Gunnar Berg Viktorsson 3, Erlingur Richardsson 3, Arnar Pétursson 2, Guðfinnur Kristmannsson 1, Daði Pálsson 1, Emil Andersen 1. Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 17/1. Birkir Ívar Guðmundsson 1.
Alvarlegt umferðarslys - mildi að ekki fór verr
Átta handboltastúlkur úr ÍBV og tvær konur, þjálfari þeirra og fararstjóri lentu í alvarlegu umferðarslysi í byrjun mars, þegar bíll sem þær voru í lenti í hörðum árekstri. Allar voru fluttar á slysadeild. Engin þeirra slasaðist alvarlega en tvær sködduðust í andliti og aðrar hlutu mar og minniháttar skrámur. Í hinum bílnum voru Bandaríkjamenn af Keflavíkurflugvelli og slösuðust þeir mun meira. Hvorugur bíllinn valt en báðir bílarnir eru mikið skemmdir og brotnuðu allar rúður í bíl Bandaríkjamannanna. Stúlkurnar, sem voru í 3. flokki ÍBV í handboltanum og á aldrinum 15 til 17 ára, voru að koma úr Herjólfi í keppnisferðalag þegar slysið varð. Það átti sér stað á Suðurlandsvegi við afleggjarann að Bláfjöllum. Í forsíðufrétt Frétta þann 20. mars segir: „Það er ekki ljóst hver aðdragandinn var því enn á eftir að taka skýrslur af fólki en báðir bílarnir lentu utan vegar. Samtals voru 15 manns í bílunum og voru allir fluttir á slysadeild," sagði lögreglumaður í Kópavogi en slysið varð í umdæmi Kópavogslögreglunnar. Fjórir sjúkrabílar komu á vettvang og fluttu þá slösuðu af slysstað en þeir sem minnst voru slasaðir fóru með lögreglubíl. „Aðstæður voru slæmar og einhver hálka á veginum. Báðir bílarnir eru illa farnir. Ég veit ekki hversu alvarleg meiðsli fólksins eru en tel að það hafi sloppið vel miðað við aðstæður," sagði lögreglumaðurinn. Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari stelpnanna ók bílnum sem var 14 manna Econoliner sendibifreið. Hún segir engu líkara en að einhver hafi haldið verndarhendi yfir þeim. „Ég var búin að keyra austur þannig að ég vissi hvernig aðstæður voru. Það voru hryggir á veginum en autt í hjólförunum. Ég var nýbúin að hægja á bílnum. Hvers vegna veit ég ekki og var ég ekki á meira en 50 km hraða þegar ég sá hinn bílinn hendast yfir á okkar vegarhelming. Mér tókst að bremsa en hafði um fátt að velja. Fannst mér skárra að lenda í árekstri en að keyra út af," sagði Unnur um aðdraganda slyssins. Hún segist þakka Guði að ekki fór ver. „Það var eins og einhver héldi verndarhendi sinni yfir okkur. Það sem bjargaði okkur var að flestar vorum við í beltum og við vorum á sterkum og góðum bíl. Ég fór strax að huga að stelpunum sem allar voru með eymsli í hálsi og marðar en enginn þeirra var alvarlega slösuð. Fólkið í hinum bílnum fór miklu ver út úr slysinu. Kona var brotin á þremur hryggjarliðum en hún hentist út um afturgluggann, aðrir voru illa skornir og í einum brotnuðu sjö tennur." Unnur segir þetta hrikalega lífsreynslu og fann hún til mikillar ábyrgðartilfinningar gagnvart stelpunum. „Þegar maður er að þjálfa stelpur á þessum aldri verður maður líka að vera einskonar mamma. Þær voru allar í losti og þurfti ég og Arnheiður Pálsdóttir fararstjóri að hugga þær. Fljótlega komu Gunnar Sigurðsson og Ingi Sigurðsson úr ÍBV á staðinn og var mikill styrkur af þeim. Þegar við komum á Sjúkrahús Reykjavíkur fengum við áfallahjálp sem var mikils virði." Strax voru gerðar ráðstafanir til að koma stelpunum heim til Eyja og flaug Valur Andersen eftir þeim strax á laugardaginn. „Það var nauðsynlegt að koma þeim heim til mömmu því þær þurftu svo sannarlega á móðurumhyggju að halda eftir þessa lífsreynslu. Það var ekki fyrr en um kvöldið að maður áttaði sig á hve umfangsmikið slysið var. Þó maður keyri varlega sjálfur er það ekki nóg. Það sýndi sig þarna en ég tel að ég hafi gert allt rétt miðað við aðstæður," sagði Unnur að lokum.
Grátlegur endir á stórskemmtilegum vetri
„Ég er hundsvekktur. Við áttum að klára þetta þegar við náðum tveggja marka forystu, við fengum tækifæri til þess," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV í viðtali við Fréttir, eftir tap ÍBV fyrir Fram í oddaleik liðanna í fjórðungsúrslitum í Eyjum, 23-25 í framlengdum leik. Íþróttafréttamaður Frétta lýsti leiknum þannig: Óhætt er að segja að þetta hafi verið grátlegur endir á skemmtilegum vetri. ÍBV hefur leikið ljómandi vel á köflum í vetur og Þorbergur, sem hefur byggt upp alveg nýtt lið á tveimur árum, hefur gert góða hluti með liðið. Að ná 4. sæti í deildarkeppninni er frábær árangur með svona ungt og óreynt lið. En því er ekki að neita að vonbrigðin eru mikil að ná ekki að klára oddaleikinn gegn Fram hér í Eyjum og komast í undanúrslit. Frábær varnarleikur og markvarsla einkenndi oddaleik liðanna. Sigmar Þröstur varði 10 skot í fyrri hálfleik en 8 í seinni hálfleik og framlengingu. Reynir Þór hjá Fram varði 5 skot í fyrri hálfleik en 14 skot í seinni hálfleik og framlengingu, og flest úr dauðafærum. Lagði hann öðrum fremur grunninn að sigri Fram. Framarar náðu mest 2ja marka forystu í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 10-11. ÍBV jafnaði metin 13-13 og náði 2ja marka forystu, 18- 16 og 19-17. Á þessum kafla fékk ÍBV gullin tækifæri til að gera út um leikinn en tókst ekki að nýta það. ÍBV átti svo síðustu sókn leiksins en Reynir varði skot Gunnars Berg. Staðan jöfn 20-20 og því þurfti að grípa til framlengingar. Framarar höfðu þar frumkvæðið, höfðu yfir í hálfleik framlengingarinnar 21-22 og komust svo í 21-23 og þar með var björninn unninn því Fram vann leikinn 23-25. Eyjamaðurinn í Fram, Magnús A. Arngrímsson, sem hafði verið slakur, tók af skarið í framlengingunni og gerði út um leikinn með tveimur góðum mörkum. Markverðirnir voru bestu menn liðanna. Vörn ÍBV var mjög góð en sóknin brást að þessu sinni eins og reyndar í undanförnum leikjum. Lykilmenn ÍBV eru ungir og óreyndir, það kom í ljós í þessum leik. Leikstjórnandinn Arnar Pétursson náði sér aldrei á strik í sókninni og var ragur við að taka af skarið. Gunnar Berg átti ágæta spretti en hafði ekki leikreynsluna til að klára dæmið. Þeir treystu báðir mikið á Belánýi sem átti góðan leik en hann gat auðvitað ekki klárað sóknirnar upp á eigin spýtur fyrir ÍBV. Guðfinnur átti góða spretti en gerði á milli slæm mistök, sendi t.d. boltann tvær sóknir í röð í hendur Framara sem brunuðu upp og skoruðu. Svavar fékk sig hvergi hrært og Sigurður hafði úr litlu að moða í horninu en nýtti færin sín mjög vel þegar þau gáfust. „Ég er rosalega stoltur af strákunum. Þeir eru hetjur í mínum augum. Að koma hingað til Eyja og klára dæmið er frábær árangur. Ég vil þakka Eyjamönnum fyrir drengilega keppni í þessum þremur leikjum. Þetta er tvö svipuð lið en við lékum meira sem lið í kvöld og uppskárum samkvæmt því," sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram.
Mörk ÍBV; Zoltan Belánýi 10/4, Gunnar Berg Viktorsson 5, Guðfinnur Kristmannsson 4, Sigurður Friðriksson 2, Svavar Vignisson 1, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 18/2.
Árangur karlaliðs ÍBV kom Þorbirni Jenssyni landsliðsþjálfara ekki á óvart
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari handbolta, sagðist hafa í sjálfu sér búist við ÍBV í 4. til 5. sæti deildarinnar. Þess vegna hafi hinn góði árangur liðsins ekki komið á óvart. „ÍBV sýndi með því að sigra á Reykjavík Open í haust að liðið væri til alls líklegt. Þeir hefa verið með þessa ungu leikmenn á uppleið. Hvað úrslitakeppnina varðar hefði ÍBV hæglega getað komist í undanúrslit. Fram og ÍBV eru tvö mjög svipuð lið. Oft er það heppni sem ræður úrslitum í úrslitakeppninni. En framtíðin er ÍBV. Þarna er nægur efniviður sem Eyjamenn verða að hlúa vel að til að gera þeim kleift að halda hópinn," sagði Þorbjörn í samtali við Fréttir. Aðspurður hvort Gunnar Berg Viktorsson, stórskytta ÍBV, væri enn inni í myndinni fyrir heimsmeistarakeppnina í Japan, sagði Þorbjörn svo vera.
Þorbergur endurráðinn
Að lokinni handboltavertíðinni hjá karlaliðinu var skrifað undir samning við Þorberg Aðalsteinsson um þjálfa liðið aftur næsta vetur, þriðja árið í röð. Þorbergur segir í viðtali í Fréttum að það hafi ekki síst vegið þungt á metunum við ákvörðunina að hann er í mjög spennandi starfi í Eyjum sem markaðsfulltrúi Vinnslustöðvarinnar. Að sögn Þorbergs er vonast til þess að ÍBV liðið verði lítið óbreytt næsta vetur. Reyndar hefur Gunnar Berg Viktorsson landsliðsmaður ákveðið að fara í nám til Reykjavíkur og mun væntanlega ganga til liðs við annað lið. „Reynt verður að styrkja liðið enn frekar með nýjum leikmönnum. Það er allt opið í þessu, þetta má ekki verða lakara en í vetur. Annars væri verkefnið ekki áhugavert. Ég vil sjá svipað og helst sterkara lið," segir Þorbergur sem ætlar að leggja alla áherslu á að fá öfluga útiskyttu ef Gunnars Bergs nýtur ekki við.
Fyrsta þjóðhátíðarnefndin
Á stjórnarfundi ÍBV íþróttafélags 3. apríl, var fyrsta þjóðhátíðarnefnd félagsins skipuð. Í henni voru: Birgir Guðjónsson, formaður og með honum; Stefán Agnarsson, Björn Þorgrímsson og Sigurður Þórarinsson.
Frábær æfingaferð mfl. kvenna í knattspyrnu
Meistaraflokkur kvenna fór í viku æfingaferð rétt fyrir páskana til Albufeira í Portúgal. Í hópnum voru 20 stúlkur og svo tveir þjálfarar. Að sögn Sigurlásar Þorleifssonar, þjálfara, var þetta frábær ferð og allur aðbúnaður eins og best varð á kosið. „Ég er nú búinn að fara margar æfingaferðir til útlanda," sagði Sigurlás. „En þetta er það flottasta sem ég hef séð. 1. flokks hótel, vellimir afburðagóðir og svo sól og blíða allan tímann. Að vísu kom leiðindaatvik upp á fyrsta daginn þegar nokkrar stelpumar voru rændar en hópurinn var fljótur að jafna sig á því. Auk æfinga keppti liðið tvo leiki ytra, gegn rússnesku liði sem heitir því skemmtilega nafni Energy. „Og þær stóðu svo sannarlega undir nafni," sagði Sigurlás. „Við áttum lítið í þær að gera enda eru þær rússneskir meistarar og í liðinu eru einar sex eða sjö landsliðsstúlkur. Þetta lið var búið að vera þarna í mánuð í æfingabúðum, enda eru þarna atvinnumenn á ferð. Fyrri leiknum töpuðum við 9-0 og þeim seinni 8-0. Þrátt fyrir þessar tölur voru margir ljósir punktar í því sem okkar stelpur voru að gera og þær gáfust ekki upp.“ Ein stúlkan í ÍBV liðinu, Guðbjörg Guðmannsdóttir, vakti mikla athygli Rússanna og sýndu þeir mikinn áhuga á að fá hana í sínar herbúðir," sagði Sigurlás. Að sögn Sigurlásar var þessi ferð liður í undirbúningi fyrir sumarið, svona til að þjappa hópnum saman. „Það hefur ósköp lítið verið gert fyrir kvennafótboltann í Eyjum fram til þessa," sagði Sigurlás. „Þessi ferð er vonandi upphafið að einhverju meira og betra. Fái þær einhverja slíka umbun erfiðis síns þá eru meiri líkur á því að þær haldi lengur áfram." Sigurlás sagði erfitt að segja nokkuð um komandi sumar og keppni fyrr en æfingaleikirnir hæfust. „En stelpurnar eru bæði sterkari og betur undirbúnar en í fyrra svo að ég held að okkur hljóti að ganga betur. Hópurinn mætti aftur á móti vera sterkari. En við setjum stefnuna upp á við í sumar," sagði Sigurlás að lokum. Þessi frétt birtist í blaðinu Fréttum.
Þrír ungir leikmenn valdir í U-21 í knattspyrnu
Þrír leikmenn ÍBV eru í íslenska landsliðinu skipað leikmönnum U- 21 árs sem mætti Lúxemborg í vináttulandsleik 16. apríl. Þeir eru Gunnar Sigurðsson, Guðni Rúnar Helgason og Bjarnólfur Lárusson. Auk þess er Vestmannaeyingurinn Sigurvin Ólafsson í landsliðinu en hann hefur verið fyrirliði liðsins. Þjálfari er Atli Eðvaldsson, fyrrum þjálfari ÍBV.
Hermann eftirsóttur
Fyrr í vetur hafnaði Hermann Hreiðarsson tilboði frá enska félaginu Crystal Palace um að gerast leikmaður þess en samdi þess í stað við ÍBV um að leika með því út árið 1998. En nú hefur enska stórfélagið Arsenal bæst í flóru fjölmargra félaga í Skotlandi, Sviss, Þýskalandi, Englandi, Noregi og Svíþjóð sem er á höttunum eftir varnarmanninum sterka. Fulltrúi Arsenal hafði samband við Jóhannes Ólafsson, formann knattspyrnuráðs IBV, og spurðist fyrir um samningsstöðu Hermanns og vildi helst fá hann strax út til þess að skoða hann nánar. Af því getur ekki orðið þar sem Hermann á við smávægileg meiðsli að stríða auk þess sem stutt er í Íslandsmótið. Hermann er orðinn mjög eftirsóttur og liggur ljóst fyrir að hann fer í atvinnumennsku næsta haust ef rétt verð fæst fyrir hann, að sögn Jóhannesar. Er því um sannkallaðan gullkálf að ræða fyrir ÍBV. Í viðtali Frétta við Jóhannes segir hann: „Ég hef grun um að njósnari hafi verið frá Arsenal á Kýpurmótinu og fylgst með Hermanni. Ég skýrði fulltrúa Arsenal frá því að Hermann væri eftirsóttur en væri samningsbundinn ÍBV til haustsins 1998. Hins vegar væri Hermann til sölu næsta haust ef rétt verð fengist fyrir hann. Hann bað okkur að leyfa þeim að fylgjast með Hermanni og ætla þeir að senda njósnara hingað til lands til að fylgjast með honum, jafnvel fyrir Íslandsmótið, og ef hann spilar með landsliðinu"
Þjálfarar ráðnir fyrir yngra flokkanna í knattspyrnu
Á vordögum var gengið frá ráðningu þjálfara fyrir yngri flokkana. Mun Elías Friðriksson þjálfa 2. flokk ÍBV sem leikur í B-riðli. Kári Þorleifsson þjálfar 3. flokk. Sigurlás Þorleifsson þjálfar 4. og 5. flokk. Björn Elíasson og Jón Ólafur Daníelsson þjálfa 6. og 7. flokk. Eftir er að ganga frá ráðningu þjálfara hjá stelpunum.
Dyggur stuðningsmaður
Í Fréttum í apríl er auglýst til sölu sumarbústaðarlóð í Grímsnesinu sem í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi nema vegna þess að ÍBVfélagar geta fengið lóðina á sérstökum kjörum. Seljandinn, Þorsteinn Berent Sigurðsson, er gamall Eyjamaður og er hann giftur Ingu frá Kirkjubæ, sem segir að hann sé veikur í viku þegar ÍBV tapar. Þetta eitt ætti að sýna góðan hug til ÍBV en hann vill gera betur. Hann auglýsir lóðina á 700 þúsund gegn staðgreiðslu, en á 650 þúsund til ÍBV félaga og renna 50 þúsund af þeirri upphæð til ÍBV.
Skrautfjaðrir týnast úr handboltaliðinu
Töluverðar hræringar eiga sér stað hjá handboltaliði ÍBV. Arnar Pétursson mun ekki spila með ÍBV næsta vetur en áður hefur komið fram að Gunnar Berg Viktorsson er einnig á leiðinni í annað lið. Jafnvel er von á því að fleiri leikmenn hugsi sér til brottfarar. Handknattleiksráð er svo í viðræðum við nokkra leikmenn í öðrum liðum, þ.á.m. tvo Eyjamenn. Gunnar Berg Viktorsson ætlar í nám í Reykjavík og mun spila með öðru liði. Arnar Pétursson staðfesti í samtali við Fréttir að hann ætlar í nám næsta vetur í Reykjavík. „Ég mun ekki spila með ÍBV næsta vetur. Því miður er ekkert háskólanám í boði í Eyjum og þyí mun ég spila með öðru liði. Ég treysti mér ekki til að vera í ströngu námi og spila einnig með ÍBV. Það gengur einfaldlega ekki upp," sagði Arnar og bætti því við að nokkur 1. deildarlið hefðu haft samband við sig. Hinir ungu og efnilegu strákar, Birkir Ívar Guðmundsson, Ingólfur Jóhannesson og Daði Pálsson, stefna einnig að námi í Reykjavík.
Vilja gera Belánýi að Íslendingi
Handknattleiksráð vinnur að því öllum árum að fá íslenskan ríkisborgararétt fyrir Zoltan Belánýi. Eru taldar meiri líkur á því en áður að það muni takast. Umsóknir um slíkt eru teknar fyrir tvisvar á ári og lagt fyrir Alþingi. Skilyrði til þess að fá íslenskan ríkisborgarétt er að hafa búið hér á landi í sjö ár og er Belánýi alveg á mörkunum að ná því. Ástæðan fyrir því að handknattleiksráð ÍBV leggur svona mikið upp úr þessu er til þess að fá liðsauka frá útlöndum næsta vetur en þrátt fyrir Bosmandóminn er eingöngu leyfilegt að vera með einn útlending í hverju handboltaliði á Íslandi.
ÍBV-liðið gert út frá Reykjavík?
Ásmundur Friðriksson, formaður Íþróttabandalagsins, kom fram með þá nýstárlegu hugmynd á lokahófi handknattleiksliðs ÍBV, að gera handboltalið ÍBV út frá Reykjavík næsta vetur. Er þetta sett fram í ljósi þess að hluti ÍBV liðsins hyggur á nám í Reykjavík næsta vetur og gengur því til liðs við önnur lið að öllu óbreyttu. Nú þegar hafa Arnar Pétursson og Gunnar Berg Viktorsson ákveðið að fara í nám til Reykjavikur og margt bendir til þess að Ingólfur Jóhannesson, Birkir Ívar Guðmundsson, Daði Pálsson og jafnvel fleiri séu einnig á leiðinni suður. Ásmundur sagði að ekkert væri við því að gera að ungir menn færu í nám til Reykjavíkur. Því miður væri ekki háskólanám í Eyjum og þetta skapaði stór vandamál fyrir handboltalið ÍBV, sem þyrfti að sjá á eftir sínum bestu leikmönnum í nokkur ár. Ásmundur velti upp þeirri hugmynd hvort ekki væri hægt að gera ÍBV liðið út frá Reykjavík næsta vetur. Kjarninn yrði í Reykjavík en hluti hópsins í Eyjum. „Þetta er kannski út í hött en af hverju ekki," sagði Ásmundur og vitnaði til þess að tveir leikmenn ÍBV, Svavar Vignisson og Erlingur Richardsson, voru við nám á Laugarvatni í vetur en lögðu það á sig að spila með ÍBV.
Guðfinnur leikmaður ársins
Guðfinnur Kristmannsson var valinn leikmaður ársins hjá handboltaliði ÍBV íþróttafélags á lokahófi sem haldið var á Höfðanum í lok apríl. Ingólfur Jóhannesson fékk FRÉTTA-bikarinn sem efnilegasti leikmaðurinn, Arnar Pétursson fékk framfarabikarinn og Zoltan Belánýi var markahæsti leikmaður liðsins. Að venju var mikið um dýrðir á lokahófi ÍBV. Magnús Bragason, formaður handknattleiksráðs ÍBV, lýsti yfir mikilli ánægju með árangurinn í vetur og fagnaði endurráðningu Þorbergs Aðalsteinssonar. Magnús sagði að handboltinn væri ekki lengur svarti sauðurinn í íþróttahreyfingunni hvað varðaði reksturinn. Handboltaráð ÍBV skilaði deildinni réttu megin við núllið í ár og þakkaði hann það áræðni gjaldkerans, Eyþórs Harðarsonar. Hann sagði að veturinn sem leið væri besti árangur ÍBV í deildarkeppninni frá upphafi og þakkaði það þjálfara liðsins. Hins vegar vegar bæri skugga á að leikmenn sem ÍBV hefði alið upp, væru að yfirgefa liðið sökum náms en við því væri ekkert hægt að segja. Guðjón Hjörleifsson flutti lokahófsgestum kveðju bæjarstjórnar og Ásmundur Friðriksson aðalstjórnar Íþróttabandalagsins. Jóhann Pétursson veislustjóri flutti minni leikmanna og fór mikinn. Nokkur dansatriði voru með nemendum úr dansskóla Önnu Svölu. Ung pör sýndu Cha cha cha og nokkrar konur á besta aldri ásamt Jóa Ragg sýndu kántrýdansa við góðar undirtektir og nutu fulltingis nokkurra góðra manna, þ.á.m. þjálfara ÍBV. Þá flutti ungt fólk dansatriði úr Stone Free. Helstu styrktaraðilar ÍBV voru heiðraðir og tveir ungir leikmenn, Sigurður Bragason og Jóhann Freyr Friðsteinsson, sýndu vídeómynd sem sló í gegn. Þar tóku þeir fyrir eldri félaga sína í ÍBV, aðallega þá sem kenndir eru við Fagurlyst. (Fréttir greindu frá)
ÍBV deildarmeistari
ÍBV vann verðskuldaðan sigur á Valsmönnum í úrslitaleik deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu á Valbjarnarvellinum, 3-2 í framlengdum leik þar sem Tryggvi Guðmundsson skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu leiksins með glæsilegu skoti. Leikurinn var hinn fjörugasti en þegar upp var staðið voru Eyjamenn sterkara liðið.
Þvílík byrjun
Íslands- og bikarmeistarar ÍA voru rasskelltir í 1. umferð Íslandsmóts karla í knattspyrnu, 3-1. „En nota bene, það er langt í frá að ÍBV sé orðið Íslandsmeistari eins og sumir bæjarbúar virðast halda“, skrifaði íþróttafréttamaður Frétta í blaðið sitt. „Ekki verður af drengjunum okkar skafið, þeir léku mjög vel og koma mjög vel undirbúnir til leiks. Líklega er þetta besta lið ÍBV í áraraðir. Nýir leikmenn fylla vel upp í skörðin og liðið leikur sem ein heild. Á toppinn í sumar. Liðið er sterkara en undanfarin ár og andstæðingarnir slakari ef marka má fyrstu umferðina. Nú reynir á þjálfara liðsins að halda drengjunum niðri á jörðinni“.
Tryggvi biðst afsökunar
Tryggvi Guðmundsson, framherji ÍBV, sendi fjölmiðlum fréttatilkynningu eftir leikinn við ÍA, þar sem hann baðst afsökunar á óíþróttamannslegri framkomu sinni þegar hann fiskaði vítaspyrnu gegn ÍA í 1. umferð. Á sjónvarpsmyndum sést greinilega að Tryggvi lét sig detta og fór hann því á svartan lista hjá dómurum. Enda kom það í ljós gegn Fram að einhvern tímann hefði verið flautuð vítaspyrna, þegar Tryggvi var felldur innan vítateigs í síðari hálfleik. En dómarinn lét leikinn halda áfram, minnugur leikarahæfileika Tryggva. vítaspyrnudóminum
Stjörnuhrap í Eyjum
Miklar væntingar voru bundnar liði Eyjamanna fyrir sumarið. Sannfærandi sigur á Skagamönnum í fyrsta leik, jafntefli við Fram í 2. umferð og 5 – 0 sigur á Stjörnunni á Hásteinsvelli í 3. umferð. Menn spurðu hvern annan. Verða Eyjamenn stjörnur sumarsins? Fréttir sögðu frá því að líklega hefði 8-0 sigur ÍBV gefið réttari mynd af gangi leiksins. Hópurinn væri greinlega vel samstillur og breiddin eins og þarf til að vera í toppslag.
Engin offside í 5. flokki
Í síðasta heimaleik ÍBV hafði Sigmar nokkur Pálmason, einn Hólsara, uppi stór orð um dómara leiksins. Hafði dómarinn í tvígang dæmt leikmann ÍBV rangstæðan. Kallaði Sigmar þá til dómarans að þetta hefði ekki verið „offside" (rangstæða) fyrir fimm aura. Það hefði ekki einu sinni verið dæmt „offside" á þetta í 5. flokki. Fyrir framan hólinn stóð þá ungur piltur, leikmaður í 5. flokki. Hann snéri sér við, leit með fyrirlitningarsvip á Sigmar og sagði: „Heyrðu manni, það er engin „offside" i 5. flokki." Ekki heyrðist í Sigmari lengi á eftir.
2. flokkur byrjar vel
2. flokkur ÍBV byrjaði keppnistímabilið með glans. ÍBV leikur í B-riðli (2. deild) og hefur sett stefnuna upp í A-riðil. ÍBV burstaði Grindavík í Eyjum um helgina 5-0. Ólafur Guðmundsson skoraði 2 mörk og Bjarni Geir Viðarsson (víti), Bjöm Jakobsson og Þorsteinn Þorsteinsson sitt markið hver.
KÁ helsti styrktaraðili kvennaknattspyrnunnar
Í síðustu viku undirrituðu Jóhannes Ólafsson formaður knattspyrnudeildar ÍBV og Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri KA undir samning um að Kaupfélagið verði aðalstyrktaraðili kvennaknattspyrnunnar í Vestmannaeyjum í ár og næsta ár. Samningurinn kveður á um ákveðinn fjárstyrk og nær til allra leikmanna meistaraflokks og allra yngri flokkanna. Munu stúlkumar spila í búningum merktum KÁ á brjósti.
Eyjamenn í landsliðum
Hermann Hreiðarsson var valinn í íslenska A-landsliðshópinn gegn Makedóníu í Evrópukeppninni. Hermann missti af síðasta landsleik vegna meiðsla en er nú til í slaginn. Þá eru fjórir Eyjaleikmenn í U-21 árs landsliðinu sem einnig mætir Makedóníu í Evrópukeppninni í þeim aldursflokki. Það eru Gunnar Sigurðsson, Sigurvin Ólafsson, Bjarnólfur Lárusson og Guðni Rúnar Helgason.
Ágætt gengi yngri flokkanna
2. flokkur ÍBV karla, tapaði fyrir Víkingi í Íslandsmótinu í miklum baráttuleik, 1-2. Víkingur náði forystu í fyrri hálfleik en Ólafur Guðmundsson jafnaði metin fyrir ÍBV í upphafi seinni hálfleiks. Víkingar tóku miðju og skoruðu strax annað markið. Eyjamenn sóttu stíft eftir það án þess að skapa sér góð færi. Næsti leikur 2. flokks ÍBV var gegn Þrótti í Reykjavík sem endaði með jafntefli, 0-0. 2. fl. ÍBV, sem er í B-riðli (2. deild), er nú rneð 4 stig eftir 3 leiki 4. flokkur ÍBV drengja lék gegn Val og vann 4-2. Valsarar komust í 2-0 eftir tíu mín- útur en þá var gerð breyting á liðsuppstillingu IBV. Þá tóku Eyjastrákar öll völd á vellinum og unnu öruggan sigur. Hörður Orri skoraði 2 og Sæþór Jóhannesson og Bjarni R. Einarsson eitt mark hvor. 4. flokkur ÍBV lék svo gegn Víkingi. Leiknum lyktaði með jafntefli, 1-1. Ívar Leifsson skoraði mark ÍBV. 3. flokkur ÍBV drengja lék gegn Fjölni og fór leikurinn 1-1. Olgeir Sigurgeirsson skoraði mark ÍBV. 3. flokkur kv. ÍBV lék í Kópavogi gegn Breiðabliki og tapaði 1-2. Aldís Grímsdóttir skoraði mark ÍBV. 6. flokkur ÍBV tók þátt í Legómótinu í Hafnarfirði og stóð sig ágætlega. A-lið ÍBV vann 1 leik, gerði 1 jafntefli og tapaði 2. B-lið ÍBV tapaði 2 og gerði 2 jafntefli. C-liðið vann 3 leiki og gerði 1 jafntefli og D-liðið gerði 4 jafntefli.
Erfið samskipti
Það var flestum ljóst á upphafsárum ÍBV íþróttafélags, að samskipti milli handknattleiksdeildar og knattspyrnudeildar voru stirð. Það var á stjórnarfundi félagsins 6. maí sem þessi samskiptavandi kom til umræðu. Í bókun segir að kominn sé tími til að fólk átti sig á því, að það væri í einu og sama félagi. Gat formaðurinn þess að innan tíðar yrði boðað til fundar með öllum þessum aðilum og breyttra vinnubragða óskað.
Kvennadeildin og knattspyrnumótin
Stjórn kvennadeildarinnar mætti á stjórnarfund 27. maí og lagði fram hugmyndir sínar um framlag deildarinnar til Pepsí-mótsins og Shell-mótsins. Mun deildin sjá um allan morgunmat á mótunum, rekstur sjoppu og sjá um fararstjóragleðskapinn á Pepsí-mótinu. Greiðsla til deildarinnar fái 750 þúsund krónur fyrir hvort mót, deildin fái allan ágóða af sjoppunni og gleðskapnum, jafnframt mun deildin greiða allan hráefniskostnað sem til fellur vegna þeirra þátta sem deildin sér um. Síðar mun kvennadeildin nota það fjármagn sem inn kemur til styrktar og stuðnings félaginu.
Fyrsta Pepsímót ÍBV íþróttafélags
Pepsímót ÍBV í knattspyrnu (hét áður Pepsí-Pæjumót Þórs), fyrir stúlkur frá 8 til 16 ára aldurs, hófst fimmtudaginn 12. júní. Sól og blíða var alla mótsdagana. Alls mættu 18 félög til leiks með 80 lið, samtals vel á níunda hundrað þátttakendur. Var giskað á að um 1300 manns hefðu komið til Eyja vegna mótsins. Keppni hófst kl. 9 og um kvöldið var formleg setningarathöfn á Þórsvellinum. Keppt var á Þórs-, Týs- og Hásteinsvelli. Eins og undanfarin ár var keppt í öllum yngri flokkum kvennaknattspyrnunnar, frá 6. flokki og upp í 2. flokk. Á laugardagskvöldið var kvöldvaka í íþróttamiðstöðinni þar sem töframaðurinn Pétur pókus fór á kostum. Hljómsveitin Skítamórall hélt svo uppi stuðinu langt frameftir kvöldi. Uppskera ÍBV var þrjú gull, tvö silfur og eitt brons. 6. flokkur lenti í 2. sæti; 5. flokkur A og B urðu í 1. sæti; 4. flokkur A í 1. sæti og 4. flokkur B í 2. sæti. Þá lenti 3. flokkur í 3. sæti. Framkvæmdastjóri mótsins var Magnús Sigurðsson, sem hafði stýrt mótinu meðan Íþróttafélagið Þór sá um það.
Tap fyrir Stjörnunni
Meistaraflokkur kvenna ÍBV í knattspyrnu tapaði fyrir Stjörnunni, 1-2, þegar liðin áttust við í Eyjum í endaðan júní. Í Fréttum er sagt að leikurinn hafi ekki verið upp á marga fiska, mest barningur á miðjunni og Eyjastelpur náðu aldrei upp spili. Stjarnan skoraði strax á 3. mínútu og kom markið eins og köld vatnsgusa framan í Eyjastelpur. En eftir að þær höfðu jafnað sig skoraði Fanný Yngvadóttir laglegt mark fyrir ÍBV, fékk boltann inni í teignum og lagði hann fyrir sig og þrumaði í netið. En Stjarnan náði aftur forystunni eftir klaufagang í vörn ÍBV. Stefanía Guðjónsdóttir átti hörkuskot sem markvörður Stjörnunnar varði í slána en staðan í hálfleik var 2-1. Í seinni hálfleik sóttu Eyjastúlkur grimmt án þess að skapa sér afgerandi færi.
......en sigur á ÍBA ÍBV stelpur unnu sinn fyrsta sigur í Stofndeildinni á þriðjudaginn með því að vinna ÍBA á Akureyri, 4-1. Fréttir segja á íþróttasíðu sinni að sigurinn hefði verið mjög mikilvægur því með honum losuðu stúlkurnar sig úr svaðinu þarna neðst niðri. „Eyjastúlkur byrjuðu vel en misstu taktinn um miðjan seinni hálfleik. ÍBA fékk tvö góð færi sem ekki nýttust og það var svo gegn gangi leiksins að Elena Einisdóttir skoraði fyrir ÍBV á 40. mínútu eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Í hálfleik kom Dögg Lára Sigurgeirsdóttir inn á og kom heldur betur við sögu. Hún skoraði fljótlega tvö mörk. Íris Sæmundsdóttir átti skot á markið sem Dögg Lára fylgdi vel á eftir og skoraði. Þriðja markið var einstaklingsframtak. Dögg Lára skaut í boga í hornið fjær úr vítateignum, glæsilegt mark. Og Dögg Lára átti heiðurinn af fjórða markinu sem Elena skoraði. Dögg Lára og Elena skoruðu því tvö mörk hvor. Þær tvær áttu frábæran leik. Erna Þorleifsdóttir og Eva Sveinsdóttir léku einnig skínandi vel og Petra Bragadóttir var öryggið uppmálað í markinu.“
Jón Bragi þjálfar meistaraflokkinn
Um mitt sumar var gengið frá ráðningu Jóns Braga Arnarssonar sem þjálfari handboltaliðs ÍBV í kvennaflokki.
Ef við drekkum Jameson
Íþróttafréttaritari Frétta á þessum árum, Þorsteinn Gunnarsson skrifar oft fjörlega um íþróttakappleiki. Eftir tapleik ÍBV gegn KR skrifar hann um leikinn: „Öll munum við eftir ævintýrinu um smalann sem leiddist þófið og kallaði ÚLFUR, ÚLFUR. Allir ruku upp til handa og fóta en svo kom á daginn að enginn úlfur hafði ráðist á hjörðina. En svo þegar alvaran skall á tók enginn mark á drengnum og úlfurinn stráfelldi hjörðina. Þessi saga kom upp í hugann þegar úlfarnir í KR slátruðu Eyjahjörðinni í Eyjum á sunnudaginn og unnu sanngjarnan sigur, 1-2. Fyrir þennan leik hafði Eyjaliðið eitthvað verið að kvarta yfir andstæðingunum, að þeir spiluðu gróft, ÚLFUR ÚLFUR. Enginn tók eftir því. Svo þegar (KR)úlfurinn mætti í eigin búningi á svæðið og Eyjamenn sáu grófan og fólskulegan leik KR-inga var allt um seinan því Eyjaliðið var stráfellt. Svona væll hjá Eyjamönnum um grófan leik andstæðinganna er nýmæli hér um slóðir, yfirleitt hefur þessu verið öfugt farið. Þetta er áhyggjuefni. Ef Eyjaliðið bregst ekki við þessu og berst á móti sjáum við ekki fram á bjarta tíma í boltanum. Svo virðist sem lagið „Við drekkum Jameson" með Pöpunum sem spilað var fyrir leikinn til þess að gera grín að KR-ingum, þar sem þrír leikmenn liðsins voru í agabanni eftir að fengið sér neðan í því, hafi æst upp baráttuandann í þeim röndóttu. Bæði lið léku 4-3-3 aðferðina og kom harka KR í byrjun Eyjamönnum í opna skjöldu. Vörn ÍBV var ótrúlega taugatrekkt og eftir 29. mín. leik skoraði Hilmar Björnsson eftir klaufagang í vörninni. Sverrir, eini alvörujaxlinn í Eyjaliðinu, fór útaf meiddur eftir markið. Í byrjun seinni hálfleiks bætti Andri Sigþórsson öðru marki við fyrir KR og það var rothöggið. Skömmu síðar var einn KR-ingur rekinn útaf og þá þyngdist sókn ÍBV. Sigurvin Ólafsson tók þá öll völd á vellinum og fór á kostum. Hann var allt í öllu og mataði samherjana með fallegum sendingum. KR-ingar björguðu á línu frá Steingrími áður en Tryggvi minnkaði muninn fyrir ÍBV eftir skot Sigurvins í stöng frá vítateigslínunni. Eyjamenn fengu fleiri góð færi en markvörður KR var vandanum vaxinn.“
14. Shellmótið
Fjórtánda Shellmótið og það fyrsta í umsjá ÍBV íþróttafélags hófst 27. júní í sól og blíðu. Framarar báru sigur úr býtum hjá B-liðum, Stjarnan hjá C-liðum og Keflavík hjá D. Eyjaliðunum gekk ekki sem skildi. A-lið ÍBV lenti í 15.-16. sæti, B-lið ÍBV í 16. sæti og C-lið ÍBV í 10.-11. sæti. ÍBV átti einn fulltrúa í pressuliði mótsins, Finnboga Friðfinnsson (Finnbogasonar) en hann var markvörður liðsins. Á Shellmótum er venjan að velja besta leikmann Shellmótsins. Að þessu sinn i kom það í hlut Theódórs Elmars Bjarnasonar í KR.
Kærar þakkir
Að mótinu loknu þakkaði stjórn ÍBV íþróttafélags þeim fjölda fólks sem lagði sitt að mörkum við undirbúning og framkvæmd mótsins. „Það hefur ekki farið framhjá nokkrum manni að nýverið voru haldin árviss knattspyrnumót hér í Eyjum, Pepsímótið og Shellmótið. Vel á þriðja þúsund manns heimsóttu okkur vegna þessara viðburða og gekk allt eins og í sögu. Við öðru var vart að búast þar sem hundruð sjálfboðaliða lögðu sitt af mörkum til að framkvæmdin yrði sem best og okkur til sóma. Án þessa mikla og fórnfúsa starfs væri borin von að halda mót sem þessi. Sérstaklega var ánægjulegt, þar sem nýtt félag stóð fyrir mótunum, að sjá allt það fólk sem starfað hafði áður að mótunum í sitt hvoru lagi, renna saman í eina heild og starfa hlið við hlið, við bæði mótin eins og það hafi aldrei gert annað. Öllu þessu fólki og öðrum þeim sem á einn eða annan hátt lögðu okkur lið við að gera framkvæmd mótanna mögulega, þökkum við af alhug. Það er erfitt að taka einhverja út úr, hvort heldur þá sem komu beint að framkvæmdinni eða þá sem komu að flutningum eða annarri þjónustu við mótsgesti. Öllu þessu góða fólki ber að þakka. Ákveðið hefur verið að slá upp smá slútti vegna mótanna og munum við grilla inni við Þórsheimili föstudagskvöldið 11. júlí kl. 20.“
Skeljungur aðalstyrktaraðili Shellmótsins
Í upphafi Shellmótsins í knattspyrnu, undirrituðu Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs og Þór Í Vilhjálmsson formaður ÍBV, nýjan samstarfssamning, þess efnis að Skeljungur verði aðalstyrktaraðili Shellmótsins fram að næstu aldamótum.
Stelpurnar töpuðu en strákarnir gerðu jafntefli
ÍBV stelpur sóttu ekki gull í greipar Haukastúlkna þegar þær áttust við í Stofndeildinni í knattspyrnu, efstu deild. Haukar, sem voru án stiga fyrir leikinn sigruðu 3-1. ÍBV stúlkurnar sóttu án afláts í leiknum en nýttu færin sín herfilega illa. Þessa sömu helgi lék karlalið ÍBV við Keflvíkinga í Keflavík og uppskáru jafntefli 1-1. „Þetta var grátlegt helvíti að vinna ekki leikinn. Það var klassamunur á liðunum í þessum leik. Við vorum miklu betra. Með því að gera jafntefli tókst okkur ekki að saxa á forskot Keflavíkur þannig að þetta verður sami eltingaleikurinn áfram," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV í viðtali við Fréttir. Hálfgerð meistaraheppni fylgdi Keflavíkurliðinu sem mátti svo sannarlega þakka fyrir að ná einu stigi á heimavelli gegn sprækum Eyjamönnum sem seldu sig dýrt, fengu fullt af góðum dauðafærum sem þeir nýttu ekki. „Ekki bætti úr skák að dómari leiksins var hörmulegur og hafði eitt mark og vítaspyrnu af ÍBV í leiknum,“ bætti Bjarni við.
Hemmi til Crystal Palace
ÍBV og enska úrvalsdeildarliðið Crystal Palace komst að samkomulagi um að enska félagið kaupi hinn stórefnilega varnarmann ÍBV, Hermann Hreiðarsson. Hermann fer til Crystal Palace 20. júlí en mun spila með ÍBV fram að þeim tíma. Kaupverð Hermanns fékkst ekki uppgefið en samkvæmt heimildum blaðamanna í London sem Fréttir höfðu samband við, er talið líklegt að það sé um 70 milljónir króna. Er því væntanlega um einn hagstæðasta samning að ræða sem íslenskt félagslið hefur nokkurn tíma gert fyrir leikmann. Í Fréttum segir að ÍBV hafi nú slátrað gullgæsinni sinni og spurningin er hvort þetta verði ekki til þess að ÍBV missi af Íslandsmeistaratitlinum í haust.
Stelpurnar ósáttar
ÍBV stelpur segjast mjög ósáttar við að fá ekki að æfa á Hásteinsvellinum eins og meistaraflokkur karla. Stefanía Guðjónsdóttir, fyrirliði, segir að það sé tilgangslaust að spila heimaleikina á Hásteinsvelli nema að liðið fái að æfa þar líka, a.m.k. síðustu æfingu fyrir leik. „Þetta virkar ekki sem heimavöllur ef við fáum ekki að æfa og fá tilfinningu fyrir vellinum og aðstæðum. Það eru vitrir menn sem stjórna orðið í sameiginlegu félagi og ég trúi ekki öðru en við fáum úr þessu bætt," sagði Stefanía í viðtali við Fréttir.
Ekki sátt og samlyndi
Forráðamenn Sparisjóðs Vestmannaeyja og ÍBV-íþróttafélags skrifuðu 12. júlí undir samstarfssamning til 10 ára en í honum eru jafnframt ákyæði um árlega endurskoðun hans. Í samningnum er kveðið á um stuðning Sparisjóðs Vestmannaeyja við ÍBV-íþróttafélag og gagnkvæm viðskipti og kemur þessi samningur í stað eldri samninga um stuðning sjóðsins við knattspyrnu- og handknattleiksdeildir karla og kvenna innan ÍBV, Knattspyrnufélagið Tý og Íþróttafélagið Þór. Auk stjórnar ÍBV íþróttafélags áttu formenn handknattleiks- og knattspyrnudeildar að mæta og skrifa undir styrktarsamninginn. Á stjórnarfundi 14. júlí segir í bókun stjórnar ÍBV íþróttafélags að formaður knattspyrnudeildarinnar hafi forsmáð félagið með því að mæta ekki í mótmælaskyni vegna þessa samnings. Gerði hann þar með lítið úr félaginu að áliti formanns félagsins. Taldi Jóhannes formaður knattspyrnudeildar sig vera að mótmæla því að styrkur Sparisjóðsins átti að renna til greiðslu skulda Þórs og Týs, „en samt afhenti Sparisjóðurinn 600 þúsund krónur til styrktar handknattleiks- og knattspyrnudeildar“ segir í bókuninni. „Taldi Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar sig ekki hafa vitað af því, en það er enginn afsökun að haga sér svona gagnvart félaginu. Það sem verra er, að formaður knattspyrnudeildar lét ekki vita af þessu fyrr en 5 mínútum fyrir fund.“ Jóhannes taldi að sér vegið vegna málsins. „Stjórnin er hinsvegar sammála um að það gangi ekki að haga sér svona.“ Á þessum sama stjórnarfundi var Jóhannes beðinn um skýringu á söluna á Hermanni Hreiðarssyni til Crystal Palace. Hann sagðist bundinn trúnaði vegna þess og ekkert geta sagt. Í bókun fundarins segir: „Fannst formanni félagsins þetta með eindæmum að fá svona vantraust frá undirmanni sínum. Ritari getur ekki skýrt frá öllu sem á þessum fundi gerðist, en telur þó að það mikilvægasta hafi hér komið fram“.
Skallagrímur skyndibiti
Það er eins og ekki hafi verið skipt um smurolíu í gangverki ÍBV fyrir leikinn gegn Skallagrími í Sjóvá-Almennra deildinni. Vélin var lengi af stað, hikstaði í byrjun en hrökk sæmilega í gang eftir því sem leið á. Alla vega dugði olían að þessu sinni enda var langlélegasta lið deildarinnar í heimsókn. ÍBV vann 3-1 og þrjú mikilvæg stig söfnuðust í sarpinn í toppbaráttu Sjóvá-Almennra deildarinnar. Ekki svo sem að það hafi skipt nokkru máli að ÍBV sýndi engan glansleik þar sem sigur vannst. Hins vegar vilja áhorfendur fá meira fyrir sinn snúð. Út á það gengur þetta allt saman, að skemmta áhorfendum. Og Fréttir spurðu: HVAR ERU FÖGNIN? Við söknum þeirra.
4 úr úr leik
Skjótt skipast veður í lofti í fótboltanum. ÍBV, sem hafði breiðasta hópinn í Sjóvá-Almennra deildinni í síðustu viku, hefur heldur betur orðið fyrir skakkaföllum. „Nýjasta áfallið er að Rútur Snorrason verður ekki meira með í sumar“. Meiðslin sem hann varð fyrir gegn Skallagrími voru mun alvarlegri en reiknað var með í fyrstu. Krossband í hné er slitið auk fleiri áverka. Hermann Hreiðarsson fer sem kunnugt er til Crystal Palace. Magnús Sigurðsson er farinn í Val og Fréttir segja að það séu stór mistök að leyfa honum að fara þangað þar sem Hermann er að fara. „Magnús hefði komið að góðum notum í vörninni. Þá fór Sumarliði Ámason til Stjörnunnar og það voru einnig m istök í ljósi þess að Rútur er úr leik. í Íslandsmótinu þarf breiðan hóp en það var nokkuð ljóst að ekkert annað lið en ÍBV hefði eins og aðstæður eru í dag mátt við því að missa jafn öfluga stráka og raun ber vitni“.
9 ÍBV-arar í landslið
Í fyrsta skipti í sögu ÍBV á félagið nú tvo leikmenn í kvennalandsliði Íslands skipuð stúlkum 20 ára og yngri. Það eru þær Sigríður Ása Friðriksdóttir og Elena Einisdóttir. Sjö leikmenn meistaraflokks karla ÍBV voru valdir í íslensk landslið í knattspyrnu. Hermann Hreiðarsson og Sverrir Sverrisson voru valdir í A-landsliðið. Gunnar Sigurðsson, Sigurvin Ólafsson, Bjarnólfur Lárusson og Guðni Rúnar Helgason voru valdir í U-21 árs landsliðið og Björn Jakobsson var valinn í 18 ára landsliðið.
Íslandsmeistaraefni? Að verða eða verða ekki Íslandsmeistarar. Það er spurningin. Í fyrsta skipti síðan eftir 1. umferðina 1995 sat ÍBV í efsta sæti efstu deildar eftir glæsilegan sigur á Íslandsmeisturum Skagamanna 3-1, þegar stutt er í þjóðhátíð. Í leiklýsingu íþróttafréttaritara Frétta segir að:
„Sementsblanda Skagamanna virðist um þessar mundir vera afar viðkvæm. Steypuherðirinn Arnar Gunnlaugsson hvarf á braut. Svo virðist sem sementsblanda ÍA hafi orðið fyrir frostskemmdum í vetur, hún er ekki eins sannfærandi og undanfarin ár. Eyjamenn hafa ekki átt eins gott lið í áraraðir og ekkert því til fyrirstöðu að innbyrða Íslandsmeistaratitil. Það er nú eða aldrei.“
ÍBV stelpur lögðu Val að velli
ÍBV-stelpur gerðu góða ferð til Reykjavíkur síðla júlímánaðar. Þá kepptu þær við Val og höfðu sigur 2-1 í jöfnum, opnum og tvísýnum leik. Valsstúlkur byrjuðu betur og höfðu talsverða yfirburði fram yfir miðjan fyrri hálfleik. Þær náðu líka forystunni á 27. mínútu. En þar með hrökk ÍBV í gang svo að um munaði og var sterkari aðilinn allt til leiksloka.
Flottur árangur á Gull og silfurmótinu
Fréttir gerðu Gull og silfurmótinu í Kópavogi góð skil. Í grein í blaðinu segir: Eyjastelpur náðu aldeilis frábærum árangri á Gull- og silfurmóti Breiðabliks sem haldið var í Kópavogi um síðustu helgi. ÍBV undirstrikaði þar enn eina ferðina að liðið er orðið stórveldi í kvennafótboltanum. ÍBV gerði sér lítið fyrir og keppti til úrslita í öllum flokkum (nema 2. flokki en ÍBV sendi ekki lið í þeim flokki). Uppskeran urðu tveir Gull- og silfurmótstitlar, í 5. flokki A og B, og fimm silfur. 3. flokkur A ÍBV lenti í 2. sæti. Stelpurnar stóðu sig frábærlega og sýndu miklar framfarar frá því í Pepsímótinu enda komnar með þjálfara. Þær unnu alla sína leiki og gerðu eitt jafntefli. Þær töpuðu úrslitaleik mótsins fyrir Val, 1 -5. 4. flokkur A ÍBV varð í 2. sæti. Liðið vann alla sína leiki en tapaði úrslitaleiknum við Val, 3-0. 5. flokkur BB (þ.e. B-lið nr. 2) kom skemmtilega á óvart í Gull- og silfurmótinu, komst í undanúrslit en tapaði fyrir ÍBV(!) og tapaði svo í hlutkesti í undanúrslitaleiknum. 4. flokkur B ÍBV varð einnig í 2. sæti. Stelpurnar unnu flesta sína leiki, gerðu tvö jafntefli en töpuðu úrslitaleiknum fyrir Breiðabliki, 0-1. ÍBV sendi einnig lið nr. 2 í B-liðskeppni 4. flokks. Þær stelpur stóðu sig prýðilega og unnu KR 1-0 í úrslitaleik um 5. sæti. 5. flokkur A ÍBV hélt áfram sigurgöngu sinni. Stelpumar unnu alla sína leiki örugglega og burstuðu Breiðablik í úrslitaleiknum, 4-0. 5. flokkur B ÍBV gaf A liðinu ekkert eftir og vann alla sína leiki í mótinu og urðu meistarar. B-liðið vann Breiðablik í úrslitaleik 1-0. ÍBV sendi einnig lið nr. 2 í B-liðskeppni 5. flokks. Þetta aukalið gerði sér lítið fyrir og spilaði við B-lið ÍBV í undanúrslitum og tapaði 1-2! Aukaliðið spilaði við Val um 3. sætið, var í sókn allan tímann en leiknum lyktaði með jafntefli. ÍBV tapaði svo á hlutkesti. 6. flokkur A ÍBV varð í 2. sæti, vann alla sína leiki auðveldlega en tapaði úrslitaleiknum um 1. sætið fyrir Breiðabliki, 1-5.
6. flokkur B IBV var spútnik lið mótsins, tapaði aðeins einum leik fyrir Haukum sem unnu mótið.
Að sögn þjálfaranna Stefaníu Guðjónsdóttur og Ernu Þorleifsdóttur stóðu allir flokkarnir sig frábærlega vel og voru til fyrirmyndar. Þær bentu einnig á að svo „einkennilega" vildi til á þessu móti að Breiðablik lenti aldrei með ÍBV í riðli, ekki einu sinni í milliriðlum, sama hvaða flokkur það var. Er þetta hræðsla eða hvað? spyrja þjálfararnir. (Fréttir 24. Júlí)
Zoran til ÍBV
Eftir að landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson, varnarjaxlinn í ÍBV-liðinu hélt á vit atvinnuknattspyrnunnar í Englandi var Júgóslavinn Zoran Miljkovic fenginn til liðs við félagið. Hann lék með Akurnesinum í fyrra við mjög góðan orðstír.
Tap og sigur
Kvennalið ÍBV tapaði fyrir Breiðablik 4-1 í undanúrslitum bikarkeppninnar í síðasta leik liðsins fyrir Þjóðhátíð. Karlalið ÍBV skellti hinsvegar Leiftri frá Ólafsfirði, 3-2, í hörkuleik á Hásteinsvelli. Með þessum sigri tyllti ÍBV sér á topp deildarinnar.
Haftið skal vera áfram
Það hefur um árabil verið nokkur höfuðverkur þeirra sem sjá um brennuna á þjóðhátíð að koma efni í hana upp á Fjósaklett vegna grjóthafts vestan til í klettinum og hefur oft verið rætt um að fjarlægja haftið. Á fundi umhverfis- og heilbrigðisnefndar, sem haldinn var þriðjudaginn fyrir þjóðhátíð, lá fyrir bréf frá þjóðhátíðarnefnd, dagsett 7. júlí. Þar var farið fram á að leyfðar yrðu lagfæringar á aðgengi að brennustæðinu á Fjósakletti. Lagt var til að flísuð yrði úr vesturþili klettsins sneið, sem væri einn metri á þykkt og fjórir metrar á lengd. Efnið úr þessari flís yrði síðan notað í óreglulega hleðslu sunnan til í fláanum. Nefndin taldi að með þessu yrði um mjög litla breytingu að ræða á umhverfinu en þetta gerði kleift að bakka vörubíl inn á klettinn og yrði slíkt til að auðvelda störf brennumanna til muna. Bréf þjóðhátíðarnefndar var langt og ítarlegt og fylgdu því myndir og uppdrættir. Nefndin bað um skjóta afgreiðslu á málinu þar sem skammt væri til þjóðhátíðar. Umhverfis- og heilbrigðisnefnd fundaði síðan um málið þegar tveir dagar voru til þjóðhátíðar og þar kemur fram að nefndin hafði farið á staðinn og skoðað aðstæður en erindinu var síðan hafnað. Það er því ljóst að enn um sinn mega brennumenn á þjóðhátíð bera efniviðinn í brennuna nokkurra metra leið yfir grjóthaftið.
Fyrsta Þjóðhátíð ÍBV íþróttafélags fór vel fram
Gestafjöldi á þessari fyrstu Þjóðhátíð ÍBV íþróttafélags var í kringum 6 þúsund. Að sögn lögreglu fór hátíðin vel fram og gott skipulag á gæslumálum. Formaður Þjóðhátíðarnefndar, Birgir Guðjónsson var líka ánægður og sagði gesti Þjóðhátíðar hafa verið til fyrirmyndar. Á að giska 300-400 manns voru við setningu Þjóðhátíðarinnar, flestir prúðbúnir. Þór Vilhjálmsson formaður ÍBV íþróttafélags setti hátíðina, Kirkjukór Landakirkju söng nokkur lög og prestarnir sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Bjarni Karlsson fluttu stutta hugvekju í leikrænu formi. Þar gerðu þau innihald þjóðhátíðarinnar að umtalsefni. Hátíðarræðuna flutti Stefán Runólfsson. Þoka var fram eftir föstudeginum en létti til síðdegis. Á laugardeginum var blautt annars ágætt veður. Á sunnudeginum vara þoka og regn. Miðaverð á þjóðhátíðina var kr. 7.000,- en 6.500,- krónur í forsölu. Hagnaður af þjóðhátíðinni var um 5.5 milljónir króna. Þjóðhátíðarlagið 1997 heitir, Ég veit hvað þú meinar mær. Lagið er eftir Sigurjón Ingólfsson og textinn eftir Guðjón Weihe og var flutt af Skítamóral.
KR steinlá
Leikur ÍBV og KR á Hásteinsvelli í undanúrslitum bikarkeppninnar, mun seint líða knattspyrnuunnendum í Vestmannaeyjum úr minni. Veðrið var eins og það getur best orðið og hátt í 1300 manns mættu á völlinn þar af mikill fjöldi sem fylgdi KR liðinu. Öll umgjörð leiksins var til fyrirmyndar og þetta skilaði sér í einum besta leik liðsins í sumar. Allir sem einn lögðu þeir sig fram og og áttu KRingar ekkert svar við leik þeirra og urðu að sætta sig við 3 - 0 tap. Þar með voru Eyjamenn komnir í bikarúrslitin. Í Fréttum var sagt að Zoran Miljkovic hafi fallið inn í liðið eins og flís við rass. Hann væri mjög öflugur varnarmaður með mikla reynslu og lesi leikinn einstaklega vel. Og að Hlynur fyrirliði hefði farið á kostum og Ívar og Guðni Rúnar haldið niðri vængmönnum KR, Hilmari og Einari Þór. Miðjan var góð. Sigurvin líklega besti knattspyrnumaður landsins í dag, Sverrir sannað að hann á heima á landsliðinu og það hefði verið virkilega gaman að sjá Kristin Hafliðason vera að ná sér á strik. Tryggvi og Steingrímur voru skeinuhættir og Leifur Geir komið sterkur inn.
Stemmning og stuð
Félagar í Leikfélagi Vestmannaeyja stóðu fyrir skemmtilegum uppákomum vegna undanúrslitaleiksins í bikarnum gegn KR. Fyrir leik fóru þeir um bæinn á litlum pallbíl, íklæddir ÍBV-búningum, veifandi ÍBV-fánum og málaðir í framan. Þeir voru einnig mættir uppi á flugvelli þegar flugvél KR-inga lenti. Stóðu þeir heiðursvörð við landganginn með fánana þegar KR-ingar stigu út úr vélinni. Fyrir leik hlupu þeir hring á Hásteinsvelli og á leiknum sjálfum höfðu þeir sig mikið í frammi. Höfðu þeir sigur á fjölmennum hópi KR-inga meðal áhorfenda.
5. flokkur Íslandsmeistarar
Rétt eftir Þjóðhátíð varð A-lið ÍBV í 5. flokki kvenna Íslandsmeistari í knattspyrnu.. Tapaði liðið ekki leik í Íslandsmótinu. Úrslit í lokakeppninni urðu þessi: ÍBV - Breiðablik 3-0, ÍBV - KA 3-0; ÍBV UMFA 5-0; ÍBV-FH 7-1. Margrét Lára og Thelma skoruðu flest rnörkin. Í B-flokki 5. flokks urðu úrslit þessi: ÍBV - Breiðablik 1-3; ÍBV - Reynir 3-2; ÍBV - UMFA 2-0; ÍBV-Stjarnan 0-1. Þetta nægði stúlkunum til þriðja sætis á mótinu. Fram að þessari keppni hafði liðið ekki tapað leik en nú vantaði nokkra burðarása í liðið og því komu tveir tapleikir. „Við erum mjög stoltar af stelpunum og það má vænta mikils af þeim í framtíðinni, sögðu Erna Þorleifsdóttir og Stefanía Guðjónsdóttir, þjálfarar, í viðtali við Fréttir.
4. flokkur kvenna hreppti 3ja sætið
Úrslitakeppni í 4. flokki kvenna á Íslandsmótinu í knattspyrnu fór fram í Vestmannaeyjum um miðjan ágúst. Leikið var bæði í flokkum a og b liða og átti ÍBV lið í báðum flokkum. Keppti ÍBV við FH um þriðja sætið og sigraði 2-0. Í keppni b-liða keppti ÍBV einnig um þriðja sætið, við Val og sigraði sömuleiðis 2-0.
Íslandsmeistaratitill í augsýn? ÍBV sigraði Grindvíkinga í fyrsta leiknum eftir Þjóðhátíð, 2-1. Þótt aðeins eitt mark skildi liðin að, var sigurinn mjög verðskuldaður. Tryggvi Guðmundsson skoraði bæði mörk ÍBV. Að loknum 13 umferðum í Sjóvá Almennra deildinni er ÍBV í efsta sæti með 28 stig, þremur stigum meira en næsta lið.
2. flokkur kvenna á sigurbraut
2. fl. kvenna ÍBV gerði góða ferð upp á Skaga í lok ágúst. Þær báru sigurorð af ÍA, 2-3 eftir að hafa verið undir um tíma. Og þær bættu síðan um betur þegar KR-stúlkur komu í heimsókn, sigruðu Vesturbæjargellurnar 2-0. Og það voru þær Bryndís og Hjördís sem sáu um að skora mörkin. Sigur ÍBV hefði getað orðið mun stærri miðað við gang leiksins en ÍBV réð lögum og lofum lengst af í honum. Þar með er ljóst að 2. flokkur kvenna er kominn í úrslitakeppni Íslandsmótsins þó svo að einn leikur sé enn eftir í undankeppninni.
Flott frammistaða í Evrópukeppni bikarhafa
Karlalið ÍBV tók þátt í Evrópukeppni bikarhafa. Liðið sigraði Hibernians frá Möltu samanlagt 4-0, en þessir leikir voru forkeppninni. Í aðalkeppninni eru hinsvegar 32 lið. Þegar dregið var í þá keppni fékk ÍBV draumamótherja, Stuttgart frá Þýskalandi, liðið sem Ásgeir Sigurvinsson lék með til fjölda ára og bróðursonur hans, Sigurvin Ólafsson var á mála hjá í fjögur ár. Fyrri leikurinn var leikinn á Laugardalsvelli að viðstöddum 3000 áhorfendum, þar af miklum fjölda sem kom úr Eyjum. Leikurinn var góð skemmtun og Eyjastrákar gátu borið höfuðið hátt. Enginn gerði ráð fyrir að þeir myndu sigra eitt besta félagslið Evrópu. Mark ÍBV gerði Sigurvin Ólafsson. Ótrúlega mikil umgjörð var í kringum leikinn vegna sjónvarpsútsendinga til Þýskalands. Þetta mun hafa verið umfangsmesta sjónvarpsútsending frá knattspyrnuleik hér á landi. Seinni leikur liðanna var svo í Stuttgart og þar tapað ÍBV 1-2. Sigfús Gunnar Guðmundsson var einn þeirra sem fóru á síðari leik Stuttgart og ÍBV í Þýskalandi. Hann segir að um 40 stuðningsmenn ÍBV hafi farið á leikinn frá Íslandi. Einnig voru nokkrir Íslendingar, búsettir í Þýskalandi, á leiknum, auk 15-20 Þjóðverja sem hvöttu ÍBV óspart. Sigfús segir að leikurinn hafi verið mjög góður og skemmtilegur. „Stuttgart sótti reyndar meira," sagði Sigfús. „ÍBV spilaði skynsamlega og varðist vel“. Mark ÍBV skoraði Bjarnólfur Lárusson með gullfallegu langskoti. Þátttöku ÍBV í Evrópukeppninni var þar með lokið þetta árið.
Evrópukeppnin góð landkynning
„Um leið og fólk vissi að ég var frá Íslandi kom í ljós að allir þekktu Vestmannaeyjar. Það má þakka beinni útsendingu frá leik ÍBV og Stuttgart í Evrópukeppni bikarhafa," sagði Gunnar Gunnarsson í viðtali við Fréttir, en hann var eftirlitsdómari á leik Þýskalands og Spánar í undankeppni Evrópukeppni landsliða í handbolta sem fram fór í Hannover um síðustu helgi. „Þetta var alveg ótrúlegt hvað leikurinn hefur haft mikil áhrif. Auðvitað hefur fólk, sem ég hitti í sambandi við leikinn, áhuga á íþróttum en það hefur fyrst og fremst áhuga á handbolta. Það vissi samt að leikurinn hafði farið fram í Reykjavík en ekki Vestmannaeyjum. Ég er sannfærður um að útsendingin er ódýrasta og besta auglýsing sem Vestmannaeyjar hafa fengið í Þýskalandi. Ég gerði mér enga grein fyrir því hvað áhrifin voru mikil og leikurinn á örugglega eftir að örva ferðalög Þjóðverja til Vestmannaeyja," sagði Gunnar að lokum.
1-1 og leika þarf bikarúrslitaleikinn aftur
Bikarúrslitaleikurinn 1997 var milli ÍBV og Keflavíkur og að sjálfsögðu leikinn á Laugardalsvelli 31. ágúst. Eitt einkenni bikarúrslitaleikja er að leikmönnum er uppálagt að taka enga áhættu, hugsa fyrst og fremst um að halda hreinu og reyna að grípa gæsina í sókninni þegar færi gefst. Að spila varfærnislega og gleyma sér ekki í sókninni. Leikmenn Keflavíkur og Vestmannaeyja meðtóku fyrrnefnd skilaboð og fóru eftir þeim. Liðin léku sömu leikaðferð, með fjóra menn í öftustu vörn, fimm á miðjunni og einn frammi. Vinsælt kerfi, sem gefst gjarnan vel með varnarleik í huga, en erfitt útfærslu í sókninni. Mikið mæðir á kantmönnunum sem verða í raun að vera á nær stöðugum spretti allan tímann - fyrstir í vörn og fyrstir í sókn ef dæmið á að ganga upp í sókninni. Hugsi kantmennirnir frekar um varnarhlutverkið er miðherjinn ekki í öfundsverðu hlutverki einn frammi með litla von um aðstoð.
Eins og títt er um stóra leiki fá þeir mikla umfjöllun fjölmiðla og þessi leikur var þar engin undantekning. Morgunblaðið gerði leiknum góð skil og hér er birt umfjöllun blaðsins um hann: "Stuðningsmenn liðanna komu vel stemmdir til leiks og höfðu Eyjamenn vinninginn áður en flautað var til leiks en Haukur Ingi Guðnason hafði góð áhrif á Keflvíkinga þegar á 2. mínútu. Þá fékk hann sendingu inn fyrir vörn ÍBV, var í dauðafæri en skaut framhjá. Skömmu síðar skaut Guðni Rúnar Helgason yfir mark Keflvíkinga af stuttu færi og á 10. mínútu fékk Haukur Ingi annað tækifæri eftir varnarmistök en Zoran Miljkovic náði að bægja hættunni frá. Byrjunin lofaði góðu en ekki varð framhald á. Eyjamenn virtust vera mjög taugaóstyrkir, sendingar þeirra fóru hvað eftir annað til mótherja sem reyndu gagnsóknir í kjölfarið en Haukur Ingi mátti sín lítils einn frammi gegn margnum. Tölurnar í fyrri hálfleik tala sínu máli. Keflvíkingar áttu tvö skot að marki, Eyjamenn þrjú. Keflvíkingar fengu eina hornspyrnu, Eyjamenn tvær. Keflvíkingar voru einu sinni dæmdir rangstæðir, Eyjamenn aldrei. Eyjamenn sókndjarfari Aukinn þungi færðist í sóknarleik Eyjamanna eftir hlé. Bjarki Guðmundsson bjargaði með úthlaupi eftir að Tryggvi Guðmundsson var kominn á auðan sjó í kjölfar sendingar frá Hlyni Stefánssyni á 48. mínútu og skömmu síðar varði hann þrumuskot frá Sigurvini Ólafssyni. Ekki liðu nema tvær mínútur þar til Sigurvin átti skot í slá fékk boltann frá Bjarka, þakkaði fyrir sig og skaut af miðjum vallarhelmingi Keflvíkinga, sem sluppu með skrekkinn. Um miðjan hálfleikinn átti Gestur Gylfason hörkuskot á mark ÍBV eftir góða sókn en Gunnar Sigurðsson varði af öryggi. Tryggvi fékk gott marktækifæri rétt utan markteigs á 72. mínútu en skaut yfir markið rétt eins og í upphituninni. Meiri kraftur Eyjamanna sló Keflvíkinga ekki út af laginu og skömmu áður en venjulegum leiktíma lauk átti Haukur Ingi góðan skalla að marki eftir hornspyrnu Eysteins Haukssonar en boltinn fór utan stangar“. Mikil spenna og gífurleg barátta „Það er erfitt að halda einbeitingu í 90 mínútur og viðbúið að eitthvað láti undan þegar í framlengingu er komið en spurningin er síðan hvort menn nái að nýta sér mistök mótherjanna. Tryggvi gerði það vel á 99. mínútu en markið sem fylgdi í kjölfarið var umdeilt. Sá sem þetta skrifar er á því að brotið hafi verið óviljandi á Bjarka Guðmundssyni áður en Leifur Geir Hafsteinsson skoraði og því hafi átt að dæma aukaspyrnu en ekki mark. Dómarinn virtist ekki viss en dæmdi markið gilt eftir að hafa ráðfært sig við línuvörðinn. Skömmu síðar bjargaði Kristinn Hafliðason við hitt markið eftir skalla frá Hauki Inga en eftir það hugsuðu Eyjamenn fyrst og fremst um að halda fengnum hlut. Keflvíkingar settu að sjálfsögðu aukinn kraft í sóknina á kostnað varnarinnar en mínúturnar liðu og söngur stuðningsmanna Eyjamanna bar þess merki að bikarinn væri á leið til Eyja. Leikmennirnir virtust sama sinnis, þeir spörkuðu boltanum sem lengst fram til að vinna tíma og aðeins tveir voru í teignum þegar þeir fengu hornspyrnu á 119. mínútu. En Keflvíkingar gáfust ekki upp. Þeir sóttu hratt upp vinstri kantinn á síðustu mínútu og Gestur Gylfason jafnaði eftir röð af varnarmistökum. Eyjamenn byrjuðu á miðju og dómarinn flautaði til leiksloka. Sjö mínútum fyrr braut Gestur á Sigurvini og virtist eiga skilið að fá gult spjald sem hefði þýtt rautt þar sem hann var spjaldaður fyrr í leiknum, en dómarinn, sem var vel staðsettur, dæmdi aukaspyrnu og sleppti spjaldinu. Í leikslok fögnuðu Keflvíkingar eins og bikarinn væri í höfn en spennufallið var mikið hjá Eyjamönnum. En svona er knattspyrnan. Keflvíkingar héldu haus allt til loka en Eyjamenn gleymdu að viðureign er ekki lokið fyrr en hún hefur verið flautuð af. Sem fyrr segir var þetta dæmigerður bikarúrslitaleikur. Mikil barátta og gífurleg spenna komu í veg fyrir að menn næðu að spila eins og þeir best geta."
Jafntefli kallaði á þessum tíma á nýjan leik. Eyjamenn og Keflvíkingar þurftu því að leika annan bikarúrslitaleik. Áhorfendur á leiknum voru hvorki fleiri né færri en 6260
Bikardraumurinn að engu
Það var seigla í Keflvíkingum, það verður að viðurkennast eftir að þeir lögðu Eyjamenn í bikarúrslitaleik nr. 2 á Laugardalsvelli. „ Örlögin voru þau að Keflvíkingar áttu að vinna bikarinn vegna þess að (1) þeir jöfnuðu á síðustu mínútu framlengingar í fyrri leiknum, (2) sluppu með skrekkinn hvað eftir annað þegar Eyjamenn brenndu úr dauðafærum, (3) Eyjamenn brenndu af vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks, (4) fyrirliði ÍBV var rekinn útaf undir lok venjulegs leiktíma þar sem dómarinn gerði afdrifarík mistök og (5) vítaspyrnukeppni var eina von Keflvíkinga til að vinna bikarinn og auðvitað fór það svo“. Þannig skrifuðu Fréttir um þennan síðari bikarúrslitaleik. „Þreyta sat í okkar mönnum eftir Stuttgartleikinn. Á því lék enginn vafi. Fyrri hálfleikur var bragðdaufur. Gunnar sýndi snilli sína í markinu og Ingi fékk góð færi áður en hann var felldur en Hlyni tókst að klúðra vítaspyrnunni. Tryggvi treysti sér ekki í verkefnið og fyrirliðinn tók af skarið. Í seinni hálfleik hresstist leikurinn og bæði lið fengu góð færi. Vendipunktur leiksins var þegar Skagamaðurinn, dómarinn Sæmundur „aðalveiki" Víglundsson, rak Hlyn út af. Þvílíkt hneyksli. Hvernig stóð á því að þessi dómari, sem fékk falleinkunn eftir fyrri bikarúrslitaleikinn, var látinn dæma aftur? Eru Skagamenn svona grænir af öfund að þeir máttu ekki una Eyjamönnum þess að vinna tvöfalt'? Keflvíkingum tókst að hanga á jafntefli út framlengingu, eins og maður hafði alltaf á tilfínningunni, að þeir myndu spila upp á vítaspyrnuheppni. Og það tókst þeim og Keflvíkingar dönsuðu stríðsdans í lokin. Þeir höfðu það Suðunesjamenn - á seiglunni. Fjölmargir stuðningsmenn ÍBV þurftu annað árið í röð að horfa upp á bikarinn renna úr höndum ÍBV. En þá er bara að spýta í lófana og taka fjárans dolluna næsta sumar.“
Íslandsmeistaratitill í höfn og messu flýtt
Eyjamenn eru einfaldlega langbestir í ár! Þeir sýndu það og sönnuðu á eftirminnilegan hátt með því að rótbursta Keflavík, 5-1, í 17. og næstsíðustu umferð SjóvárAlmennra deildarinnar, og tryggðu sér langþráðan Íslandsmeistaratitil. Átján ára bið á enda. Leikurinn var settur á kl. 14 eða nákvæmlega á messutíma Landakirkju. En í Landakirkju var fólk við stjórnvöl sem hafði góðan skilning á gildi íþrótta og ekki síður mikilvægi þessa leiks. Því var ákveðið að færa messutímann fram til kl. 13. Séra Bjarni Karlsson sagðist ábyrgjast að messunni yrði lokið kl. 13.45 þannig að enginn ætti að þurfa að missa af leiknum. Bjarni vildi hvetja sem flesta til að mæta í kirkju, „til að efla andann fyrir leikinn,". Fréttir gáfu út aukablað í tilefni Íslandsmeistaratitilsins og er hluti þess efnis birt hér:
Sannkölluð þjóðhátíðarstemmning var í Eyjum að leik loknum og mun hún halda áfram alla þessa viku. Skotið var út flugeldum, kveikt á blysum og Eyjalag Leifs Geirs, „Komdu fagnandi", sungið í gríð og erg. Næsta laugardag er svo ætlunin að halda mikla sigurhátíð í Eyjum. Eftir frekar rólega byrjun skoraði Sigurvin glæsilegt mark úr aukaspyrnu af 25 metra færi á 19. mín., í anda frænda síns, Ásgeirs. En Jóhann Guðmundsson jafnaði strax fyrir Keflavík tveimur mínútum síðar. Aftar róaðist leikurinn en Steingrímur braut ísinn á 41. mín. með laglegu marki eftir sendingu Tryggva. Við þetta komst Tryggvi í gang og hann skoraði þriðja markið í lok fyrri hálfleiks með því að vippa boltanum snyrtilega yfir markvörð Keflvíkinga. Strax í upphafi seinni hálfleiks skoraði Tryggvi beint úr aukaspyrnu. Steingrímur átti nokkur góð færi, skallaði m.a. í slána, áður en Tryggvi fullkomnaði þrennu sína (og 100.000 kr.) með því að pota inn þriðja markinu eftir fyrirgjöf Sverris. Þegar 10 mín. voru eftir af leiknum var Íslandsmeistarabikarinn borinn fram en eins og kom fram stóð til að afhenda hann eftir síðustu umferðina. En auðvitað yar ekki stætt á öðru en að afhenda Íslandsmeistarabikarinn fyrir framan stuðningsmenn ÍBV. Alls mættu 1500 manns á leikinn en þegar yfir lauk, hafa líklega verið rúmlega 2000 manns á vellinum því fjöldi fólks, sem horfði á leikinn í sjónvarpi, dreif sig á völlinn og vildi verða vitni að því þegar Eyjamenn fögnuðu titlinum. Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV, tók við titlinum úr hendi Eggerts Magnússonar, formanns KSI, en þarna er um að ræða glænýjan og stórglæsilegan bikar. ÍBV hlaut 40 stig í 18 leikjum, 12 sigrar, 4 jafntefli og 2 töp. ÍA varð í 2. sæti með 35 stig.
Bæjarstjórn bauð til veislu Bæjarstjórn Vestmannaeyja bauð nýbökuðum Íslandsmeisturum ÍBV, eiginkonum þeirra og unnustum og stjórn Knattspyrnudeildar til samsætis á Hertoganum á sunnudagskvöldið. Ólafur Lárusson, forseti bæjarstjórnar byrjaði á því að óska. strákunum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og það sama gerðu Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri. - Þór Vilhjálmsson, formaður ÍBV íþróttafélags, flutti liðinu, þjálfara og stjórn knattspyrnudeildar heillaóskir og kveðjur. Hjalti Kristjánsson, stjórnarmaður Íþróttabandalagsins flutti kveðjur stjórnar.
ÍBV hafði borist fjöldi heillaóskaskeyta sem Guðjón las upp. Meðal annars var skeyti frá fráfarandi Íslandsmeisturum, Skagamönnum, sem óskuðu Vestmannaeyingum til hamingju með titilinn og sögðu þá vel að honum komna. Aftur á móti lofuðu þeir Eyjamönnum því að þeir mættu eiga von á harðri mótspyrnu af þeirra hálfu næsta sumar.
Viltu giftast mér
Í hófi bæjarstjórnar upplýsti Bjarni Jóhannsson að hann hefði verið í ágætri sambúð með Ingigerði Sæmundsdóttur í níu ár. Afrakstur sambúðarinnar eru tvíburarnir Bryndís og Brynja en ennþá hafa Bjarni og Ingigerður ekki gefið sér tíma til að láta pússa sig saman. „Þetta hefur ft verið toil umræðu í fjölskyldunni en einhvern veginn höfum við ekki látið verða af því," sagði Bjarni í ræðu sinni. „Það var svo snemma í sumar að Inga fór að tala um þetta og nefndi dagsetningu, nánar tiltekið 6. júní en þá lauk einni túrneringunni sem Íslandsmótinu var skipt upp í. Ég var ekki alveg á því og sagði: - Við skulum gifta okkur þegar Íslandsmeistaratitillinn er í höfn." Bjarni hafði því enga afsökun lengur og dreif í að biðja Ingu sinnar á staðnum. Hún sagði strax já þannig að Bjarni hefur í nógu að snúast þegar tímabilinu lýkur.
Matarstellið reyndist vera Íslandsbikarinn
„Það er stórkostlegt að verða vitni að þessu hér í Vestmannaeyjum, þessari frábæru og stórskemmtilegu stemmningu og myndarlegu umgjörð. Það er virkilega gaman að fá að afhenda Íslandsbikarinn hér á heimavelli. Hér er mikill uppgangur í fótboltanum og atvinnulífinu og ég held að þetta sé bara byrjunin á einhverju meira. Þetta er sérstaklega gaman fyrir stjórnina, svo ég tali nú ekki um Jóhannes Ólafsson formann sem hefur starfað í þessu í tíu ár og lagt ómælda vinnu á sig. Eyjamenn eru að uppskera eins og til var sáð. Ég óska öllum Vestmannaeyingum innilega til hamingju með titilinn. Hann á ÍBV virkilega skilið," sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ. Fyrir leik ÍBV og Keflavíkur hafði það verið gefið út að Íslandsmeistaratitilinn yrði ekki afhentur fyrr en eftir 18. og síðustu umferðina. Eggert segir að ætlunin hafi alltaf verið að afhenda bikarinn í Eyjum ef mótið kláraðist en það hafi ekki mátt segja opinberlega þar sem það hefði truflandi áhrif á undirbúning ÍBV fyrir leikinn. Voru margir Eyjamenn ósáttir við þetta. „Ég var með óvenju mikinn farangur með mér til Eyja. Einn kassinn var merktur BROTHÆTT í bak og fyrir. Þegar ég var spurður að því hvað væri í kassanum sagði ég að þar væri matarstell fyrir nýgift hjón“. Sagði Eggert.
Tap í síðasta leik
ÍBV tapaði fyrir Leiftri, 1-3, á Ólafsfirði í 18. og síðustu umferð Sjóvá-Almennra deildarinnar. Eyjamenn hvíldu Zoran og Sigurvin því ef þeir hefðu fengið gult spjald hefðu þeir misst af bikarúrslitaleiknum.
816 áhorfendur á heimaleiki ÍBV
Alls komu 7.343 áhorfendur á heimaleiki Íslandsmeistara ÍBV í efstu deild í sumar. Alls dró ÍBV liðið að sér 13.502 áhorfendur í sumar ef útileikirnir eru taldir með en þá sóttu 6159. ÍBV er í þriðja sæti í áhorfendafjölda á eftir KR og ÍA. Að meðaltali sóttu 816 heimaleiki ÍBV og 684 útileikina.
Kvennaliðið í 5. sæti
Ekki tókst ÍBV stelpum ætlunarverk sitt, að krækja sér í 4. sætið í Stofndeildinni. Liðið tapaði fyrir Val 3-4 í Eyjum og hrepptu 5. sætið. Eyjastelpur gátu samt sem áður verið ágætlega ánægðar með sumarið. Árangur sumarsins er sá besti í sögu ÍBV en stelpurnar hafa nú haldið sér í efstu deild þrjú ár í röð. ÍBV hlaut 16 stig í ár á móti 10 í fyrra, markatalan hagstæð um eitt mark en óhagstæð í fyrra um 23 mörk! Framfarirnar eru því ótrúlega miklar á milli ára, sérstaklega ef haft er í huga að það fækkaði í leikmannahópnum á milli ára.
Bjarnólfur í atvinnumennsku
Bjarnólfur Lárusson varð næsti atvinnumaður Vestmannaeyinga. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við skoska úrvalsdeildarfélagið Hibernians og gerði það á grundvelli svokallaðs Bosmansúrskurðar. Samningur Bjarnólfs við ÍBV var útrunninn 15. okt. sl. og þess vegna gat hann farið hvert sem hann vildi án þess að ÍBV gæti krafist greiðslu fyrir hann.
Eyjamenn áttu sviðið
Eyjamenn undirstrikuðu yfirburði sína í íslenskri knattspyrnu sumarið 1997, á lokahófi knattspyrnumanna á Hótel Íslandi. Íslandsmeistarar ÍBV sópuðu til sín öllum verðlaunum hjá körlunum og hefur annað eins ekki átt sér stað síðan farið var að veita verðlaunin snemma á níunda áratugnum. Þar að auki var þetta í fyrsta skipti sem Eyjamenn vinna til einstaklingsverðlauna á lokahófi knattspyrnumanna. Tryggvi Guðmundsson var valinn besti leikmaður ársins af félögum sínum í deildinni. Félagi Tryggva, Hermann Hreiðarsson, bar Tryggva á herðum sér upp á svið þegar úrslitin lágu fyrir en Tryggvi virtist ekki trúa eigin eyrum. Það kom engum á óvart að fyrirliði U-21 árs landsliðsins, Sigurvin Ólafsson, skyldi verða valinn efnilegasti leikmaður ársins. Sigurvin kom frá Stuttgart í vor og varð smám saman einn mikilvægasti maður ÍBV-liðsins og fór á kostum seinni part sumars. Ívar Bjarklind, sem átti hreint frábært sumar, var valinn prúðasti leikmaður Sjóvá-Almennra deildarinnar. ÍBV var svo valið prúðasta lið sumarsins og kom það ekki heldur á óvart. Þriðja árið í röð fékk ÍBV fæst spjöldin. Rúsínan í pylsuendanum var valið á liði ársins. ÍBV átti þar hvorki fleiri né færri en sex leikmenn, eða meira en helming liðsins. Þetta segir allt sem segja þarf um þetta stórkostlega sumar sem lengi verður í minnum haft. Ívar, Hermann, Hlynur, Sigurvin, Tryggvi og Sverrir voru valdir í lið ársins. (Frétt úr Fréttum)
Knattspyrnusumarið með augum Þorsteins Gunnarssonar
Íþróttafréttaritari Frétta gerir upp knattspyrnusumarið í blaðinu. Þar skrifar hann: Knattspyrnusumarið 1997 verður lengi í minnum haft, enda náði ÍBV besta árangri sínum í sögu félagsins. ÍBV byrjaði á því að vinna Val í úrslitaleik deildarbikarkeppninnar. ÍBV var langbesta liðið í Sjóvá-Almennradeildinni í sumar og vann deildina með glæsibrag. með samtals 40 stig, eða jafnmörg og Skaginn vann deildina með í fyrra. Árangur ÍBV í Evrópukeppni bikarhafa var glæsilegur. Liðið sýndi allar sínar bestu hliðar gegn einu öflugasta knattspyrnuliði Evrópu, Stuttgart frá Þýskalandi. Í bikarkeppninni þurfti ÍBV að lúta í gras í tveimur úrslitaleikjum gegn Keflavík, eftir tvær framlengingar og vítaspyrnukeppni. Naumara gat það ekki verið. Auðvitað sár vonbrigði en Eyjamenn geta samt litið stoltir yfir árangur sumarsins. ÍBV hefur heldur betur vakið athygli á Vestmannaeyjum á jákvæðan hátt. Liðið hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega og prúðmannlega framkomu, enda fékk liðið fæst gulu spjöldin þriðja árið í röð, takk fyrir. Liðið skoraði flest mörkin og fékk fæst mörkin á sig. Nú hlýtur knattspyrnulið ÍBV að fá njóta sannmælis hjá bæjaryfirvöldum og að almennileg aðstaða verði byggð fyrir liðið. Í ljósi aðstæðna er kraftaverk hversu vel hefur gengið í sumar en þar hjálpast að kröftugt knattspyrnuráð, úrvals þjálfari og einstaklega samstillur og góður leikmannahópur.
Dómaraskandall?
Fyrstu leikur karlaliðs ÍBV í handboltanum þetta keppnistímbilið, var við hafnfirska Hauka og var leikið í Eyjum. Eftir mjög dramatískar lokamínútur sigruðu Haukar 29-28. En Eyjamenn voru afar ósáttir við dómgæsluna á lokamínútunum. Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari sagði í viðtali við Fréttir „Dómgæslan var léleg. Mér fannst halla verulega á okkur, sérstaklega hvað varðar jöfnunarmarkið í lokin. Dómararnir gerðu mistök með því að flauta of snemma og þar með hafa af okkur annað stigið." ÍBV tapaði öðrum heimaleik sínum röð með einu marki fyrir Aftureldingu úr Mosfellsbæ. 32-33, eftir að staðan í hálfleik var 16-15 fyrir ÍBV. Var það mál manna að annan leikinn í röð hafi dómararnir verið sér til skammar og höfðu þeir annað stigið af ÍBV, þó það hafi ekki verið með jafn afgerandi hætti og þegar ÍBV tapaði fyrir Haukum í 1. umferðinni.
Sigur á Víkingum
ÍBV lagði Víking á útivelli, 28-26, í 1. deild karla í Víkinni í 3. umferð Íslandsmótsins í handbolta. Leikurinn þótti ekki mikið fyrir augað en Eyjamenn sýndu að það er kraftur og seigla í liðinu. Að vinna lakari lið deildarinnar á útivelli gerist ekki af sjálfu sér og okkar menn, með sinn ekki allt of breiða hóp, innbyrtu sigurinn um leið og þeir fóru að taka á í vörninni.
Tap fyrir Haukum
Handboltalið kvenna ÍBV tapaði fyrir bikarmeisturum Hauka í Hafnarfirði í fyrsta leik sínum, 30-23. Haukum er spáð efsta sæti í deildinni en ÍBV því fimmta.
Fólksfækkun hefur áhrif hjá ÍBV
Nokkur fólkfækkun hefur orðið í Eyjum að undanförnu og hefur víða áhrif. Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari yngri flokka hjá ÍBV, benti Fréttum á að í aldurshópnum 8-12 ára hafi ÍBV misst eða sé að missa hvorki fleiri né færri en níu stráka sem allir séu mikið efni og lykilleikmenn í sínum flokki. Þetta er áhyggjuefni og sýnir að allt hangir þetta á sömu spýtunni í okkar bæjarfélagi, sagði Jón Ólafur.
Skeljungur styrkir handboltann
Í október var undirritaður samstarfssamningur milli Skeljungs og handknattleiksdeildar ÍBV sem felur í sér að Skeljungur verður aðalstyrktaraðili handboltans í Eyjum. Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs og Þór Í. Vilhjálmsson, formaður ÍBV undirrituðu samninginn.
Simmi fer hamförum
Karlalið ÍBV í handboltanum sigraði Íslandsmeistara KA 32 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ, 36-28. Þar fór Sigmar Þröstur Óskarsson hamförum og varði alls 28 skot, og hefur greinlega engu gleymt, 36 ára maðurinn.
Þjálfarar ráðnir
Bjarni Jóhannsson sem stýrði knattspyrnuliði ÍBV beint á toppinn í Íslandsmótinu, verður áfram með liðið næsta sumar. Kristinn R. Jónsson, fyrrum leikmaður Fram og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hans til næstu tveggja ára frá og með næstu áramótum. Auk þess mun hann sjá um þjálfun 2. og 4. flokks karla hjá félaginu. Kristinn hefur umsjón með vetraræfingum Íslandsmeistaranna í Eyjum frá áramótum.
Dyggir stuðningsmenn
ÍBV hefur átt því láni að fagna að eiga öflugustu stuðningsmennina á Reykjavíkursvæðinu og hefur Stuðningsmannafélagið náð þeim glæsta árangri að gera alla velli, nema Akranesvöll, að heimavöllum ÍBV með góðri mætingu. Auk þess hafa félagarnir staðið að fjársöfnunum og fékk knattspyrnudeildin afraksturinn af henni á lokahófinu. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, eða Beggó eins og flestir þekkja hana, afhenti hvorki meira né minna en 1,7 milljónir króna.
Lokhóf knattspyrnunnar
Lokahóf knattspyrnumanna ÍBV, meistaraflokka karla og kvenna var haldið í byrjun nóvember. Hæst bar að sjálfsögðu Íslandsmeistaratitil meistaraflokks karla sem auk þess fagnaði deildarbikarameistaratitlinum í vor og eins urðu þeir meistarar meistaranna í fyrrahaust. Þessi árangur strákanna er sá glæsilegasti sem ÍBV hefur náð frá upphafi og þó það kæmi ekki nógu vel fram á hófinu, þá höfðu stelpurnar líka ástæðu til að fagna því þær enduðu í fimmta sæti sem er besti árangur kvennaliðs ÍBV. Margt var til skemmtunar gert og veittar voru viðurkenningar fyrir árangur og frammistöðu einstakra leikmanna. Að þessu sinni kom það í hlut gullkorthafa í Stuðningsmannaklúbbi ÍBV að velja besta og efnilegasta leikmanninn í karlaflokki. Þeir völdu Hlyn Stefánsson sem besta leikmanninn 1997 og Sigurvin Ólafsson þann efnilegasta. Eins og allir vita var Tryggvi Guðmundsson markahæsti maður mótsins og fékk hann hann viðurkenningu frá ÍBV fyrir þann glæsta árangur. Hjá stelpunum var Erna Þorleifsdóttir vali besti leikmaðurinn, Elena Einisdóttir fékk verðlaun fyrir ástundun og framfarir og Íris Sæmundsdóttir var markahæst. Fréttabikarana fengu að þessu sinni Hjördís Halldórsdóttir og Jón Helgi Gíslason.
Byggt við Týsheimilið
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, tilkynnti á lokahófinu að bæjarstjórn hefði ákveðið að veita 15 milljónum króna á fjárhagsáætlun 1998 í búningsaðstöðu við Hásteinsvöll. Jafnframt fellur niður 10 milljóna króna framlag á þessu ári. Er því í raun verið að hækka fjárveitingu þessa árs um 5 milljónir og á verkinu að vera lokið fyrir 15. maí á næsta ári. „Í þessari viðbyggingu við Týsheimilið verða búnings- og sturtuklefar auk snyrtiaðstöðu sem munu nýtast knattspyrnuliðum á Hásteinsvelli og íþróttasalnum. Einnig verður þar salernisaðstaða fyrir vallargesti og samkomugesti í Týsheimilinu," sagði Guðjón. Hafist verður handa við að ljúka teikningum og gerð kostnaðaráætlunar sem allra fyrst og á samstarfsnefnd ÍBV og bæjarins að hafa lokið störfum fyrir 30. nóvember nk. „Í framhaldi af því ræðst hvort ÍBV- íþróttafélag tekur að sér að ljúka verkinu fyrir ofangreinda upphæð eða Vestmannaeyjabær og tæknideild bæjarins bjóði verkið út með verklokum eigi síðar en 15. maí 1998," sagði Guðjón að lokum í viðtali við Fréttir.
Úttekt Viðskiptablaðsins á rekstri íþróttafélaga:
ÍBV best rekna félagið á landinu Knattspyrnu- og handknattleiksdeildir ÍBV eru þær best reknu innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. – Þetta er niðurstaða sem Viðskiptablaðið kemst að í úttekt sinni á áfangaskýrslu um fjármál íþróttahreyfingarinnar. Skýrslan er talin svört en þar kemur fram að íþróttahreyfingin í heild sé rekin með verulegu tapi ár eftir ár. Sérstaklega er peningaleg staða félaga í efstu deildum knattspyrnu, handknattleiks og körfuknattleik skelfileg, eða neikvæð upp á 340 milljónir króna og versnaði um rúmlega 45 milljónir á milli áranna 1995 og 1996. Að sögn Viðskiptablaðsins er ekki tekið tillit til mannvirkja félaganna eða deildanna né áhalda og tækja sem notuð eru í daglegum rekstri. Það er talið skynsamlegt þar sem slíkt gæfi tæpast neina raunhæfa vísbendingu um hina raunverulegu stöðu. Í skýrslunni er ekki sérstaklega fjallað um orsakir vandans. Hins vegar er bent á að víða stefni í óefni og niðurstöður ársins 1996 gefa síður en svo til kynna að staðan sé að batna. Áríðandi sé að finna leiðir tíl úrbóta. Hjá knattspyrnuliðunum nam aukning heildarskulda hjá knattspyrnuliðunum 29,2 milljónum króna 1996 og er það mun meiri skuldasöfnun en árið á undan þótt uppgjör vanti fyrir tvö félög. Hjá handknattleiksliðum hafði orðið sú ánægjulega þróun 1995 að heildarafkoman varð jákvæð um 8,9 milljónir. Samkvæmt úttektinni er ÍBV nánast eina félagið sem skilar einhverjum hagnaði að ráði á síðasta ári. Í útreikningum er miðað við peningalega stöðu knattspyrnu-, handknattleiks og körfuboltadeilda innan hvers félags. Handknattleiksdeild ÍBV skilar 560 þús. kr. hagnaði og knattspyrnan 1.3 millj. kr., samtals tæpar 2 millj. kr. Athygli vekur að stórveldin á höfuðborgarsvæðinu koma ákaflega illa út. Þetta verður að teljast mikil viðurkenning fyrir knattspyrnu- og handknattleiksdeildir ÍBV og nokkuð ljóst að staðan verður enn betri á þessu ári, sérstaklega hjá knattspyrnunni.
Karlaliðið í þunglyndispróf hjá Hjalta?
Hvar er leikgleðin, brosið, húmorinn, keppnisandinn og stoltið hjá ÍBV strákunum? Spyr íþróttafréttaritari Frétta. „Hvar er lipurleikinn sem einkenndi liðið í upphafi móts og vakti svo mikla athygli? Eru menn ekki í handbolta til þess að hafa gaman af því sem þeir eru að gera? Hvaða þunglyndi er að angra mannskapinn? Er kannski kominn tími til að senda ÍBV liðið í þunglyndispróf til Hjalta læknis? Þessar spurningar, og reyndar miklu fleiri, vakna eftir hörmulega frammistöðu ÍBV þegar liðið steinlá fyrir Fram, hér heima í Eyjum, 27-32. Þetta er annað stórtap ÍBV í röð í deildinni.“
Kraftaverkamenn í skilanefndinni
Fyrsti almenni fundurinn í ÍBV- íþróttafélagi var haldinn um miðjan nóvember. Þar kom m.a. fram að skilanefndin svokallaða, sem sett var á laggirnar til að hreinsa upp skuldir sem eftir voru vegna sameiningar Týs og Þórs svo nýja félagið gæti byrjað með hreint borð, væri komin vel áleiðis með ætlunarverk sitt. Óhætt er að segja að skilanefndin hafi unnið kraftaverk síðan hún tók til starfa fyrir ári. Skuldir voru alls yfir 90 milljónir. Skuldir sem stóðu út af borðinu eftir sameininguna og sölu eigna til bæjarins á 52 milljónir króna, munu hafa verið rúmar 40 milljónir króna. Skilanefndin samdi við lánastofnanir og tók svo persónulega ábyrgð á þeim skuldum sem eftir voru. Sér skilanefndin fyrir endann á vinnu sinni miðað við gefin loforð hjá ýmsum aðilum. Styrkir frá fyrirtækjunum til skilanefndar vegna fyrrnefndra skulda, koma ekki niður á styrkveitingum til ÍBV-íþróttafélags. Í skilanefndinni eru þeir Viktor Helgason, Bergvin Oddsson, Guðjón Rögnvaldsson, Jóhann Pétursson og Guðjón Hjörleifsson.
Sigur eftir slæmt gengi
Eftir brösugt gengi sýndu ÍBV stelpurnar sínar betri hliðar eftir afleitt gengi að undanförnu. ÍBV tók á móti Víkingi um miðjan nóvember. ÍBV vann 28-25 í hörkuleik. Víkingar byrjuðu leikinn af krafti og höfðu þriggja marka forystu í hálfleik, 11-14. En smátt og smátt saxaði ÍBV á forskotið og breytti svo stöðunni úr 19-21 í 22-19 sér í yil. ÍBV breytti varnarleiknum í seinni hálfleik, úr 6-0 í 5-1 með Andreu fyrir framan vörnina og henni tókst að trufla verulega sókn Víkings og stela boltanum nokkrum sinnum. Andrea átti góðan leik sem og Sandra Anulyte. Athygli vekur að aðeins fjórar stúlkur skoruðu öll 28 mörk ÍBV. Mörk ÍBV: Andrea 11/4, Sandra 9, Ingibjörg 4, Elísa 4. Varin skot: Egle Plétené 9.
Gunnar Heiðar í landslið
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, hinn ungi og efnilegi knattspyrnumaður, hefur verið valinn í 18 manna hóp drengjalandsliðs Íslands, skipað leikmönnum 16 ára og yngri. Langt er síðan ÍBV hefur átt fulltrúa í drengjalandsliði.
Sigurmark á lokamínútunni
ÍBV sigraði HK á útivelli 20-21 eftir að staðan í hálfleik var 8-9, en Zoltan Belanýi skoraði sigurmarkið úr vítakasti á síðustu sekúndunum. Hetja ÍBV var hins vegar hinn efnilegi Sigurður Bragason sem reyndist bjargvættur liðsins á lokamínútunum. Þessi tvö lið voru að berjast um að komast í 8 liða úrslitakeppnina og sigurinn því mikilvægur.
Aðalsteinn verður framkvæmdastjóri ÍBV
Aðalsteinn Sigurjónsson, fyrrum útibússtjóri Íslandsbanka í Vestmannaeyjum, var ráðinn framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags í október. Hann tekur við af Guðmundi Þ.B. Ólafssyni sem hefur gegnt stöðunni til bráðabirgða.
Málþing um Þjóðhátíð
Vestmannaeyingar fjölmenntu á málþing um þjóðhátíð sem haldið var sunnudaginn 19. október í safnaðarheimili Landakirkju. Málþingið var haldið að frumkvæði safnaðarprestsins Jónu Hrannar Bolladóttur. Fréttir gerðu málþinginu góð skil og er sú umfjöllun notuð hér. Tillögur og hugmyndir þinggesta voru skráðar niður og er ætlunin að koma þeim til þjóðhátíðarnefndarinnar, ef þær gætu orðið nokkurt leiðarljós fyrir hana að starfa eftir. Jóna Hrönn segir fulla ástæðu til að Vestmannaeyingar fari að huga að næstu þjóðhátíð í tíma. Margar forsendur fyrir hátíðinni séu breyttar og ástæða til að spyrja hvernig þjóðhátíð Vestmannaeyingar vilji halda. Meðal þeirra forsendna sem breyst hafa er sameining íþróttafélaganna Týs og Þórs undir merki ÍBV, einnig að áhyggjuefni þyki hve hátíðin sé farin að færast mikið úr Herjólfsdal inn í bæinn sjálfan. Ofarlega í mönnum var og hverjir ættu að bera fjárhagsleg útlát vegna kostnaðar sem hlýst af löggæslu, heilsugæslu og eftirliti Eru það þeir sem að hátíðinni standa eða þeir sem að öðru jöfnu sjá um að halda uppi slíkri þjónustu í samfélaginu. Frummælendur á þinginu voru: Helga Hauksdóttir fulltrúi sýslumanns, Víðir Óskarsson fulltrúi Læknafélags Vestmannaeyja og Birgir Guðjónsson fulltrúi þjóðhátíðarnefndar. Frummælendur voru sammála um að gera ætti þjóðhátíðina að glæsilegri fjölskylduhátíð og að nauðsynlegt væri að gera hana að þeirri hátíð sem héldi uppi þeim gildum sem vera mættu til fyrirmyndar fyrir unglingana.
- Helga Hauksdóttir sagði að til þess að þessu yrði náð yrði að markaðssetja hana með það í huga og miða yrði við að leita í smiðju heimamanna eftir skemmtiatriðum. Hún velti einnig fyrir sér hvort hátíðin ætti að vera hátíð fyrir aðra en heimamenn og hversu mikið ætti að leggja í það að auglýsa hana í samkeppni við aðrar útihátíðir um Verslunarmannahelgi.
- Víðir Óskarsson varpaði fram spurningu um það hverjir það væra sem bæru ábyrgð á heilsugæslunni. Hann sagði það óásættanlegt að hafa slíkt ekki á hreinu og taldi að úr því hvorki mótshaldarar, né bæjaryfirvöld sæju sér fært að standa undir þeim kostnaði yrði að vera búið að koma því á hreint fyrir næstu þjóðhátíð. Hann sagði einn lækni á vakt á hátíðarsvæðinu allan tímann auk björgunarsveita og einn lækni á vakt á heilsugæslunni í bænum. Víðir sagði að brýnt væri að fá hjúkrunarfræðing til aðstoðar fyrir lækninn á heilsugæslunni. - Birgir Guðjónsson skoðaði málið frá sjónarhóli gamalla og góðra gilda. Og benti á að þjóðhátíð hefði alla tíð verið unnin í sjálfboðavinnu, hins vegar skildi hann vel að tímarnir væru breyttir. Það væri skylda við Eyjamenn og aðra, að halda þjóðhátíð.
- Að loknum framsögum, var orðið gefið laust. Birgir Stefánsson frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum vildi koma á framfæri sjónarmiðum unglinga á aldrinum 16-20 ára. Hann gaf stutt yfirlit yfir hvernig þjóðhátíðin hefði áhrif. Hún væri meira og minna í umræðunni allt árið. Hann vildi og meina að hátíðin væri orðin útiskemmtun fyrir unglinga af fastalandinu í stað þess að vera fjölskylduskemmtun heimamanna. Nanna Leifsdóttir var kölluð til og talaði sem móðir og húsmóðir. Hún vildi að hátíðin yrði markaðssett sem rómantísk fjölskylduskemmtun og að leggja yrði meiri áherslu á að gera eitthvað fyrir börnin. Hún stakk upp á því að komið yrði upp leiktækjum, Lagt yrði meira upp úr kappleikjum og þrautum og síðast en ekki síst að draga úr fylleríi og subbuskap sem væri allt of einkennandi fyrir hátíðina og vildi fá að vita hvað íþróttahreyfingin ætti að standa fyrir. Hún spurði hvort nauðsynlegt væri að fá endilega dýrustu hljómsveitirnar, sem trekktu einungis unglinga af fastalandinu. Nanna hafði einnig áhyggjur af því fólki sem væri farið að flýja Eyjar á meðan þjóðhátíð stæði yfir.
- Þorsteinn Gunnarsson sagðist vera mikill þjóðhátíðarmaður og alltaf unnið mikið í kringum hana. Hann lýsti því yfir að hin eina sanna þjóðhátíð væri sú sem færi fram í hústjöldunum. Hann hafði og áhyggjur af því sem foreldri hversu lítið væri gert fyrir börnin. Þorsteinn kom einnig inn á hátt verðlag á hátíðinni og sagði að markmiðið hjá mörgum sjoppum væri að plata fé út úr misölvuðu fólki og taldi það löst á hátíðinni. Hann hafði áhyggjur af „afætunum" sem hann kallaði svo og vildu fá sinn hluta af kökunni á kostnað íþróttahreyfingarinnar. Hann sagði þó Eyjamenn stolta af hátíðinni, en taldi þó fullorðna fólkið slæma fyrirmynd. „Hættum okrinu og tökum betur til eftir hátíðina," sagði Þorsteinn að lokum. Kristján Eggertsson vildi halda í heiðri þeirri rómantísku mynd sem flestir Eyjamenn ættu um þjóðhátíð. Hann vildi meina að „Undurfagra ævintýr..." ætti vel við ennþá sem vörumerki hátíðarinnar og að brekkusöngur og brenna ætti fullan rétt á sér, það þyrfti ekki að kaupa dýr utanaðkomandi skemmtiatriði. Hann sagði hið gamla og nýja ættu hins vegar að taka höndum saman.
- Sigurfinnur Sigurfinnsson steig í pontu og gerði kostnað við gæslu að umræðuefni. Hann spurði hvort nokkurt réttlæti væri í því að þjóðhátíðarnefnd væri að halda uppi löggæslu í bænum og bera kostnað þar af. Hann vildi einnig koma því á framfæri að mikil samkeppni væri milli veitingastaða í bænum og hátíðarinnar. Sigurfinnur vildi meina að spurning væri hvort rétt væri að loka þeim yfir þjóðhátíðina og reyna að halda fólki heldur í Dalnum, vegna þess að ráp um bæinn yki hættu á slysum og að sama skapi fylleríið. Bjartey Sigurðardóttir móðir og húsmóðir vildi efla þjóðhátíðina sem fjölskylduhátíð. Hún spurði hvort hátíðin í núverandi mynd væri fjölskylduvæn og vísaði þar í ótæpilega víndrykkju. Hún vildi að, ef vín væri haft um hönd þá yrði það eftir að börn væru farin heim. Börn og vín færa ekki saman. Hún gerði og að umtalsefni sóðaskapinn eftir hátíðina og vildi að allir Vestmanneyingar yrðu kallaðir til að lokinni hátíð til þess að hreinsa til eftir hana. Jóhann Jónsson frá Laufási hóf mál sitt á því að segja: „Bæ, bæ Vestmannaeyjar og halló Akureyri." Hann vísaði þar til samkeppninnar og þeirrar ónáttúru bæjarfélagsins að taka ekki þátt í kostnaði við löggæslu, læknisþjónustu og eftirliti. Hann sagði þessa liði vera að sliga íþróttahreyfinguna og spurning um að halda áfram á sömu braut. Jóhann tók til samanburðar að ÍBV hefði meiri tekjur af Shellmótinu heldur en þjóðhátíð og að hún myndi leggjast af innan þriggja ára með sama framhaldi. Jóhann lýsti eftir skýrri stefnu frá ÍBV í málefnum þjóðhátíðar og sagði það hámark vitleysunnar, þegar þjóðhátíð væri kennt um ófærð og gestir kæmust ekki til síns heima að henni lokinni. Stefán Jónasson harmaði það að blaðamaðurinn Þorsteinn Gunnarsson skyldi ekki tjá sig um þátt fjölmiðla í fréttum af þjóðhátíð. Stefáni þótti mjög hallað á þjóðhátíð í Eyjum á kostnað Halló Akureyri sem hann tók til samanburðar. Veifaði hann úrklippum úr DV og Morgunblaðinu um síðustu þjóðhátíð, þar sem hann sagði að DV virtist hafa sérstaklega illan bifur á þjóðhátíð.
Tryggvi til Tromsö
Tryggvi Guðmundsson, knattspyrnumaður úr ÍBV, gerði þriggja ára samning við norska liðið Tromsö. „Ég er mjög ánægður með að þetta er í höfn. Ég kem fyrst heim og fer síðan með landsliðinu til Sádi-Arabíu eftir helgina og þegar við komum úr þeirri ferð heldur maður náðug jól, fer síðan til Tromsö í byrjun árs og slær í gegn," sagði Tryggvi kampakátur í samtali við Morgunblaðið.
Skrautlegur kvennaleikur
ÍBV gerði jafntefli við Hauka í 1. deild kvenna, 20-20, í einhverjum ótrúlegasta leik sem sögur fara af hér á landi fyrr og síðar að sögn Frétta. Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV, jafnaði metin á síðustu sekúndunni en Eyjastelpur áttu svo sannarlega skilið annað stigið. En leiksins verður fyrst og fremst minnst vegna ótrúlegrar uppákomu dómaranna undir lok leiksins en gera þurfti hlé á leiknum vegna ósættis þeirra! Fréttir greina svo frá leiknum: Síðustu mínúturnar voru æsispennandi. Þegar 20 sekúndur voru til leiksloka og staðan 23-24 fyrir Hauka, braust ein stúlka Hauka í gegnum vörn ÍBV en var stöðvuð. Utidómarinn dæmdi umsvifalaust ruðning en innridómarinn dæmdi vítakast. innridómarinn sætti sig engan veginn við ákvörðun kollega síns og benti í sífellu á vítapunktinn til að ítreka dóm sinn. Upphófst nú mikil rekistefna og hnakkrifust dómararnir úti á miðjum leikvelli, fyrir framan leikmenn og áhorfendur sem trúðu ekki eigin augum. Innridómarinn hafði ekki sagt sitt síðasta og rauk að ritaraborðinu þar sem Óli Ólsen, eftirlitsdómari á karlaleik ÍBV og KA sem var strax á eftir þessum leik, sat í rólegheitum. Óli sagðist ekki skipta sér af þessu enda væri hann ekki starfsmaður leiksins. Enn þráttuðu dómararnir um sinn og lá við handalögmálum þangað til innridómarinn gaf sig og dómurinn um ruðning stóð. Þessi dómur hafði afgerandi áhrif á lokaniðurstöðu leiksins. Eyjastelpum var nefnilega dæmdur boltinn og þær brunuðu í sókn og jöfnuðu leikinn á síðustu sekúndu leiksins. Þar var að verki Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði. Eyjastelpur fögnuðu innilega en Haukastúlkur voru vægast sagt bálreiðar út í dómara leiksins, þá Guðmund Stefánsson og Tómas Sigurdórsson. Þeir héldu rifrildi sínu áfram að leik loknum alla leið inn í búningsklefa.
ÍBV missti takið
Íslandsmeistarar KA sigruðu ÍBV í Eyjum 25-31, í hörkuleik í Nissandeildinni. Eyjamenn höfðu haft tak á KA í gegnum árin en ekki dugði það að þessu sinni. Þetta var fyrsti sigur norðanmanna á ÍBV í fjögur ár, takk fyrir. Þrátt fyrir að tvo lykilmenn vantaði í KA voru þeir mun sprækari en fyrr í haust þegar þeir voru rassskelltir hér í bikarnum af ÍBV. Enda sagði þjálfari KA að leik loknum að hann hefði alveg verið til í að skipta á úrslitum leikjanna svo að sínir menn væru enn með í bikarnum! Mörk ÍBV: Zoltan Belánýi 9/2, Haraldur Hannesson 4, Hjörtur Hinriksson 3, Svavar Vignisson 3, Erlingur Richardsson 3, Guðfinnur Kristmannsson 2, Robertas Pauzuolis 1. Varin skot; Sigmar Þröstur 10.
ÍBV fékk Dragostyttuna
Á ársþingi Knattspyrnusambands Íslands var knattspyrnuliði ÍBV afhent Dragostyttan svonefnda en hún er afhent því liði sem hlaut fæst refsistigin á Íslandsmótinu í sumar og er þar af leiðandi prúðasta lið mótsins. Annað árið í röð kom styttan í hlut ÍBV.
Staðan um áramótin
Um áramótin var karlalið ÍBV í handboltanum í 8. sæti Íslandsmótsins með 8 stig og 8 mörk í mínus. Kvennalið ÍBV var í 5. sæti með 11 stig og 5 mörk í mínus. Að venju voru áramótin kvödd með brennu í gryfjunni við Hástein sem ÍBV íþróttafélag stóð fyrir.
Þannig leið fyrsta starfsár ÍBV íþróttafélags.
Með töpum og sigrum, stórum stundum og öflugu starfi hinna fjölmörgu stuðningsmanna félagsins.
Strax á þessu fyrsta ári félagsins unnust Íslandsmeistaratitlar, en starfið var líka öflugt að öðru leyti. Við sameiningu félaganna heltust ýmsir góðir starfskraftar úr lestinni sem áður unnu fyrir Þór og Tý, en aðrir komu líka í staðinn. Við sameininguna tókust á sterkar tilfinningar og skynsemi. Í dag eru sennilega flestir orðnir sammála um að sameining félaganna var skynsamleg, en hún þurfti bara sinn tíma.
1998
Þrettándinn með bravör
Þrettándinn var haldin með miklum bravör sem áður og mikill fjöldi fólks fylgdi jólasveinum og þeirra fylgifiskum um götur bæjarins og uppá malarvöllinn í Löngulág. Safnast var saman við Molda þar sem tilkomumikil flugeldasýning lýsti upp kletta og himinn og gladdi þann mikla fjölda fólks sem ætlaði að eiga þar stefnumót við tröll, jólasveina, álfa, púka og annað hyski heldur ófrýnilegt.
Íslandsmeistaratitill og bikarmeistaratitill segir Völvan
Völva Frétta, Matthildur Sveinsdóttir spáði fyrir íþróttum á nýbyrjuðu ári:
Handboltinn: „Handboltaliðinu gengur ágætlega en á í einhverju fjársvelti. Liðið fær ekki nægilegan stuðning og missir mjög trúlega einn leikmann. Liðið á eftir að koma á óvart tvisvar á árinu." Knattspyrnan „Það verða tveir menn mjög áberandi og liðið byrjar ekki vel. Það verður rótleysi í liðinu sem berja verður niður strax ef árangur á að nást. Þetta er ekki síst spurning um andlega uppbyggingu. Það verður að sameina strákana betur. Þegar þeir hafa unnið bug á rótleysinu á liðið góða möguleika á Íslandsmeistaratitlinum og bikarnum. Mér sýnist þeir muni halda Íslandsmeistaratitlinum og vinna bikarinn af Keflavík. Spilið þeirra fræga frá því í fyrra kemur að minnsta kosti upp og í betra samhengi."
Jói fékk Fréttapíramídann
Fréttapíramídinn er viðurkenning, sem blaðið Fréttir veitir árlega þeim félögum eða einstaklingum sem þykja hafa lagt mikið að mörkum til samfélagsins á hinum ýmsu sviðum. Að þessu sinni hlaut Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, Fréttapíramída fyrir framlag sitt til íþróttamála.
Leiktíminn ekki sniðugur
Meistaraflokkur kvenna mætti Val á útivelli í fyrsta leik ársins. Svo virtist sem jólin sæti í ÍBV stelpunum. Úrslitin urðu 26 - 21 Valsstúlkum í hag og er ÍBV í áttunda sæti 1. deildar með 11 stig eftir 12 umferðir. „Það er mest lítið um leikinn að segja," sagði Jón Bragi Arnarsson þjálfari eftir leikinn í viðtali við Fréttir. „Þetta er ekki sniðugur leiktími, 3. janúar svona rétt eftir jólin. Tvær stúlknanna voru að koma beint að utan. Það er þó engin afsökun. Stelpumar náðu að skapa sér færi en nýttu þau ekki og það dugar ekki gegn markmanni sem ver 20 skot," sagði Jón Bragi ennfremur. Um leikinn er það að segja að Valsstúlkurnar voru seinar í gang. Brenndu m.a. af þremur vítum og komst ÍBV í 1 - 4. Eftir það fóru gestgjafarnir í gang og náðu að jafna 5 - 5. Náðu síðan forystunni sem þær héldu til loka. Undir lok seinni hálfleiks tókst Eyjastúlkunum að klóra aðeins í bakkann, komust í 20 - 17 en þrjú mörk Valsstúlkna í röð gerðu vonir um sigur að engu. Mörk ÍBV: Sandra Anuliet 6, Andrea Atladóttir 6/1, Ingibjörg Jónsdóttir 4/2, Sara Ólafsdóttir 2, Unnur Sigmarsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1 og María Rós Friðriksdóttir 1. Eglé Pletiené varði 10 skot þar af eitt vítakast.
„Okkar tími er eftir áramót“
Fyrsti leikur karlaliðsins var hinsvegar gegn stjörnuprýddu liði Aftureldingar í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar og var leikið að Varmá í Mosfellsbæ. Í Fréttum segir að fyrirfram hafi menn ekki verið alltof bjartsýnir á þennan leik en eftir að Guðfinnur Kristmannsson hafi gefið tóninn fyrir ÍBV í byrjun leiks hafi aldrei verið vafi á því hverjir færu með sigur af hólmi. „Eyjapeyjar komu greinilega vel stemmdir til leiks og tóku leikinn strax í sínar hendur. Þetta kom kjúklingunum úr Mosfellsbæ í opna skjöldu og var greinilegt vanmat í herbúðum þeirra. Leikurinn var prúðmannlega leikinn og var það því sem köld vatnsgusa í andlit Eyjamanna þegar Svavar Vignisson, sem spilað hafði mjög vel í byrjun leiks, fékk rauða spjaldið fyrir mjög svo smávægilegt brot í byrjun leiks. En strákarnir létu þetta ekki á sig fá og léku af mikilli skynsemi allan leikinn og létu leikmenn Aftureldingar aldrei í friði. Afturelding náði aðeins einu sinni að jafna í 15-15 en í kjölfarið fylgdu 4 mörk IBV og héldu þeir forystunni út leikinn.“ Lokatölur urðu 24-29. Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV, var að vonum kampakátur í leikslok og stoltur af frammistöðu strákanna. „Okkar tími er alltaf eftir áramót. Þetta er bara svona og verður ekki breytt," sagði Þorbergur eftir leikinn. Mörk ÍBV: Zoltán Belánýi 8/2, Hjörtur Hinriksson 7, Guðfinnur Kristmannsson 3, Robertas Pauzuolis 3, Sigurður Bragason 3, Svavar Vignisson 2, Erlingur Richardsson 1. Sigmar Þröstur varði 9/2 skot.
Dapurt gengi í meistaraflokkanna í innanhússknattspyrnu
Íslandsmótið í innanhússknattspyrnu meistaraflokkanna fór fram í byrjun janúarmánaðar, bæði í karla og kvennaflokki. Í karlaflokki var ÍBV í riðli með ÍBK, ÍA og Leikni. Okkar mönnum gekk ekki vel, þeir byrjuðu á því að tapa fyrir ÍBK 1-4 og ÍA 3-6 en náðu að halda sæti sínu í deildinni með því að sigra Leikni 6-5.
Kvennaliðið náði sér heldur ekki á strik. Úrslit leikja urðu: ÍBV-Reynir 3-0. ÍBV-Breiðablik 0-3. ÍBV-Valur 1-5. ÍBV - ÍBA 3-1. Stelpurnar lentu í 3. sæti í sínum riðli og komust ekki í úrslit.
..........en stelpurnar í 2. flokki stóðu sig frábærlega
Sömu helgina og meistaraflokkarnir kepptu í innanhússknattspyrnu var einnig Íslandsmót í innanhússknattspyrnu yngri flokka og var keppt á Reykjavíkursvæðinu. 2. flokkur kvenna stóð sig frábærlega, vann sinn riðil og mun spila í úrslitakeppni sem fara á fram í febrúar. Einstök úrslit urðu þessi: ÍBV - Fylkir 4 – 2. ÍBV-ÍR 10-0 ÍBV- Afturelding 3 – 2. ÍBV - Haukar 3 – 3. Þjálfari stelpnanna er Heimir Hallgrímsson.
Unglingaráð stofnað
Í janúarbyrjun var gengið frá stofnun unglingaráðs ÍBV í fótboltanum. Ráðið á að sjá um þriðja flokk og þar fyrir neðan. Ráðið skipaði Jón Óskar Þórhallsson, Friðrik Friðriksson (markmaður), Hlynur Sigmarsson, Sigurbergur Ármannsson og Ólafur Snorrason.
Baráttusigur
Meistaraflokkur kvenna í handbolta mætti Haukum í Hafnarfirði í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar. Og nú sátu jólin greinilega ekki í þeim. Þær sigruðu með glæsibrag eftir framlengdan leik, 22-23. Úrslitin voru nokkuð óvænt, sérstaklega í ljósi þess að bikarmeistarar Hauka voru með vænlega stöðu í hálfleik, 13 - 8. Það virtist fátt ætla að koma í veg fyrir öruggan Haukasigur en með mikilli baráttu og sterkri vörn náði ÍBV að snúa leiknum sér í hag og var mikil spenna allt til enda. Aðeins 1 - 2 mörk skildu liðin að á lokasprettinum en Eyjastúlkur ætluðu sér greinilega ekkert annað en sigur og uppskáru samkvæmt því.
Með sigrinum komst ÍBV í undanúrslit bikarkeppninnar. Jón Bragi Arnarsson, þjálfari ÍBV var í sjöunda himni eftir leikinn. „Það verður að segjast alveg eins og er að útlitið var nú heldur svart í hálfleik en við neituðum að gefast upp og með skipulögðum varnarleik ásamt frábærri liðsheild þá tókst okkur að knýja fram sigur í lokin. Til marks um varnarleikinn þá fékk ÍBV aðeins á sig 4 mörk á 28 mínútum í seinni hálfleik. Stelpumar eru staðráðnar í að fara alla leið“, sagði Jón Bragi við viðtali við Fréttir. Mörk ÍBV: Andrea Atladóttir 8, Ingibjörg Jónsdóttir 6, Sara M Ólafsdóttir 2, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Sandra Anulyte 2, Stefanía Guðjónsdóttir I, María Rós Friðriksdóttir 1.
Bikardraumar fyrir bí
Það var rafmagnað andrúmsloft í Höllinni, þegar karlalið ÍBV mætti Val í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta, hér í Eyjum 22. janúar. Stemmningin var frábær, með hljómsveitina Stallahú í broddi fylkingar. Eftirlitsdómari leiksins hafði einhverjar athugasemdir við spilamennsku hljómsveitarinnar og stoppaði leikinn tvisvar í byrjun leiks. Það virkaði sem vítamínsprauta á stuðningsmenn ÍBV sem studdu lið sitt dyggilega. Það dugði ekki til, því Valur vann 22 - 23.
Án Andreu Atladóttur áttu ÍBVstelpurnar aldrei möguleika á móti Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ. Leikurinn fór fram í Garðabæ og lauk með 25 mörkum Stjörnunnar gegn 17 mörkum ÍBV. Í hálfleik var staðan 12 - 8 Garðbæingum í vil.
Stórsigur gegn Víkingi
Eftir tapið gegn Val í bikarkeppninni sýndu ÍBV strákarnir sínar bestu hliðar þegar þeir mættu Víkingum í Nissandeildinni. Leikurinn náði aldrei að yerða spennandi þar sem yfirburðir ÍBV voru miklir í leiknum. Fyrirfram var búist við jöfnum baráttuleik þar sem Víkingar eru næstneðstir með þrjú stig og eru að berjast fyrir tilveru sinni í deildinni. En það fór á annan veg, ÍBV vann leikinn 31-22.
2. flokkur steinlá gegn Val
2. flokkur karla í handboltanum fékk Val í heimsókn í endaðan janúar. Liðið átti mjög á brattann að sækja allan leikinn og tapaði með 8 marka mun, 14 - 22. Eyjastrákar máttu sín lítils gegn sterkri vörn og góðum markmanni Vals og náðu ekki að skora fyrsta mark sitt fyrr en rúmlega 13 mínútur voru liðnar af leiknum. En í vörninni stóðu þeir sig vel ásamt góðri markvörslu Reynis og var staðan, 7-9 í hálfleik. Í seinni hálfleik tóku Valsmenn leikinn í sínar hendur og juku forskot sitt jafnt og þétt. Sóknarleikur ÍBV var ekki nógu góður, boltinn gekk illa manna á milli og voru strákarnir að reyna að gera allt upp á eigin spýtur. Þó sáust einstaka góð tilþrif gegn góðu liði Valsmanna, sem hafa á að skipa einu besta liði landsins í þessum aldursflokki. En lokatölur, 14-22. Reynir Pálsson, markmaður stóð sig einna best Eyjastráka.
Ljóst er að í 2. flokki ÍBV er margir efnilegir leikmenn, sem eiga örugglega eftir að skila sér upp í meistaraflokk ef rétt er haldið á málum. Mörk ÍBV: Richard 4, Jón Helgi 3/2, Elías Ingi 2, Sigurður S. 1, Unnar 1, Þorsteinn 1, Sigurður E. 1 og Gunnar Bergur 1. Varin skot: Reynir 11/1, Davíð 2/1.
Slakt gengi í innanhússknattspyrnunni
Helgina 9.-11 .janúar fór fram Íslandsmótið í innanhússknattspyrnu yngri flokkanna. 4. flokks strákarnir voru mjög óheppnir og misstu leiki niður í jafntefli eða tap á síðustu sekúndunum. Úrslit leikja urðu þannig: ÍBV-ÞrótturVogum l-0. ÍBV-ÍA 3-3. ÍBV-ÞrótturRvk. 2- 3. ÍBV-Víðir Garði 1-1. ÍBV - KFR 2 -1. Því miður komust Eyjastrákar ekki í úrslit en marga ljósa punkta var að sjá í leik þeirra. Sigurlás Þorleifsson stjórnaði flokknum og Kristinn R. Jónsson, sem mun þjálfa flokkinn í sumar, var honum innan handar.
Fimmta flokki karla gekk mjög illa á Íslandsmótinu í innanhússknattspymu og vann aðeins 1 leik í sínum riðli. Sigurlás Þorleifsson, þjálfari, sagði að mikið hefði verið um forföll hjá sínum strákum og einnig hefði reynsluleysi verið áberandi. „Það var þétt spilað, aðeins 1 leikur á milli okkar leikja þannig að það var margt sem varð til þess að árangurinn varð ekki betri en raun bar vitni," sagði Sigurlás að lokum. En úrslit leikjanna fóru sem hér segir: ÍBV-ÍR 2- 8. ÍBV - Fjölnir 0 – 3. ÍBV-FH 1-1. ÍBV - Njarðvík 3 – 2. ÍBV-Þróttur 0-7.
Haukastelpur náðu fram hefndum
Haukastelpurnar náðu fram hefndum gegn ÍBV í 17. umferð 1. deildarinnar í handbolta, eftir ófarirnar í bikarnum. Leikið var í Hafnarfirði og lauk honum með yfirburðasigri Hauka, 34-21, í hálfleik var staðan 17 -10. „Það er mest lítið um þennan leik að segja," sagði Jón Bragi Arnarsson, þjálfari eftir leikinn, í viðtali við Fréttir. „Við gerðum of mikið af mistökum, sendingar voru ónákvæmar og við vorum að klikka í dauðafærum. Á meðan allt gekk upp hjá þeim gekk ekkert upp hjá okkur." Stelpurnar eiga fimm leiki eftir í deildinni en þær eru í sjöunda og næstneðsta sæti deildarinnar með 13 stig. .
Sigmar Þröstur varði 26 skot og skoraði 2 mörk
Það gekk hinsvegar betur hjá karlaliðinu í handbolta þegar það mætti Haukum. „Við lékum okkar besta leik á vetrinum og það gekk allt upp af því sem við ætluðum okkur. En það kom okkur á óvart hvað Haukarnir gáfust fljótt upp," sagði Þorbergur Aðalsteinsson þjálfari eftir að ÍBV burstaði Hauka í útileik í janúar, 33 - 22. Staðan í hálfleik var 11-19 ÍBV í vil. Haukar áttu aldrei svar við ákveðnum Eyjamönnum og gáfust hreinlega upp þegar leið á leikinn. Á meðan lék ÍBV á als oddi og fór hamförum í leiknum eins og tölurnar bera með sér. Robertas var tekinn úr umferð en það kom Eyjamönnum ekki á óvart því það hafði verið sérstaklega æft fyrir leikinn. Sem dæmi um yfirburði ÍBV má nefna að Sigmar Þröstur náði að skora 2 mörk. Mörk ÍBV: Bello 8, Robertas 7, Sigurður Braga 3, Hjörtur 3, Guðfinnur 2, Erlingur 2, Svavar 2, Sigmar Þröstur 2 og Davíð 1. Sigmar Þröstur varði 26 skot.
Hlynur íþróttamaður Vestmannaeyja
Það kom engum á óvart á viðurkenningahátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja, að Hlynur Stefánsson, knattspyrnumaðurinn knái var valinn Íþróttamaður Vestmannaeyja ársins 1997. Á viðurkenningahátíðinni rakti Þorsteinn Gunnarsson, formaður valnefndar Íþróttabandalagsins, glæsilegan feril Hlyns á í knattspyrnu sem hann kórónaði sl. sumar með frábærri frammistöðu í Íslandsmeistaraliði ÍBV þar sem hann var fyrirliði liðsins. „Hlynur lék sinn fyrsta leik með ÍBV 1982 en stimplaði sig inn í fótboltann í sínum fyrsta alvöru leik, 1983, með því að skora þrennu. Hlynur lék með ÍBV í 2. deild 1984 og 1985 en hélt til Noregs 1986 og lék með 3. deildarliði í Þrándheimi. 1987 kom hann heim á ný til ÍBV en 1988 lék hann með Víkingi. Aftur sneri Hlynur heim 1989 og átti stóran þátt í því að koma ÍBV upp í 1. deild og var lykilmaður liðsins næstu þrjú árin. 1992 fór Hlynur í atvinnumennsku og lék með Örebro í Svíþjóð næstu þrjú árin við góðan orðstír. Með Örebro lék Hlynur 101 deildaleik í Allsvenskan og skoraði 11 mörk," sagði Þorsteinn.
Mikil sigling á karlaliðinu
Eyjamenn tóku á móti neðsta og lélegasta liði deildarinnar, Breiðablik, í Nissan deildinni um miðjan febrúar. Fyrir leikinn var aðeins spurning um hve stór sigur ÍBV yrði og þó svo að Eyjamenn spiluðu á hálfum hraða allan leikinn, þá var sigurinn mjög öruggur, 35 mörk gegn 23. Mörk ÍBV: Zoltán Belánýi 12/5, Hjörtur Hinriksson 7, Guðfinnur Kristmannsson 6, Svavar Vignisson 4, Erlingur Richardsson 3, Robertas Pauzuolis 2, Haraldur Hannesson 1. Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 18. Þeir héldu síðan í Hafnarfjörðinn nokkrum dögum síðar og mættu FH-ingum. ÍBV þótti spila fantavel vel í þessum leik og með Sigmar Þröst sem besta mann, sigruðu þeir sannfærandi, 24-26.
Kvennaliðinu gengur ekki eins vel
ÍBV stelpur mættu liði Gróttu/KR, hér heima, í tveimur leikjum í 1. deild kvenna í lok febrúar.. Sparnaðarráðstöfun réði því að báðir leikirnir fóru fram í Vestmannaeyjum. Því miður náðu Eyjastelpur ekki að nýta sér heimavöllinn og töpuðu báðum leikjunum, þeim fyrri 19 - 20 en seinni leikurinn endaði 15 -19. Fyrri leikur liðanna var jafn og skemmtilegur. Gestirnir höfðu reyndar undirtökin allan fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi, 9-12. Eyjastelpur tóku sig síðan saman í andlitinu í síðari hálfleik og aðeins eitt mark skildi liðin að síðustu 15 mínútumar. Grótta/KR marði síðan sigur í lokin, 19-20. Mörk ÍBV: Sandra Anulyte 7/2, Ingibjörg Jónsdóttir 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Sara Ólafsdóttir 2, Unnur Sigmarsdóttir 1, Hind Hannesdóttir 1. Varin skot: Eglé Plétjiené 15/2.
ÍBV stelpur byrjuðu seinni leikinn af miklum krafti en náðu ekki að fylgja því eftir. Í stöðunni 4- 2 snéru gestirir blaðinu við og sigu rólega framúr. Staðan í hálfleik var 8 - 11. Eyjastelpur tóku síðan aftur kipp í byrjun síðari hálfleiks en það fjaraði fljótlega út og Grótta/KR sigraði leikinn örugglega, 15- 19. Mörk IBV: Sandra Anulyte 6/2, Ingibjörg Jónsdóttir 5/1, Stefanía Guðjónsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1, Sara Ólafsdóttir 1 og Eglé markmaður, 1 mark. Varin skot: Eglé Plétjiené 13/1
Í Fréttum segir að ÍBV hafi spilað nokkuð góða vörn í þessum leikjum og markvarslan var góð en aðalhöfuðverkur liðsins sé sóknarleikurinn, sem er mjög fálmkenndur og ómarkviss. Þess beri þó að geta að Andrea Atladóttir hafi ekki getað spilað á fullum krafti vegna veikinda og það munar um minna. Eglé stóð sig vel í markinu en hún er allt of bráð í að kasta boltanum fram. „Til að dæma leikina voru fengnir tveir svartklæddir fýlupúkar að sunnan og fá þeir eina hauskúpu hvor, fyrir frammistöðu sína í leikjunum“.
4. flokkur í 2. sæti
Helgina 13. til 15.febrúar fór fram hér í Eyjum, fjölliðarnót 4. flokks karla í handknattleik. ÍBV strákar spiluðu að þessu sinni í fyrstu deild og er óhætt að segja að þar er á ferð mjög samstilltur og efnilegur hópur. Eyjapeyjar gerðu sér lítið fyrir og lentu í 2. sæti og tryggðu sér þar með sæti í úrslitakeppninni, sem fram fer 21. mars n.k. Úrslit leikja ÍBV urðu sem hér segir: ÍBV-Valur 17-30. ÍBV-Fram 18-17. ÍBV-Stjarnan 19-15. ÍBV-ÍR 19-19.
Duttu út í 8 liða úrslitum
8 liða úrslit 4. flokks kvenna í handknattleik fór fram í Eyjum síðustu helgina í febrúar. ÍBV stelpur mættu liði Stjörnunnar í Garðabæ og töpuðu 14 - 10 og eru þar með úr leik. Mörk ÍBV í leiknum skoraðu: Bjarný 3, Rakel 2, Hjördís 2, Elfa 1, Lilja 1 og Edda 1. Þjálfari stelpnanna er Stefanía Guðjónsdóttir.
Stjarnan hrapaði í Eyjum
25. febrúar mættust í Nissandeildinni, lið ÍBV og Stjörnunnar, hér í Eyjum. Fyrirfram var búist við miklum baráttuleik, þar sem bæði lið berjast fyrir sæti sínu í úrslitakeppninni. Það er ekki hægt að segja annað en að Eyjamenn hafi farið á kostum í þessum leik. Í Fréttum segir að Eyjapeyjar hafi skemmt stuðningsmönnum sínum með góðum varnarleik, frábærum sóknarleik og síðast en ekki síst skemmtilegum uppákomum. „Leikurinn var í járnum mestallan fyrri hálfleik en í þeim síðari valtaði ÍBV yfir andstæðinga sína og sigraði, 30-22. Hinn lipri hornamaður, Hjörtur Hinriksson, gaf ÍBV tóninn í upphafi leiks, með miklum tilþrifum. Annars var jafnræði með liðunum til að byrja með, liðin spiluðu skemmtilegan bolta og nokkuð mikill hraði var í leiknum. En vendipunktur leiksins var þegar um 5 mínútur voru til leikhlés, þá tóku Eyjamenn mikinn kipp og komust í 5 marka mun, 15-10 og þannig var staðan í hálfleik. Í seinni hálfleik var sannkölluð flugeldasýning af hálfu ÍBV. Eyjamenn lokuðu vörninni, hraðaupphlaupin komu á færibandi og sóknarleikur liðsins var sem vel smurð vél, og um miðjan síðari hálfleik var ÍBV komið í 13 marka forystu, 26-13. Þegar 10 mínútur voru til leiksloka var varamönnum ÍBV leyft að spreyta sig, þar á meðal var kornungur varamarkmaður, hinn 17 ára gamli Davíð Egilsson, sem stóð sig mjög vel. Í lokin tók Stjarnan sig aðeins saman í andlitinu og lokatölur urðu 30 - 22. Eyjamaðurinn, Arnar Pétursson, var einna skástur í annars slöku liði Stjörnunnar og skoraði 6 mörk.“
Tap fyrir FH
Það gekk ekki eins vel hjá kvennaliðinu þegar ÍBV mætti FH í Hafnarfirði. Miklar sviptingar voru í leiknum, sem sést best á því að Eyjastúlkur höfðu yfir í hálfleik 10 -12, en töpuðu síðan leiknum með sjö marka mun, 25 - 18. ÍBV stelpur léku fyrri hálfleikinn af mikilli skynsemi og höfðu, sem fyrr segir, yfir í hálfleik, 10-12. Undir lok fyrri hálfleiks þurfti fyrirliði ÍBV, Ingibjörg Jónsdóttir, að yfirgefa völlinn eftir að hafa fengið skurð á höfuðið og spilaði hún ekki meira með í leiknum. Andrea Atladóttir var ennþá meidd og lék ekki með og eftir að hafa misst Ingibjörgu útaf, áttu Eyjastelpur á brattann að sækja í seinni hálfleik. Lokatölur leiksins, 25-18. ÍBV er nú í næstneðsta sæti deildarinnar og mun að öllum líkindum mæta liði Hauka í úrslitakeppninni. Mörk ÍBV: Sara Ólafsdóttir 5, Sandra Anulyte 4, Hind Hannesdóttir 3, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Stefanía Guðjónsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1, Eyrún Sigurjónsdóttir 1 og Eglé Plétjiené 1.
Auglýsingastríð í uppsiglingu
Fréttir segja frá því að Knattspyrnudeild ÍBV hafi farið fram á heimild til að setja upp auglýsingu á norðurgafli Íþróttamiðstöðvarinnar. Öll auglýsingamál á knattspyrnuvöllum bæjarins sem eru keppnisvellir liða knattspyrnudeildar eru alfarið á þeirra vegum en ekki annarra deilda. Hyggist knattspyrnudeild breyta því fyrirkomulagi mun íþrótta- og æskulýðráð skoða málið frekar. Þess ber að geta að handknattleiksdeild ÍBV er með auglýsingu á téðum gafli og menn hafa af því verulegar áhyggjur að einhverjar auglýsingaerjur muni blossa upp á milli deildanna.
Erfitt hjá 2. flokki
Annar flokkur karla í handknattleik spilaði einn leik í Íslandsmótinu, hér í Eyjum í byrjun mars. ÍBV strákar mættu þá frísku liði ÍR-inga og máttu þola 11 marka tap, 23-34. Eyjastrákar voru yfirleitt skrefi á eftir gestunum í þessum leik en þó ber að geta þess að stór hluti 2. flokks ÍBV er skipað leikmönnum, sem spila með þriðja og jafnvel fjórða flokki, þannig að styrkleikamunurinn á þessum strákum er þó nokkur. ÍBV strákar gerðu sitt besta í þessum leik en það dugði skammt til. Staðan í hálfleik var 12 -18 . í seinni hálfleik misstu Eyjamenn ÍR-inga enn lengra fram úr sér og lokatölur, sem fyrr segir 23 - 34.
Bestu menn ÍBV í þessum leik voru Ríkharð Guðmundsson (3.flokki) og Óskar Jósúason. Mjög frískir og spilandi leikmenn.
Mörk ÍBV: Óskar 7, Ríkharð 7/2, Sigurður Ari 2, Gunnar B. 2, Unnar 2, Elías 12 og Þorsteinn 1. Varin skot: Davíð 4, Kristinn 1.
Framarar engin hindrun
„Eyjahraðlestin" mætti liði Framara í Nissandeildinni 1. mars. Fyrir þennan leik höfðu Framarar unnið 10 heimaleiki í röð og voru í 2. sæti deildarinnar. En það skipti engu máli fyrir fríska Eyjamenn, sem héldu uppteknum hætti frá síðustu leikjum, og þeir gerðu sér lítið fyrir og lögðu Fram að velli í spennandi leik, 23 - 24. Í hálfleik var staðan 14 -13 Fram í vil. Varnarleikur ÍBV-liðsins hefur verið skotheldur að undanförnu og á því varð engin breyting. Framarar komu mjög ferskir til leiks og höfðu undirtökin allan fyrri hálfleikinn en Eyjamenn misstu þá aldrei langt framúr sér og var munurinn aðeins 1 mark í hálfleik, 14 - 13. I seinni hálfleik setti ÍBV síðan í fluggír og munaði þar mest um markvörslu Sigmars Þrastar, sem hreinlega lokaði markinu í nokkrar mínútur og á því tímabili komst ÍBV í 5 marka forystu. Framarar áttu ekkert svar við leik Eyjamanna og þurftu að játa sig sigraða, 23 - 24. Eyjamenn áttu sannkallaðan toppleik á sunnudaginn var. Simmi var hreint út sagt frábær og varði 22 skot í leiknum, þar af 14 í seinni hálfleik. Vörnin gat ekki verið betri og sóknarleikurinn fjölbreyttur, með Robertas í broddi fylkingar. Mörk ÍBV: Robertas 8, Belánýi 6/6, Guðfinnur 4, Svavar 4, Hjörtur 1 og Sigurður 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 22/1.
Sannkallað markaregn
7. mars áttust við í l.deild kvenna, lið Stjörnunnar og ÍBV. Fyrir þennan leik var ÍBV í næstneðsta sæti deildarinnar en Stjarnan í því efsta. Þetta var bráðskemmtilegur markaleikur en Stjörnustúlkur höfðu sigur, 32 - 29. ÍBV stelpur áttu ágætis leik gegn Stjörnunni og í hálfleik hafði Stjarnan aðeins l mark yfir, 15-14. Í seinni hálfleik fékk sóknarleikur beggja liða að njóta sín á kostnað varnarleiksins. Stjarnan hafði alltaf undirtökin og sigraði, sem fyrr segir, að lokum. 32-29. Sandra Anulyte átti frábæran leik fyrir Eyjastelpur og skoraði hún 12 mörk.
Mörk ÍBV: Sandra Anulyte 12, Ingibjörg Jónsdóttir 5, Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, Stefanía Guð jónsdóttir 4, Anna Hallgrímsdóttir 2, Hind Hannesdóttir 1.
Í mars stóð knattspyrnudeild ÍBV fyrir svokallaðri Hæfileikamótun ÍBV sem Landsbanki Íslands styrkti. Um athyglisvert tilraunaverkefni er að ræða þar sem reynt var að gera leikmenn í 2. og flokki, karla og kvenna, sjálfstæðari og agaðri til að takast á við verkefni framtíðarinnar á fótboltavellinum. Öllum leikmönnum ÍBV á eldra ári í 3. flokki karla og kvenna og í 2. flokki karla og kvenna (nema elsta árinu hjá strákunum) gafst kostur á því að taka þátt í verkefninu. Þorsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV, sagði í viðtali við Fréttir að hæfileikamótunin byggist annars vegar á því að liðleiki og styrkleiki leikmanna er mældur og í framhaldi af því fá þeir einkaæfingaáætlanir sem þeim er ætlað að framfylgja sjálfir en íþróttakennari mun koma þeim af stað. „Hins vegar verður árinu skipt í þrjú tímabil en hvert tímabil hefst með fyrirlestrahelgi þar sem leikmenn eru fræddir um ýmsa hluti sem eiga að styrkja þá í sínum einkaæfingum og sem leikmenn framtíðarinnar.“
Þrjú töp í þremur leikum
Eyjamenn fengu hið skemmtilega lið ÍR í heimsókn 17. mars og var þetta jafnframt síðasti leikur ÍBV í deildinni. ÍR-ingar komu ÍBV í opna skjöldu með góðum leik og frábærri baráttu. Línumaðurinn snjalli, Svavar Vignisson, lék ekki með, þar sem hann var veðurtepptur í Reykjavík og munaði um minna. Lið ÍR hafði undirtökin allan leikinn og uppskar sigur, 27-29.
Fyrsti leikur kvennaliðs ÍBV og Hauka í úrslitakeppninni fór fram á 18. mars í Hafnarfirði og steinlágu Eyjastelpur í þeim leik, 25-18. Annar leikur liðanna fór síðan fram hér í Eyjum, 20. mars. Sá leikur var æsispennandi og þurfti að framlengja hann, eftir að jafnt hafði verið í leikslok. 17-17. Haukar unnu svo í framlengingu 23-20. ÍBV stelpur voru þar með úr leik í úrslitakeppninni.
Greip í handlegg dómarans
Karlalið ÍBV komst í 8 liða úrslitin í handboltanum og fengu þar Fram til að kljást við en í liði Fram léku tveir Eyjamenn, þeir Magnús Arngrímsson og Gunnar Berg Viktorsson. Fyrsta leikinn sem leikinn var í Reykjavík, sigraði Fram 29-26. Annan leikinn sem fram fór í Eyjum sigraði ÍBV 28-26. Úrslitaviðureignin fór svo fram í Framhúsinu í Reykjavík. Morgunblaðið greinir þannig frá leiknum, sem Fram sigraði stórt, 28-18: „Það hefði farið betur á því að létt væri í mönnum allan leikinn þótt mikið væri í húfi. Sumir leikmenn ÍBV virtust mjög æstir og þá sérstaklega í fyrri hálfleik þegar litlu munaði að upp úr syði á kafla. En það var fleirum heitt í hamsi því þegar tæpar 12 mínútur voru liðnar af leiknum varð að vísa einum áhorfanda úr húsinu. Þetta var miðaldra karlmaður, sem teygði sig inn fyrir auglýsingaskiltin og greip í handlegg annars dómarans.
Eyjamenn náðu tvívegis að jafna í leiknum, 1:1 og 2:2, en eftir það tókst þeim aðeins þrívegis að minnka muninn í eitt mark fyrir hlé en í leikhléi hafði Fram 12:9 yfir og jók forystuna í upphafi þess síðari og þegar hann var hálfnaður var staðan 15:10. Þannig var hún í heilar
sex mínútur og mikið var barist og vel tekið á. Fram náði að leysa hnútinn og þá var björninn unninn. „Sókn okkar var afskaplega döpur og í raun ekkert meira um það að segja," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV, eftir tapið. „Þegar þrír af lykilmönnum okkar í sókninni bregðast allir í sama leiknum þá er ekki von á góðu," sagði þjálfarinn.
Í Fréttum sagði Sigurður Friðriksson, fyrrverandi handboltakappi: „Þetta var agalegt. Þetta er bara einn af þessum dögum, þar sem allt gengur upp hjá öðru liðinu, en ekkert hjá hinu. Þetta var erfiður leikur hjá strákunum og það fór einfaldlega of mikil orka í það að reyna að vinna upp forskot Framara. Varnarleikur liðsins og markvarslan gekk ekki upp í þessum leik og það munar um minna."
Zóphonías Bragi Belányi
25. mars hélt handboltinn sitt árlega slútt með hófi í Höllinni. Þar voru veittar ýmsar viðurkenningar. Magnús Bragason er spurður í viðtali við Fréttir hvort hann væri sáttur með veturinn: „Ég held að ef að menn líta yfir farinn veg, þá geta þeir ekki verið annað en sáttir. Fyrir síðasta tímabil missum við 5 menn, en fáum tvo í staðinn. Okkur var spáð falli í deildinni, en við föllum út í 8-liða úrslitum fyrir Fram og komumst í undanúrslit í bikarnum gegn Val. Þetta held ég að sé alveg ásættanlegur árangur," sagði Magnús. ,,Einnig er vert að minnast þess góða samstarfs, sem karla- og kvennadeildirnar í handbolta hafa átt í vetur og einnig hafa engir meiriháttar árekstrar verið á milli handknattleiksdeildar og knattspyrnudeildar. Þess ber þó að geta að þetta er fyrsta árið sem nýja félagið er starfandi, þannig að það er ekkert skrýtið þó að einhverjir hagsmunaárekstrar séu, þar sem allir eru jú auðvitað að passa sitt. En ég er bjartsýnn á að þetta eigi eftir að verða betra og betra með tímanum."
Með Magnúsi í handboltaráði voru Eyþór Harðarson gjaldkeri, Jóhann Pétursson ritari, Viktor Ragnarsson, Kári Vigfússon og Sigurður Richardsson meðstjórnendur.
Bestu leikmenn 2. flokks voru valin Guðbjörg Guðmannsdóttir og Ríkharð Þ. Guðmundsson.
Bestu leikmenn meistaraflokkanna voru Ingibjörg Jónsdóttir og Sigmar Þröstur Óskarsson sem varði flest skot í deildinni í vetur.
Sigurður Bragason og Hind Hannesdóttir þóttu sýna mestar framfarir vetrarins.
Markahæstu leikmenn meistarflokks voru Sandra Anulyte og Zoltán Belányi sem varð íslenskur ríkisborgari á árinu. Hann tók sér nafnið Zóphanías Bragi Belánýi. Braganafnið tók hann til heiðurs Braga Steingrímssyni, guðföður sínum.
Hjónin Eygló Kristinsdóttir, og Grímur Guðnason voru heiðruð, en þau voru að láta af störfum fyrir handboltann eftir 20 ára starf.
Unglingaráð lyft Grettistaki
Með sameiningu hins nýja félags, ÍBV-íþróttafélags, var ákveðið í samráði við meistaraflokksráð karla- og kvenna, að öll skipulagning og peningaleg stjórnun yngri flokkana, yrði undir einum og sama hattinum. Í framhaldi af því var stofnað unglingaráð, sem hefur breytt allri umgjörð yngri flokkana hér í Eyjum til betri vegar. Unglingaráðið skipa; Óla Heiða Elíasdóttir, Óskar Freyr Brynjarsson, Guðrún Ragnarsdóttir, Hlynur Sigmarsson og Ingibjörg Jónsdóttir.
Óla Heiða Elíasdóttir, ein af meðlimum unglingaráðsins, sagði í samtali við FRÉTTIR, að miðað við að þetta væri fyrsta árið sem ráðið væri starfandi þá hefði öll vinna gengið mjög vel, en alltaf mætti gera betur. „Starf ráðsins í grófum dráttum, er að ráða þjálfara fyrir alla yngri flokkana og þess má geta að unglingaráðið réðst í ráðningu Rússans, sem hefur störf hér 1. júlí næstkomandi. Við sjáum svo um að skipuleggja allar túrneringar, sem fara fram hér í Eyjum. Í keppnisferðum upp á land, sjáum við um allt uppihald krakkanna, en aðalstjórn ÍBV sér um að borga flug," sagði Óla Heiða. Óla Heiða sagði að störf ráðsins hefðu margt jákvætt í för með sér, þetta væri mikill peningalegur léttir fyrir foreldra, þar sem nú þyrftu foreldrar aðeins að borga eitt æfingagjald til félagsins, hvort sem krakkarnir þeirra væru bæði í handbolta og fótbolta. Krökkunum var síðan gefinn kostur á að kaupa safna eigin bolta og fengu þeir þá á kostnaðarverði. „ Margt annað væri hægt að tína til, en einna jákvæðast í þessu öllu saman er, að nú er samvinnan milli stelpu- og stráka flokkana orðin mun meiri en var, og það er góð þróun," sagði Óla Heiða að lokum.
Uppskeruhátíð yngri flokkanna
Starfið hjá yngri flokkum handboltans gekk vel í vetur og árangurinn hjá þeim var góður. Upp úr stendur glæsilegur árangur 6. flokks kvenna A liðs, sem lenti í 2. sæti í Íslandsmótinu eftir að hafa verið í 1. eða 2. sæti allan veturinn. B lið 6. flokks kvenna stóð sig einnig mjög vel þótt þær hafi ekki náð verðlaunasæti en þær komust í úrslitakeppnina og stóðu sig ágætlega. Þarna eru framtíðarstelpur, handboltans í Eyjum og nokkrar geta orðið framtíðar leikmenn í landsliðinu ef rétt er haldið á spilum. 4. flokkur karla stóð sig einnig vel og lenti í 5. sæti Íslandsmótsins og þar er á ferðinni hópur efnilegra stráka er eflaust eiga eftir að ná langt á komandi árum. 3. flokkar karla og kvenna stóðu sig einnig mjög vel og eru í hópi 8 bestu liða landsins og er þar margt um efnilegt handboltafólk sem getur gert góða hluti á komandi árum ef þau halda áhuganum og metnaði.
Eftirtalin hlutu verðlaun á uppskeruhátíð yngri flokkanna:
3. flokkur karla
Efnilegasti: Unnar Ólafsson.
Mestu framfarir: Davíð Egilsson.
Besti leikmaðurinn: Ríkharð Guðmundsson.
3. flokkur kvenna
Efnilegust: Hind Hannesdóttir.
Mestu framfarir: Anna Rós Hallgrímsdóttir
Besti leikmaðurinn: Guðbjörg Guðmannsdóttir
4. flokkur karla
Efnilegastur Sigurður Ari Stefánsson
Mestu framfarir: Kristinn Jónatansson
4. flokkur kvenna
Efnilegust: Lilja Arngrímsdóttir
Mestu framfarir: Dagný Hauksdóttir
5. flokkur karla
Besta ástundun: Kári Kristjánsson
Mestu framfarir: Ragnar Smári Ragnarsson
5. flokkur kvenna
Besta ástundun: Sara Sigurlásdóttir
Mestu framfarir: Aníta Ýr Eyþórsdóttir
6. flokkur karla eldri:
Besta ástundun: Baldvin Sigurbjörnsson
Mestu framfarir: Hilmar Björnsson
6. flokkur yngri:
Besta ástundun: Daði Ólafsson
Mestu framfarir: Bjarni Sighvatsson.
6. flokkur kvenna eldri:
Besta ástundun: Margrét Lára Viðarsdóttir
Mestu framfarir: Hanna Carla Jóhannsdóttir
6. flokkur kvenna yngri:
Besta ástundun: Sæunn Magnúsdóttir
Mestu framfarir: Ester Óskarsdóttir
Kvennaknattspyrnan útundan?
Á aðalfundi félagsins 21. apríl gagnrýndi Sólveig Adólfsdóttir knattspyrnudeild vegna kvennaknattspyrnunnar. Fannst henni lítil umfjöllun um hana. Sagðist hún hrædd um að ef ekki yrði fylgt eftir árangri þeirra og þeim ekki sýndur áhugi, þá myndi árangur þeirra detta niður. Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar svaraði henni og sagði þetta alfarið stjórn félagsins að kenna. Sagði stjórn félagsins ekki hafa veitt kvennaknattspyrnunni fjáröflun og hann hefði ítrekað borið þetta upp á stjórnarfundum félagsins en málið ekki hafa verið leyst. Sólveig vill skýrari svör frá knattspyrnuráði, hvort það styðji við bakið á meistaraflokki kvenna. Jóhannes svaraði og kvartaði yfir aðalstjórn og að það vanti fólk í knattspyrnuráð kvenna, stjórnin geri ekkert í þeim málum og óskaði eftir fólki í ráðið. Áður hafði Jóhannes á stjórnarfundi 18. mars óskað eftir auknum fjármunum frá aðalstjórn því of mikið fé færi í kvennaknattspyrnuna frá knattspyrnuráði karla.
Fylgiskjöl vantaði
Á aðalfundinum voru lagðir fram reikningar félagsins og samþykktir. Bókhald aðalstjórnar var í góðu lagi en samþykkja þurfti reikninga deildanna með fyrirvara, þar sem þeim var ábótavant, fylgiskjöl vantaði og skýringar ófullnægjandi.
Ný stjórn var kosin, hana skipa: Þór Vilhjálmsson, formaður. Með honum, Birgir Guðjónsson, varaformaður; Ingibjörg Sigurjónsdóttir, gjaldkeri; Jón Óskar Þórhallsson, ritari og Eyþór Harðarson. Seinna á árinu sagði Jón Óskar sig úr stjórninni og tók Ómar Garðarsson þá við starfi ritarans.
Um 50 manns mættu á aðalfundinn.
Konurnar í 5. sæti deildarbikarsins
Karlalið ÍBV í knattspyrnu féll út úr 8-liða úrslitum deildarbikarsins, þegar þeir mættu KR-ingum 2. maí. Leikið var á Tungubökkum í Mosfellsbæ, við sæmilegar aðstæður á grasi. KR-ingar byrjuðu betur og komust í 2-0, en Steingrímur Jóhannesson, breytti stöðunni í 2-2 á stuttum tíma, með góðum mörkum. KR skoraði síðan úr víti í seinni hálfleik, og lokatölur leiksins urðu, 3-2.
Kvennaliðið lék um 5. sætið í deildarbikarnum við Stjörnuna. og unnu þær nokkuð sannfærandi, 0-1. Það var hin unga og efnilega Bryndís Jóhannesdóttir, sem skoraði eina mark leiksins
Bjartsýnn á sumarið ef allir taka þátt með okkur
Árið 1998 var annað árið sem Bjarni Jóhannsson þjálfaði knattspyrnulið ÍBV. Miklar væntingar voru í bænum varðandi liðið að það nái að verja Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Bjarni var í viðtali við Fréttir skömmu fyrir Íslandsmótið. Þar er hann m.a. spurður hvernig sumarið leggist í hann: „Sumarið leggst ágætlega í mig, að vísu höfum við ekki verið að spila nægilega vel í undanförnum leikjum en þar kemur margt til. Það sem er fyrir mestu, er að við náum að stilla saman strengi okkar fyrir fyrsta leik og halda því út mótið."
Miklar breytingar voru á liðinu frá síðasta ári. Segist Bjarni mjög sáttur við hópinn. „Við misstum marga í atvinnumennsku eftir síðasta tímabil og einhvern veginn verður að fylla í þau göt, sem þessir menn skilja eftir sig. Það er náttúrlega mjög erfitt að starfa við þannig aðstæður að þurfa að móta nánast alveg nýtt lið á hverju ári, en svona er gangurinn í þessu."
Þá var Bjarni spurður hvernig undirbúningi liðsins yrði háttað fyrir fyrsta leik sumarsins? „Þar sem þetta hefur verið svolítið tætingslegt að undanförnu, hópurinn tvískiptur og síðan voru 3 úr hópnum að koma til landsins í síðustu viku, þá höfum við ákveðið að fara á laugardaginn á Hvolsvöll. Þar ætlum við að taka æfingu á laugardag og sunnudag og virkilega þjappa okkur saman fyrir átök sumarsins. Við gerðum þetta einnig í fyrra og heppnaðist sú ferð alveg frábærlega. Allir þurfa að taka þátt í þessu með okkur, bæði stjórn og stuðningsmenn liðsins. Ef allur þessi pakki nær að vinna saman, sem ein heild, þá er ég bjartsýnn á góðan árangur í sumar. Við verðum að vera varkárir í sumar, því allir vilja vinna meistarana."
Komnir og farnir
Íslandsmeistarar ÍBV misstu marga leikmenn úr sínum herbúðum frá árinu áður. Fyrstan skal nefna markaskorarann mikla, Tryggva Guðmundsson, sem fór til Tromsö í Noregi. Bjarnólfur Lárusson fór til Hibernian í Skotlandi. Guðni R. Helgason fór til Wattensheid í Þýskalandi. Sverrir Sverrisson gekk til liðs við Malmö í Svíþjóð. Bjöm Jakobsson fór í KR. Hermann Hreiðarsson fór til C.Palace á Englandi. Þeir sem komnir eru í staðinn; Ívar Ingimarsson úr Val, Steinar Guðgeirsson úr Fram, Kristinn Lárusson úr Stjörnunni, Kjartan Antonsson úr UBK, Jens Paeslack frá Þýskalandi og þeir Sindri Grétarsson og Kristján Georgsson frá Skallagrími.
Steingrímur skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins
ÍBV og Þróttur skildu jöfn, 3-3 í í opnunarleik Íslandsmótsins í knattspyrnu á Laugardalsvelli. Fyrsta mark Íslandsmótsins skoraði Steingrímur Jóhannesson. En þegar skammt var til leiksloka höfðu Þróttarar yfirhöndina, 3-2. Sigurvin Ólafsson jafnaði fyrir Eyjamenn á síðustu mínútu leiksins og verða að teljast heppnir að hafa náð einu stig út úr viðureigninni við nýliðana, var skrifað í Morgunblaðið að leik loknum. Í blaðinu er svo rætt við Bjarna Jóhannsson þjálfara ÍBV sem var ánægður með jafnteflið. „Það má segja að þetta glæsilega jöfnunarmark Sigurvins á lokamínútunni hafi bjargað andlitinu fyrir okkur. Þróttarar eiga heiður skilinn fyrir góða baráttu og frábæran sigurvilja. Þeir uppskáru eitt stig og áttu það skilið. Ég er mjög ánægður að vera búinn með þennan leik á móti Þrótti í Laugardalnum. Þeir eru með stemmningslið og slík lið er erfitt að sækja heim. Það verða ekki mörg lið sem fara með sigur héðan í sumar."
Þjóðverji í víking hjá ÍBV
Íslenskir knattspyrnumenn hafa í ríkum mæli á undanförnum árum farið í víking til Þýskalands og leikið með þarlendum liðum. Það er fátíðara að þýskir knattspyrnumenn komi til Íslands en það gerði Jens Paecslack, sem leikur nú með Íslandsmeisturum ÍBV. Jens Paecslack er 24 ára gamall sóknarmaður, stór og sterkur. Hann hefur vakið athygli með ÍBV í tveimur fyrstu umferðunum og skorað í þeim báðum. Eyjamenn eru ánægðir með framherjann og segjast hafa fengið þann leikmann sem þá vantaði. Hann leikur í sömu stöðu og Tryggvi Guðmundsson lék í fyrra - á vinstri kantinum. Jens segist ekki sjá eftir því að hafa komið til Eyja. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Jens: „Þennan stutta tíma sem ég hef verið hér kemur mér mest á óvart hvað fólkið er vinalegt. Þegar ég kom hingað fyrst fór Jóhannes Ólafsson formaður með mig í skoðunarferð um bæinn og sagði mér sögu Eyjanna. Þegar við fórum upp á Helgafell sagði hann mér að við stæðum á eldfjalli og það hafi gosið síðast fyrir 25 árum og gæti alveg eins gert það aftur, þá varð mér órótt. Hann sagðist ekki hafa viljað segja mér frá eldgosinu fyrr vegna þess að þá hefði ég aldrei komið! Strákarnir í liðinu hafa tekið mér vel og spyrja sífellt hvernig mér líði og hvort þeir geti gert eitthvað til að aðstoða mig. Þetta er eins og ein stór fjölskylda, ólíkt því sem ég hef vanist í Þýskalandi þar sem samkeppnin er mjög hörð og óvægin. Umhverfið er því mjög afslappandi og hægt að einbeita sér betur að því sem skiptir máli - að leika vel fyrir liðið. Eldstöðvarnar trufla mig ekki því fólkið er svo yndislegt."
Komnar og farnar
Nokkrar breytingar urðu á meistaraflokksliði kvenna. Komnar eru Karen Burke frá Everton og Hrefna H. Jóhannesdóttir og Olga Stefánsdóttir úr KR. Farnar eru Guðbjörg Guðmannsdóttir sem er hætt, Joan Nilson farin til Svíþjóðar. Þá fór Petra Fanney barneignarfríi. Seinna um sumarið yfirgaf Karen Burke Eyjarnar, ástæðuna sagði hún vera persónulega.
Ódýrt tap gegn Stjörnunni
Kvennalið ÍBV lék sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu gegn Stjörnunni úr Garðabæ. Margir biðu spenntir eftir fyrsta leik stelpnanna, en úrslitin urðu því miður ekki eins og allir vonuðust eftir. Eyjastúlkur töpuðu nokkuð stórt, 5-1, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 2-0. Íris Sæmundsdóttir skoraði eina mark ÍBV, með góðum skalla. Sigurlás Þorleifsson, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við Fréttir eftir leikinn, að tölurnar gæfu ekki rétta mynd af leiknum. „Við spiluðum ekki vel og vorum í talsverðum erfiðleikum í fyrri hálfleik. En við vorum alls ekki lakara liðið í þessum leik, heldur voru það þrjú ódýr mörk, sem gerðu gæfumuninn.“
Sigur og tap
Eyjakarlar hafa ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum við ÍBK á þeirra eigin heimavelli í gegnum tíðina, en þeir sneru heldur betur við blaðinu í 3. umferð Íslandsmótsins. Í Fréttum var sagt að leikurinn hafi farið rólega af stað og liðin skipst á að sækja. En framherjinn snöggi, Steingrímur Jóhannesson, kom ÍBV í vænlega stöðu snemma í fyrri hálfleik með tveimur mörkum. Fyrra markið skoraði hann eftir klaufaleg mistök varnarmanna Keflavíkurliðsins, en það seinna má segja að hann hafi skorað eftir sendingu frá sjálfum sér. Eyjamenn bættu síðan við þriðja markinu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en þar var að verki Jens Paeslack, sem skoraði með þrumuskoti, rétt fyrir utan vítateig, eftir að Steingrímur hafði lagt boltann út á hann. Staðan því 0-3 í hálfleik, Eyjamönnum í vil. Heimamenn reyndu að byrja seinni hálfleik af krafti og fengu oft á tíðum góð færi, en annaðhvort fór boltinn ekki nálægt markinu, eða að Gunnar markmaður sá við skotum Keflavíkur. Lítil spenna var í seinni hálfleik, þar sem ÍBV hafði nánast gert út um leikinn í fyrri hálfleik og fór svo að lokatölur leiksins urðu, 0-3.
Kannski vanmat
Það voru mikil vonbrigði og kannski vanmat þegar ÍBV mætti nýliðum ÍR í Landssímadeildinni, á annan í hvítasunnu. Leikið var í Mjóddinni, heimavelli ÍR.
ÍBV virtist vera komið á gott skrið, eftir mjög sannfærandi sigra í síðustu leikjum. En heimamenn komu mun ákveðnari til leiks og fór svo að þeir uppskáru sigur að lokum 1-0. Leikmenn ÍBV-liðsins fóru greinilega ekki með réttu hugarfari í þennan leik og alla baráttu virtist vanta í liðið.
Gerðu það sem þurfti
Morgunblaðið sagði í umsögn sinni um karlalið ÍBV og Fram í 4. umferð sem leikinn var á Valbjarnarvelli, að leikmenn ÍBV hafi gert það sem þurfti til að sigra leikinn 2-0. Þeir hafi hinsvegar verið mjög værukærir og tekið eina og eina rispu sem dugði þeim til sigurs gegn neðsta liðinu í deildinni.
Rúlluðu gestunum upp
2. flokkur karla hóf sína knattspyrnuvertíð með sigri á Grindavík, hér heima. Eyjastrákar léku mjög sannfærandi í fyrri hálfleik, og hreinlega rúlluðu gestunum upp. Boltinn gekk manna á milli og var leikur þeirra mikil skemmtun fyrir áhorfendur. Staðan í hálfleik var 3-0. Í seinni hálfleik missti ÍBV dampinn og Grindavík komst betur inn í leikinn. Gestirnir náðu að minnka muninn í 3-2, en lengra komust þeir ekki.
Bestu menn ÍBV í leiknum voru Páll Almarsson, sterkur varnarmaður, Hjalti Jónsson og Bjarni G. Viðarsson, sem vora duglegir á miðjunni og Óskar Jósúason, sem gerði mikinn usla í vörn gestanna. Mörk ÍBV skoruðu: Óskar 2 og Hjalti 1. Lið ÍBV var þannig skipað: Gunnar-Elías, Páll, Jón H.-Unnar, Davíð. Hjalti, Bjarni, Birgir-Óskar, Magnús (Gunnar H.)
2. flokkur kvenna
Fyrsti leikur 2. flokks kvenna var gegn KR hér í Eyjum. ÍBVstelpumar spiluðu vel í leiknum og áttu aldrei í vandræðum með gestina. ÍBV sigraði í leiknum með fjórum mörkum gegn einu og mörk Eyjastelpna í leiknum skoruðu þær; Bryndís Jóhannesdóttir tvö mörk, Lára D. Konráðsdóttir og Hrefna I. Jóhannesdóttir, eitt mark hvor.
3. flokkur kvenna
3. flokkur kvenna lék sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu gegn Val að Hlíðarenda og voru ÍBVstelpur ekki í vandræðum með heimamenn. Þær sigruðu í leiknum, 1-3. Mörk ÍBV skoruðu þær Kristjana, Elva og Erna, eitt mark hver.
4. flokkur kvenna
Fjórði flokkur kvenna lék sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu gegn liði Hauka í Hafnarfirði. A-liðið burstaði sinn leik, 0-8 og fór Margrét Lára á kostum í leiknum og skoraði 7 mörk, en Thelma skoraði það áttunda. B- liðið hafði einnig yfirburði í sínum leik, sigraði 0-5. Mörk ÍBV skoruðu þær; Erla Signý 2, Signý 2 og Anna Fríða 1.
2. flokkur karla
2. flokkur karla lék við Þrótt úr Reykjavík í sínum fyrsta útileik. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað, en Eyjapeyjar náðu engan veginn tökum á leiknum, þar sem öll orkan hjá þeim fór í óþarfa tæklingar og brot. Það voru margir ungir og efnilegir strákar í þessum flokki, sem þurftu að einbeita sér betur að því að spila góðan og taktískan fótbolta, því að getan er fyrir hendi. Þróttarar skoruðu fyrsta mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik, en Bjarni Geir Viðarsson jafnaði metin rétt fyrir hálfleik, með góðu skallamarki. Í seinni hálfleik var tveimur leikmönnum gestanna vikið af leikvelli, og eftirleikur ÍBV-liðsins var frekar auðveldur. Varnarjaxlinn, Páll Almarsson, tryggði sigur ÍBV með tveimur frábærum skallamörkum í seinni hálfleik, og lokatölur leiksins því, 3-1.
3. flokkur karla
Þriðji flokkur karla lék tvo leiki á Akureyri í lok maí. Þeir gerðu jafntefli við KA, 3-3, en töpuðu fyrir Þór, 5-0. Þá fengu þeir KR í heimsókn og léku við þá í Eyjum og unnu, 7-2. Á sunnudaginn fór ÍBV liðið til Reykjavíkur og lék gegn Þrótti, og endaði leikurinn 3-1, fyrir ÍBV. Mörk ÍBV í þeim leik, skoruðu þeir; Gunnar H, Ívar og Olgeir, eitt mark hver. Ekki finnast gögn um markaskorun í hinum leikjunum.
Slæmt gengi kvennaliðsins
ÍBV stúlkur töpuðu fyrir Val 5:2 í efstu deild, Meistaradeildinni. Morgunblaðið segir svo frá leiknum: „Það var samt grimmt lið ÍBV, sem byrjaði leikinn betur og það skilaði marki Bryndísar Jóhannesdóttur á 10. mínútu. En Eyjamenn voru ekki lengi í paradís því aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Bergþóra Laxdal fyrir Val þegar hún fylgdi eftir er Sigríður Kristmannsdóttir markvörður ÍBV varði aukaspyrnu Hjördísar Símonardóttur og boltinn datt fyrir markið. Laufey Ólafsdóttir kom Val í 2:1 skömmu síðar með þrumuskoti í slá og inn. Strax í upphafi síðari hálfleiks bætti Ása Ingibergsdóttir við marki fyrir Val en þá sögðu Eyjastúlkur hingað og ekki lengra. Sigríður Ása Friðriksdóttir skaut í þverslá Vals og skömmu síðar fór skot Fannýjar Yngvadóttir líka í slána en í þetta skiptið fór boltinn inn í markið og munurinn eitt mark, 3:2. En Valsstúlkur voru ekki búnar að segja sitt síðasta orð, Hjördís bætti við öðru marki sínu og rétt fyrir leikslok innsiglaði Bergþóra Laxdal sigur Vals.“ ÍBV liðið var án stiga og í neðsta sæti deildarinnar.
Steingrímur örfættur?
Eyjamenn tóku Valsmenn í bakaríið á Helgafellsvelli í Landssímadeildinni. Leikurinn endaði 6- 1 fyrir Eyjamenn og var sigurinn síst of mikill. Einkum var það í fyrri hálfleik sem okkar menn óðu í færum en þá náðu þeir aðeins að skora tvö mörk. Steingrímur Jóhannesson hefur svo sannarlega sprungið út í sumar og með þremur mörkum í þessum leik sýndi hann og sannaði að Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari var ekki að kaupa köttinn í sekknum með því að velja Steingrím í landsleikinn á móti Suður-Afríku.
„Ég er að byrja þetta mót vel og er að smella meirihlutanum af þessum átta mörkum með vinstri," sagði Steingrímur. „Ég held að ég sé að átta mig á því eftir öll þessi ár að ég er vinstri fótar maður," bætti hann við og hló. „Menn lögðu sig fram í leiknum, vildu bæta fyrir ÍR-leikinn og það tókst. Nú erum við í efsta sæti og ætlum okkur að halda því,“ sagði Steingrímur Jóhannesson í viðtali við Fréttir.
Flott pæjumót
Níunda Pæjumóts ÍBV verður lengi minnst fyrir veðurblíðunnar sem stúlkurnar nutu alla mótsdagana. Mótið hófst strax á fimmtudagsmorguninn þó mótssetningin væri ekki fyrr en um kvöldið. Þegar upp var staðið höfðu 1003 mörk verið skoruð af 295 leikmönnum í 328 leikjum. Vestmannaeyingar geta vel unað árangri sinna stúlkna í mótinu. Þær léku til úrslita í fjórum flokkum af átta og stóðu uppi sem Pæjumótsmeistarar í 4. flokki A og 6. flokki B. Þessi frábæri árangur staðfestir að ÍBV er að festa sig í sessi sem verðandi stórveldi í kvennaknattspyrnunni. Sól og blíða settu svo sannarlega mark sitt á Pæjumótið 1998. Skilaði það sér í betri knattspyrnu og öll framkvæmd mótsins varð svo miklu léttari og skemmtilegri og síðast en ekki síst fóru keppendur héðan með góðar minningar um sólbakaðar Vestmannaeyjar.
Keppendur voru hvorki fleiri né færri en 830, stelpur á aldrinum 6 til 15 ára. Alls tóku 15 félög þátt í mótinu með samtals 82 lið og var keppt í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta aldursflokki. Eftir því sem leið á mótið jókst spennan en þegar nær dró lokum riðlakeppninnar sást að hverju stefndi, ÍBV og Breiðablik voru að ná bestum árangri. Þegar upp var staðið áttu þessi stórveldi kvennaknattspyrnunnar sín hver fjögur liðin í úrslitum. Breiðablik hafði svo betur, sat uppi með þrjá Pæjumótstitla en ÍBV tvo sem verður að teljast mjög góður árangur. Varð ÍBV meistari í 4. flokki A og 6. flokki B.
Í 2. sæti varð ÍBV í 5. flokki A og 3. flokki.
Árangur hjá öðrum liðum ÍBV var eftirfarandi: ÍBV varð í 3. sæti í 3. flokki A, í 6. sæti og 11. sæti 4. flokki B, í 5. sæti í 5. flokki B, í 3. sæti í 6. flokki A og í 3. og 4. sæti í 6. flokki B. Úrslitaleikirnir fóru fram á Þórsvellinum sem skipt var niður í þrjá velli og um tíma voru lið frá ÍBV að spila á þeim öllum.
Margrét Lára ætlar að leika með ÍBV í framtíðinni
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV varð Pæjumótsmeistari í 4. flokki A, og jafnframt varð hún markahæst í sama flokki, en hún skoraði hvorki meira né minna en 14 mörk á mótinu. Margrét Lára varð 12 ára á árinu og var þetta fimmta Pæjumótið sem hún tók þátt í. En er þetta alltaf jafn skemmtilegt spurði blaðamaður Frétta? „Já, það finnst mér. Mótið í ár var sérstaklega skemmtilegt, vegna þess að veðrið var svo gott. Síðan var líka frábært að spila leikina og að standa uppi sem sigurvegarar," sagði Margrét Lára. Henni fannst einnig mjög gaman á kvöldvökunni, þar sem Greifarnir spiluðu og grillaðar voru pylsur og drukkið gos.
Uppáhaldsleikmaðurinn hennar er Ronaldo.
Hér heima er ÍBV númer eitt og Ívar Ingimarsson í miklu uppáhaldi.
Margrét Lára sagðist ætla að leika með meistaraflokki kvenna ÍBV í framtíðinni, en hún ætlar einnig að læra að verða sjúkraþjálfari og íþróttaþjálfari.
Ágætt gengi yngri flokkana
Fimmtudaginn 11. júní, spilaði 2. flokkur karla gegn Breiðabliki á útivelli, og endaði leikurinn þar meðjafntefli, 0-0. Þriðjudaginn 16. júní fengu þeir síðan lið Fjölnis í heimsókn, og var sá leikur í bikarkeppninni. ÍBV hafði mikla yfirburði í leiknum, og sigraði 7-0. Mörk ÍBV skoruðu: Bjarni Geir 3, Óskar 1, Birgir 1 og Unnar 1. Mánudaginn eftir léku þeir gegn Fylki hér heima og töpuðu, 0-2.
Fjórði flokkur karla spilaði í A-deild, og áttu þeir töluvert á brattann að sækja.. Mánudaginn 15. júní fengu þeir KR-inga í heimsókn og urðu lokatölur leiksins, 1-5. Eina mark ÍBV í leiknum skoraði Karl. Viku síðar komu ÍRingar í heimsókn, og unnu gestirnir leikinn, 2-4. Mörk ÍBV skoruðu: Friðrik og Andri.
Þriðji flokkur karla var að gera góða hluti, og í þessum flokki voru margir ungir og efnilegir strákar að koma upp. Þeir heldu til Siglufjarðar um miðjan júní og léku þar gegn KS. Eyjapeyjar höfðu mikla yfirburði í leiknum og unnu 1-7. Mörk ÍBV skoruðu: Gunnar Heiðar 2, Einar Hlöðver 1, Guðgeir 1, Bjarni 1, Atli 1 og Ívar 1.
Tveim dögum síðar mætti ÍBV síðan Keflavík í bikarnum og fóru með sigur af hólmi, 4-1. Mörk ÍBV skoruðu: Gunnar Heiðar 3 og Atli.
Annar flokkur kvenna var á miklum skriði. Þær fengu Hauka í heimsókn, og sigruðu örugglega, 5- 1. Mörk ÍBV skoruðu: Hrefna 2, Jóna Heiða 2 og Hjördís 1.
Þriðji flokkur kvenna fékk Breiðablik í heimsókn og voru gestirnir teknir í bakaríið. ÍBV vann 4-0 og mörkin skoruðu þær: Kristjana 2, Eva 1 og Silvía R. 1.
Misjafnt gengi
Kvennalið meistaraflokks ÍBV átti misjöfnu gengi að fagna í Meistaradeildinni. Þegar þær mættu ÍA voru þær enn án sigurs en ætluðu að selja sig dýrt gegn þeim Skagastúlkum. Fyrri hálfleikur var þokkalega leikinn og var greinilegt að gestirnir ætluðu sér að pakka í vörn og beita skyndisóknum. Það bar árangur, því á 17. mínútu leiksins komust Skagastúlkur yfir, og var staðan í hálfleik, 0-1. ÍBV stelpur komu grimmar til síðari hálfleiks en ekkert gekk að koma boltanum inn fyrir marklínu andstæðinganna. Það var ekki fyrr en á 80. mínútu að Fanný Yngvadóttir náði að jafna metin fyrir ÍBV, og héldu nú flestir að fyrsta stigið væri í höfn. En Eyjastúlkur voru ekki hættar og fimm mínútum síðar, skoraði Bryndís Jóhannesdóttir, sigurmark ÍBV í leiknum.
Nokkrum dögum síðar mættu þær svo KR-ingum sem spáð var Íslandsmeistaratitli. Svo fór að KR sigraði 4-0. Sigurlás Þorleifsson, þjálfari Eyjastúlkna sagði eftir leikinn að liðið sitt hefði átt sinn besta leik en lukkudísirnar ekki verið þeim hliðhollar.
Nýir búningar en það leikurinn sem skiptir máli
ÍBV hélt forystu sinni í Landssímadeildinni eftir 2- 0 sigur á Grindvíkingum í 7. umferð Landssímadeildarinnar. Leikurinn fór að mestu fram á vallarhelmingi Grindvíkinga sem greinilega sættu sig við að ná einu stigi í Eyjum. Fyrir vikið var leikurinn frekar leiðinlegur því sóknarmenn þurftu að sækja fram gegn 11 manna vörn gestanna. Einkum setti þetta svip á fyrri hálfleik þegar Eyjamenn höfðu stífa austanátt í bakið. Fyrra mark ÍBV kom um miðjan síðari hálfleik og eftir það opnaðist leikurinn og varð skemmtilegri. Gestirnir sóttu meira en sigur Eyjamanna var aldrei í hættu og þegar fimm mínútur yoru til leiksloka koma seinna mark ÍBV.
ÍBV mætti í nýjum búningum í leikinn gegn Grindavík, mjög skrautlegum; hvítum treyjum með rauðum og svörtum ermum. Ívar Bjarklind sagði í viðtali við Fréttir að þeir hefðu verið minntir á það fyrir leikinn. „ Jóhannes formaður sagði fyrir leikinn að það væru ekki búningarnir heldur leikurinn sem skipti máli. Þetta var greinilega það sem mannskapurinn þurfti. Mér fannst við spila vel og voru allir á fullu allan tímann. Boltinn gekk vel og þó þeir legðust í vörn héldum við áfram að spila, Þetta kom svo í lokin eins og gerðist oft í fyrra. Við náum að hamra á liðunum þangað til þau fara að gefa sig. Ég er því mjög ánægður með leikinn," sagði Ívar.
Fjölmennasta Shellmótið til þessa
Shellmótið, sem fram fór síðustu helgina í júní, var hið fjölmennasta til þessa. Yfir 1000 drengir úr 6. flokki, á aldrinum 8 -10 ára mættu til keppni í a, b, c og d flokkum. Annar eins fjöldi þjálfara, fararstjóra og foreldra mætti á svæðið, þannig að hér hafa verið um 2000 aðkomumanns vegna þessa móts. Mikill hluti gestanna, annarra en keppenda, gisti í Herjólfsdal og var yfir að líta svipað og á þjóðhátíð. Þetta mót fór frábærlega fram, þaulskipulagt frá A til Ö og ekki skemmdi fyrir að fádæma veðurblíða var alla mótsdagana. Sérstakt blað, Shellmótsfréttir, var gefið út á hverjum morgni og komu þar fram öll úrslit dagsins á undan, ásamt viðtölum og fleiru. Samtals voru skoruð 1660 mörk á mótinu, þar af flest hjá a-liðum eða 425, 409 hjá b-liðum, 399 hjá c-liðum og 278 hjá d-liðum. Sjálfsmörk voru 43.
Í Fréttum segir að miklar framfarir hafi orðið í knattspyrnunni hjá drengjunum í 6. flokki. Þarna hafi mátt sjá brasilíska sömbutakta, argentínskan tangó, danskan valstakt, þýska snerpu, ítalska lipurð og kerfisbundinn enskan bolta svo að fátt eitt sé nefnt Margir hraðir og skemmtilegir leikir sáust á mótinu og greinilegt að þjálfun og umgjörð margra liða á þessu móti er til fyrirmyndar.
„Ég er svekktur“
Topplið ÍBV sótti ekki gull í greipar Skagamanna í 7. umferð Íslandsmótsins. Töpuðu 1-0. „Það hefði verið gott að koma þeim langt frá okkur því það er gott að hafa eitthvert forskot upp á að hlaupa þegar kemur að svona auknu álagi," sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði Eyjamanna, eftir leikinn í viðtali í Morgunblaðinu. „Ég er svekktur yfir leiknum en það var eins og eitthvert andleysi hrjáði okkur. Við vorum alltof passasamir, ætluðum að fá þá framar á völlinn en þeir komu ekki þangað og það hentar okkur ekki að bíða - frekar að við eigum að sækja. Við spiluðum ágætlega fram að miðju en leikmenn virtust gera sér að góðu að halda aðeins boltanum. Það var lítið í gangi hjá þeim, markið var með ákveðnum heppnistimpli og þetta var eiginlega jafnteflisleikur með stöðubaráttu á miðjunni. Að öðru leyti var ekkert sem kom okkur á óvart í leik Akurnesinga“, sagði Hlynur.
Næsti leikur liðsins var svo við Leiftur á Ólafsfirði. Þar varð slæm brotlending. Fékk liðið hvorki fleiri né færri en 5 mörk á sig í þessum leik og náði ekki að skora nema eitt.
Nokkrum dögum síðar lék ÍBV liðið við Þór á Akureyri í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar. Þórsarar höfðu átt erfitt uppdráttar í 1. deildinni það sem af var sumri, en það var ekki að sjá í þessum leik því aðeins eitt mark skildi liðin að í leiknum sem lauk með 1 - 2 sigri ÍBV.
Fjölnir engin fyrirstaða
Svo virtist sem kvennalið ÍBV væri aðeins að rétta úr kútnum. Þær fengu Fjölni í heimsókn. Var leikið við mjög góðar aðstæður á Hásteinsvelli. ÍBV var í næst neðsta sæti fyrir þennan leik en Fjölnir var í því fimmta. 4-1 urðu leikslok fyrir ÍBV.
Íris Sæmundsdóttir og Olga Stefánsdóttir skoruðu 2 mörk hvor.
ÍBV lagði KR í tvígang
Það er alltaf stórleikur í Eyjum þegar ÍBV og KR eigast við, en þessi lið mættust í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í knattspyrnu 14. júlí. Liðin höfðu mæst í deildinni fimm dögum áður, og þá fóru Eyjamenn með sigur af hólmi, 3-1. Margir voru smeykir fyrir þessa viðureign, sérstaklega í ljósi þess að tölulegar staðreyndir voru ekki hliðhollar ÍBV fyrir þennan leik. En þegar sömu lið mætast tvisvar sinnum, með stuttu millibili, þá er mjög sjaldgæft að sama liðið vinni báða leikina. Þetta sálarstríð þurftu Eyjapeyjar að yfirstíga, og það gerðu þeir með miklum sóma.
Í Fréttum sagði að leikurinn hafi þróast svipað og í deildinni fimm dögum áður. „Eyjamenn héldu boltanum mun meira, en KR-ingar bökkuðu og reyndu að beita skyndisóknum. Bæði lið léku mjög varfærnislega og var ekki mikið um marktækifæri í fyrri hálfleik. Mun meiri kraftur var þó í ÍBV-liðinu, en heimamenn náðu ekki að skapa sér mörg hættuleg marktækifæri. Staðan í hálfleik var 0 - 0. Seinni hálfleikur var nánast spegilmynd af þeim fyrri, en KR-ingar voru heldur hættulegri í sínum sóknaraðgerðum. En hvorugu liðinu tókst að koma knettinum í netið að loknum venjulegum leiktíma, og því þurfti að grípa til framlengingar. Sigurmark leiksins kom þegar um 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik framlengingarinnar. Þá fékk Kristinn Hafliðason boltann fyrir utan vítateig KR og lét hann skot vaða að marki. Boltinn fór í einn varnarmanna KR, breytti um stefnu og í netið fór hann. KR-ingar reyndu að sækja að krafti eftir þetta mark, en vörn ÍBV var föst fyrir og engin virkileg hætta skapaðis. Eyjamenn léku ágætlega í leiknum, þó svo að þeir hafi ekki náð að skapa sér hættuleg marktækifæri. Gunnar var öruggur í markinu, vörnin var þétt og sókndjörf, miðjan dreifði spilinu vel og Steingrímur var duglegur frammi.“
Bikardraumur úti
Rétt fyrir Þjóðhátíð fékk 2. flokkur karla lið Keflavíkur í heimsókn. Þetta var leikur í bikarkeppni KSÍ, og því að duga eða drepast. Þarna mættust tvö af betri liðum landsins og var mikið í húfi í þessum leik. Jafnræði var með liðunum fyrri hluta leiksins, en staðan í hálfleik var, 2-1. Fyrirliði ÍBV, Bjarni G. Viðarsson, var rekinn útaf í fyrri hálfleik, vegna tveggja gulra spjalda, sem og einn Keflvíkingur. Magnús Elíasson, skoraði bæði mörk ÍBV í fyrri hálfleik, fyrst eftir gott spil og seinna markið gerði hann eftir stungusendingu. En í byrjun seinni hálfleiks gerðu Keflvíkingar tvö mörk með stuttu millibili, og náðu undirtökunum í leiknum. Fjórða mark gestanna kom um miðjan seinni hálfleikinn, og með því marki fengu Eyjamenn rothöggið. Lokatölur leiksins urðu því, 2-4, og ÍBV þar með úr leik í bikarnum. Magnús Elíasson, átti bestan leik Eyjapeyja, en aðrir geta mun betur.
Ágætt gengi yngri flokkanna
Gengi yngri flokka ÍBV þetta sumarið hefur verið ágætt. Félagið tók þátt í Íslandsmóti allra yngri flokkanna. Síðustu dagana fyrir Þjóðhátíðina fór 2. flokkur kvenna í Garðabæinn og lék við Stjörnuna. Þeim leik lyktaði með jafntefli 1-1. Mark ÍBV skoraði Hjördís Halldórsdóttir. Nokkrum dögum síðar stelpurnar FH í heimsókn, og endaði leikurinn með sigri ÍBV, 5- 0, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 2-0. Hanna, Hjördís Halldórs., Hrefna, Íris og Hjördís Jóhannesar skoruðu mörk ÍBV.
Þriðji flokkur karla fékk KA frá Akureyri í heimsókn. Eyjamenn áttu ekki í vandræðum með gestina að norðan, og sigruðu örugglega, 6-0. Gunnar Heiðar skoraði fjögur mörk í leiknum, en þeir Atli og Bjarni Rúnar eitt mark hvor.
Strákarnir í fjórða flokki hafa staðið sig framar vonum í sumar. Nú síðast lögðu þeir lið Leiknis úr Reykjavík, með fjórum mörkum gegn einu. Víðir Róbertsson gerði þrennu í leiknum og Andri Ólafsson skoraði eitt mark.
Fimmti flokkur karla var heldur betur á skotskónum þessa síðustu daga júlímánaðar þegar liðið spilaði við Leikni úr Reykjavík. Hjá a-liðunum endaði leikurinn, 5-1 og skoruðu þeir Björgvin 3 og Grétar 2 mörk. B-liðið burstaði sinn leik, 15-0, og meðal markaskorara voru þeir; Einar K, Garðar Ó, Bjarni, Ragnar, Steingrímur, Hersir, Sævald og Þorgils O.
Tóku Stjörnuna í nefið
Meistaraflokkur kvenna fékk Stjörnuna úr Garðabæ í 8 liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Hásteinsvelli, við mjög góðar aðstæður og lauk með 2 - 0 sigri ÍBV. Stjarnan kærði leikinn og taldi einn leikmann ÍBV ólöglegan. Svo fór að kæra Stjörnunnar var tekin gild og henni dæmdur sigur í leiknum.
Það var engu líkara en Eyjastelpur hefðu þetta á bak við eyrað þegar þær tóku Stjörnuna í nefið leik liðanna í Eyjum nokkrum dögum síðar. Úrslit leiksins urðu sex mörk gegn einu og þar með komst ÍBV upp að hlið Stjörnunnar með tíu stig. ÍBV-stelpurnar sýndu strax að þær ætluðu sér ekkert nema sigur og fyrsta markið kom strax á fjórðu mínútu þegar Bryndís Jóhannesdóttir skoraði glæsimark.
Íris Sæmundsdóttir bætti svo við öðru marki fyrir hálfleik. Fyrri hluti seinni hálfleiks var algjör einstefna að marki Stjörnunnar. Hjördís Halldórsdóttir fór fyrir Eyjastelpum og skoraði tvö fyrstu mörkin í hálfleiknum. Í Fréttum var sagt að eftir það hafi farið að bera á einbeitingarleysi hjá ÍBV og á 20. mínútu tókst Stjörnunni að skora sitt fyrsta og eina mark. „Þá tók Olga Stefánsdóttir málin í sínar hendur, skoraði tvö mörk og þar með varð niðurlæging Stjörnunnar algjör. Best í liði ÍBV var Anna Rentschler, stjórnaði vel á miðjunni og sótti óhikað í andstæðingana. Lið ÍBV: Petra 7 - Fanný 7, Erna 7, Sigríður Á 8, Kristín E. 6) - Elena 8, Anna 9, Hrefna 7 (Dögg L. 5), Hjördís 8 (Jóna Heiða 5)- Íris 8, Bryndís 7 (Olga 8).“
Steingrímur stefnir á markakóngstitilinn
Eyjamenn fengu spútniklið Þróttar úr Reykjavík, í Landssímadeildinni í síðasta heimaleik fyrir Þjóðhátíð. Leikið var í blíðskaparveðri á frábærum Hásteinsvelli. Leikurinn var frábær skemmtun og voru yfirburðir ÍBV þó nokkrir og lauk leiknum með sigri heimamanna 3-0 . Fyrirfram var búist við einvígi markahæstu manna deildarinnar, Steingríms Jóhannssonar hjá ÍBV og Tómasar Inga Tómassonar Eyjamannsins í liði Þróttara. Því einvígi lauk með yfirburðasigri Steingríms sem náði að skora þrennu í leiknum.
Þessir fyrrum félagar í ÍBV voru markahæstir í Landssímadeildinni fyrir þennan leik. Steingrímur hafði skorað 14 mörk í 11 leikjum og en markakóngsmetið var 18 mörk. Tómas Ingi hafði skorað níu mörk og til samans má geta þess að þeir félagar höfðu skorað 23 mörk. ÍBV hafði skorað 26 mörk það sem af var Landssímadeildinni en næstu lið ekki nema 18 mörk.
Liðsauki í handboltanum
Í Fréttum var sagt frá því að 2 nýir leikmenn væru þegar komnir í lið ÍBV fyrir næsta vetur og skuli þar fyrstan nefna, Valgarð Thoroddsen, hornamanninn snjalla, sem lék með Val á síðustu leiktíð. Valgarð hefur alla tíð leikið með Val, hann á að baki 11 landsleiki, ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Íslands. Valgarð mun vinna hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja, en það starf hafði mikið að segja um ákvörðun hans að koma til Eyja. Valgarð gerði eins árs samning við ÍBV, en miklar líkur eru á því að hann muni spila lengur með liðinu. Hinn nýi leikmaðurinn er Giedrius Cerniauskas, litháísk stórskytta. Hann er margreyndur landsliðsmaður, sem spilar horn með landsliði sínu, en er skytta hjá félagsliði. Hann varð markahæstur í litháísku deildinni á síðustu leiktíð. Giedrius hefur einnig leikið í Tékklandi. Þá hafa Eyjamenn einnig endursamið við Robertas Pauzuolis, sem lék með ÍBV síðasta tímabil, við góðan orðstír. Einn galli er þó á gjöf Njarðar, því að félagslið Robertas í Litháen, Granitaz Kaunes, hefur farið fram á stjarnfræðilegar upphæðir fyrir Robertas. Eyjamenn em tilbúnir að greiða sanngjarnt verð fyrir hann, en það mun skýrast í vikunni hverjar málalyktir verða. Þá hefur Eyjamaðurinn sterki, Daði Pálsson, ákveðið að leika með ÍBV á ný, en hann lék með Haukum á síðustu leiktíð.
Lofað utanlandsferð
Á stjórnarfundi aðalstjórnar 9. júlí segir að ákveðið sé að setja reglur um ferðir yngri flokka félagsins erlendis, enda geti annað orðið mjög kostnaðarsamt fyrir börnin og foreldrana. Á fundinum var ítrekuð fyrri ákvörðun stjórnarinnar að 4. flokkur karla og kvenna í handknattleik færi út næsta sumar og knattspyrnulið þessara flokka árið 2000. Í bókun segir hinsvegar: „Staðan er hinsvegar þannig að unglingaráð knattspyrnunnar hafði lofað 3. flokki næsta árs utanlandsferð og hefur þegar hafið söfnun. Var sú ákvörðun tekin í góðri trú að sögn Jóns Óskars Þórhallssonar, formanns unglingráðs knattspyrnunnar, þar sem ekki var vitað um áform handknattleiksdeildar fyrr en um seinan. Voru málin rædd og voru sumir fundarmenn á þeirri skoðun að setja unglingaráði knattspyrnunnar þann eina kost að draga loforð sitt til baka gagnvart drengjunum. Öðrum fundarmönnum fannst ótækt að drengirnir yrðu sviknir vegna þessa. Var ákveðið að senda bréf til unglingaráðanna þar sem þeim væri gerð grein fyrir fyrri ákvörðun aðalstjórnar félagsins, sem þó fannst ekki í fundargerðum hennar. (fundurinn gerir athugasemd við að ítrekaðar séu samþykktir frá fyrri stjórnum félagsins en finnast ekki fundargerðabókum þess.) Virtust fundarmenn þó á því að finna lausn á þessa sérstaka tilviki en var þó engum falið að fara í málið.
2-0 tap í fyrri leik Evrópukeppninnar
„Það er möguleiki í stöðunni, þó vissulega verði það erfitt og menn verða að leggja sig fullkomlega fram," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV í viðtali við Morgunblaðið, eftir 2:0 tap fyrir FK Obilic í Belgrad 22. júlí, en leikurinn sem var í forkeppni Evrópumóts félagsliða var fyrri viðureign félaganna. Sá síðari verður í Vestmannaeyjum 29. júlí. „Nú vitum við fyrir víst að hverju við göngum og nú er bara að nýta sér veikleika þeirra. Heimavöllurinn hefur reynst okkur vel og engin ástæða til annars en svo verði áfram. Þetta verður síðasti leikur fyrir þjóðhátíð og ef það verður þjóðhátíðarstemmning utan vallar jafnt sem innan getur allt gerst," sagði Bjarni ennfremur. Leikmenn Obilic voru mun meira með knöttinn í leiknum og Eyjamenn vörðust aftarlega og náðu sjaldan að sækja svo nokkur hætta skapaðist af uppi við mark heimamanna. Þá höfðu aðstæður mikið að segja en þrátt fyrir mikla veðurblíðu á sunnanverðu landinu síðustu vikur eru Eyjamenn ekki vanir því að leika knattspyrnu í 35 til 40 gráða hita og heiðskíru veðri líkt og var í Belgrad. Það dró mjög úr krafti leikmanna ÍBV, einkum er á leið. Heimamenn gerðu eitt mark í hvorum hálfleik og voru þau bæði í ódýrara lagi að mati Bjarna, en hann hafði lagt upp með að halda markalausu. „Með smáheppni hefði það tekist. Við áttum í vök að verjast allan leikinn og varnarleikurinn var nokkuð góður. Þeir fengu fá opin færi, að því leyti getum við verið ánægðir með varnarvinnuna. Sárast var að skora ekki því mörk á útivelli því þau vega svo þungt í keppninni, en við náðum aldrei að ógna verulega að marki þeirra og nýta veikleika þeirra í vörninni."
Úr leik í Evrópukeppninni
Seinni leikur Eyjamanna og júgóslavnesku meistararnir, FK Obilic fór fram á Hásteinsvelli 29. júlí. Það var því ljóst að IBV átti á brattann að sækja í þessum leik. Mikil eftirvænting og spenna ríkti meðal leikmanna og stuðningsmanna ÍBV fyrir þennan mikilvæga leik. Um 1600 manns lögðu leið sína á völlinn, til þess að leggja sitt af mörkum og koma Eyjamönnum áfram í Evrópukeppninni. Var sannkölluð Þjóðhátíðarstemmning á leiknum.
Fréttir segja frá því að Eyjamenn hafi komið einbeittir og grimmir til leiks. „Þeir náðu að þétta vörnina mjög vel og voru oft mjög nálægt því að opna vörn gestanna. Lið Obilic var mjög sterkt í þessum leik og sást því oft á tíðum skemmtilegur samleikur hjá báðum liðum. Mikil barátta var í byrjun leiks, en undir lok fyrri hálfleiks náðu Eyjamenn að komast yfir með marki, Kristins Hafliðasonar. Staðan var l-0 í leikhléi, og möguleikar ÍBV um að komast áfram, jukust til muna. Sama baráttan var í síðari hálfleik, og vantaði aðeins herslumuninn til að fá annað mark ÍBV í leiknum. En um miðjan síðari hálfleik var vonarneisti heimamanna slökktur, eftir mjög klaufalegt mark, sem verður að skrifast á Gunnar í markinu. Nú þurftu Eyjamenn að skora þrjú mörk til viðbótar til að komast áfram, og það var einfaldlega of mikið. Júgóslavamir bættu síðan við öðru marki undir lok leiksins, lokatölur því 1 - 2. Bestu menn ÍBV í leiknum voru þeir Ívar Bjarklind, Ívar Ingimarsson og Hlynur Stefánsson.
Ósætti á stjórnarfundi
Á stjórnarfundi aðalstjórnar 9. júlí var tekið fyrir bréf frá handknattleiksdeild. Þar var drepið á nokkra hnökra sem hafa verið í skipulagningu félagsins á meðan það slítur barnsskónum eins og sagði í bréfinu. Fannst handknattleiksdeild að deildin hefði borið skarðan hlut frá borði. Var málinu frestað til stjórnarfundar 23. júlí. Á þeim fundi kom fram að Þorsteinn Gunnarsson frkvstj. Knattspyrnudeildar og Þór Vilhjálmsson, formaður félagsins hafi fundað með stjórn handknattleiksdeildar. Þeir samþykktu að deildin fengi greidda eina milljón króna, sem einskonar sáttagreiðslu. Jón Óskar Þórhallsson greiddi atkvæði gegn tillögunni og mótmælti því að greiddir yrðu út slíkir fjármunir án þess að lyft væri hendi í þágu félagsins. Voru reyndar fleiri á því máli en greiddu þó atkvæði með tillögunni í þágu friðar. Undraðist Jón Óskar að ekki væri sýnt fram á fjárhagslegt tjón skv. bréfinu áður en upphæðin væri ákveðin. Kallaði hann greiðsluna brandara. Féllu þessi viðbrögð í grýttan jarðveg, enda taldi formaðurinn sig hafa verið að leita sátta.
Vel heppnuð þjóðhátíð, þrátt fyrir misjafnt veður.
Þjóðhátíðin 1998 var sett með formlegum hætti 31. júlí. Föstu liðirnir á þjóðhátíð, brennan á föstudagskvöldinu, flugeldasýningin á laugardagskvöldinu og brekkusöngurinn voru á sínum stað á þjóðhátíðinni. Brennan var af hefðbundinni stærð og naut sín ágætlega í góðu veðri. Ekki blés eins byrlega á laugardagskvöldið. Rigning og þoka. En þegar flugeldasýningin átti að byrja var eins og rofaði til og naut flugeldasýningin sín mjög vel.
Að venju stjórnaði Árni Johnsen brekkusöngnum og sagði hann brekkukórinn þann stærsta til þessa. Stuðmenn komu enn eina ferðina og stálu senunni. Einkum voru þeir öflugir síðustu nóttina en þá linntu þeir ekki látum fyrr en klukkan að ganga átta á mánudagsmorguninn.
Talið var að um 7500 gestir hefðu verið á þessari þjóðhátíð. Veðrið spilar alltaf stórt hlutverk á þjóðhátíð. Að þessu sinni voru ýmsar útgáfur af því. Á föstudeginum var gott veður og Herjólfsdalur skartaði sínu fegursta og hélst svo fram að hádegi á laugardag. Þá tók að rigna og þoka lagðist yfir Eyjarnar, nema meðan flugeldasýningin stóð yfir. Sunnudagurinn var blautur með þoku. Það var mál manna að þjóðhátíðin hefði heppnast ágætlega og lögreglan lýsti yfir nokkurri ánægju með gesti Þjóðhátíðar, sem langflestir voru til fyrirmyndar, þó séu alltaf svartir sauðir sem ekki kunna fótum sínum forráð.
Miðaverð í Dalinn var kr. 7.000 en kr. 6.500 í forsölu. Hústjöld í Dalnum voru 289.
Þjóðhátíðarlagið 1998 var eftir Geirmund Valtýsson og textinn eftir Guðjón Weihe og Geirmund og heitir; Við erum öll á Þjóðhátíð.
Eyjamenn í bikarúrslit 3ja árið í röð
„Það er alltaf sagt að við komum þungir til leiks eftir þjóðhátíð en við afsönnuðum það núna," sagði Ívar Bjarklind, markahrókur ÍBV í viðtali við Fréttir eftir bikarleikinn gegn Breiðabliki í undanúrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn var á Hásteinsvelli og lauk með 2- 0 sigri ÍBV og skoraði Ívar bæði mörkin. Hann var færður fram í seinni hálfleik og gjörbreytti með því leik liðsins. „Mér finnst alltaf gaman að spila frammi eins og ég gerði hjá KA," bætti Ívar við.
Sigla hraðbyri
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu var á mikilli siglingu í Landssímadeildinni og margir á þeirri skoðun að þeir verji Íslandsmeistaratitlinn. Liðið mætti Keflvíkingum á Hásteinsvelli og vann 3-1. Keflvíkingar unnu ÍBV í meistarakeppninni í vor, 3 - 1, en Eyjamenn náðu að sigra ÍBK fyrr í sumar nokkuð sannfærandi, 0-3. Þessi leikur sem var í 12. umferð var sannkallaður 6 stiga leikur, því með sigri gestanna hefðu þeir náð að blanda sér í toppbaráttuna ásamt ÍBV, ÍA, KR og Leiftri.
Því næst fengu ÍBV strákarnir ÍR í heimsókn. Eyjamenn áttu heldur betur harma að hefna gegn gestunum úr Breiðholtinu því í fyrri leik liðanna sigruðu ÍR-ingar 1-0. En að þessu sinni fengu Breiðhyltingar að kynnast því hvar Davíð kaupir ölið, því ÍBV gjörsigraðu þá, 4-1.
Þvílík tímasóun, skrifaði íþróttafréttaritari Frétta um leik leik Vals og ÍBV sem leikinn var á Valsvelli í blíðskaparveðri og var leiknum sjónvarpað beint á SÝN. Stuðningsmannahópur ÍBV á fastalandinu fjölmennti á leikinn og fólk hér í Vestmannaeyjum sat fast við sjónvarpsskjáinn. En engin rós er án þyrna. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli og sýndu Eyjamenn sinn allra lélegasta leik þetta sumarið.
Með samtakamætti hefst þetta allt
Starfsemi ÍBV íþróttafélags er ótrúlega margþætt og mikil. Án fjölmargra stuðningsmanna væri félagið ekki jafn öflugt og raun ber vitni. Það er því oft ástæða til að þakka fyrir það mikla starf. Eftir þjóðhátíð birtist í Eyjablöðunum þakkartilkynning frá leikmönnum og knattspyrnuráði:
„Óhætt er að segja að Íslandsmeistarar ÍBV karla hafi haft í nógu að snúast undanfarnar vikur. Hver stórviðburðurinn hefur rekið annan og framundan er bikarúrslitaleikur sunnudaginn 30. ágúst þar sem ÍBV verður þriðja árið í röð að berjast í þessum stærsta einstaka leik ársins. Það er stórafrek út af fyrir sig að komast í bikarúrslitaleik, því megum við ekki gleyma. Að undanförnu hefur stjórn knattspyrnudeildar þurft að leita til ýmissa aðila með aðstoð vegna ýmissa verkefna. Þar má nefna uppákomurnar í Skvísusundi fyrir bikarleikinn gegn KR og Evrópuleikinn gegn FK Obilic, sjónvarpsútsendingar vegna Evrópuleiksins, öryggisgæslu í kringum þann leik, Húkkaraballið, þjóðhátíðina o.fl. að ógleymdum leikjunum sjálfum. Stjórn knattspyrnudeildar ÍBV, framkvæmdastjóri og leikmenn liðsins vilja koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem hafa aðstoðað að undanförnu. Aðalstjórn Íþróttabandalagsins með formanninn Ásmund Friðriksson í fararbroddi hefur reynst okkur mjög vel. Herjólfur, Vestmannaeyjabær, Hótel Þórshamar, Hótel Bræðraborg, Íslandsflug, Einar Hallgrímsson rafvirki, Flugfélag Íslands, Hertoginn, Lanterna og Sigga í Skuld fá bestu þakkir fyrir stuðninginn í tengslum við Evrópuleikinn. Guðmundur Þ. B. Ólafsson, Guðjón bæjarstjóri og IV reyndust okkur sérlega vel. Sérstakar þakkir fá sjómennirnir 25 sem sáu um dyravörsluna á Húkkaraballinu, þið eruð frábærir og sannir stuðningsmenn. Þið eigið inni stóran greiða hjá okkur. Á Húkkaraballinu stóð Ásmundur formaður einnig fyrir sínu. Á þjóðhátíðinni var einvalalið sem aðstoðaði okkur í sölubúðunum með Sigurberg Ármannsson, Magnús Sigurðsson og Svein Þorsteinsson og fjölskyldu í fararbroddi. Stjórn ÍBV- íþróttafélags er sérstaklega þakkað fyrir sitt framlag við nýju búningsklefana við Týsheimilið sem hafa gjörbylt aðstöðu leikmanna ÍBV til hins betra. Stuðningsmannaklúbbur ÍBV í Eyjum er á mikilli uppleið og hefur skapað frábæra stemmningu í Skvísusundi. Ástar þakkir. Og stuðningsmenn ÍBV sem hafa mætt svo frábærlega vel á bikarleikina, Evrópuleikinn og svo auðvitað deildarleikina; kærar þakkir fyrir frábæran stuðning og góða stemmningu. Fjörið er rétt að byrja og við treystum á að þið mætið sem flest á bikarúrslitaleikinn 30. ágúst nk. á Laugardalsvelli. Sjálfsagt gleymum við einhverjum en það er alls ekki viljandi. Hafið öll bestu þakkir fyrir. Með samtakamætti hefst þetta allt. Vonandi nær ÍBV-liðið að standa undir öllu þessu en með öflugum stuðningi stuðningsmanna og fyrirtækja er allt hægt.
Áfram ÍBV - Stjórn knattspyrnudeildar ÍBV - Leikmenn ÍBV
Sigrar og tap
Eyjastúlkur léku gegn efsta liði Vals í meistaradeild kvenna í knattspyrnu í lok ágúst. Stelpurnar fóru fullar sjálfs trausts í leikinn, þar sem þær höfðu verið að spila glimrandi bolta í undanförnum leikjum. Allt stefndi í sigur Eyjastúlkna en á síðustu mínútunni fengu þær á sig tvö mörk og töpuðu 2-1 .
Næstu helgi á eftir var haldið á Skipaskaga. ÍBV stúlkur höfðu fyrir þennan leik, aldrei farið með sigur af hólmi frá Skaganum, en þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að halda sér nálægt toppnum. Heimamenn skoruðu fyrsta mark leiksins, en Eyjastelpur létu það ekkert á sig fá og svöruðu með þremur mörkum fyrir leikhlé. ÍA komst síðan í 2-3 en ÍBV ætlaði ekki að láta þau þrjú stig sem voru í boði, af hendi og bættu stelpurnar við fjórða markinu. Heimamenn áttu síðasta orðið í leiknum og urðu lokatölur leiksins því, 3-4.
Næstur var heimaleikur gegn Haukum. Leikið var á þungum Hásteinsvelli og áttu bæði lið erfitt uppdráttar í leiknum. Leikurinn var ekki mjög skemmtilegur á að horfa enda var veðrið og völlurinn ekki uppá það besta. Haukastelpur vörðust mjög vel nánast engin færi sköpuðust í fyrri hálfleik, fyrir utan eitt sláarskot sem Haukarnir áttu. Seinni hálfleikur byrjaði aftur á móti fjörlega og á fyrstu mínútunum komst Bryndís Jóhannesdóttir ein innfyrir vörn gestanna, lék á markmanninn en skotið var of laust og bjargað var á marklínu. ÍBV sótti mun meira og Elena átti sláarskot þegar líða fór á leikinn. Allt virtist stefna í steindautt jafntefli, þegar Íris Sæmundsdóttir skoraði, á 85 mínútu, af stuttu færi eftir skot frá Olgu Stefánsdóttur. Aðeins tveimur mínútum seinna skoraði Bryndís Jóhannesdóttir annað mark ÍBV eftir skot af markteig. Það var síðan gamla kempan, Erna Þorleifsdóttir, sem skoraði þriðja og síðasta markið á 90 mínútu. Glæsilegt mark. Lokatölur leiksins urðu því 3-0 og nokkuð sanngjarn sigur þó svo að mörkin hafi öll komið á síðustu 5 mínútum leiksins. Eyjastelpur sýndu mikinn styrk í þessum leik, með því að halda áfram allt til enda án þess að hætta að sækja.
17 ár bið eftir bikarnum á enda
Lið ÍBV tryggði sér bikarmeistaratitilinn 30. ágúst þegar það sigraði Leiftur frá Ólafsfirði 2 - 0 í úrslitaleik keppninnar á Laugardalsvelli. Fögnuður Eyjamanna, bæði á leikvellinum og í stúkunni, var mikill í leikslok og margir stundu: Loksins, loksins. ÍBV lék nú til úrslita þriðja árið í röð en tvö síðustu árin hafa Eyjamenn orðið að sætta sig við tap. Það var því mikil gleði sem ríkti þegar flautað var til leiksloka, fólk féllst í faðma, hrópaði, klappaði og söng og mátti sjá tár blika á hvarmi hjá mörgum. Stuðningsmenn ÍBV byrjuðu upphitun fyrir leikinn á laugardagskvöld með stórdansleik á Broadway en síðan var haldið áfram að morgni sunnudags í Framheimilinu.
Stemmningin á leiknum var frábær og náði hámarki í leikslok þegar Hlynur fyrirliði hóf bikarinn á loft, enda ætlaði fagnaðarlátunum á Laugardalsvelli aldrei að ljúka.
ÍBV liðið sigldi til Eyja með Herjólfi eftir leikinn, með bikarinn í farteskinu, og var tekið á móti liðinu á glæsilegan hátt er það kom til hafnar í Eyjum. Þegar fánum prýddur Herjólfur sigldi inn á höfnina með leikmennina og bikarinn á brúarvængnum, var flugeldasýning á hafnargarðinum og í Friðarhöfn og lúðrar voru þeyttir. Mikill mannfjöldi var á Básaskersbryggjunni, bryggjan nánast full af fólki og bílum, og gífurleg gleði ríkjandi.
Forseti bæjarstjórnar óskaði liðinu til hamingju og leikmenn, þjálfarar og stjórn knattspyrnudeildar fengu afhent blóm frá bæjarstjórn og stjórn ÍBV um leið og mannfjöldinn hyllti þá ákaft.
Eftir móttökuna á Básaskersbryggju var boðið til fagnaðarhátíðar í veitingatjaldinu í Herjólfsdal þar sem fagnað var fram eftir nóttu.
Kaldur og rólegur Steingrímur
Fréttir gerðu þessum bikarleik góð skil með mikilli umfjöllun og viðtölum. Það efni sem hér er birt er tekið úr Fréttum:
Kristinn Jakobsson, dómari, flautaði til leiks og þar með var baráttan hafin inni á vellinum. Áhorfendur sem þanið höfðu raddböndin á annan klukkutíma í stúkunni fyrir leik gáfu ekkert eftir og bættu við snúningi þegar leikurinn hófst. Það fór þungur kliður um stúkuna þegar Leiftursmenn komust í opið færi strax á fyrstu mínútunum en Gunnar markvörður bjargaði glæsilega og þá létu Eyjamenn vel í sér heyra. Áfram ÍBV glumdi úr stúkunni. Leiftursmenn virkuðu ákveðnari á fyrstu mínútunum og það mátti greina óróleika hjá mörgum áhorfendum en ekkert var gefið eftir í hvatningunni. Eyjamenn náðu fljótlega tökum á leiknum og fóru að leika við hvurn sinn fingur. Leikurinn var opinn, hraður og skemmtilegur og áhorfendur kunnu vel að meta það. Sóknir ÍBV þyngdust smá saman og hættuleg færi sköpuðust svo oft var risið á fætur í stúkunni og á víxl heyrðust feginsstunur, þegar eitthvað gekk upp, eða vein yfir því þegar Eyjamenn kláruðu ekki færin sem fengust. Og á milli var kallað: Áfram ÍBV eða þá að ÍBV lagið var sungið.
Þegar Leiftursmaðurinn Páll Guðmundsson varði boltann með höndum á marklínu og Kristinn dómari dæmdi vítaspyrnu á Leiftur og gaf Páli rauða spjaldið var mikið fagnað í stúkunni. Steingrímur Jóhannesson gekk kaldur og rólegur að boltanum og stillti upp á vítapunktinn. Grafarþögn ríkti í stúkunni og margir hugsuðu eflaust til vítaspyrnunnar sem fór forgörðum á móti Keflavík í fyrra. Sumir földu andlitið í höndum sér og þorðu vart að horfa á spyrnuna og spenna var í hverju andliti. Taugarnar voru þandar. Steingrímur var öryggið uppmálað og renndi knettinum örugglega í netið, 1 - 0 fyrir ÍBV, og það brjálaðist allt í stúkunni. Það var klappað, dansað, sungið faðmað og kysst. Steingrímur hljóp að stúkunni og steytti hnefa framan í áhorfendur til merkis um að nú yrði kné látið fylgja kviði. „Bikarinn til Eyja, bikarinn til Eyja," sungu stuðningsmenn ÍBV og greinilegt var að mikil spenna losnaði við markið.
Þegar flautað var til leikhlés og leikmenn ÍBV gengu til búningsklefa stóðu áhorfendur í stúkunni upp og fögnuðu þeim vel. Fólk streymdi úr stúkunni til að létta á sér eða ná í kaffisopann.
Við „skálarnir" voru spekingslegar umræður um fyrri hálfleikinn og menn skiptust á skoðunum. Það var létt yfir Eyjamönnum og þeir farnir að eygja von um að nú hefðist þetta ef til vill loksins.
Hjalti tók af skarið
Seinni hálfleikur var ekki síðri en sá fyrri og ÍBV stjórnaði leiknum. Strákarnir léku eins og þeir sem valdið hafa og sköpuðu sér hvert færið á fætur öðru en inn vildi tuðran ekki. Það var því oft staðið upp og stunið í stúkunni. Það var ekki fyrr en Hjalti Jóhannesson tók af skarið, renndi sér í gegnum vörn Leifturs og lagði boltann í netið, með hægri fæti, og tuðran lá loks í marki Leiftursmanna. Það hreinlega truflaðist allt í stúkunni og leikmennirnir á vellinum fögnuðu ofsalega. Gunnar markvörður óð fram á miðju og veltist þar um í faðmlögum en aðrir leikmenn hrúguðust á Hjalta úti við hliðarlínu. "Bikarinn til Eyja, bikarinn til Eyja," glumdi nú í stúkunni milli þess sem ÍBV lagið var sungið. Stemmningin var ótrúleg.
„Hér er ég, Gunni Sig."
Mínúturnar tifuðu og Leiftursmenn fengu nokkur tækifæri en Gunnar Sigurðsson í markinu hirti þá bolta sem á rammann komu, oft með glæsibrag. Eftir eina frábæra markvörslu snéri Gunnar sér til stúkunnar og lét vita með látbragði sínu að hann væri þarna til að halda hreinu. „Hér er ég, Gunni Sig," gaf hann til kynna og sjálfstraustið geislaði af honum.
Loksins, loksins, var 17 ára bið á enda
Eftir því sem leiktíminn styttist efldust áhorfendur í stúkunni og þegar bikarinn var kominn á hliðarlínuna nokkrum mínútum fyrir leikslok var fjörið orðið ólýsanlegt. Þegar Kristinn dómari flautaði til leiksloka ætlaði allt um koll að keyra. Leikmenn, þjálfarar, knattspyrnudeildarmenn og áhorfendur fögnuðu ofsalega. Loksins, loksins var 17 ára bið á enda.
Eftir að búið var að fagna vel og lengi voru verðlaun afhent. Leiftursmenn fengu silfrið og tóku stuðningsmenn ÍBV í stúkunni þá undir með stuðningsmönnum Leifturs og hvöttu þá um leið og þeim var þakkað fyrir leikinn. Liðsmenn ÍBV stigu síðan á pallinn og fengu gullpeninga sína en síðan afhenti Davíð Oddsson, Hlyni fyrirliða bikarinn góða og það var mögnuð stund þegar hann hóf bikarinn á loft. Markmiðinu var náð og fögnuðurinn og ánægjan voru ómæld enda féllu örugglega gleðitár hjá mörgum á þessari stund. Fagnaðarlátum ætlaði síðan aldrei að linna enda engin ástæða til annars en að njóta stundarinnar í botn.
Það voru glaðir og sælir stuðningsmenn og leikmenn ÍBV sem gengu léttir á spori af velli eftir að hafa fagnað vel og lengi.
Þú þekkir þá alla Davíð, er það ekki
Þegar Davíð Oddsson, forsætisráðherra, heilsaði upp á leikmenn fyrir leikinn kom hann fyrst að Hlyn fyrirliða og heilsaði upp á hann. Síðan er það venjan að fyrirliðinn gangi með heiðursgestinum og kynni leikmennina fyrir honum. Hlynur var meira með hugann við leikinn en formsatriðin fyrir leik og náði ekki að fylgja ráðherranum eftir sem var að flýta sér í skjól undan rigningunni. Hann kveikti svo á perunni þegar Davíð var hálfnaður að heilsa leikmönnunum og fór þá til hans og sagði. „Það þarf ekkert að kynna þá sérstaklega fyrir þér. Þú þekkir þá alla, er það ekki? Þetta eru sömu strákar og undanfarin tvö ár."
Þarf ekki endilega að vera stúkumaður
Á bikarleiknum vakti það athygli hversu lögregla gekk vasklega fram í því að hafa gætur á stuðningsmönnum liðanna sem voru við stemmningseflingu í stúkunni. Fylking lögreglumanna mændi í stúkuna og hafði gætur á því hvort stúkumenn væru að dreypa á ölföngum. Ef einhver fráneygur lögreglumaður kom auga á slíkt var hann í talstöðvarsambandi við "collega" sína í stúkunni, sem umsvifalaust þefuðu upp meintan öldrykkjumann og tóku af honum ölið. Var hinn félagslegi órói í stúkunni talinn stafa af umferð lögreglumanna í ölþefi, en ekki vegna spennu og upplifunar á leiknum. „Það er ástæða til að benda lögreglunni á að þótt að maður sitji í stúku á fótboltaleik þarf maður ekki nauðsynlega að vera stúkumaður þ.e. meðlimur í bindindisstúku.“ Sagði einn vallargestanna.
Margir lögðu hönd á plóg
Undirbúningur stuðningsmannafélaga ÍBV í Eyjum og Reykjavík var að vanda mikill og skapaði gríðarlega skemmtilega umgjörð um leikinn. Segja má að upphitun fyrir leikinn hafi byrjað í Eyjum á fimmtudagkvöld þegar stuðningsmannafélagið efndi til Bikarkvölds á Fjörunni þar sem stuðningsmenn komu saman ásamt þjálfara og fyrirliða ÍBV. Sátu þeir fyrir svörum og farið var yfir sumarið og leikinn framundan.
Stuðningsmannafélagið í Reykjavík var með sölubás í Kringlunni á föstudag og laugardag þar sem ýmiss ÍBV varningur var seldur. Búningar, húfur, treflar og jafnvel nærföt með ÍBV merki á runnu út og það var greinilegur hugur í stuðningsmönnum ÍBV. Á laugardagskvöld var ÍBV kvöld á Broadway þar sem fyrsta alvöru upphitunin fyrir bikarleikinn fór fram. Að loknum kvöldverði var sungið og trallað við undirleik Eymannafélagsins. Dregnir voru upp ýmsir baráttusöngvar til ÍBV og þeir æfðir þar til hljómsveitin Skítamórall tók við og leiddi stuðið fram á nótt. Talið er að á þriðja þúsund manns hafi komið á ÍBV kvöldið á Broadway og það glumdi vel í þegar Ragnar Sigurjónsson, stjórnandi ÍBV kórsins í Reykjavík, steig á svið og lét gesti á Broadway æfa nýjasta stuðningshrópið: í - í - ÍBV.
Síðasta upphitun fyrir leik hófst í Framheimilinu við Safamýri fyrir hádegi á sunnudag. Þar komu stuðningsmenn ÍBV saman og fínstilltu strengina fyrir leikinn. Í Framheimilinu var boðið upp á reyktan lunda, öl og fleira góðgæti og stuðningslagið; Komum fagnandi, glumdi í hljóðkerfinu. Hljómsveitin Skítamórall flutti síðan nokkur lög áður en gengið var í skrúðgöngu við undirleik Lúðrasveitar Vestmannaeyja frá Framheimilinu á Laugardalsvöll. Ragnar Sigurjónsson stjórnaði æfingum á hrópum og köllum fyrir leik klæddur fagurbleikum blúndukjól og stemmningin magnaðist eftir því sem nær leik leið.
Umgjörð um leikinn og undirbúning hans var frábær og þeim sem að stóðu til mikils sóma. Undirbúningur þessi er enn ein rós í hnappagat stuðningsmannafélags ÍBV sem hefur í undirbúningi úrslitaleikja undanfarinna tveggja ára alltaf náð að skapa frábæra stemmningu og enn tókst þeim að toppa það sem áður var gert. Til hamingju stuðningsmenn ÍBV.
2. Íslandsmeistaratitlar í yngri flokkunum
Yngri flokkar ÍBV í knattspyrnu létu heldur betur að sér kveða í sumar. Þeir náðu flestir frábærum árangri, reyndar þeim langbesta í mörg herrans ár. Þetta er virkilega jákvæð þróun og sýnir svo ekki verður um villst að sameining flokkanna er heldur betur að skila sér. Árangur sumarsins eru tveir Íslandsmeistaratitlar, allir stúlknaflokkar ÍBV komust í úrslitakeppni og allir drengjaflokkarnir stóðu sig framar vonum.
Í yngri flokkunum er keppt í Íslandsmóti í 2., 3., 4. og 5. flokki og reyndar í 6. flokki drengja. 2. flokkur ÍBV karla undir stjórn Kristins R. Jónssonar vann B-riðilinn með miklu öryggi. Liðið var með 28 stig, vann 9 leiki, gerði 1 jafntefli og tapaði 2. Þama eru margir efnilegir strákar en helmingur byrjunarliðsins gengur upp í meistaraflokk.
3. flokkur drengja undir stjórn Björns Elíassonar lenti í 2. sæti í B-riðli og komst því upp í A-riðil. ÍBV var með 30 stig, 12 stigum á eftir Þór Ak. sem var með fullt hús stiga.
4. flokkur drengja undir stjórn Kristins R. Jónssonar stóð sig vonum framar. Liðið lék í A-riðli og var búist við mjög erfiðum róðri, jafnvel að liðið myndi falla. En strákarnir stóðu sig mjög vel, lentu í 7. sæti af 11 liðum, unnu 4 leiki en töpuðu 6.
5. flokkur drengja undir stjórn Sigurlásar Þorleifssonar stóð sig með prýði. Þar er keppt í A og B og gildir sameiginlegur árangur beggja liða þar sem úrslit A vega þyngra.
5. flokkur lék í B-riðli og vantaði hársbreidd til að komast upp í A-riðil. Liðið komst hins vegar í úrslitakeppnina og stóð sig þar með prýði þótt ekki kæmist það í úrslitaleik.
6. flokkur drengja undir stjórn Jón Ólafs Daníelssonar varð í 2. sæti í Pollamótinu og komst ekki í úrslit. Flokknum óx ásmegin eftir því sem leið á sumarið.
2. flokkur Helgina 28. - 30. ágúst léku stelpurnar í 2. flokki í úrslitakeppninni, sem fram fór á Akranesi. Þar spiluðu þær tvo leiki og unnu þá með miklum yfirburðum sem tryggði þeim sæti í úrslitaleiknum. Þar mættu þær Val í æsispennandi leik. Á Akranesi unnu þær lið Fjölnis, 4 - 0 og skoraði Guðbjörg Guðmannsdóttir tvö mörk, Bryndís Jóhannesdóttir og Jóna Heiða Sigurlássdóttir eitt mark hvor. Í seinni leiknum voru Blikastúlkur teknar í kennslustund og endaði sá leikur einnig, 4 - 0. Bryndís Jóhannesdóttir og Hrefna Jóhannesdóttir gerðu tvö mörk hvor. Þessi úrslit þýddu það að ÍBV-stelpurnar voru komnar í úrslitaleikinn.
Mótherjar stelpnanna þar voru erkifjendurnir úr Val, en ÍBV hafði spilað tvisvar áður við Val um sumar og tapað í bæði skiptin. Úrslitaleikurinn fór síðan fram í byrjun september og var spilað á Haukavelli í Hafnarfirði. Fréttir segja frá því að Valsstelpur hafi komið frekar sigurvissar til leiks en það komi ÍBV bara til góða. Eyjastúlkur gerðu fyrsta mark leiksins á 3. mínútu og var þar að verki Hjördís Halldórsdóttir. Valur jafnaði skömmu síðar, en Bryndís Jóhannesdóttir kom ÍBV í 2 - 1. Þannig var staðan í hálfleik.
Strax í byrjun síðari hálfleiks jöfnuðu Valsstelpur, en það var síðan Bryndís Jóhannesdóttir, sem tryggði ÍBV Íslandsmeistaratitilinn með glæsilegu marki úr aukaspyrnu undir lok leiksins. ÍBV-stelpurnar stóðu sig frábærlega í þessum leik en af öðrum ólöstuðum þá var Bryndís Jóhannesdóttir maður leiksins.
Stúlkunum var fagnað með blómum við heimkomuna og í hálfleik í leik ÍBV og Fram í Landssímadeildinni voru þær heiðraðar sérstaklega.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari stelpnanna sagði í viðtali í Fréttum að árangurinn hafi ekki komið sér á óvart. „Ég get ekki sagt það. Ég vissi alltaf að ég væri með gott lið í höndunum. Valur var reyndar búinn að vinna alla sína leiki í sumar, en þegar fyrirkomulagið er með þeim hætti að spilaður er úrslitaleikur, þá er allt lagt undir og spurningin er bara sú hvort liðið kemur betur stemmt til leiks, og í ár voru það við“.
Hver var lykillinn að þessari velgengni ykkar, að þínu mati? ,Þetta eru allt duglegar og metnaðarfullar stelpur og síðan er enginn vafi á að Sigurlás Þorleifsson, þjálfari meistaraflokks kvenna, hefur skilað frábærri vinnu, þar sem stór hluti stelpnanna hefur tekið undirbúningstímabil hjá meistaraflokki og æft með honum. Nokkrar hafa verið að spila með meistaraflokki í sumar og hefur það tvímælalaust skilað sér með reynslu inn í 2. flokkinn, og þá sérstaklega nú undir lok móts. Einnig fengum við sterkar stelpur úr 3. flokki til að styrkja hópinn og síðan byrjuðu nokkrar sterkar stelpur aftur, sem voru hættar. Ég vil svo þakka stelpunum fyrir frábært samstarf í sumar," sagði Heimir að lokum.
3. flokkur kvenna undir stjórn Heimis stóð sig einnig geysilega vel. ÍBV stelpurnar lentu í 2. sæti í sínum riðli og komust auðveldlega í úrslit. Í úrslitunum voru stelpumar óheppnar að komast ekki í úrslitaleik. Engu að síður stóðu þær sig mjög vel.
4. flokkur kvenna undir stjóm Írisar Sæmundsdóttur sló í gegn. A-lið ÍBV varð í 2. sæti í sínum riðli og komst í úrslit. Þar lenti ÍBV í 3. sæti og var hársbreidd frá því að komast úrslitaleik. B-liðið vann sinn riðil og gerði sér svo lítið fyrir og varð Íslandsmeistari á glæsilegan hátt. S
5. flokkur kvenna undir stjórn Olgu Stefánsdóttur stóð sig einnig mjög vel, bæði á Pæjumóti, hnátumóti og Gull og silfurmóti og unnu til verðlauna.
6. flokkur undir stjórn Ernu Þorleifsdóttur stóð sig einnig vel í sumar og vann til verðlauna á Pæjumóti og Gull- og silfurmótinu.
Kvennaliðið í 4. sæti en karlaliðið með aðra hönd á Íslandsmeistaratitlinum
Meistaraflokkur kvenna fékk Íslandsmeistara KR í heimsókn í næstsíðasta leik sínum og máttu sætta sig við ósigur gegn nýkrýndum Íslandsmeisturum. Þær gerðu aftur á móti góða ferð í Grafarvoginn nokkrum dögum síðar þar sem þær unnu stórt. Þetta var síðasti leikur sumarsins og hafnaði ÍBV í 4. sæti.
Karlaliðið fékk hinsvegar Framara í heimsókn á Hásteinsvöllinn í 15. umferð. Leikið var í mildu haustveðri. Framarar höfðu átt erfitt uppdráttar um sumarið ÍBV hefur vermt toppsætið nánast allt frá byrjun móts. Lyktir leiksins urðu 2-0 fyrir ÍBV.
Grindavík og ÍBV áttust við í 16. umferð Landssímadeildarinnar. Leikið var í strekkingsvindi í Grindavík og var lítið um glæsileg tilþrif í leiknum, sérstaklega af hálfu Eyjamanna. Grindavík var að berjast fyrir lífi sínu í deildinni en ÍBV þurfti þrjú stig í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Grindavík hafði betur með marki á 8. mínútu en eftir sátu Íslandsmeistararnir með sárt ennið.
Síðasti heimaleikur ÍBV í Landssímadeildinni, fór fram á Hásteinsvelli 20. September. Það voru Leiftursmenn frá Ólafsfirði, sem komu í heimsókn og sóttu ekki gull í greipar heimamanna. Lið gestanna var hálf vængbrotið í þessum leik, þar sem í liðið vantaði um átta af fastamönnum liðsins. Mikið hafði verið talað um fyrir þessa viðureign að Leiftursmenn hafi ætlað að tapa leiknum til að auka möguleika sína á Evrópusæti, og til gamans má geta að leikur ÍBV og Leifturs var eini leikurinn í 16. umferð, sem ekki var á Lengjunni. Það fór svo að ÍBV vann þennan næstsíðasta leik sinn 2-0.
Komu sáu og sigruðu KR – Íslandsmeistarar 2. árið í röð
Leikur KR og ÍBV í lokaumferð Landssímadeildarinnar verður lengi í minnum hafður, kannski ekki hjá KR-ingum, heldur hjá Íslandsmeisturum ÍBV og Vestmannaeyingum öllum.
Í Morgunblaðinu segir svo um leikinn:
„Stemmningin var frábær í Frostaskjóli löngu fyrir leik. Þegar flautað var til leiks var greinilegt að dagsskipun KR-liðsins var að leika til sigurs. Strax var blásið til sóknar í herbúðum þeirra, þar sem aðeins sigur færði KR-ingum hinn langþráða Íslandsmeistaratitil, sem þeir unnu síðast fyrir þrjátíu árum, 1968.
Hugsunin um sókn var það sterk, að leikmenn KR-inga sofnuðu á verðinum og voru slegnir út af laginu eftir aðeins 4,50 mín. Þá vann Kristinn Hafliðason knöttinn, náði að rífa sig frá tveimur KR-ingum og senda glæsilega sendingu inn fyrir vörn KR, þar sem Ingi Sigurðsson var á réttum stað og sendi knöttinn í netið. Óvænt óskabyrjun Eyjamanna var þeim óneitanlega dýrmæt. Þeir voru með réttu komnir tveimur mörkum yfir, þannig að þrautin var KR-ingum þyngri. Eyjamenn náðu mjög góðum tökum á miðjunni, sem gerði það að róðurinn var afar þungur fyrir leikmenn KR, sem urðu á augabragði yfirspenntir og greinilegt var að þeir þoldu ekki hið mikla álag sem var á þeim. Skotinn David Winnie braut gróflega á Inga Sigurðssyni á 20. mín, á vallarhelmingi Eyjamannna, eftir að hafa misst knöttinn. Þar var Winnie heppinn að fá ekki að sjá rauða spjaldið. Einar Þór Daníelsson fékk að sjá gula spjaldið fyrir brot og einnig Andri Sigþórsson, fyrir hefndarbrot á Eyjamanni, sem hefði einnig getað orðið rautt spjald.
Að hafa flautuna djúpt í vasanum
KR-ingar gerðu harða hríð að marki Eyjamanna, án þess þó að skapa sér umtalsverð marktækifæri - lánleysi þeirra var algjört. Guðmundur Benediktsson nýtti ekki vítaspyrnu, sem KR-ingar fengu á 38 mín. - skaut hátt yfir mark Eyjamanna, knötturinn fór út fyrir völlinn. Það getur ekkert lið leyft sér að nýta ekki vítaspyrnu í eins þýðingarmiklum leik. KR-ingar vildu fá vítaspyrnu, þegar Zoran Miljkovic stökk upp og skallaði knöttinn um leið og hann hafnaði á baki Guðmundar Benediktssonar. Þar var ekki um vítaspyrnu að ræða, þar sem Guðmundur beygði sig undir Zoran, sem snerti Guðmund ekki með höndum.
Eyjamenn vildu fá vítaspyrnu, þegar David Winnie kippti Steingrími Jóhannessyni niður í vítateig. Þar var um greinilega vítaspyrnu að ræða. • Það var aftur á móti engin vítaspyrna, þegar Guðmundur Benediktsson og Zoran Miljkovic börðust um knöttinn - báðir féllu við, vítaspyrna var dæmd á Zoran. Þar var dómarinn of fljótur að flauta og fyrstu bendingar hans bentu til að Guðmundur hefði verið brotlegur. Það er oft sagt að dómarar eigi ekki að dæma leiki með flautuna uppi í sér, heldur að vega og meta aðstæður og láta knöttinn ganga áfram þegar barist er á svæðum, sem geta gefið mörk. Að hafa flautuna djúpt í vasanum á þeim stundum!
Þegar Eyjólfur Ólafsson, ágætur dómari leiksins, flautaði, var Hlynur Stefánsson, fyrirliði Eyjamanna, að senda knöttinn í eigið mark. Með því að flauta strax - var verið að taka mark af KR-ingum. Það er ljóst að þeir hefðu frekar viljað fá markið en vítaspyrnuna.
Takið hert
Eyjamenn drógu sig til baka í byrjun seinni hálfleiksins, ákveðnir að lokka KR-inga fram og beita síðan skyndisóknum til að refsa þeim. Þeir voru komnir með yfirhöndina og þeir hertu takið jafnt og þétt á KR-ingum. Atli Eðvaldsson, þjálfari KR-liðsins, reyndi hvað hann gat til að skerpa á sókninni. Hann kallaði varnarmann af leikvelli á 66. mín., Indriða Sigurðsson, og setti sóknarleikmann inná, Stefán Gíslason. Á þessum tíma voru KR-ingar hreinlega búnir að missa trúna á að þeir gætu unnið. Eyjamenn hrelldu þá stöðugt. Hjalti Jóhannesson geystist fram í sókn, átti ónákvæmt skot að marki í upplögðu færi. Kristinn Hafliðason komst í dauðafæri, en skaut rétt fram hjá marki KR. Ívar Bjarklind átti skot sem hafnaði innanvert í stönginni hjá KR. Það var svo á 78. mín. sem Kristinn Lárusson gulltryggði sigur Eyjamanna - Íslandsmeistaratitillinn var þeirra.
KR-ingar voru búnir að játa sig sigraða.
Sterkt miðja er aðall liðsins
Aðall Eyjaliðsins er geysilega sterk miðja, en miðvallarleikmenn Eyjamanna unnu orrustuna um miðjuna á auðveldan hátt. Lið sem er með miðvallarleikmenn eins og Inga Sigurðsson, Ívar Bjarklind eftir að Ingi fór meiddur af velli, Steinar Guðgeirsson, Kristin Hafliðason, Ívar Ingimarsson og Kristin Lárusson, er ekki á flæðiskeri statt. Þessir leikmenn fóru á kostum í leiknum og voru stórhættulegir í aðferðum sínum. Það er ekki ónýtt fyrir hina sterku miðverði, Hlyn Stefánsson, sem var sem klettur við Heimaey, og Zoran Miljkovic, að leika fyrir aftan þessa fimm leikmenn. Zoran hafði góðar gætur á Andra í leiknum. Þegar Ingi meiddist fór ívar fram og hans stöðu tók Guðni Rúnar Helgason, sem hreinlega klippti fyrirliða KR, Einar Þór Daníelsson, út úr leiknum. Möguleikar KR-inga voru góðir að láta drauminn rætast. Það var greinilegt í byrjun leiksins að þeir ætluðu sér að hamra á Eyjamönnum, en þeir voru slegnir út af laginu strax í byrjun. Eftir það var á brattann að sækja og þegar KR-ingar náðu ekki að nýta sér vítaspyrnuna var sem allur vindur væri úr leikmönnum KR, sem hreinlega þoldu ekki pressuna og spennuna sem fylgir því að KR hefur ekki náð að verða íslandsmeistari í þrjátíu ár. Þrjátíu ára upprifjun er þungur baggi að bera. Leikmenn KR eru ekki öfundsverðir - þeir náðu sér aldrei á strik. Helsti veikleiki KR-liðsins er að liðið vantar óneitanlega foringja til að stjórna leik liðsins á miðjunni, öflugan og hugmyndaríkan leikmann. KR-liðið er ekki eitt á báti á þessu sviði, þar sem þetta er höfuðverkur nær allra liða hér á landi.
Það var fyrst og fremst árangur Eyjamanna á heimavelli, sem færði þeim Íslandsmeistaratitilinn í ár. Þeir unnu alla níu heimaleiki sína, sem gáfu þeim 27 stig. Fyrir leikinn gegn KR var Eyjaliðið aðeins búið af fá 8 af 35 stigum á útivelli.
Sigursælasti þjálfari ÍBV til þessa
Bjarni Jóhannsson má vera stoltur af starfi sínu í Vestmannaeyjum. Hann tók við liðinu fyrir tímabilið í fyrra og Eyjamenn urðu Íslandsmeistarar og léku til úrslita í bikarkeppninni en í ár tóku þeir báða stóru titlana. „Þetta er mjög góður árangur," sagði Bjarni við Morgunblaðið. „Við fengum 40 stig í deildinni í fyrra og gerðum þá 44 mörk en fengum 17 mörk á okkur. Síðan misstum við Tryggva Guðmundsson, sem var með 19 mörk, og Sverri Sverrisson, sem gerði sjö mörk, og töldu margir að við næðum ekki aftur sambærilegum árangri. Annað kom á daginn; við fengum tveimur stigum minna og gerðum 40 mörk en fengum á okkur 15 mörk. í þessu sambandi skipti verulega miklu máli að Steingrímur Jóhannesson fór snemma á gott skrið og liðsheildin var sterk. Í því sambandi má nefna að við fengum aðeins þrjú mörk á okkur í seinni umferðinni." sagði Bjarni.
ÍBV er fjórða félagið sem verður tvöfaldur meistari. KR varð það 1961 og 1963, Valur 1976 og ÍA 1983, 1984, 1993 og 1996.
Verðlaunapeningur týndist en fannst aftur
Í fögnuðinum að lokinni verðlaunaafhendingunni á KR-vellinum slitnaði gullverðlaunapeningur Kristins Hafliðasonar af borðanum og er blaðamaður Morgunblaðsins hitti hann var hann einungis með borðann, en taldi sig nokkuð vissan um hvar peningurinn væri niðurkominn. Sendi hann því ung skyldmenni sín til þess að finna peninginn á meðan hann fór til myndatöku með liðinu. Að henni lokinni hafði peningurinn fundist rétt við verðlaunapallinn og Kristinn gat því fest hann við borðann og var að sjálfsögðu því feginn að peningurinn fannst.
Móttökurnar í Eyjum ógleymanlegar
Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar var að vonum kátur eftir Íslandsmeistaratitlinum var náð. Í viðtali við Fréttir sagði hann: „Þetta er stærsta stund í íþróttum í Vestmannaeyjum að vinna tvöfalt í knattspyrnu sem er langvinsælasta íþróttin hér," sagði Jóhannes. „Vestmannaeyingar geta verið stoltir af sínum mönnum þó við höfum orðið að sækja menn annað. En þessi blanda hefur smollið saman og erum við að sjá árangurinn af því. Stuðningsmenn hér og uppi á landi hafa verið frábærir og eiga stóran hlut í árangrinum." Hann sagði að móttökurnar í Eyjum verði ógleymanlegar, bæði þegar þeir komu með Herjólfi og móttaka bæjarstjórnar á sunnudagskvöldið á Hertoganum. „Að sjá allan þann fjölda sem tók á móti okkur sýnir mikilvægi íþrótta fyrir Eyjamenn. Topplið eins og við erum með í dag þarf viðunandi aðstöðu og hef ég von um að farið verði að byggja stúku svo við getum leikið Evrópuleikina á Hásteinsvelli næsta sumar. Það hlýtur að vera næsta skref þegar búningsaðstaðan er loksins komin upp," sagði Jóhannes.
Steingrímur markakóngur
Á lokahófi KSÍ var Steingrími Jóhannessyni afhentur gullskórinn fyrir að vera markahæstur í Landssímadeildinni í sumar. Steingrímur skoraði 16 mörk. Þá var Steingrímur einnig valinn prúðasti leikmaður Landssímadeildarinnar en hann hefur ekki fengið gult spjald í leik í þrjú ár. Steingrímur var einnig valinn í lið ársins ásamt Hlyni Stefánssyni, fyrirliða ÍBV.
Þriðji titillinn í höfn
ÍBV og Leiftur léku í Meistarakeppni KSÍ 26. október. Leikurinn fór fram á Laugardalsvelli í blíðskaparveðri og var honum sjónvarpað beint. Mikið var um forföll í báðum liðum og í lið ÍBV vantaði fjóra fastamenn, þá; Inga Sigurðsson, Zoran Miljkovic, Ívar Ingimarsson og Hjalta Jóhannesson. Leikurinn var ágætlega leikinn og náðu bæði lið að skapa sér fullt af hættulegum marktækifærum. ÍBV landaði þarna þriðja titlinum þetta árið og sigraði 2-0. Mörk ÍBV skoruðu Ívar Bjarklind og Bjarni Geir Viðarsson.
Sigrar í fyrstu leikjunum
Fyrsti leikur meistaraflokks kvenna í 1. deild í handbolta á leiktíðinni, var gegn ÍR og var leikið í Seljaskóla. Eyjastúlkur voru ekki í vandræðum með ÍR stúlkur og var sigur þeirra aldrei í hættu. Lokatölur leiksins urðu, 18-26. Að sögn Stefaníu Guðjónsdóttur, leikmanns ÍBV í viðtali við Fréttir, sem á við meiðsli að stríða og gat þar af leiðandi ekki spilað, þá var ÍBV-liðið að spila þokkalega í þessum leik. „Vörnin var slök í leiknum en sóknin lofar góðu. Erlendu stelpurnar voru góðar og þá sérstaklega þær Amela og Marie, þjálfari," sagði Stefanía. Mörk ÍBV: Amela 6, Jennie 5, Ingibjörg 4, Elísa 3, Marie 3, Guðbjörg 2, Hind 1, Eyrún 1, Aníta 1. Varin skot: Lucy 14.
Fyrsti heimaleikurinn var gegn KA. Ungt lið norðanstúlkna átti ekkert að gera í höndum Eyjastúlkur. ÍBV vann mjög sannfærandi sigur 29-21. ÍBV byrjaði betur í leiknum og voru Eyjastelpur með leikinn í sínum höndum frá byrjun. Staðan í hálfleikvar 18-10. Í síðari hálfleik var það sama upp á teningnum. Fyrirliði ÍBV, Ingibjörg Jónsdóttir, átti stórleik og skoraði 12 mörk, þar af þrjú úr vítaskotum. Mörk ÍBV: Ingibjörg 12/3, Marie 5, Guðbjörg 4, Elísa 2, Aníta 2, Anna R. 1, Katrín 1, Jennie 1, Hind 1.
Og svo kom jafntefli
Sannkallað glæsimark tryggði Eyjastúlkum annað stigið, þegar þær heimsóttu Seltjarnarnesið 22. október. Heimastúlkur í Gróttu/KR voru með pálmann í höndunum í lokin, en það var Marie Axelsson, þjálfari ÍBV, sem jafnaði metin, 18-18, með glæsilegu skoti úr aukakasti þegar leiktíminn var liðinn.
„Spái jafnri og spennandi deild“
Karlalið ÍBV lék sinn fyrsta leik í Nissandeildinni 24. september. Þá heimsóttu þeir lið Hauka í Hafnarfirði. Staðan var jöfn í hálfleik en lokatölur 25 - 24. Eyjamenn komu nokkuð sprækir til leiks, en mikill haustbragur var á leik beggja liða. Guðfinnur Kristmannsson var sterkur í fyrri hálfleik, ásamt Sigmari í markinu en aðrir leikmenn náðu ekki að sína sitt rétta andlit. Staðan í leikhléi var 10 - 10.
„Það má segja að við rennum svolítið blint í sjóinn til að byrja með enda höfum við lítið spilað að undanförnu. Hitt er svo annað mál að í þessum leik vorum við með yfirhöndina nær allan leikinn en missum hann niður í tap í lokin. Útlendingarnir voru taugatrekktir í byrjun en spiluðu síðan mjög vel í seinni hálfleik. Deildin fer engu að síður vel af stað og ég hef trú á að hún verði jöfn og spennandi," sagði Sigmar Þröstur Óskarsson, maður ÍBV í viðtali við Fréttir. Mörk ÍBV: Slavisa 6, Giedrius 5/3, Guðfinnur 4, Daði 4, Valgarð 3, Svavar 2. Varin skot: Sigmar Þröstur 17/1.
Fyrsti heimaleikur ÍBV var gegn HK en leikir þessara liða höfðu oft boðið uppá góða skemmtun. Getumunur var hinsvegar talsverður í þessum leik og ÍBV sigraði stórt, 20-12.
Lokahóf með glæsibrag
Lokahóf knattspyrnudeildar ÍBV-íþróttafélags fór fram með miklum glæsibrag í Kiwanishúsinu 31. október. Íþróttafólk og forráðamenn íþróttamála í Vestmannaeyjum hafa ekki í annan tíma haft ríkari ástæðu til að fagna góðum árangri því meistaraflokkur karla hampaði Bikar- og Íslandsmeistaratitli og er auk þess Meistari meistaranna. Stúlkurnar í meistaraflokki náðu sínum besta árangri í sumar þegar þær náðu 4. sæti í deildinni og voru hársbreidd frá því að komast í bikarúrslitaleikinn. Auk þess náði ÍBV tveimur Íslandsmeistaratitlum í yngri flokkunum í kvennaknattspyrnunni.
Fjöldi viðurkenninga var veittur á lokahófinu, bæði frá ÍBV og KSÍ.
Ásmundur Friðriksson formaður ÍBV-héraðssambands afhenti eftirtöldum silfurmerki ÍBV: Ólafur Friðriksson, Elías Björn Angantýsson, Sigurður Guðnason, Gunnar Guðnason, Ingibjörg B. Jóhannesdóttir (Beggó), Sigurlás Þorleifsson og Gunnar Svavarsson. Auk þess fékk Ingimar Georgsson silfurmerki ÍBV en hann var fjarstaddur.
Jóhann Ólafsson stjórnarmaður í KSÍ afhenti Guðmundi Þ.B. Ólafssyni, Tryggva Kr. Ólafssyni, Sigurjóni Birgissyni og Eggert Garðarssyni silfurmerki KSI.
Stjórn knattspyrnudeildar afhenti helstu styrktaraðilum fótboltans penna, pennastatíf og skrifblokk, allt úr silfri nema pappírinn í blokkinni, og var í sérsmíðuðum trékassa.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, Þór Vilhjálmsson formaður ÍBV-íþróttafélags og Ásmundur Friðriksson formaður ÍBV héraðssambands fluttu kveðjur og Beggó afhenti 500.000 krónur til byggingar stúku við Hásteinsvöll frá Stuðningsmannaklúbbi ÍBV í Reykjavík.
Það má ekki stilla krökkum upp við vegg
Um mitt sumar var ráðinn hingað til Vestmannaeyja, nýr yfirþjálfari yngri flokkanna í handknattleik. Maður að nafni, Mickail Akbashev, var fenginn til starfans. Hann er sonur hins þekkta Boris Akbashev, sem náði frábærum árangri sem þjálfari yngri flokka Vals á sínum tíma.
Mickail var í viðtali í Fréttum um mitt haust. Þar segist ekkert á móti því að krakkar æfi bæði handbolta og fótbolta, en sér finnist að það verði að virða meira að yfir vetrartímann er handboltatímabil í gangi. „Ég vildi byrja að æfa af krafti í sumar, en þá var ég beðinn um að fækka æfingum, svo að þær myndu ekki stangast á við fótboltaæfingar. Mér finnst bara sanngjarnt að þetta snúist við yfir vetrartímann. Krakkarnir verða að fá að velja sjálf, hvaða íþrótt þau langar til að stunda. Það má ekki stilla þeim upp við vegg.“
Þá er hann spurður hvernig honum finnist börn og unglingar standa sig í samanburði við krakka erlendis: „Það er mjög erfitt fyrir mig að bera þetta saman, þar sem ég hef aðeins þjálfað í Moskvu og hér á Íslandi. En það sem er áberandi er agamunur. Til dæmis hér á landi eru krakkar oft að gera sömu mistökin, aftur og aftur. En það má ekki skamma eða refsa, heldur má bara segja: „Kemur." Í Sovétríkjunum var það þannig að ef sami maður gerði sömu mistökin tvisvar í leik, þá var hann bara settur á bekkinn og næsti maður fékk að spreyta sig“.
Sundurlyndi í handboltanum og síðan sættir
Á stjórnarfundi 19. október var skýrt frá sundurlyndi sem upp kom í röðum handknattleiksmanna, vegna auglýsinga í sal Íþróttamiðstöðvarinnar. Var málið rætt fram og til baka. Það var skoðun stjórnar að ekki væri heppilegt að stuðla að aðskilnaði handknattleiks kvenna og karla og þess vænst að handknattleiksdeild taki frekar skrefið framávið og stefni að því að handknattleikurinn verði rekin undir einni stjórn handknattleiksdeildar, jafnvel þótt það þyki kostur að sérstakir einstaklingar einbeiti sér að hinum ýmsu flokkum innan deildarinnar. Samþykkt var að beina þeim tilmælum til deildarinnar að leysa þetta á farsælan hátt og var stjórnin reiðubúin að stuðla að því með þátttöku sinni.
Á stjórnarfundi 22. október var gerð grein fyrir fundi sem hluti aðalstjórnar átti með Þorvarði Þorvaldssyni hjá kvennahandboltanum, um samskipti karla- og kvennahandboltans, sem miða að því að koma öllum handboltanum undir eina stjórn. Átti síðan að kynna þessar hugmyndir fyrir karlahandboltanum. Hugmyndin féll í góðan jarðveg hjá þeim og voru deildirnar síðan sameinaðar.
Forn frægð dugði til sigurs
Meðal þátttakenda í bikarkeppninni í handbolta var hið geðþekka b-lið ÍBV, - lið sem byggir á fornri frægð. Í 32 liða úrslitum fékk liðið íþróttafélagið Ögra í heimsókn til Eyja. Mikil stemning var á leiknum og margir gamlir jaxlar sem tóku fram skóna fyrir þennan leik. Mikill hugur var í b-liðsmönnum ÍBV fyrir leikinn og þeir sýndu það og sönnuðu í leiknum sjálfum, að þeir hafa engu gleymt, eða allavega ekki öllu. Þeir spiluðu hraðan og agaðan bolta og í vörninni var hvergi glufu að finna. Staðan í hálfleik var 15-8. Í seinni hálfleik fór úthaldið að segja til sín hjá heimamönnum, þrátt fyrir örar innáskiptingar. Gestirnir þjörmuðu vel að ÍBV í lokin en lokatölur leiksins urðu 25 - 24.
Markverðirnir, Steini pípari og Maggi Braga. áttu frábæran dag og voru að öðrum ólöstuðum, menn leiksins. Davíð Guðmundsson og Helgi Bragason sýndu einnig sjaldséða takta.
Eina áhyggjuefni b-liðs ÍBV fyrir komandi verkefni, var að línumennirnir; Jóhann Pétursson og Þór Valtýsson voru mjög hreyfanlegir og skapandi línumenn en þeirra aðalókostur var að þeir kunna ekki að skora mörk.
Þess má geta að til samans fengu þeir um 20 dauðafæri í leiknum en skoruðu aðeins 1 mark! Mörk ÍBV: Helgi Bragason. 6, Davíð Guðmundsson 6, Sigurður Friðriksson 4, Jóhann Benónýsson 4/1, Eyþór Harðarson 2, Jóhann Pétursson 1, Óskar F. Brynjarsson 1/1, Þorsteinn Viktorsson 1.
Öruggt hjá A-liðinu
A-lið ÍBV mætti hinsvegar liði Breiðabliks í 32-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ. Þetta var leikur kattarins að músinni og var sigur ÍBV aldrei í hættu. Eyjamenn léku alveg þokkalega í leiknum en leikmenn áttu í erfiðleikum með að halda góðri einbeitingu gegn mjög svo slöku liði Breiðabliks. Staðan í hálfleik var, 8- 16. Í seinni hálfleik breikkaði bilið enn meira milli liðanna og endaði leikurinn með 12 marka sigri ÍBV, 19-31. Eyjamenn létu alla varamenn sína leika í lok leiksins. Sigmar Þröstur átti góðan leik fyrir ÍBV og þá var Daði Pálsson mjög frískur í leiknum. Mörk ÍBV: Valgarð 7, Giedrius 6, Daði 5. Rakanovic 2, Guðfinnur 2, Gunnar 2, Svavar 1, Davíð 1, Þorsteinn 1. Sigurður 1, Haraldur 1 og Emil 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 20 og Ragnar 2.
Íslenskir leikmenn eða útlendir
Í blaðinu Sportlíf, sem var íþróttablað hér á landi og Eyjamaðurinn, Jóhann Ingi Árnason ritstýrði, var birt viðtal við landsliðsþjálfara Íslands í handknattleik, Þorbjörn Jensson. Viðtalið vakti mikla athygli og fékk mikið umtal og þá sérstaklega sá þáttur viðtalsins, sem snýr að leikmannamálum íslenskra félagsliða. Þorbjörn tekur mjög djúpt í árinni í viðtalinu og segir að banna eigi erlenda leikmenn hér á Íslandi og þess í stað eigi að setja peningana í að byggja upp yngri flokka félaganna.
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV var á annarri skoðun: „Þetta viðtal er náttúrlega bull og vitleysa frá upphafi til enda, nema sá þáttur sem snýr að uppbyggingu yngri flokkanna, sem ég er alveg sammála um að þarf að gera. En einhvers staðar verður fyrirmyndin að vera. Það væri gaman að sjá hvar enski boltinn stæði í dag ef engir útlendingar væru í liðunum. Reyndin er bara sú að úti á landi getur oft verið erfitt að manna lið og þá þarf að leita út fyrir landsteinana að góðum leikmönnum, því að erlendu leikmennirnir eru mun ódýrari en þeir íslensku. Viðtalið við Þorbjörn ber þess greinileg merki að hann hefur aldrei þjálfað úti á landi og hann gerir sér heldur ekki grein fyrir að íslenskir leikmenn í dag eru rándýrir“.
Það verður formsatriði að sigra Völsung
Þegar dregið var í 16 liða úrslit bikarkeppni HSÍ kom í ljós að Völsungur frá Húsavík drógst á móti b-liði ÍBV. Liðsmenn b-liðsins birtu þá í léttum dúr, opið bréf í Fréttum, svohljóðandi:
„Nú hefur verið dregið í 16-liða úrslit í bikarnum og urðu það Völsungar frá Húsavík sem mega bíta í það súra epli að tapa stórt gegn okkur í næsta leik. Það formsatriði fer væntanlega fram laugardaginn 5. desember nk. og verður auglýst nánar á Sky Sport og TV 1000. Völsungar eru þannig dottnir út úr keppninni en verða vonandi heppnari á næsta ári. Undirbúningur ÍBV-liðsins fyrir úrslitaleikinn í febrúar næstkomandi er hins vegar að fara að hefjast og er verið að semja við auglýsendur og sjónvarpsstöðvar. Þó eru nokkur atriði sem tengjast liðinu, ekki alveg á hreinu. Þar ber hæst að eftir frammistöðuna í síðasta leik tilkynnti Þór Valtýsson að hann væri hættur með old boys liðinu og hyggðist leggja skóna á hilluna. Þetta kom nú reyndar ekki eins og skrattinn úr sauðarleggnum fyrir aðra leikmenn og þá sem sáu síðasta leik og mætti Þór vissum skilningi vegna þessarar ákvörðunar sinnar. Hinsvegar þótti rétt að reyna að tala um fyrir stráknum þar sem hann hefur nú spilað með old boys liðinu án þess að missa úr leik síðastliðin 17 ár. Þessar viðræður standa nú yfir og eru á mjög viðkvæmu stigi. Þá er okkur enn nokkur vandi á höndum. Völsungar eru frá Húsavík og teljast því óumdeilanlega norðlenskt lið. Nokkur blæbrigðamunur er á tungumáli þeirra og okkar Eyjamanna. Venjulega ætti slíkt ekki að valda neinum vandræðum en þar sem sjálfskipaður fyrirliði ÍBV old boys hefur átt í nokkrum tungumálaerfiðleikum við fyrirliða annarra liða þá hefur verið ákveðið að sjálfskipaður fyrirliði okkar muni hafa með sér túlk þegar hann ræðir við norðlenska fyrirliðann. Eyjamenn af norðlensku bergi brotnu mega því búast við því að til þeirra verði leitað í þessu skyni en allt er þetta að sjálfsögðu hugsað til að koma í veg fyrir óþægindi og leiðindi fyrir sjálfskipaðan fyrirliða ÍBV. Stóru fréttirnar eru hins vegar þær að nokkrir nýir leikmenn eru á leiðinni í liðið og þ.á.m. hefur ákveðinn núverandi landsliðsmaður sóst mjög eftir því að komast í liðið. Er þar verið að tala um töluverðar greiðslur til liðsins ef af því verður.
Frekari fréttir um framvindu mála verða í næstu FRÉTTUM og mun þá skýrast hvort Magnús Bragason leikur áfram með liðinu en ákveðið hefur verið að standa fyrir skoðanakönnun um það mál og geta áhugasamir haft samband við FRÉTTIR og látið í ljós skoðun sína á þessu álitaefni. P.s. Áhorfendur á síðasta leik hafa án efa orðið varir við það þegar Sigurður hornamaður Friðriksson, tók vítakast í byrjun síðari hálfleiks og brenndi af, að mikil fagnaðarlæti brutust út meðal ÍBV-liðsins. Hið sanna er að Sigurður hafði um það mörg orð í hálfleik að hann væri vítaskytta liðsins og bauð öllu liðinu í ókeypis gos eftir leikinn og bætti síðan við að óhætt verði að leggja líka undir mat á Lanterna fyrir allt liðið ef hann myndi klikka. Eins og sannur Fagurlystarmaður var Sigurður öryggið uppmálað allt leikhléið eða alveg þangað til í byrjun síðari hálfleiks þegar hann stóð á vítapunktinum, brotnaði niður og þrumaði í markmanninn við mikinn fögnuð þyrstra og svangra leikmanna ÍBV.“
Voru slegnir út úr bikarnum
Ekki reyndist Völsungur sá happadráttur sem liðsmenn ÍBV-b höfðu talað um. Leikmenn ÍBV-b og flest allir Vestmannaeyingar, höfðu beðið eftir þessum leik með mikilli eftirvæntingu, sérstaklega í ljósi þess að sæti í 8-liða úrslitum var í húfi. Eyjamenn byrjuðu mjög illa í þessum leik, lentu strax fjórum mörkum undir, 1-5 og eftir það var á brattann að sækja. Vörnin var eins og gatasigti hjá heimamönnum og sóknin gekk engan veginn upp, meðan gestirnir héldu sínu striki. Staðan í hálfleik var, 12-15. Í síðari hálfleik fóru Eyjamenn aðeins að vakna til lífsins og þegar um 15 mínútur voru liðnar af hálfleiknum, náði ÍBV að jafna, 21 - 21. Áhorfendur fóru þá heldur að færast í aukana og héldu að nú væri þetta loksins komið. En eitthvað fór úthaldið að segja til sín hjá okkar mönnum, því að gestirnir settu í annan gír, en heimamenn sátu eftir. Það fór svo að lokum að Völsungur sigraði með þremur mörkum, 27-30, og b-lið ÍBV því úr leik að þessu sinni. Vörn ÍBV varð þeim að falli í þessum leik og líkamlegt ástand manna tók sinn toll í lokin. Óskar Freyr og Sigurður Ari voru bestu menn ÍBV í þessum leik og Birkir Kristinsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, sýndi skemmtilega takta í markinu.
Þess má geta að í lið ÍBV vantaði marga góða menn, eins og Jóhann Benónýsson, Helga Bragason, Þorstein Viktorsson og Þór Valtýsson, og munaði um minna. „Ég verð að segja það að ég er mjög óánægður með stjórnina, þá Eyþór og Jóa. Það var mjög lítill undirbúningur fyrir þennan leik og sumir hérna voru látnir vita í morgun (laugardag) að þeir ættu að spila leikinn. En um leikinn sjálfan, þá voru þeir bara betri og byrjuðu betur. Við komumst aðeins inn í leikinn í síðari hálfleik, en líkamlega formið varð okkur að falli," sagði Óskar Freyr Brynjarsson í viðtali við Fréttir.
Mörk ÍBV: Óskar Freyr 7/4, Sigurður Ari 6, Sindri 3, Valdimar 3, Sigurður F. 3/1, Sigurður 1. 2, Þorvarður 1, Davíð 2/1. Varin skot: Birkir 7, Magnús 5,
Þjóðhátíðarborðið var rifið
20. desember skrifaði Sigurgeir Jónsson grein í Fréttir um þjóðhátíðarborðið, sem stóð sunnan við veitingatjaldið. Við framkvæmdir í Dalnum um sumarið, var borðið fjarlægt. Nokkrar deilur spunnust vegna þessa og þótti sumum að þar hefði fornminjum verið fórnað. Fornminjanefnd ríkisins kærði málið til lögreglu. Rannsóknin snérist um hvort hinu sögulega þjóðhátíðarborði hafi verið eytt og þá hvort umrætt borð hafi verið hið forna þjóðhátíðarborð, eða eitthvert annað borð.
Sigurgeir kemst hinsvegar að ákveðinni niðurstöðu þessari grein.
Það fór mjög fyrir brjóstið á ýmsum aðilum þegar hið margfræga „þjóðhátíðarborð" var numið á brott síðastliðið sumar. Töldu þeir að hér væri um fornminjar að ræða. Í gömlum frásögnum af þjóðhátíðarhaldi í Herjólfsdal er frá því greint að borð hafi verið í dalnum og veisluföng á því. Enginn virðist þó vita með vissu hvar það borð hefur verið staðsett. Þetta niðurrif borðsins er nú orðið að lögreglumáli. Var rannsóknarlögreglu ríkisins falið að kanna hvort friðunarlög hefðu verið brotin en lögreglan í Vestmannaeyjum hefur með málið að gera. Þeir sem eru þessum málum kunnugir, segja að borðið sem fauk í sumar sé seinni tíma smíð. Upphaf þess sé að hlaðið var undir vatnstankinn sem stóð við veitingatjaldið og var hafður smávegis skái á til að vatn næði að renna betur úr tankinum. Stuttu eftir gos var svo gengið betur frá pallinum og fengnir vanir hleðslumenn til verksins. Mun Einar Jónsson (faðir Hermanns) m.a. hafa unnið við það verk.
Á einhverri þjóðhátíð munu menn hafa viljað láta pallinn fá meira hlutverk og e.t.v. minna á gamla tíð því að upp var slegið heljarmikilli veislu þar sem m.a. var lundi á boðstólum. Var þessu slegið upp og frá því sagt að snætt hefði verið við gamla þjóðhátíðarborðið, rétt eins og 1874. Eins og áður er sagt er ekki vitað hvar hið upphaflega borð stóð (hafi þá einhvern tíma verið slíkt borð). Því miður eru þeir gengnir sem munað gætu það. En nokkrir úr hópi Vestmannaeyinga, sem komnir eru vel yfir miðjan aldur, kannast ekki við neitt borð, né heldur menjar slíks og hvað síst á þeim stað sem brúsapallurinn umræddi var reistur á.
Guðjón Magnússon, netagerðarmeistari og mikill þjóðhátíðarmaður á vegum Týs, segist ekki muna eftir neinu slíku á flötinni. Hann hafi og fyrir mörgum árum nokkrum sinnum leikið golf á þessum slóðum og ekkert hafi þá verið þar sem minnti á slíkt, ekki einu sinni pallurinn margumræddi enda hafi hann komið miklu síðar.
Magnús Grímsson, frá Felli, er maður margfróður og minnugur. „Ég byrjaði árið 1934 að vinna við þjóðhátíð fyrir Þór, við brennuna," sagði Magnús. „Og þá var ekkert borð þarna. Ég man líka þegar ég byrjaði í golfinu 1944 en þá var golfvöllurinn bara sex holur. Fjórða flötin var einmitt þar sem þetta borð átti að hafa staðið en um það voru engin merki. Svæðið var eggslétt og ekki nokkur ójafna þar. Ég er þess fullviss að hafi þetta borð einhvern tíma verið í dalnum þá var það ekki á þessum stað. Þarna lá vegur upp að Fjósakletti, upp í malarnámið sem þar var og grjóthóll rétt hjá honum. Það kom stundum fyrir að við slógum í hólinn þegar við vorum að reyna að komast inn á flötina og þá lentu menn í vandræðum," sagði Magnús. „Það getur verið að borðið hafi lent undir grjóthólnum eða veginum þegar hann var lagður á sínum tíma en þarna á flötinni hefur það ábyggilega ekki verið. Pallurinn, sem var rifinn í sumar, var settur upp til þæginda út af vatninu og mér finnst ekki mikil eftirsjá í honum. Ég sé ekki ástæðu til að fara að búa til fornminjar sem ekki eru neinar fornminjar. Það er verið að reyna að búa sem best í haginn í dalnum, bæði fyrir þjóðhátíð og þá sem vilja njóta þar útivistar og þetta er bara liður í því," sagði Magnús Grímsson.
Fleiri úr hópi eldri golfleikara, sem muna vel eftir gamla golfvellinum, taka í sama streng, aldrei hafi þarna verið neitt sem minnti á slíkt.
Samkvæmt tillögum að skipulagi í dalnum er gert ráð fyrir að borð verði hlaðið rétt norðvestan við litla danspallinn, öllu minna um sig en pallurinn sem rifinn var í sumar. Er vonandi að menn taki gleði sína á ný þegar það verður orðið að veruleika. Sjálfsagt kemur frekari lögreglurannsókn til með að leiða eitthvað frekar í ljós um þetta margfræga borð en ljóst er að upphafleg staðsetning fæst ekki á hreint nema efnt verði til miðilsfundar. Og það er líka nokkuð ljóst að forsvarsmenn þjóðhátíðarnefndar verða tæplega sóttir til saka fyrir að spilla fornminjum. Eigi að leita sökudólga í borðsmálinu verður að leita lengra aftur, í þjóðhátíðanefndir fyrr á öldinni, þá sem hófu malarnámið í dalnum nú eða upphafsmenn golfíþróttarinnar í Eyjum.
Allir þessir aðilar liggja undir grun um að hafa eytt borðinu góða. Gallinn er bara sá að halda þyrfti enn annan miðilsfund til að fá það allt á hreint.
Sigurgeir Jónsson
Eyjamenn lögðu toppliðið
Eyjamenn fengu topplið Fram í heimsókn 3. desember. Fram og Afturelding höfðu verið hvað sterkust í Nissandeildinni í vetur og með sigri gegn ÍBV hefðu Framarar tryggt sér farseðilinn á Norðurlandamót félagsliða, sem nú hefur verið sett á laggirnar. Leikur Eyjamanna hefur aftur á móti verið mjög sveiflukenndur það sem af er og hefur ÍBV ekki unnið neinn útileik á tímabilinu, en á heimavelli hafa þeir verið mjög sterkir og ekki tapað stigi. Áhorfendur urðu ekki fyrir vonbrigðum með sína menn á fimmtudaginn, enda léku Eyjamenn við hvern sinn fingur og unnu. „ Þetta var mikill baráttuleikur. Við spiluðum mjög skynsamlega og hleyptum þeim aldrei langt frá okkur. Mér fannst sóknin hjá okkur sannfærandi allan leikinn og vörnin var mjóg góð í seinni hálfleik. Þetta var ljúfur sigur og sérstaklega er það þægilegt að vera taplausir á heimavelli," sagði Guðfinnur Kristmannsson í viðtali við Fréttir, en hann átti stórleik og skoraði 11 mörk. Mörk ÍBV: Guðfinnur 11/5, Svavar 6, Sigurður 3, Valgarð 2, Davíð 1. Varin skot: Sigmar Þröstur 20/3.
Andleysi en sigur
ÍBV og ÍR mættust í 1. deild kvenna 3. desember. Leikið var í Eyjum og bjuggust flestir við öruggum sigri ÍBV á ÍR, sem voru nýliðar í deildinni. Enda varð sú raunin og urðu lokatölurnar 24 - 18 ÍBV í viI. Eyjastúlkur náðu ekki að hrista gestina af sér í byrjun og voru í töluverðum vandræðum allan fyrri hálfleikinn. Varnarleikurinn var lélegur og sóknin var mjög ósannfærandi. Mótstaða ÍR-inga setti ÍBV eitthvað út af laginu, en þrátt fyrir það höfðu Eyjastúlkur tveggja marka forystu í hálfleik, 13-11.
Í Fréttum er sagt ÍBV hafi byrjað seinni hálfleikinn af mun meiri krafti, hraðaupphlaupin gengu upp og með þeim náðu heimamenn að leggja grunn að sigrinum. Vörnin small saman og sóknarleikurinn var mun yfirvegaðri. Lokatölur leiksins urðu þvi, 27-23.
Eyjastelpur voru alls ekki að spila vel þessa dagana. Mikið andleysi ríkir í liðinu og samstaðan er í algjöru lágmarki, sem sýnir sig best að liðið lendir í vandræðum með afspyrnuslakt lið eins og nýliða ÍR.
Amela og Ingibjörg voru bestar í liði IBV og einnig náðu Elísa og Hind vel saman á vinstri vængnum. Mörk ÍBV: Ingibjörg 9/1, Amela 8/2, Elísa 4, Hind 3/1, Guðbjörg 2, Eyrún 1 Varin skot: Petra 8.
Margir leikir
Það er af nógu að taka á íþróttasviðinu hjá ÍBV íþróttafélagi. Yfir vetrartímann er gríðarlegur fjöldi handboltaleikja, karla og kvenna, meistaraflokkanna og yngri flokkanna. Í þeirri samantekt um starfsemi félagsins sem hér er tekin saman, er mörgu sleppt, annað væri nánast ógerlegt. Heimildir þær sem notast er við, eru íþróttafréttir sem birtast í dagblöðunum í höfuðborginni og svo eyjablaðið Fréttir, auk þess blöð sem ÍBV íþróttafélag hefur gefið út.
Helgina 27. - 29. nóvember fór fram fjölliðamót 3. flokks kvenna og var leikið í Reykjavík. Stelpurnar unnu einn og töpuðu einum fyrri daginn, en seinni daginn léku þær einum manni færri, einhverra hluta vegna, og töpuðu þá báðum sínum leikjum. Úrslit leikjanna urðu þannig: Valur-ÍBV 12-11 Mörk ÍBV: Hind 5, Edda 3, Anna Rós 2, Kolbrún 2 og Aníta 1.
ÍR-ÍBV 10-14 Mörk ÍBV: Hind 6, Anna Rós 2, Aníta 2, Elfa 2, Eyrún 2.
ÍBV-FH 10-16 Mörk ÍBV: Eyrún 4, Hind 2, Aníta 2, Anna Rós l, Elfa l.
ÍBV-Fylkir 15-17 Mörk ÍBV: Hind 5, Eyrún 4, Kolbrún 3, Elfa 2, Anna Rós 1.
Undir jólin er sagt frá því í Fréttum að 2. flokkur karla hafi fengið lið FH í heimsókn. „Leikið var í Eyjum og voru Eyjapeyjar alltaf skrefinu á undan gestunum. Staðan í hálfleik var 16 - 12. Seinni hálfleikur var svipaður þeim fyrri og sigruðu Eyjapeyjar örugglega í leiknum, 33 - 26. Margir sprækir strákar eru í þessum flokki og ber þar helst að nefna Sigurð Ara Stefánsson, sem er mikið efni, og Ríkharð B Guðmundsson, sem er mjög öflug hægri handar skytta. Mörk IBV: Sigurður Ari 10, Gottskálk 6, Birgir 5, Ríkharð 5, Jóhann 4, Unnar 2, Elías 1. Þjálfarar eru Mickail Akbashev og Helgi Bragason. Helgi stýrði sínum mönnum í þessum leik og er þar á ferðinni mjög skynsamur og röggsamur stjórnandi.
Þá lék meistaraflokkur kvenna við Haukastúlkur í 1. deildinni. Var leikið í Hafnarfirði. ÍBV var án þeirra Marie Axelson, þjálfara og Lúsí markmanns, en þær léku ekki vegna meiðsla. Máttu Eyjatúlkur þola tap 24 -18. Eyjastúlkur komu grimmar til leiks og börðust mun betur en í undanförnum leikjum. En Eyjatúlkur máttu engu að síður þóla tap 24 -18. Heimamenn sigruðu með 6 marka mun, 24 -18. Mörk ÍBV: Ingibjörg 6, Amela 6/5, Jennie 2, Hind 2 og Elísa 1.
6. flokkur í handboltanum
6. flokkur kvenna lék í fjölliðamóti þann 31.október og var leikið í Reykjavík.
Úrslit urðu sem hér segir: ÍBV - Fjölnir 19-2 ÍBV - Stjarnan 8 - 6 ÍBV - Haukar 7 - 5 Stelpurnar komust í milliriðil og urðu úrslit þannig: ÍBV-Grótta 2- 9 ÍBV - Valur 4 - 8 ÍBV-FH 8-10 Markahæstar voru þær; Ester Óskarsdóttir með 20 mörk, Svala Jónsdóttir 14, Sæunn Magnúsdóttir 11, Silja Guðjónsdóttir 2 og Hildur Bjarkardóttir með 1 mark.
Árangur liðsins verður að teljast góður, miðað við að önnur lið voru búin að spila fullt af æfingaleikjum. B-liðið spilaði einnig þrjá leiki: ÍBV-HK 4- 4 ÍBV - Grótta 3-11 ÍBV - Fram 2 – 8. Markahæstar voru þær; Anna Margrét Kristinsdóttir með 7 mörk og Sara Sigurðardóttir með 2 mörk.
Handboltinn um áramót
Fréttir fóru yfir stöðu mála hjá meistaraflokkum ÍBV um áramótin. Er sú úttekt birt hér:
ÍBV-karlar
Eyjamenn eru með nokkuð þægilega stöðu um miðbik deildarinnar. Eftir 13 leiki í deildinni eru Eyjamenn í 6. sæti deildarinnar með 14 stig. ÍBV hefur unnið sex leiki, tapað fímm og gert tvö jafntefli. ÍBV hefur verið ósigrandi á heimavelli í vetur og ekki tapað stigi. Á útivelli hafa þeir ekki átt eins miklu láni að fagna, og eru ennþá án sigurs þar. Nokkur stígandi hefur verið í ÍBV-liðinu í vetur og þegar þeir fara að standa sig betur á útivelli, þá verða þeir til alls líklegir. Hópurinn virðist vera mjög sterkur og samheldinn, sem sýnir sig best að maður kemur í manns stað þegar meiðsli koma upp, án þess að það bitni mikið á liðinu. Þeir; Daði Pálsson, Giedrius og Rakanovic, eru allir meiddir, en vonir standa til að þeir verði orðnir klárir eftir áramót. Sigmar Þröstur Óskarsson, hefur spilað hvern stórleikinn á fætur öðrum, og þá hefur Guðfinnur Kristmannsson, verið gífurlega sterkur það sem af er vetri. Litháinn, Giedrius Cemauskas, hefur staðið undir væntingum, en Júgóslavinn, Slavisa Rakanovic, valdið miklum vonbrigðum. En hvað hefur þjálfari IBV, Þorbergur Aðalsteinsson, að segja um erlendu leikmennina. „Litháinn hefur skilað sínu eins og við var að búast, en Valgarð hefur verið ein styrkasta stoð ÍBV-liðsins í vetur. Júgóslavinn hefur enn ekki náð að sýna sitt rétta andlit og hef ég enga skýringu á því. Við skulum samt athuga að Robertas, sem var hérna í fyrra, var lélegur fyrri hluta móts, en mjög góður eftir áramót. Hvað varðar þær kröfur sem á að gera til erlendra leikmanna, þá reynum við að sjálfsögðu að fá þá bestu sem völ er á. Við fórum seint af stað að leita að leikmönnum og framboð af góðum leikmönnum er ekki mikið, þar sem þeir bestu fara annaðhvort til Frakklands eða Þýskalands. Íslenskir leikmenn í dag eru rándýrir, þannig að við verðum að leita út fyrir landsteinana að góðum leikmönnum," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV.
ÍBV stúlkur
Eyjastúlkur hafa verið í miklum vandræðum í vetur. Fjórir útlendingar voru fengnir til ÍBV fyrir tímabilið. En það er ekki hægt að segja annað en að liðið hafi valdið vonbrigðum. ÍBV er nú í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 7 stig eftir 10 leiki. Þær hafa unnið þrjá leiki, tapað sex og gert eitt jafntefli. Þess má geta að ÍBV hefur aðeins unnið nýliða deildarinnar, KA og ÍR. Á pappírunum er hópurinn hjá ÍBV einn sá sterkasti á landinu. En því miður hefur ekki farið saman, styrkur hópsins og árangur í leikjunum.
Hverju er þar um að kenna er erfitt að segja, en útlendingarnir og heimamennirnir hafa engan veginn náð að skapa eina sterka liðsheild í vetur. Auðvitað þurfa lið sinn aðlögunartíma og vonandi mun leikur ÍBV-liðsins, þróast í rétta átt á nýju ári. Margar ungar og efnilegar stelpur eru að koma upp og að þeim þarf að hlúa. Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV, hefur átt ágætis leiki í vetur og sömu sögu er að segja um þær; Lúsí, Marie, Guðbjörgu og Amelu. Þær Jennie og Lúsí hafa átt við meiðsli að stríða að undanförnu, en verða klárar eftir áramót. Marie, þjálfari, sleit krossbönd fyrir nokkrum vikum og verður frá út tímabilið.
En hvað hafa útlendingarnir sýnt í vetur? Sænski þjálfarinn, Marie, er ágætis leikmaður en sem þjálfari, hefur hún engan veginn náð að skapa gott og samheldið lið. Landi hennar, Jennie, er miðlungsleikmaður, sem lítið hefur komið út úr. Hinar króatísku, Amela og Lúsí, eru mjög góðir leikmenn, sem vonandi eiga eftir að styrkjast á nýju ári. Margir spyrja kannski sjálfa sig: Er það þess virði að fá alla þessa útlendinga? Hvað kostar þetta? Liðið getur ekki fallið um deild, því ekki að byggja liðið upp frá grunni og þá eingöngu á Eyjastelpum?
Hvert er álit Þorvarðar Þorvaldssonar, hjá handknattleiksráði ÍBV kvenna, á þessu máli? „Ég verð að segja alveg eins og er að ég átti von á betra gengi. Væntingarnar voru kannski of miklar og ég hélt að þetta tæki styttri tíma að smella saman. Okkur vantaði markmann og það að fá þessa fjóra útlendinga, átti að vera einskonar lyftistöng fyrir kvennahandboltann hér í Eyjum. Við ætluðum að styrkja stöðu okkar í deildinni og fá fleiri til að æfa handknattleik. Það er mjög erfítt að halda úti mannskap hér í Eyjum, þar sem stelpur fara í skóla til Reykjavíkur og margar hverjar hætta í handbolta. Nú síðan er lokað fyrir leikmannaskipti l. nóvember, og ef leikmenn standa sig ekki hjá okkur, þá verður að tilkynna félagsskipti fyrir þann tíma. Aðkomumenn eru alltaf þó nokkurn tíma að aðlagast breyttum aðstæðum, þannig að þessi tímasetning er náttúrlega mjög óhagstæð okkur, " sagði Þorvarður Þorvaldsson, hjá handknattleiksráði ÍBV kvenna.
1999 -
Janúar:
Hlynur fær Fréttapýramídann
Hlynur Stefánsson hlaut Fréttapýramídann fyrir árið 1998. Hlynur var fyrirliði meistaraflokks ÍBV sem náði glæsilegum árangri á knattspyrnuvellinum með því að vinna bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn 1998. „Fyrir meistaraflokki fór Hlynur Stefánsson fyrirliði sem er einn glæsilegasti íþróttamaður sem Vestmannaeyjar hafa alið,“ segir í umfjöllun blaðsins Frétta. Auk þess að leika með ÍBV lék Hlynur með Nydelfalken í Noregi, Víkingi Reykjavík og Örebro í Svíþjóð áður en hann sneri aftur til ÍBV 1996. Hlynur lauk knattspyrnuferlinum svo í herbúðum KFS. Þá lék Hlynur 25 landsleiki með A-landsliði Íslands.
Jólasteikin misvel í handboltafólkið
Karlalið ÍBV í handbolta byrjaði árið 1999 með sannfærandi sigri á KA 27:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:12. Að vanda var Sigmar Þröstur Óskarsson markvörður vandanum vaxinn og varði 19 skot.
Kvennaliðinu gekk hins vegar ekki eins vel í sínum fyrsta leik en stelpurnar töpuðu fyrir Val 17:19. Augljóst var að liðið saknaði Ingibjargar Jónsdóttur, fyrirliða sem var erlendis þegar leikurinn fór fram.
Vallógengið ósigrandi
Á árum áður hélt knattspyrnudeild ÍBV firmakeppni milli jóla og nýárs og var mótið liður í fjáröflun deildarinnar. Mótið var vinsælt enda lögðu fjölmargir áhorfendur leið sína í íþróttamiðstöðina. Vallógengið svokallaða vann mótið fjórða árið í röð, Ófeigur VE endaði í öðru sæti og Glófaxi VE í því þriðja. „Vallógengið vildi að lokum koma á framfæri kæru þakklæti til Helga Bragasonar, sem spilaði fyrir Ófeig Ve og sérstaklega til Hlyns Stefánssonar, sem spilaði fyrir Glófaxa Ve. Án þeirra hefði þetta ekki verið eins skemmtilegt,“ segir í umfjöllun Frétta.
Stelpurnar áfram en strákarnir úr leik
Kvennalið ÍBV komst áfram í undanúrslit bikarkeppninnar með því að leggja KA að velli í Eyjum 20:15. Leikurinn var í járnum og staðan 9:8 en í seinni hálfleik tóku Eyjakonur leikinn í sínar hendur og unnu með fimm mörkum. Markahæstar voru Amela Hegic með sex mörk, Elísa Sigurðardóttir með fimm og Guðbjörg Guðmannsdóttir með fjögur.
Karlaliðið mætti hins vegar Aftureldingu á útivelli og úr varð hörkurimma. Enda fóru þrjú rauð spjöld á loft strax á fyrstu 23 mínútunum en Eyjamenn voru einu marki yfir hálfleik 11:12. En í síðari hálfleik bitu heimamenn í skjaldarrendur í síðari hálfleik og náðu undirtökunum. Mikil spenna var í lokin, heimamenn voru yfir 27:26 en Eyjamaðurinn Daði Pálsson jafnaði metin. Dómarar dæmdu hins vegar markið ólöglegt og því fögnuðu Mosfellingar sigri. Sigmar Þröstur Óskarsson varði 17 skot en Guðfinnur Kristmannsson skoraði sjö mörk og þeir Svavar Vignisson og Valgarð Thoroddsen sex hvor.
Komust ekki í úrslit
Fjórði og fimmti flokkur karla lék í Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu. Fjórði flokkur lék í B-riðli en enduðu í þriðja sæti og komust því ekki í úrslit. Fimmti flokkur lék í A-riðli, enduðu í öðru til þriðja sæti en aðeins efsta liðið komst í úrslit.
Laufey og Þóra B. ekki í ÍBV
Það var greinilega hugur í forráðamönnum kvennaliðs ÍBV því samningaviðræður við tvær sterkar knattspyrnukonur voru langt komnar í janúar. Um var að ræða miðjumanninn Laufeyju Ólafsdóttur og markvörðinn Þóru B. Helgadóttur en á endanum varð ekkert úr vistaskiptum leikmannanna. Laufey átti reyndar eftir að leika með ÍBV síðar.
Fjórði flokkur 8-liða úrslit
Fjórði flokkur karla lagði eitt besta lið í sínum aldursflokki í handbolta að velli í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar, og það á útivelli. Strákarnir spiluðu mjög vel, Bjarni Einarsson skoraði átta mörk og Kristinn Jónatansson átti góðan leik í markinu. Í liðinu mátti einnig finna þá Kára Kristján Kristjánsson, Davíð Þór Óskarsson, Sigþór Friðriksson og Sindra Haraldsson, sem allir léku síðan með meistaraflokki félagsins.
ÍBV liðin ekki í úrslit í innanhússboltanum
Meistaraflokkar ÍBV léku í Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu. Stelpurnar unnu tvo leiki en töpuðu fyrir Stjörnunni og Breiðabliki. Þjálfari liðsins Heimir Hallgrímsson sagðist nokkuð sáttur með spilamennsku liðsins. Karlarnir léku í 1. deild og voru í riðli með Keflavík, Selfossi og Val. Strákarnir enduðu í þriðja sæti riðilsins og komust ekki í úrslit.
Eyjapeyjar kljást á enskri grundu
Eyjapeyjarnir Bjarnólfur Lárusson og Hermann Hreiðarsson mættust í bikarkeppni neðrideilda í Englandi. Bjarnólfur lék með Walsall en Hermann með Brentford og á endanum var það Bjarnólfur sem hafði betur en saman léku þeir með ÍBV nokkrum misserum áður.
Eyjamenn óstöðvandi á heimavelli
Karlalið ÍBV lagði Val að velli 22:19 í Nissandeildinni í handbolta. Eyjamenn höfðu fyrir leikinn ekki tapað á heimavelli og voru Valsmenn lítil hindrun.
Góður sigur í hörkuleik
Kvennalið ÍBV lagði Gróttu/KR í leik liða sem bæði voru í neðri hluta deildarinnar. ÍBV var sex mörkum yfir í hálfleik 13:7 en aðeins dró saman með liðunum í síðari hálfleik og lokatölur 23:21.
Febrúar:
Áfram gott gengi á heimavelli
Karlalið ÍBV í handboltanum hélt áfram á sigurbraut á heimavelli en Eyjamenn lögðu nágranna sína í Selfossi 28:21. Staðan í hálfleik var 18:10 og sigur Eyjamanna því nokkuð sannfærandi en Sigmar Þröstur varði hvorki meira né minna en 25 skot í leiknum.
Ekkert bikarævintýri hjá stelpunum
Kvennalið ÍBV í handbolta mætti Fram í undanúrslitum í Eyjum. Leikurinn var jafn og spennandi en Fram reyndist sterkari á lokakaflanum og hafði betur 17:21. Leikmenn ÍBV fóru oft illa að ráði sínu og klúðruðu t.d. fimm vítaskotum í leiknum.
Hvers á Haraldur að gjalda?
Stundum verður mönnum heitt í hamsi á og við leikvelli landsins, líka í Vestmannaeyjum. Í Fréttum er sagt frá því að í leik ÍBV og Selfoss hafi „hinum dagfarsprúða, Haraldi Óskarssyni,“ sem var á sínum vanalega stað í einu horni hússins, verið hent út úr húsi af dómurum leiksins. Haraldur mun hafa verið með vinsamlegar athugasemdir við dómgæsluna, sem féll í grýttan jarðveg. „Gæti þetta atvik haft það í för með sér að Haraldur yrði settur í heimaleikjabann út þetta tímabil,“ segir í fréttinni.
Sex efnilegar á landsliðsæfingu
Fjórði flokkur kvenna náði þokkalegum árangri þegar liðið lék í 2. deild en ÍBV vann tvo leiki en tapaði einum. Þá tapaði liðið fyrir Stjörnunni í bikarkeppninni 12:15. Sex leikmenn liðsins tóku þátt í landsliðsæfingu, þær Edda Svavarsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Kristjana Ingibergsdóttir, Aníta Eyþórsdóttir, Elfa Ólafsdóttir og Bjarný Þorvarðardóttir.
ÍBV býður hagstæða mánaðarsamninga
ÍBV-íþróttafélag býður forráðamönnum barna upp á hagstæða mánaðarsamninga. Með samningnum gerist viðkomandi félagsmaður í ÍBV-íþróttafélagi og hefur rétt til að stunda æfingar. Mánaðargjald er 1.500 kr. á mánuði eða 18.000 kr á ári. Þeir sem ekki gera samning verða að borga 2.000 kr. á mánuði eða 24.000 kr. á ári.
Eyjamaðurinn sá um Eyjamenn
Karlalið ÍBV tapaði sínum fyrsta heimaleik í handboltanum þegar Stjarnan kom í heimsókn. Í liði Stjörnunnar voru einmitt tveir Eyjapeyjar, þeir Arnar Pétursson og Birkir Ívar Guðmundsson en Birkir Ívar reyndist sínum gömlu félögum erfiður ljár í þúfu. Í hálfleik var staðan 10:11 en lokatölur urðu 21:22. Birkir Ívar varði 25 skot í leiknum en hans lærimeistari, Sigmar Þröstur aðeins 11.
Þetta var ekki góð vika fyrir Eyjamenn því þeir töpuðu einnig fyrir FH á útivelli 25:19 en útivallagrýlan var að leika Eyjamenn grátt þennan veturinn.
10 milljónir
Í mars 2009 afhentu Krókódílarnir handknattleiksráði ÍBV styrk að upphæð 10 milljónir króna. Styrkurinn sem Krókódílarnir afhentu með formlegum hætti var það
sem safnast hafði með félagsgjöldunum undanfarin fjögur ár.
Krókódílar er óformlegur félagasskapur sem hefur það að markmiði að styðja við handboltann í Vestmannaeyjum. Mánaðarlega greiða þeir félagsgjald og innifalið í félagsgjaldinu er aðgangur að öllum deildarleikjum ÍBV í handboltanum.
En einnig hefur félagsskapurinn að markmiði að hjálpa til með öðrum fjáröflunum.
Tveir tapleikir og draumurinn úti
Kvennalið ÍBV tapaði einnig tveimur leikjum í þessari sömu viku, fyrst heima gegn stórliði Stjörnunnar og síðan á útivelli gegn FH. Þar með var útséð með að ÍBV myndi blanda sér í toppbaráttuna í deildinni.
Íslandsmeistarar innanhúss
Stelpurnar í fjórða flokki eru sannarlega efnilegar en þær hafa unnið nokkra titla og nú síðast urðu þær Íslandsmeistarar í innanhússknattspyrnu. Stelpurnar unnu alla sína leiki, enduðu á að leggja Val að velli 3:2 í úrslitaleik en meðal markaskorara var Margrét Lára Viðarsdóttir. „Stelpurnar eru sannkallaðir gullmolar og voru bæði sjálfum sér og ÍBV til mikils sóma jafnt innan vallar sem utan,“ sagði Íris Sæmundsdóttir, þjálfari flokksins.
Miklar breytingar á kvennaliðinu
Unnið er hörðum höndum að því að styrkja kvennalið ÍBV í knattspyrnu fyrir átökin í sumar en Heimir Hallgrímsson, þjálfari liðsins segir í viðtali í Fréttum að m.a. verði fengnir leikmenn frá Bítlaborginni Liverpool í Englandi. Alls munu sjö leikmenn, sem voru með liðinu í fyrra, ekki leika í ár en Heimir er bjartsýnn á að hægt verði að tefla fram sterku liði í sumar.
Strákarnir æfðu í USA
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV í karlaknattspyrnunni héldu í æfingaferð til Florída í Bandaríkjunum. Leiknir voru æfingaleikir, m.a. gegn bandarísku atvinnumannaliðinu Miami Fusions þar sem hinn hárfagri Mexíkói Carlos Valderrama leikur en ÍBV hafði betur í leiknum, 2:0. Einnig var leikið gegn Washington Wizards en sá leikur tapaðist 0:2. Margt var brallað í ferðinni, farið á NBA leik, Universal Studios og hluti hópsins fylgdist með geimskoti frá Kennedy Space Center. Sannkölluð ævintýraferð.
Mars:
Hlynur íþróttamaður ársins 1998
Í marsbyrjun var Hlynur Stefánsson útnefndur íþróttamaður Vestmannaeyja ársins 1998 en afhendingin fór fram í Þórsheimilinu. Sigurlás Þorleifsson, fyrrum knattspyrnumaður og -þjálfari var jafnframt heiðraður fyrir vel unnin störf. Báðir eiga þeir Hlynur og Sigurlás glæsta ferla að baki í knattspyrnunni, bæði hérlendis og erlendis en Hlynur var fyrirliði ÍBV sem hampaði Íslands- og bikarmeistaratitli 1998.
Útivallagrýlan erfið
Karlalið ÍBV tapaði fyrir Gróttu/KR 27:26 á útivelli en með sigri hefði ÍBV tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Kvennalið ÍBV tapaði einnig á útivelli, gegn Víkingi 19:17 en ÍBV er í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar tveir leikir eru eftir.
Hemmi auglýsir Eyjarnar
Knattspyrnukappinn Hermann Hreiðarsson, sem leikur með Brentford tók að sér að prófa legghlífar í enska tímaritinu Match of the Day. Karatemaður var fenginn til að sparka í leggi Eyjamannsins og átti Hemmi að leggja mat á hvaða legghlífar væru bestar. Hermann mætti til leiks í búningi Vallógengisins svokallaða, sem gerði góða hluti í innanhúsmóti sem haldið var ár hvert um árabil í Eyjum. Á búningnum voru merki ýmissa fyrirtækja í Eyjum, sem líklega hafa aldrei fengið aðra eins auglýsingu.
ÍBV í úrslit
Handboltalið ÍBV tryggði sér sæti í úrslitum með góðum sigri á deildarmeisturum Aftureldingar í Eyjum. Lokatölur urðu 28:25. Kvennalið ÍBV komst einnig í úrslit eftir tvo góða sigra á lokaspretti deildarinnar. Fyrst lagði ÍBV bikarmeistara Fram að velli 26:21 og svo Hauka 24:20. Liðið leikur svo gegn Fram í úrslitakeppninni.
Deiliskipulag Herjólfsdals
Á árinu réðist bæjarstjórn í deiliskipulag fyrir Herjólfsdal. Eðlilega miðaðist vinnan að nokkru leyti við hátíðahöldin í byrjun ágúst ár hvert en í 11. tölublaði Frétta er farið yfir tillögurnar. Þar segir m.a. að byggja eigi varanlegt svið úr timbri og yrði hæð á danspalli um 1,8 metrar og heildarhæð hámark 8 metrar. Þá er lagt til að varanleg brú sé byggð yfir tjörnina.
Ekki samstarf við Ölgerðina
Á stjórnarfundi aðalstjórnar 13. mars mætti Einar Friðþjófsson, starfsmaður Shell- og Pepsímótsins. Gerði hann grein fyrir vinnu sinni við undirbúning mótanna. Kom fram hjá honum, að ekki verður um áframhaldandi samstarf að ræða við Ölgerð Egils Skallagrímssonar. – Áður hafði aðalstjórn óskað eftir hærri styrk vegna Pæjumótsins. Í svari Ölgerðarinnr við þessari ósk, segir að ekki sé vilji til að hækka styrkinn, en Ölgerðin muni ekki standa í vegi fyrir samningi ÍBV við önnur fyrirtæki.
Sviptingar í úrslitakeppninni
Kvennalið ÍBV mætti Fram í úrslitakeppni Íslandsmótsins í handbolta. Fram var með heimaleikjaréttinn og vann fyrsta leikinn örugglega 30:23 en ÍBV svaraði með sannfærandi sigri 32:22. Liðin þurfa því að mætast í oddaleik.
Loksins útisigur
Karlalið ÍBV hefur ekki riðið feitum hesti frá útileikjum liðsins í Íslandsmótinu í handbolta. En leikmenn ÍBV sýndu góðan leik gegn Fram í síðustu umferð deildarkeppninnar og unnu á útivelli 20:21. Um leið tryggði liðið sér heimaleikjarétt í úrslitarimmu gegn Haukum.
Birkir Kristins til ÍBV
Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Kristinsson skrifaði undir samning um að leika með knattspyrnuliði ÍBV um sumarið.
Malarvöllurinn ónýtur?
Knattspyrnumenn ÍBV sendu bæjarráði Vestmannaeyja bréf þar sem þeir benda á slæmt ástand malarvallarins við Löngulág. Endurbætur á vellinum þóttu ekki vel heppnaðar og völlurinn í raun hættulegur. Benda þeir jafnframt á aðstöðumun milli ÍBV og liða á höfuðborgarsvæðinu og hversu dapurlegt það sé að Íslands- og bikarmeistarar skuli búa við slíka æfingaaðstöðu.
Draumurinn um undanúrslit að engu
Eyjamenn gerðu sér vonir um að komast í undanúrslit Íslandsmótsins en leikið var gegn Haukum í 8-liða úrslitum og var ÍBV með heimaleikjaréttinn. Eyjamenn höfðu betur í fyrsta leiknum, 30:25 en Haukar svöruðu með stórsigri í Hafnarfirði 33:24. Liðin mættust því í oddaleik í Eyjum. Leikurinn stóð hins vegar ekki undir væntingum, Haukar voru einfaldlega betri, voru 10:15 yfir í hálfleik og unnu að lokum 29:34. Þar með féll ÍBV úr keppni en þetta var jafnframt eina tap ÍBV á heimavelli í Íslandsmótinu.
Slæm byrjun varð ÍBV að falli
Eyjakonur mættu Fram á útivelli í oddaleik í úrslitum Íslandsmótsins. ÍBV byrjaði mjög illa og staðan í hálfleik var 12:3. En seinni hálfleikur var mun betri, þótt sigur Fram hefði aldrei verið í hættu.
11 Eyjapeyjar með öðrum liðum
ÍBV stóð sig vel í Íslandsmótinu í handbolta og tefldi fram vel samkeppnishæfu liði veturinn 1998-1999 en liðið tapaði ekki leik í deildarkeppninni á heimavelli. Það er ekki síst merkilegt fyrir þá staðreynd að 11 leikmenn annarra liða í Íslandsmótinu, fengu sitt handboltauppeldi í Eyjum. Samkvæmt Fréttum voru þetta þeir Magnús Arnar Arngrímsson, Gunnar Berg Viktorsson og Sebastían Alexandersson sem léku allir með Fram, Arnar Pétursson og Birkir Ívar Guðmundsson léku með Stjörnunni, Hlynur Jóhannesson varði mark HK, Lárus Long lék með FH, Erlingur Richardsson með Val, Björgvin Þór Rúnarsson með Selfossi og þeir Zoltán Bragi Belanyi og Gylfi Bragason með Gróttu/KR.
Apríl:
Þorbergur hættir hjá ÍBV
Þorbergur Aðalsteinsson, sem þjálfað hefur karlalið ÍBV í handbolta síðustu fjögur ár, mun ekki halda áfram með liðið. „Þorbergur hefur skilað góðu starfi og menn skilja sáttir,“ sagði Magnús Bragason, formaður handknattleiksráðs ÍBV í Fréttum en ekki var búið að ráða nýjan þjálfara.
Simmi hættir
Sigmar Þröstur Óskarsson, einn besti markvörður landsins, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 23 ár í meistaraflokki. Simmi hefur marga fjöruna sopið á þessum tíma en um vorið lauk hann námi við skipstjórnardeild FÍV og því á leið á sjóinn. Simmi hóf ferilinn 15 ára gamall, árið 1976 með Þór og eftir að meistaraflokkarnir voru sameinaðir í ÍBV, stóð Simmi áfram í markinu. Auk þess að spila með þessum tveimur félögum, lék hann með Stjörnunni og KA. „Þetta er búið að vera mjög gaman en það sem mér þykir verst er að hafa ekki náð meistaratitli með ÍBV,“ sagði Simmi í viðtali í Fréttum.
Gunnar ósáttur og farinn
Gunnar Sigurðsson, sem varði mark knattspyrnuliðs ÍBV, hefur ákveðið að róa á önnur mið eftir að Birkir Kristinsson gekk í raðir liðsins. Gunnar segir viðskilnaðinn ekki hafa verið í góðu en ber þó engan kala til félagsins, eins og fram kemur í viðtali í 15. tölublaði Frétta. Gunnar var ekki lengi að finna sér nýtt lið en hann samdi við sænska 1. deildarliðið IK Brage.
Venni líka ósáttur
Sigurvin Ólafsson, ákvað einnig að róa á önnur mið en í aðsendri grein segir hann að viðskilnaðurinn hafi endað með leiðindum. Sigurvin, eða Venni gekk í raðir Fram en hann hafði glímt við erfið meiðsli tímabilið á undan.
Guðfinnur og Guðbjörg best
Lokahóf handboltans fór fram í Kiwanis. Hápunktur kvöldsins var þegar handknattleiksfólk ársins var tilkynnt en heiðurinn kom í hlut þeirra Guðfinns Kristmannssonar og Guðbjargar Guðmannsdóttur. Sigurður Ari Stefánsson og Hind Hannesdóttir fengu Fréttabikarana og þá voru þeir Sigmar Þröstur Óskarsson, Þorbergur Aðalsteinsson og Þorvarður Þorvaldsson allir heiðraðir fyrir vel unnin störf í þágu handboltans.
ÍBV Norður-Atlantshafsmeistari 1999
Íslandsmeistarar ÍBV í knattspyrnu og Færeyjameistarar í HB, mættust í meistarakeppni landanna tveggja á gervigrasvellinum í Færeyjum. Um 1500 manns mættu á leikinn, sem var hinn fjörugasti. Leiknum lauk með sigri ÍBV eftir vítaspyrnukeppni en lokatölur eftir venjulegan leiktíma var 2:2.
Maí:
Fjórði flokkur bikarmeistari
Strákarnir í fjórða flokki í handboltanum stóðu sig vel. Liðið tapaði naumlega í úrslitum Íslandsmótsins gegn KA en unnu bikarmeistaratitilinn eftir framlengdan leik gegn FH 21:17.
Simmi í liði ársins
Sigmar Þröstur Óskarsson, markvörður ÍBV í handbolta var valinn í lið ársins á lokahófi HSÍ. Þá var kvennaliði ÍBV valið prúðasta lið Íslandsmótsins.
Misstu af úrslitaleiknum
Karlalið ÍBV tapaði fyrir ÍA í undanúrslitum deildarbikarsins en lokatölur urðu 1:2. Leikurinn fór fram á Helgafellsvelli.
Gunnari Berg margt til lista lagt
Handknattleiksmanninum Gunnari Berg Viktorssyni er margt til lista lagt en á dögunum fór hann holu í höggi á golfvellinum í Eyjum, á 17. braut. „Ég hélt nú alveg rónni en það sama er ekki hægt að segja um meðspilarann, Sigurð Bragason, hann trompaðist alveg, faðmaði mig og kyssti, slíkur var fögnuðurinn,“ sagði Gunnar Berg í viðtali í Fréttum.
Steingrímur með fernu
Kvennalið ÍBV tapaði fyrsta leik sínum í Íslandsmótinu í fótbolta þegar liðið sótti geysisterkt lið KR heim. Lokatölur urðu 3:1 fyrir KR. Karlalið ÍBV byrjaði á stórsigri á heimavelli gegn Leiftri, 5:0 þar sem Steingrímur Jóhannesson gerði fjögur mörk. Liðið gerði svo markalaust jafntefli gegn Val á útivelli í næsta leik.
Úr leik í deildarbikarnum
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV urðu að sætta sig við tap gegn ákveðnum Skagamönnum í deildarbikar karla. Ljósi punkturinn við leikinn er að ÍBV var án nokkurra lykilmanna og var skarð þeirra fyllt með ungum og efnilegum leikmönnum. Bjarni Jóhannsson þjálfari notaði líka alla varamennina þannig að unglingamir í hópnum fengu tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og fá um leið innistæðu í reynslubankann.
Heppnir að ná stigi
Leikur Vals og ÍBV á Hlíðarenda í Landssímadeildinni fór fram við ágætar aðstæður. Byrjunin var ansi fjörleg, ÍBV fékk kjörið tækifæri strax á annarri mínútu leiksins, þegar Ívar Ingimarsson átti skalla inn í vítateig Vals og Hlynur náði að pota í boltann en markmaður Vals varði. Fleiri urðu marktækifærin en mörkin létu ekki sjá sig og mátti ÍBV þakka fyrir að halda heim með annað stigið.
Júní
Gámakaup og styrkir
Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar mætti á stjórnarfund aðalstjórnar 10. júní. Gerði hann grein fyrir störfum nefndarinnar. Þá sagði hann að þjóðhátíðarnefnd hefði ákveðið að kaupa vörugáma til að byggja nýtt svið. Eldri gámarnir væru orðnir lélegir.
Á sama fundi samþykkti aðalstjórn að veita 100 þúsund króna styrk til utanferða yngri flokka félagsins. Skuli sú upphæð skiptast jafnt milli karla og kvenna. Þá var samþykkt á næsta fundi að kostnaður við ferðir á önnur mót en Íslandsmót verði ekki greiddur af ÍBV íþróttafélagi.
Sorglegt
Liðsmenn ÍBV vilja sennilega gleyma leik sínum gegn Blikum í Kópavogi í Landssímadeildinni. Ástæðan einföld, leikurinn var afspyrnuslakur af hálfu Eyjamanna. Leikurinn fór 1 - 0 fyrir heimamenn og var sigurinn síst of stór.
Sorglegt var að horfa upp á jafn gott lið og ÍBV spila jafn ömurlega og í þessum leik. Leikmenn virtust mjög þungir og spiluðu engan veginn sem eitt lið. Voru mjög óöruggir á boltann og þar af leiðandi náðu þeir aldrei að skapa sér góð marktækifæri með hröðum og góðum sóknarleik. Vonandi verður þessi leikur Eyjamönnum lokaaðvörun fyrir framhaldið. Því annars hlýtur spurningin að vera: Hvað er að strákar?
2. flokkur karla
Annar flokkur karla hóf Íslandsmótið í a-riðli með því að gera jafntefli gegn KR-ingum á heimavelli á mánudagskvöld. Strákarnir sýndu ágætis tilþrif en þegar á heildina er litið var jafntefli nokkuð sanngjörn úrslit. Mark ÍBV skoraði Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Þess má geta að þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum, þar af tveir KR-ingar.
Stelpurnar öflugar
Annar flokkur kvenna lék sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu nú í vikunni. Eyjastúlkur mættu liði Stjörnunnar í hörkuleik og sigruðu sannfærandi, 3-2. Mörk ÍBV skoruðu; Kelly Shimmen tvö og Bryndís Jóhannesdóttir eitt.
Grátlegt hjá þriðja flokki
Þriðji flokkur karla lék gegn Keflvíkingum í Eyjum í júníbyrjun og voru miklar sviptingar í leiknum. Eyjapeyjar rúlluðu gestunum upp í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi, 3-0. Í síðari hálfleik gekk allt á afturfótunum og máttu heimamenn þola tap í leiknum, 3-4. Mörk IBV skoruðu þeir; Bjarni Rúnar tvö og Haraldur eitt.
Hásteinsvöllur ólöglegur
Knattspyrnuvöllurinn við Hástein fullnægir ekki þeim skilyrðum sem sett eru um slík mannvirki að kröfum KSÍ. - Talsverðar endurbætur þarf að gera á áhorfendasvæði, aðgengi fyrir leikmenn og aðstöðu fyrir miðasölu. Sótt hefur verið um undanþágu til KSÍ vegna þessa. KSÍ hefur ítrekað krafist endurbóta og segir að einungis sé heimilt að veita undanþágu ef staðfest framkvæmdaáætlun liggi fyrir um endurbætur. ÍBV fær frest fram til 15. júlí til að leggja fram staðfesta framkvæmdaáætlun um endurbætur. Ef sú áætlun liggur þá ekki fyrir má eins búast við að ÍBV verði ekki leyft að leika sína heimaleiki á Hásteinsvelli.
Fjöldi viðurkenninga á lokahófi
Lokahóf yngri flokkanna í handbolta var haldið um mánaðarmótin maí/júní. Þau hlutu viðurkenningar að þessu sinni:
3. flokkur karla: Sigurður Ari Stefánsson hlaut FRÉTTABIKAR karla en önnur verðlaun voru ekki veitt í þessum flokki.
3. flokkur kvenna: Hind Hannesdóttir hlaut FRÉTTABIKAR kvenna. Besti leikmaður: Hind Hannesdóttir. Mestu framfarir: Aníta Ársælsdóttir. Efnilegust: Anna Rós Hallgrímsd.
4. flokkur kvenna: Besta ástundun: Aníta Eyþórsdóttir. Mestu framfarir: Hildur Ólafsdóttir. Efnilegust: Bjarný Þorvarðardóttir.
4. flokkur karla: Mestu framfarir: Sigþór Friðriksson. Efnilegasti: Kristinn Jónatansson. Besti leikmaður: Einar Hlöðver Sigurðsson.
5.flokkur kvenna: Mestu framfarir: Erna Sævarsdóttir. Besta ástundun: Kristín I Grímsdóttir. Prúðasti leikmaður: Karítas Þórarinsdóttir.
5. flokkur karla: Mestu framfarir: Jens Kristinn Elíasson. Besta ástundun: Benedikt Ó. Steingrímsson. Prúðasti leikmaður: Hilmar Á. Björnsson.
6. flokkur kvenna - eldri: Prúðasti leikmaður: Anna M. Kristinsdóttir. Mestu framfarir: Karen Birgisdóttir. Besta ástundun: Hildur B. Bjarkadóttir, Sæunn Magnúsdóttir og Svala Jónsdóttir.
6. flokkur kvenna - yngri: Prúðasti leikmaður: Þórunn Sigurðardóttir. Mestu framfarir: Hekla Hannesdóttir. Besta ástundun: Ester Óskarsdóttir og Helena S. Magnúsdóttir.
6. flokkur karla - eldri: Prúðasti leikmaður: Gísli Stefánsson. Mestu framfarir: Daði Ólafsson. Besta ástundun: Daði Ólafsson, Eyþór Björgvinsson, Pálmi Harðarson og Grétar Stefánsson.
6. flokkur karla - yngri: Prúðasti leikmaður: Óttar Steingrímsson. Mestu framfarir: Daði Magnússon og Egill Jóhannsson. Besta ástundun: Sæþór Garðarsson.
Tap í frábærum leik
Það var ljóst strax á fyrstu mínútu leiks ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli í meistaradeild kvenna að bæði liðin ætluðu sér ekkert nema sigur og að fyrir höndum var stórskemmtilegur leikur. Fyrri hálfleikur stóð fyllilega undir þeim væntingum en enginn átti von á eins stórkostlegum seinni hálfleik og raun varð á. I fyrri hálfleik var staðan 1- 0 heimakonum í vil en í seinni hálfleik urðu mörkin 8 og höfðu gestirnir betur en lokatölur urðu 4-5 . Er seinni hálfleikur einn sá skemmtilegasti sem sést hefur í kvennaknattspyrnu í Vestmannaeyjum og ekki hafa karlarnir gert betur það sem af er tímabilinu.
ESSO og IBV undirrita nýjan samstarfssaming til 2ja ára
Olíufélagið hf. ESSO og knattspyrnudeild ÍBV undirrituðu nýjan samstarfssamning sinn til tveggja ára. ESSO er stærsti styrktaraðili knattspyrnudeildar ÍBV eins og undanfarin 11 ár. Samningurinn var undirritaður við nýja bensínstöð ESSO í Ártúnshöfða í Reykjavík með pompi og pragt. Samstarf Olíufélagsins hf. ESSO og knattspyrnudeildar ÍBV hefur nú staðið yfir í 11 ár. í upphafi samstarfsins var ÍBV að berjast í bökkum í næstefstu deild en þrátt fyrir misjafnt gengi liðsins í gegnum tíðina hefur ESSO ávallt haldið tryggð við ÍBV enda Eyjamenn einstaklega atorkusamir við að koma sér í kastljós fjölmiðla. Á síðustu tveimur árum hefur samvinnan svo skilað sér í íslandsmeistaratitlum og bikarmeistaratitli ÍBV. Samvinna ESSO og IBV í gegnum tíðina hefur verið einstök. Eins og góðu hjónabandi sæmir styrkjast stoðirnar og samheldnin eftir því sem árunum fjölgar. Áfram skal haldið á sömu braut. Enn á ný hafa ESSO og ÍBV ákveðið að halda áfram farsælu samstarfi sínu. Olíufélagið hf. ESSO verður áfram stærsti styrktaraðili ÍBV og bera allir karlaflokkar, frá meistaraflokki og niður í 7. flokk, merki Olíufélagsins hf. ESSO á brjósti IBV búninga deildarinnar auk þess að vera áberandi á einn og annan hátt í starfi deildarinnar.
Ánægja með Pæjumótið
Forsvarsmenn KA-Pæjumótsins eru mjög ánægðir með hvernig mótið gekk fyrir sig. Þrátt fyrir þriggja daga rigningu og stífan vind tókst að ljúka mótinu á tilsettum tíma. Björn Elíasson, sem var í stjórn mótsins, segir mótið hafa gengið mjög vel fyrir sig, miðað við hvernig veðrið var. „Vegna bleytu á laugardeginum gripum við til varaáætlunar, færðum leikina aftar á daginn, styttum leiktímann og tókst að Ijúka Ieikjum dagsins um hálfníuleytið um kvöldið. Þetta tókst því eins vel og hægt var að búast við og á allt okkar starfsfólk mikið hrós skilið, ekki síður en þátttakendurnir sem sýndu bæði skilning og þolinmæði. Sérstaklega ber að þakka húsvörðum skólanna og svo fólki úti í bæ sem tók að sér að þurrka fatnað af liðunum. Auðvitað koma alltaf upp einhver mál þar sem ekki eru allir ánægðir en í móti með 850 þátttakendum væri nú bara óeðlilegt ef ekki kæmi slíkt upp á. Mér fannst aftur á móti ótrúlegt hve lítið fór úrskeiðis, miðað við hvernig veðrið var. Og núna erum við að fá inn á póstinn okkar á netinu hrós og þakkir, bæði frá þátttakendum og fararstjórum. Við getum því ekki verið annað en ánægð með hvernig til tókst," sagði Björn Elíasson.
Í Pæjumótinu lenti 3. flokkur A: ÍBV í 3. sæti og þar varð Elva Dögg Grímsdóttir í öðru sæti yfir markahæstu menn með 7 mörk.
3. flokkur B: ÍBV lenti þar í 4.sæti og Ásta Hrönn Guðmannsdóttir varð markahæst með 7 mörk.
4. flokkur A: ÍBV-liðið lék hreint út sagt frábærlega og sigraði mjög sannfærandi lið KR í úrslitaleik, 4-0. Margrét Lára Viðarsdóttir varð langmarkahæst með 22 mörk og Thelma Sigurðardóttir varð í öðru sæti með 15 mörk.
5. flokkur A: ÍBV sigraði Val í úrslitaleik, 4-3, eftir vítaspyrnukeppni.
5.flokkur B: ÍBV lenti í 5. sæti
6. flokkur A: ÍBV sigraði þar með glæsibrag
6. flokkur B: Þar voru Eyjastúlkur með tvö lið, ÍBV og ÍBV-2. ÍBV-2 sigraði og ÍBV varð í 3. sæti. Elísabet Þorvaldsdóttir varð markahæst með 12 mörk og þær Berglind Þorvaldsdóttir og Bylgja Haraldsdóttir voru jafnar í þriðja sætinu með 8 mörk skoruð.
Sigur í grófum leik
Eyjamenn mættu grimmir til leiks gegn Fram á Hásteinsvelli í Landssímadeildinni. Þessi grimmd entist þó aðeins fyrri hálfleikinn en sá tími hefði átt að nægja Eyjamönnum til að gera út um leikinn. En færin nýttust illa og var staðan í leikhléi 1 - 0 Eyjamönnum í vil. Seinni hálfleikur var jafnari en um leið var hann einn grófasti leikur ÍBV í langan tíma og var uppskeran 4 gul spjöld og eitt mark sem á einhvern óskiljanlegan hátt var dæmt af.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari, gerði umtalsverðar breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Fram. Hlynur Stefánsson fór úr vörn á miðjuna og Guðni Rúnar tók sæti hans í vörninni. Bjarni Geir Viðarsson kom nýr inn í byrjunarlið í stöðu hægri bakvarðar og Ívar Bjarklind var færður fram í stöðu framliggjandi miðjumanns.
Heppnin ekki með Eyjastúlkum
ÍBV-stelpurnar urðu að sætta sig við tap þegar þær mættu Val. Lokatölur urðu 2- 1 en í hálfleik var staðan 1 - 1 . Fljótlega í upphafi fyrri hálfleiks fékk ÍBV á sig hálf klaufalegt mark og tók það liðið nokkum tíma að ná vindi í seglin á ný. Það tókst þó og með mikilli baráttu tókst Eyjastúlkum að jafna með marki Karenar Burke. Strax á fyrstu mínútum seinni hálfleiks tókst Valsstúlkum að skora mark sem tryggði þeim þrjú stig úr leiknum. Þrátt fyrir mótlætið gáfust ÍB V-stelpumar ekki upp. Þær náðu að skapa sér nokkur góð færi en því miður höfðu þær ekki heppnina með sér að þessu sinni.
Í kröppum dansi
Bikarmeistarar ÍB V komust í hann krappan þegar þeir mættu 3. deildarliði Leiknis á útivelli í fyrrakvöld í 32 liða úrslitum bikarkeppninnar. Jafnt var undir lok leiksins, 2 - 2, en á lokamínútunum tókst Eyjamönnum að skora tvö mörk og gera þannig út um leikinn.
Gullkorn
Gullkorn frá Jóa Pé. Þeir félagar í handknattleiksráði voru að ræða um verðandi andstæðinga Íslands í Evrópukeppninni í handknattleik og Jóhann Pétursson hræddist aðeins eitt lið og sagði: „Ég vona aðeins að Íslendingar dragist ekki á móti Kúbu í Evrópukeppninni!!"
Alltaf stórleikur þegar spilað er við KR
Sannkallaður stórslagur í Landssímadeildinni og þarf ekki að taka fram hvað leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið. Með sigri KR hefðu þeir stungið af í deildinni og skilið IBV eftir. Eyjamenn voru ekki á þeim buxunum að láta KR-ingum þetta eftir og höfðu sigur, 2 - 1, en staðan var jöfn í hálfleik, 1-1. Eyjamenn komu virkilega vel stemmdir til leiks og var ekki liðin nema um mínúta af leiknum þegar þeir fengu sitt fyrsta tækifæri. Vantaði Inga Sigurðsson ekki nema eina tommu upp á að pota boltanum í netið. Boltinn kom þvert fyrir mark KR-inga rétt utan marklínu en því miður náði Ingi ekki til boltans sem kominn var framhjá Kristjáni markmanni.
KR-liðið er mjög léttleikandi enda eru þeir með marga snjalla leikmenn innanborðs. Það var því strax ljóst að framundan var spennandi leikur. Eftir hrapalleg mistök í vörn Eyjamanna náðu strákarnir hans Atla að sýna klærnar og skora mark. Þá voru aðeins sex mínútur liðnar af leiknum. Markið sló heimamenn út af laginu en þeir náðu þó að berja frá sér og fengu fljótlega tvö mjög góð færi.
Jöfnunarmark ÍBV kom eftir hornspyrnu frá Baldri Bragasyni sem loksins er á ná sér á strik í nýju liði. Hlynur fyrirliði náði boltanum og stýrði honum í netið og jöfnunarmarkið var staðreynd. Staðan varl-1 í leikhléi.
ÍBV var ekki á sama máli og þegar níu mínútur voru eftir af leiknum, skoraði Ívar Ingimarsson, sigurmark ÍBV með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu frá Baldri Bragasyni. Sigurinn á KR kostaði sitt, Ingi fékk rautt í lokin fyrir klaufalegt og óþarft brot og Hlynur fór meiddur af velli og verður frá í einhvern tíma.
Ójafn leikur
í Landssímadeild kvenna áttust við Fjölnir og ÍBV um miðjan júní. Leikurinn var mjög ójafn frá upphafi til enda og hefði sigur ÍBV getað orðið miklu stærri. Kelly Schimmen skoraði tvö mörk fyrir ÍBV strax í upphafi leiks og var staðan, 0 - 2, í hálfleik. ÍBV-stelpur sóttu án afláts í síðari hálfleik, en náðu aðeins að bæta einu marki við og var þar að verki Fanný Yngvadóttir.
Mikilvægur sigur
Þriðji flokkur karla lék hér heima gegn Val seinnipart júní. Var leikurinn bráðskemmtilegur á að horfa. Lið Vals er talið eitt það sterkasta á landinu í dag, en Eyjapeyjar sýndu góða takta í leiknum og sigruðu að lokum, 4-3. Bjarni Einarsson átti stórleik í liði ÍBV og skoraði öll fjögur mörk ÍBV í leiknum.
Skellur hjá fjórða flokki
Fjórði flokkur karla fékk Breiðablik í heimsókn og fengu strákarnir stóran skell. A-liðið mátti sætta sig við sjö marka tap, 4-11 og b-liðið tapaði, 2-4.
Upprúllun
Fjórði flokkur kvenna lék tvo leiki í síðustu helgina í júní. A-liðið lék gegn Fram og sigraði, 21-2 og síðan léku stelpumar gegn Grindavík og vann a-liðið, 9-2 og b-liðið vann, 6-1.
Sigur gegn Víkingi
Í lok júní fékk meistaraflokkur ÍBV karla nýliða Víkings í Landssímadeildinni í heimsók á Hásteinsvöll. ráðnir að breyta því í þessum leik. ÍBV byrjaði betur, þeir héldu boltanum nokkuð vel og voru grimmari í návígum. Það var svo þvert gegn gangi leiksins að heimamenn skoruðu og var það fyrir klaufagang í vörn ÍB V. Ekki í fyrsta skipti og var þetta á 13. mínútu. Markið kom eins og köld vatnsgusa í andlit Eyjamanna, en þeir náðu þó að koma sér fljótlega inn í leikinn aftur með marki Guðna Rúnars Helgasonar, sem skoraði með innanfótarskoti eftir misskilning milli markmanns og varnarmanns Víkings.
Seint í síðari hálfleik bætti Guðni Rúnar svo við öðru marki og sigur ÍBV 2-1 í höfn.
Stórsigur í bikarkeppninni og fjör á eftir
Eyjastúlkur mættu Fjölni í Coca Cola bikar kvenna um í lok mánaðar. ÍBV-liðið fór á kostum og sigraði stórt, 0 - 7. Kelly Schimmen gerði þrennu í leiknum, Karen Burke, Lára D. Konráðsdóttir og Lisa gerðu eitt mark hver og eitt mark var sjálfsmark. Staðan í leikhléi var, 0-3. Heimir Hallgrímsson, þjálfari IB V, var ánægður með sínar stelpur í leiknum. „Þetta var góður leikur af okkar hálfu og stelpumar gerðu bara það sem þær áttu að gera. Yfirburðir okkar voru miklir og Fjölnisstúlkur áttu aldrei neinn möguleika," sagði Heimir. Líf og fjör hjá stelpunum Eftir leikinn urðu stelpurnar eftir í höfuðborginni og var margt á döfinni. Á föstudagskvöldinu fóm þær út að borða saman á Pasta Basta og í framhaldi af því var kíkt á skemmtistaði borgarinnar. A laugardeginum var farið í LaserTag og keilu og síðan sigldu stelpurnar niður Hvítá. Á sunnudeginum var brunað til Grindavíkur og farið á hestaleigu og svo endað í Bláa lóninu. Já, þær kunna sko að skemmta sér þessar stelpur!
Júlí
Jafntefli gegn Breiðabliki
Eyjastúlkur fengu frískt lið Breiðabliks í heimsókn í Landssímadeildinni í byrjun júlí. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa enda mjög léttleikandi lið þarna á ferðinni. Leikurinn endaði í jafntefli, 1-1.
Að éta það sem úti frýs!
Um miðjan júlí birtist lesendabréf í Eyjafréttum frá einum stuðningsmanni ÍBV:
„Ég rak upp stór augu þegar ég fletti á forsíðu íþróttablaðsins í Morgunblaðinu laugardaginn 17. júlí 1999, það gat ekki verið að ég væri vöknuð. „Geta bara étið það sem úti frýs" var fyrirsögnin á viðtali sem Björn Ingi Hrafnsson tók við Bjarna Jóhannsson þjálfara ÍBV, þar er Bjarni að tala til þeirra sem gagnrýna leikskipulag liðsins^ Ég varð hálf ill að sjá hvemig þjálfari liðsins míns talaði til okkar stuðningsmanna sinna. Ég hreinlega veit ekki hvað þessir menn halda að þeir séu orðnir. Ef ég, sem stuðningsmaður, má ekki orðið gagnrýna leik eða leikskipulag minna manna og hafa mína skoðun, þá held ég að það sé best fyrir alla unnendur þessa leiks að finna sér annað áhugamál, þetta er jú hluti af „programmet". ÍBV er það lið sem hefur nú síðustu ár getað státað sig af frábærum stuðningsmönnum, sem hafa getað gert nánast hvaða knattspyrnuvöll sem er að sínum heimavelli. Einhvern tíma hefði verið talið að sá árangur sem ÍBV hefur náð væri ekki hægt að ná nema með hjálp stuðningsmanna, en nú er greinilega komið annað hljóð í strokkinn. Þessir menn sem stjórna liðinu verða að gera sér
að hafa fyrir því að halda stuðningsmönnunum en ég er ekki viss um að þeir líði svona framkomu. Ég hef alltaf haft stórt ÍBV hjarta en nú eru tilfinningarnar í garð liðsins orðnar blendnar. Þetta hefur alltaf verið gaman en nú er gamanið búið. Er ekki nokkur maður að þessu lengur af því að hann hefur gaman að þessu, er þetta allt gert einungis fyrir aurana. Mér finnst mjög mikilvægt að stjórnarmenn og þjálfari ÍBV liðsins fari núna að hugsa sinn gang áður en þeir mála sig algjörlega út í horn. Ef þjálfarinn getur ekki tekið gagnrýni þá held ég að hann sé ekki á réttri hillu í lífinu, hann ætti að leita sér að nýrri vinnu.
Með íþróttakveðju, Þórunn Ragnarsdóttír Sörlaskjóli 5 107 Reykjavík“
Góður sigur hjá 2. flokki
Annar flokkur karla lék gegn ÍA á heimavelli. Eyjapeyjar voru sprækir í þessum leik og sigruðu gestina með tveimur mörkum gegn einu. Mörk ÍBV skoruðu þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Elías Ingi Björgvinsson.
5. flokkur
Fimmti flokkur karla fékk lið Grindavíkur í heimsókn. Úrslit urðu sem hér segir: A-lið: ÍBV-Grindavík 2-1. Mörk ÍBV Einar Kr. og Viðar. alt A-lið: ÍBV-Grindavík 3-4 Mörk ÍBV Egill 2, Hjálmar l. C-lið: ÍBV-Grindavík 1-2. Mark ÍBV skoraði Daði.
Jóhann nýr formaður
Aðalfundur ÍBV íþróttafélags fór fram í lok febrúar 2005 og bar það helst til tíðinda að nýr formaður tók við en Óskar Freyr Brynjarsson lét af störfum eftir þriggja ára starf. Við lyklavöldunum tók Jóhann Pétursson, sem lengi hafði unnið með íþróttahreyfingunni, bæði sem leikmaður og stjórnarmaður.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, var borin upp ályktun varðandi æfingaaðstöðu knattspymufólks yfir vetrarmánuðina og var ályktunin samþykkt einróma. Ályktunin er eftirfarandi: „ÍBV-íþróttafélag fer þess á leit við bæjarstjórn Vestmannaeyja að hún hefji tafarlaust undirbúning og framkvæmdir með það að markmið í huga að bæta úr bráðnauðsynlegri aðstöðu knattspyrnunnar til æfinga að vetrarlagi. Aðstaða sú er boðið er upp á í dag er fyrir neðan allar hellur. Verði ekkert aðhafst, verður þess ekki langt að bíða að við drögumst langt aftur úr á knattspyrnusviðinu, miðað við þau félög sem við erum að keppa við í dag.“
Fáheyrður árangur – Íslands- bikar- og deildarmeistarar
Leik ÍBV og Hauka í bikarúrslitum kvenna í handbolta árið 2004 verður minnst sem eins skemmtilegasta bikarúrslitaleiks kvenna. Leikurinn bauð uppá allt sem prýðir góðan úrslitaleik, hraða, spennu, dramatík og góð tilþrif. Eyjastúlkur léku mjög hraðan handbolta síðari hluta vetrar og áttu því margir von á Hafnfirðingar næðu ekki að fylgja þeim eftir, en annað kom á daginn. Það var í raun aðeins í blálokin sem stuðningsmenn ÍBV gátu létt af sér spennunni. Varnarleikur liðsins var slakur og sóknarleikurinn hægur. Liðið hafði oft leikið betur og í raun náðu stelpurnar sér aldrei á flug. Það sýndi hinsvegar styrk ÍBV að ná að sigra Haukastúlkur sem líklega voru að leika sinn besta leik þennan veturinn. Lokatölur urðu 35-32 fyrir ÍBV.
Mörk ÍBV: Alla Gokorian 9/3, Sylvia Strass 9, Anna Yakova 8, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Birgit Engl 4, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 19.
Bikarmeisturunum fagnað við heimkomuna
Það var mikið um dýrðir á Básaskersbryggju þegar Herjólfur lagðist að bryggju rétt um klukkan 20.00 með nýkrýnda bikarmeistara ÍBV í kvennahandboltanum. Fjöldi manns var á bryggjunni og fagnaði stelpunum. Bæjarstjóri og forráðamenn íþróttahreyfingarinnar færðu þeim blóm og heillaóskir og að lokum var mikil flugeldasýning stelpunum til heiðurs. Þær fengu meðal annars blóm og heillaóskir frá Haukastelpum, andstæðingum þeirra í úrslitunum, og KA-sem vann karlabikarinn.
Gat dottið báðum megin
Guðbjörg Guðmannsdóttir var kampakát í leikslok enda búin að sigra í sínum fyrsta bikarúrslitaleik. „Þetta var alveg rosalega gaman og með því skemmtilegra sem ég hef upplifað. Þetta var sigur þó þetta hafi ekki verið fallegasti leikur okkar í vetur. Þetta var spennuleikur eins og þeir gerast bestir og svona eiga bikarúrslitaleikir að vera. Þetta hefði í sjálfu sér getað dottið báðum megin en við tókum þetta í dag og það var frábært."
Á sjö dögum í mars lék lið ÍBV fjóra leiki í Íslandsmótinu og deildarmeistaratitillinn í húfi. Vikan fór ekki vel af stað, eftir tap gegn Stjörnunni á heimavelli kom annar tapleikur í röð gegn Gróttu/KR og tækifærunum til að tryggja sér deildarmeistaratitlilinn fækkaði. En tveir sigurleikir gegn Fram gerðu það að verkum að ÍBV varð deildarmeistari 2004.
Þá tryggði ÍBV sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta árið 2004 eftir sigur í fjórða leik ÍBV og Vals, 30-26 - í úrslitakeppninni byrjun maí. Voru yfirburðir ÍBV mun meiri en lokatölur gefa til kynna. Enginn fyrirliði í sögu handboltans hafði náð jafn góðum árangri og Elísa Sigurðardóttir en hún steig fram fyrir skjöldu á mikilvægum augnablikum gegn Val og skoraði mjög mikilvæg mörk og tók svo við Íslandsbikarnum í Valsheimilinu. Allir titlar vetrarins fóru því til ÍBV. – Fáheyrður árangur.
Þar að auki komst ÍBV liðið í undanúrslit í Evrópukeppninn í handbolta. Sennilega er þetta ÍBV lið, besta handboltalið kvenna fyrr og síðar.
Þegar nýkrýndir Íslandsmeistarar komu til Eyja eftir að hafa setið veðurtepptir á Selfossi um nóttina, var móttökuafhöfn haldin í Höllinni, þar sem og yfir 200 manns mættu og fögnuðu með stelpunum. Óskar Freyr Brynjarsson formaður ÍBV íþróttafélags stjórnaði hófinu. Bergur Ágústsson bæjarstjóri, sagði í ávarpi sínu til meistaranna að hann væri feginn því að úrslitakeppnin væri loksins búin, hann hefði ekki haft heilsu til að fylgjast lengur með henni.
Viðurkenning til ÍBV frá Eyjasýn
ÍBV íþróttafélag fékk viðurkenningu á árlegri verðlaunaafhendingu Eyjasýnar árið 2005 þar sem valinn var Eyjamaður ársins sem og aðrar viðurkenningar. ÍBV íþróttafélag fékk viðurkenningu fyrir framlag sitt til íþróttamála. Í umsögn Eyjasýnar segir: ,,Það er ekki sjálfgefið að bæjarfélag sem telur rúmlega fjögur þúsund íbúa tefli fram liðum í efstu deild bæði karla og kvenna í handbolta og fótbolta eins og staðreyndin er með Vestmannaeyjar“.
Tæplega 500 peyjar á fjölliðamóti
Í byrjun apríl 2005 fór fram fjölmennt handboltamót í Eyjum en þá var síðasta umferðin í Íslandsmóti sjötta flokks karla. Tæplega 500 þátttakendur voru í mótinu og komu frá sextán félögum en umgjörð mótsins var afar glæsileg. Leikið var á þremur völlum í einu og úrslitaleikirnir fóru fram á aðalvellinum í Íþróttamiðstöðinni og skapaðist afar skemmtileg stemmning. Leikið var frá föstudagi og fram á sunnudag en alls voru leiknir 126 leikir. Keppt var í A-, B- og C-liðum og voru alls 46 lið skráð til keppni frá félögunum sextán. Í lok mótsins fór fram verðlaunaafhending þar sem bæði voru veitt verðlaun fyrir sigur í mótinu og svo voru veitt verðlaun í Íslandsmótinu sem fór þannig fram að þrjú mót voru haldin í vetur, sem töldu til stiga, og varð stigahæsta liðið Íslandsmeistari. ÍBV liðunum gekk þokkalega á mótinu en aðeins var spilað um efstu átta sætin því lentu Eyjaliðin í 9-16 sæti.
ÍBV fékk 400 svefnpoka
Tæknivörur ehf, sem voru umboðsaðilar fyrir Sony Ericsson á Íslandi komu færandi hendi til Eyja í júní 2005, þegar þeir gáfu ÍBV 400 svefnpoka. Það var Ásgeir Sverrisson starfsmaður Tæknivara sem afhenti Páli Scheving Ingvarssyni framkvæmdastjóra ÍBV gjöfina. Ásgeir sagði við það tilefni að þeir gerðu sér grein fyrir þeim mikla kostnaði sem ÍBV þarf að greiða vegna ferðakostnaðar og stefna Tæknivara ehf væri að stuðla að öflugu unglingastarfi og það ætla þeir sér að gera.
Stelpurnar unnu allt
Eina helgi í október 2005 fór fram fjölliðamót hjá fjórða flokki kvenna og var leikið í Eyjum. Þetta voru fyrstu leikir stelpnanna á Íslandsmótinu en leikið var gegn Gróttu, Víking og FH. Til að gera langa sögu stutta þá unnu stelpurnar alla leiki sína en úrslitin urðu þessi: ÍBV-Grótta 15:10, ÍBV-Víkingur 18-7, ÍBVFH 9:8. Markahæstar voru þær Elísa Viðarsdóttir með 15 mörk og Andrea Káradóttir og Sædís Magnúsdóttir með 7 mörk hvor. Þá stóð Heiða Ingólfsdóttir í markinu og varði samtals 37 skot.
Shellmótið fékk viðurkenningu
Shellmót ÍBV fékk viðurkenningu í lok ársins 2005 fyrir besta grasrótarviðburð ársins 2005. Fulltrúar KSÍ, sem voru staddir í Eyjum á formannafundi félaga í efstu deild, afhentu fulltrúum ÍBV viðurkenningarskjal og fimmtíu Adidas fótbolta af bestu gerð.
Íslandsmeistarar
Kvennalið ÍBV í handbolta hampaði Íslandsmeistaratitlinum í byrjun apríl 2006. Það var ljóst eftir að liðið sigraði HK í Kópavogi 31-27. Sigur ÍBV í Íslandsmótinu var afar athyglisverður þar sem ÍBV hafði hvorki besta, né stærsta leikmannahópinn, en nýtti sér styrkleika sína. Alfreð Örn Finnsson, þjálfari ÍBV, átti stóran þátt í þessum titli enda hagaði hann leik ÍBV á skynsaman hátt, einbeitti sér að varnarleiknum þar sem sterkasti leikmaðurinn, markvörðurinn Florentina Grecu naut sín. Þá er hverju liði mikilvægt að hafa Ingibjörgu Jónsdóttur í sínu liði, sannkallaður leiðtogi þar á ferð.
„Ég fer ekki ofan af því að Vestmannaeyingar eru bestu stuðningsmenn í heimi og ég er svo ánægður að geta loksins farið með bikar heim til Eyja. Ég vil nú ekki vera eins og væminn sápuóperuleikari en ég dýrka Vestmannaeyjar og ég er svo ánægður að geta komið með dolluna heim í kvöld með Herjólfi," sagði Alfreð Finnsson þjálfari við heimkomuna. En ÍBV stelpunum var tekið með kostum og kynjum á Básaskersbryggju við heimkomuna, þrátt fyrir nístingskulda.
ÍBV dregið úr keppni í Íslandsmótinu
Ekkert kvennalið í meistarflokki í knattspyrnu var tilkynnt til þátttöku í Íslandsmótinu 2006. Sú ákvörðun var tekin í lok mars og tók Þór/KA sæti ÍBV í efstu deild Íslandsmótsins en ÍBV var sömuleiðis dregið úr bikarkeppninni. Þetta var talsvert áfall fyrir félagið enda ekki nema eitt og hálft ár síðan ÍBV fagnaði bikarmeistaratitli og síðustu þrjú ár hafði ÍBV ekki endað neðar en í þriðja sæti.
Vandamál kvennaknattspyrnunnar komu fyrst fram árinu áður en ÍBV tefldi fram mjög þunnskipuðum leikmannahópi. Fljótlega eftir tímabilið fóru svo skrautfjaðrirnar að reytast af liðinu og þegar upp var staðið stóð aðeins fámennur hópur Eyjastúlkna eftir. Kallað var til fundar á haustmánuðum þar sem ákvörðun var tekin um að halda því til streitu að tefla fram kvennaliði í knattspyrnu. Knattspyrnuráð kvenna var myndað og var strax ráðist í það að fá leikmenn til ÍBV Það gekk ekki sem skyldi, einnig var tillaga um sameiningu við Selfoss felld á aðalfundi félagsins. Í kjölfarið hættu þrír meðlimir af sex í knattspyrnuráði kvenna og á fundi, með þeim sem eftir stóðu, var ákveðið að draga liðið úr keppni, bæði í Íslands- og bikarkeppninni en ÍBV hafði áður dregið sig úr keppni í deildarbikarnum.
Af væntumþykju
Eftir þjóðhátíðina 2006 tilkynnti þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu, Guðlaugur Baldursson að hann væri hættur þjálfun liðsins. Gengi þess var afar dapurt þetta sumar og sat það í botnsætinu. Heimir Hallgrímsson tók þá við liðinu - hann hafði reyndar verið í sömu stöðu áður, því árið 2002 tók hann við karlaliði ÍBV eftir að Njáli Eiðssyni hafði verið sagt upp störfum.
Heimir sagði í samtali við Fréttir að það hefði fyrst og fremst verið af væntumþykju fyrir félaginu að hann ákvað að slá til. „Það hefðu sjálfsagt einhverjir tekið við liðinu fyrir peningana og aðrir fyrir athyglina sem fæst út á það að stýra liði í efstu deild en fyrir mér er það mikilvægast að ÍBV eigi lið í efstu deild. Ég hef það kannski fram yfir aðra sem komu til greina að ég hef auðvitað fylgst mjög vel með liðinu í sumar og ekki er verra að ég vilji sjá liðið mitt áfram í efstu deild."
Fall um deild
Eyjamenn kvöddu úrvalsdeild karla í knattspyrnu með sæmd þegar liðið lagði Fylki að velli á Hásteinsvelli um miðjan september 2006. Lokatölur urðu 2:0 og í raun áttu gestirnir aldrei möguleika í leiknum, slíkir voru yfirburðir ÍBV. Það kom svo í hlut Grindvíkinga að fylgja ÍBV eftir í 1. deildina. Þegar ljóst var að liðið væri fallið var Heimir Hallgrímsson, þjálfari liðsins spurður í Eyjafréttum hvort hann hefði áhuga á að þjálfa liðið áfram: „Ég veit það ekki, þegar ég er spurður svona stuttu eftir að hafa fallið þá hef ég ekki nokkurn áhuga á því enda er ég mjög niðurdreginn eins og er en kannski snýst mér hugur eftir nokkra daga.“
Einhugur að þjappa sér saman
Kvennaekla hrjáði handboltalið ÍBV veturinn 2007. Liðið var afar þunnskipað Hlynur Sigmarsson formaður handknattleiksráð staðfesti að til umræðu væri að draga liðið úr keppni í Íslandsmótinu. Aðalstjórn ÍBV-íþróttafélags fundaði svo um málið og sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: „Ekki kemur til greina af hálfu ÍBV að draga liðið úr keppni á yfirstandandi Íslandsmóti. Stjórn félagsins, leikmenn, þjálfarar og allir stuðningsmenn ÍBV nœr og fjœr eru einhuga um að þjappa sér saman og yfirstíga þá erfiðleika, sem við er að etja. Aðalstjórn ÍBV hvetur stuðningsmenn félagsins alls staðar á landinu til að fjölmenna á leiki liðsins og sýna þannig stuðning í verki."
Friðbjörn framkvæmdastjóri
Í byrjun febrúar 2007 var Friðbjörn Valtýsson ráðinn framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags. Hann tók við af Páli Scheving sem fór til annarra starfa. Friðbjörn sagði í viðtali við Fréttir:
„Ég tel að sameining félaganna hafi verið eitt mesta gæfuspor sem Vestmannaeyingar hafi tekið á síðustu árum“.
Stjórnin endurkjörinn
Á aðalfundi félagsins 30. apríl 2007, var aðalstjórn öll endurkjörin en hún var þannig skipuð: Jóhann Pétursson formaður, Tryggvi Már Sæmundsson varaformaður, Olga Bjarnadóttir ritari, Magnús Steindórsson meðstjórnandi, Guðný Hrefna Einarsdóttir meðstjórnandi. Varamenn Unnur Sigmarsdóttir og Örn Hilmisson.
Í ræðu formanns félagsins, Jóhanns Péturssonar sagði hann að ÍBV væri sterkt félag sem byggi á grasrótinni. „Og vissulega eigi kvennaíþróttir undir högg að sækja hjá okkur og eru ýmsar ástæður fyrir því, t.d. forgangsröðun hjá kvenfólkinu og gulrótin ekki sú sama og hjá körlunum sem sjá möguleika á að komast í atvinnumennsku."
Íslandsmeistaratitlar hjá 4. flokki kvenna
Bæði A- og B-lið fjórða flokks kvenna urðu Íslandsmeistarar í handbolta á vordögum 2007. Bæði lið enduðu í öðru sæti í deildarkeppninni en í úrslitaleikjunum sigraði B-liðið KA en A-liðið sigraði Stjörnuna.
Í úrvalsdeild á ný
Karlalið ÍBV tryggði sér sæti í úrvalsdeild í handbolta á ný á vordögum 2007 með því að leggja FH að velli í Hafnarfirði 24:29. Eyjamenn byrjuðu vel í leiknum og náðu góðri forystu, komust m.a. í 7:12 en heimamenn náðu að minnka muninn fyrir leikhlé og staðan var 12:13 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Jafnræði var með liðunum framan af síðari hálfleik en FH-ingar komust í fyrsta sinn yfir í seinni hálfleik 20:19. Eyjamenn svöruðu hins vegar með þremur mörkum í röð og lögðu þar með grunninn að sigrinum.
Lítil móttökuathöfn var á flugvellinum í Vestmannaeyjum þegar liðið kom til Eyja en formaður félagsins, Jóhann Pétursson, færði liðinu blómvönd og óskaði leikmönnum, forráðamönnum og stuðningsmönnum til hamingju með árangurinn.
Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV leyndi ekki þeirri skoðun sinni að þjálfari liðsins, Gintaras Savukynas, ætti stóran þátt í góðu gengi liðsins. „Hann smellpassar inn í þennan hóp hjá okkur og passar líka mjög vel inn í þetta samfélag hérna“.
Sókn í kvennaboltanum
Um haustið 2007, blásið til sóknar í kvennaknattspyrnunni, stofnuð var knattspyrnudeild kvenna og19 stúlkur skrifuðu undir leikmannasamning við ÍBV íþróttafélag, voru þær allar í 2. flokki.
Fall í 1. deild í karlahandboltanum
Hvorki gekk né rak hjá meistaraflokki karla í handbolta, tímbilið 2007-2008. Lengst af var liðið í neðsta sætinu í efstu deild. Liðið sýndi þó af og til góða leiki, en féll á lágt plan þess á milli. Í síðast leik sínum mættu þeir Val sem endaði með fjórtán marka tapi, 24-38. Liðið féll niður um deild.
18 marka sigur
2. flokkur ÍBV kvenna í knattspyrnu sótti Hauka heim í Hafnarfjörð í 16 liða úrslitum Visa-bikarsins sumarið 2008. Leikurinn reyndist stelpunum okkar ekki mjög erfiður þar sem þær unnu með átján marka mun. Í hálfleik var staðan 0:8 svo stelpurnar skoruðu tíu mörk í seinni hálfleik.
Um mitt sumar var meistaraflokkur kvenna í 2. sæti 2. deildar. Endurreisn kvennaknattspyrnunnar var komin á fullt skrið. Ekki tókst liðinu þó að komast upp í efstu deild þetta sumarið.
Í efstu deild á ný
Um þjóðhátíðina 2008 var karlalið ÍBV í knattspyrnu í efsta sæti 1. deildar með 34 stig og höfðu 3 stig á næsta lið. Væntingar um að liðið nái aftur sæti í efstu deild voru miklar, enda liðið á fljúgandi ferð undir stjórn Heimis Hallgrímssonar. Í fyrstu leikjunum eftir þjóðhátíð sigraði liðið Víking Ólafsvík 3-1 og Fjarðarbyggð 1-0.
Í síðasta leik lék liðið við KS/Leiftur á Siglufirði og sigraði 1-0. Þar með var ljóst að ÍBV var komið í efstu deild á ný eftir tvö ár í 1. deild.
Það sem var óvenjulegt og sennilega einstakt, var að þjálfari meistarflokksins, Heimir Hallgrímsson, var einnig þjálfari 5. flokks drengja þetta sama sumar, sem náði líka frábærum árangri eins og fram kemur hér að neðan.
Flott uppskera
Strákarnir í fimmta flokki drengja gátu sannarlega fagnað frábærum árangri sumarið 2008 en peyjarnir unnu til silfurverðlauna í tveimur flokkum, A og C. Fimmti flokkur fór með fjögur lið, A, B, C og D alla leið í úrslitakeppni Íslandsmótsins. A-liðið lék undanúrslitaleik gegn HK og vann 2:1 og lék því gegn Stjörnunni um Íslandsmeistaratitilinn á Stjörnuvelli en sá leikur fór 4:1 fyrir Stjörnuna og strákarnir lentu því í öðru sæti. D-liðið vann leiki gegn Val og KR 1:0 og lék gegn Þrótti um Íslandsmeistaratitilinn, en töpuðu eftir framlengdan leik.
Þessir sömu strákar unni líka N1 bikarinn á Akureyri, sem veittur var fyrir besta samanlagða árangur A,B,C,D og E-liða. Þjálfari strákanna var Heimir Hallgrímsson sem einnig þjálfaði meistaraflokk félagsins.
Íslandsmeistarar og Kristín Erna með þrennu
Stelpurnar í 2. flokki kvenna urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu árið 2008, en þær tryggðu sér titilinn á sannfærandi hátt þegar þær unnu Val 3-1 . Leiðindarok var á Helgafellsvelli þegar leikurinn fór fram og bætti í vindinn eftir því sem leið á leikinn. Stelpurnar létu það þó ekki á sig fá og voru það Eyjastelpur sem byrjuðu á að leika á móti vindi. Það kom ekki að sök því markamaskínan, Kristín Erna Sigurlásdóttir, var búinn að skora tvö mörk þegar aðeins sex mínútur voru liðnar. Hún bætti síðan við þriðja marki sínu.
Eyjastúlkur fögnuðu ákaft í leikslok, tóku sigurhring, tolleruðu Jón Ólaf þjálfara sinn og sungu og dönsuðu um völlinn.
Mikil minnkun tekna hjá knattspyrnudeild
Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV var í viðtali við Fréttir haustið 2008. Þar lýsir hann m.a. áhyggjum sínum vegna minnkandi tekna knattspyrnudeildar karla: „Það varð tap á rekstri deildarinnar og sumarið var mjög erfitt rekstrarlega séð. Ákveðnar fjáraflanir gengu ekki eftir en árið er ekki búið. Það eru ákveðin atriði sem enn eru óviss og geta haft töluverð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. Það var mjög slæmt að missa Toyota út, styrkur þeirra einn og sér var tæplega 40% af tekjum deildarinnar og auk þess má reikna með að aðrir dragi úr sínum styrkjum. Ég gæti trúað að tekjur deildarinnar af styrkjum fyrirtækja minnki um allt að 50 til 60%“.
Björt framtíð
Deildarbikarkeppni HSÍ í 6. flokki var haldin Kópavogi síðla janúar 2009. ÍBV sendi fjögur lið til keppni og óhætt að segja að árangurinn hafi verið frábær. C-lið ÍBV varð Deildarbikarmeistari, vann alla sína leiki en þjálfari þeirra var Unnur Sigmarsdóttir. Í heildina var árangur ÍBV einnig mjög athyglisverður en lið ÍBV unnu ellefu leiki af tólf í riðlakeppninni.
Átök í knattspyrnunni
Í janúar 2009 var boðað til fundar í Týsheimilinu og til umræðu voru málefni knattspyrnunnar. Erfið fjárhagsstaða deildarinnar var m.a. rædd og fór Jóhann Pétursson formaður félagsins yfir þá stöðu. Hjá honum kom m.a. fram að ekki hafi verið staðið við fjárhagsætlunina sem gerð var fyrir tímabilið, en formaður knattspyrnudeildar Sigursveinn Þórðarson var hinsvegar ekki sáttur við skiptingu tekna ekki síst af þjóðhátíðinni þar sem hann taldi að hallað hefði á knattspyrndeildina. En viðurkenndi að skelfileg ákveðin mistök hefðu verið gerð sem skrifast verði á reynsluleysi knattspyrnuráðs.
Fleiri tóku til máls. Heimir Hallgrímsson þjálfari bað menn um að horfa til framtíðar í stað þess að rífast um liðna hluti. Hann benti á að framtíð knattspyrnunnar væri björt, 3., 4., 5. og 6. flokkur drengja væri að berjast um titla og langt síðan að slíkt hefði gerst hjá ÍBV. Auk þess væri knattspyrnuhús að rísa með tilheyrandi innspýtingu fyrir íþróttina. „Það sem mér sárnar mest er þessi félagslegi doði í félaginu. Ég hef sagt það áður að mér hefur fundist ÍBV vera metnaðarlega gjaldþrota, það er nánast engin stefna nema peningaleg stefna“.
Hagnaður af rekstrinum
Á aðalfundi félagsins 29. mars 2009 kom fram að rekstrartekjur félagsins í heild voru rúmar 241 milljónir á árinu 2008 en rekstrargjöld rúmar 212 milljónir. Hagnaður varð af rekstri félagsins á árinu upp á 5,5 milljónir þegar fjármagnskostnaður er tekinn inn í. Til samanburðar varð tap á rekstri félagsins árið 2007 upp á tæpar 17 milljónir og viðsnúningur á rekstrinum því um 22,5 milljónir. Heildarskuldir félagsins voru rúmar 70 milljónir.
Tvær breytingar urðu á stjórn ÍBV- íþróttafélags. Unnur Sigmarsdóttir og Örn Hilmisson hættu en bæði höfðu þau tekið sæti í stjórnum ráða hjá félaginu, Unnur í handknattleiksráði og Örn í knattspyrnuráði karla. Í þeirra stað komu þeir Sigurður Smári Benónýsson og Guðjón Gunnsteinsson inn sem varamenn en í stjórn sitja áfram Jóhann Pétursson, formaður, Tryggvi Már, varaformaður, Guðný Einarsdóttir, gjaldkeri, Olga Bjarnadóttir ritari og Þórunn Ingvarsdóttir meðstjórnandi.
Friðbirni sagt upp störfum og Tryggvi Már tók við
Friðbirni Ólafi Valtýssyni var sagt upp störfum framkvæmdastjóra ÍBV íþróttafélags um miðjan apríl 2009. Friðbjörn staðfesti við Morgunblaðið, að ástæðan sem gefin var vegna brottrekstursins væri sögð vera ummæli hans við mbl.is í marsmánuði, þar sem hann sagðist vona að síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn myndu skila um 15 milljónum í tekjur handa ÍBV. Hann sagði einnig að stjórnarmaður innan ÍBV hefði sagt við sig, að ummæli hans hefðu eyðilagt þessa fjáröflunarleið. „Það hefur greinilega gleymst að láta mig vita af því að ekki mætti tala um þetta. Þetta var eitthvert tabú hjá þeim. Ég var í góðri meiningu að segja frá skemmtilegu máli sem vakti þjóðarathygli, en svona fór þetta,“ sagði Friðbjörn, sem sagðist ekki ætla að gera meira veður út af málinu, þó svo hann væri mjög ósáttur.
Við starfi Friðbjarnar tók Tryggvi Már Sæmundsson.
Áfram í 1. deild
Kvennalið ÍBV í handbolta 2009 lauk keppni í 2. deild Íslandsmótsins í lok apríl.
þegar liðið lék gegn KA í átta liða úrslitum deildarinnar. Eyjastúlkur áttu ekki möguleika gegn KA-liðinu og töpuðu með 18 mörkum, 36:18 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17:7. Björn Elíasson, þjálfari liðsins, sagði í samtali við Fréttir að ÍBV hafi einfaldlega spilað illa.
„Við erum auðvitað að hefja okkar þriggja ára ferðalag upp í úrvalsdeild, erum að taka fyrstu skrefin í uppbyggingu á kvennahandboltanum í Eyjum. Næstu skref er að nýta sumarið vel og byggja stelpurnar betur upp líkamlega fyrir næsta vetur.“
Stór handboltamót
Síðustu helgina í apríl 2009 fór fram fjölmennasta handboltamót sem haldið hafði verið í Vestmannaeyjum þegar lokamót í 6. flokki karla í handbolta fór þar fram. Líklega var aðstaða fyrir stórmót sem þetta hvergi betri en einmitt í Vestmannaeyjum þar sem er að finna þrjá löglega handboltavelli og sundlaug, allt undir einu þaki. Tæplega fimmhundruð strákar sýndu hæfileika sína en leikið var á föstudegi og laugardegi. Unnur Sigmarsdóttir þjálfari 6. flokks drengja var ánægð með sína stráka, frammistöðu og hegðun.
Markmiðið að halda sér meðal þeirra bestu
Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni á ný árið 2009, þegar liðið heimsótti Fram á Laugardalsvöll. Lokatölur leiksins urðu 2:0 Fram í vil. Heimir Hallgrímsson þjálfari liðsins sagði markmiðið að halda liðinu upp í úrvalsdeildinni.
Liðið var við botninn mestallt leiktímabilið en slapp við fall.
Stórsigur í kvennaboltanum og tap í bikarnum
Stelpurnar í meistaraflokki í knattspyrnu byrjuðu tímabilið 2009 með sannkölluðum stórsigri á útivelli þegar þær sóttu sameiginlegt lið Tindastóls og Neista heim í Skagafjörðinn. ÍBV sigraði norðanstúlkur 0:11 en staðan í hálfleik var 0:8 fyrir ÍBV. Liðin léku í B-riðli 2. deildar eða næstefstu deild.
Liðið var síðan slegið út í 8 liða úrslitum Visa-bikarsins, þegar það tapaði fyrir Fylki 4-0.
Takmarkið að vinna sig upp í efstu deild þetta sumarið tókst ekki.
Bæði lið slegin út í 16 liða úrslitum
Bikarveisla var í Íþróttamiðstöðinni 21. nóvember þegar bæði karla- og kvennaliðin léku við Fram í 16 liða úrslitum í Eimskipsbikarkeppninni í handbolta. Ekki gekk Eyjaliðunum sem skyldi. Karlaliðið tapaði 26-28 og kvennaliðið 22-40.
Íslandsmeistarar í Futsal
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu varð Íslandsmeistari í Futsal í fyrsta sinn í byrjun árs 2010. Liðið vann Þrótt í úrslitaleik 5:1. Áður hafði ÍBV lagt ÍR að velli í undanúrslitum 5:3. Sjö lið skráðu sig til leiks.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var að vonum ánægður með að vinna titilinn. „Það er eitt sem breytist seint í íþróttum. Að vinna titla er alltaf skemmtilegt," sagði Jón Ólafur þegar Fréttir heyrðu í honum hljóðið.
Konurnar áfram í 2. deild
Kvennalið ÍBV reið ekki feitum hesti frá úrslitakeppni 2. deildar í handbolta, sem fór fram á Seltjarnarnesi vorið 2010. Fjögur lið tóku þátt í úrslitakeppninni en auk ÍBV voru það Grótta, FH og Víkingur. ÍBV tapaði öllum leikjunum og niðurstaðan því fjórða sætið sem hljóta að teljast vonbrigði.
Unnur Sigmarsdóttir, annar tveggja þjálfara liðsins sá þó ekki bara svartnættið þótt niðurstaðan hafi ekki verið eins og stefnt var að. Hún sagði í viðtali við Fréttir: „Þetta er dýrmæt reynsla sem stelpurnar fá úr þessum leikjum. Framtíðin er björt, við erum komnar í átta liða úrslit Íslandsmótsins í unglingaflokki og 4. flokkur er í undanúrslitum, bæði í A- og B-liðum þannig að hér er efniviður fyrir hendi. En eins og staðan er í dag, þá verðum við áfram í 2. deild næsta vetur."
......og karlarnir líka
Karlalið ÍBV í handbolta féll úr leik í umspili um laust sæti í úrvalsdeild haustið 2010. Eyjamenn töpuðu viðureigninni gegn Aftureldingu 2:0 en leikið var heima og heiman. Tvo sigurleiki þurfti til að komast áfram. Þetta var annað tap ÍBV á heimavelli um veturinn. Þrátt fyrir það komst liðið ekki upp í efstu deild, og voru að vonum mikil vonbrigði.
Hvenær opna hvítu tjöldin? – Gleymst að spyrja bæjarbúa
Í aðdraganda þjóðhátíða birtast árlega margar greinar í bæjarblöðunum um þessa einstöku hátíð. Árið 2010 var árið sem Landeyjahöfn var tekin í notkun. Þjóðhátíðarhaldarar bjuggust því við miklum fjölda gesta á hátíðina og undirbjuggu það með ýmsu móti. Sitt sýndist þó hverjum, að fá allt þetta fólk til Eyja. Valgerður Magnúsdóttir skrifaði grein í Fréttir og þar sagði hún m.a.: „ÍBV hefur notið mikils velvilja í samfélaginu og verður vonandi áfram, en hrædd er ég um að það geti breyst ef græðgin ein er höfð að leiðarljósi. Hætt er við að þjóðhátíðin glati sérstöðu sinni og verði eins og hver önnur Hróarskelduhátíð. Forsvarsmenn hátíðarinnar mega líka fara að hemja sig í fjölmiðlunum, um gestrisni Eyjamanna. Það veldur bara misskilningi. Samanber unga parið sem bankaði uppá eitt kvöldið og spurði „hvenær opna hvítu tjöldin?"
Þá skrifaði Sigurður Vilhelmsson einnig í Fréttir og gagnrýndi hvernig staðið var að byggingu á stóra sviðinu í Herjólfsdal. „Engin tilraun var verið gerð til að spyrja bæjarbúa að því hvort þeir vilji yfir höfuð þessi varanlegu mannvirki. Engin umræða fór fram um þessar framkvæmdir og þeim var beinlínis laumað í gegnum umhverfis- og skipulagsráð. Kærufrestur vegna deiliskipulags var ekki einu sinni runninn út þegar framkvæmdir voru komnar á fullt. Því miður eru þessi vinnubrögð ekkert einsdæmi hér í bæ. Svo virðist sem einhugur hafi ríkt í bæjarstjórn um þessar framkvæmdir, en einhverra hluta vegna hefur gleymst að spyrja bæjarbúa“.
Markmiðið er Evrópusæti
Fyrsti leikur karlaliðs ÍBV í Íslandsmótinu í knattspyrnu var um miðjan maí 2010 þegar liðið sótti Fram heim á þjóðarleikvanginn. Leikurinn tapaðist 2:0. Liðin mættust einnig í fyrstu umferð Íslandsmótsins í fyrra á sama velli þar sem Framarar höfðu betur í jöfnum leik, 2:0. Leikurinn þá var upphafið að einni verstu byrjun ÍBV í Íslandsmótinu, en liðið tapaði fyrstu fjórum leikjunum og skoraði ekki mark. Heimir Hallgrímsson var áfram þjálfari liðsins. Hann gaf það út, að markmiðið fyrir ÍBV sé að berjast um Evrópusæti. Hann segir það eðlilegt næsta skref hjá ÍBV „Hvaða markmið er það að ætla sér að ná aftur 10. sætinu? Er það eitthvert markmið“?
Vegna gossins í Eyjafjallajökli á þessum tíma, var ekki hægt að æfa á Hásteinsvelli en ekki þótti fært að æfa utandyra vegna öskufalls. ÍBV strákarnir héldu því til á fastalandinu við æfingar um nokkurn tíma.
Þjóðhátíðin eftir Landeyjahöfn
Tilkoma Landeyjahafnar gerði Þjóðhátíðina 2010 þá fjölmennustu fram til þess. Allt í einu voru Vestmannaeyjar komnar í alfaraleið og samgöngur ekki sami hemill á fjölda þjóðhátíð- argesta og áður. Það var því með nokkrum kvíða sem Eyjamenn horfðu til þjóðhátíðarinnar 2010, óttuðust að með metfjölda gætu skapast aðstæður sem erfitt yrði að ráða við. Fjöldi gesta var tæplega 14 þúsund. Sá fjöldi reyndist viðráðanlegur og veður með ágætum. Þjóðhátíðarhaldarar, lögregla og gestir báru hátíðinni vel söguna, en einhverjar stimpingar fylgja alltaf þar svo margir koma saman. Búið var að reisa neðri hluta Brekkusviðsins þar sem er aðstaða sölubúðanna og sviðsfólksins, sú aðstaða er síðan er notað sem geymsla milli þjóðhátíða. Bráðabirgðahús var að þessu sinni sett þar ofan á sem svið. Fjöldi hústjalda var með mesta móti á þessari þjóðhátíð sem bendir til að fjöldi heimamanna hafi líka verið með mesta móti. Miðaverð í Dalinn var kr. 13.900 og kr. 11.900 í forsölu.
Kvennaliðið í efstu deild á ný
Á sameiginlegum fundi leikmanna kvennaliðs ÍBV í handbolta og handknattleiksráðs í sumarið 2010, var ákveðið að sækja um þátttöku í efstu deild á ný. - ÍBV hafði leikið í 2. deild undanfarin þrjú ár, en sú deild er eins og utandeild og lið vinna sig ekki upp um deild. Handknattleiksráð taldi að kominn væri tími til að stelpurnar reyni sig meðal þeirra bestu. HSÍ fagnaði þessari ákvörðun og samþykkti beiðnina.
2. flokkur dreginn úr keppni
Seinni part sumars 2010 var ákveðið að draga 2. flokk kvenna hjá ÍBV í knattspyrnu úr keppni Íslandsmótsins. Ákvörðunin kom talsvert á óvart enda byrjaði liðið mjög vel, vann fyrstu sex leiki sína í mótinu og var um tíma í efsta sæti A-deildar. En liðið gaf eftir og hafði tapað þremur leikjum sínum í röð, síðast 7:1 gegn Aftureldingu. Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, sagði ástæðu þess að flokkurinn er dreginn úr keppni ekki vera uppgjöf, heldur að öll áhersla sé lögð á meistaraflokk.
Halló úrvalsdeild
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu komst haustið 2010 upp í úrvalsdeild eftir fimm ára hlé. Stelpurnar tryggðu sér sæti meðal þeirra bestu með því að vinna Selfoss afar sannfærandi 8:1 samanlagt eftir tvo leiki. Í kjölfarið var svo spilað gegn Þrótti í úrslitaleik 1. deildar, en bæði lið voru örugg með sæti í úrvalsdeild næsta sumar. Þar höfðu Eyjastelpur sigur og fóru því í gegnum sumarið með því að tapa aðeins tveimur leikjum, einum í Íslandsmótinu og einum í bikarkeppninni.
Evrópusæti tryggt
Karlalið ÍBV í knattspyrnu lauk keppni í Pepsídeildinni árið 2010 með tapi gegn Keflavík, 4:1, í Keflavík, stærsta tapi ÍBV þá um sumarið. Leiðinlegur endir á annars frábæru tímabili hjá ÍBV, sem átti möguleika allt fram á síðustu stundu á Íslandsmeistaratitlinum. Það var eitthvað sem enginn átti von á þegar lagt var af stað um vorið en Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV hafði mikla trú á sínu liði og stefndi ótrauður á að tryggja liðinu sæti í Evrópukeppninni. Það tókst og gott betur en Heimir viðurkennir að úr því sem komið var, hafi verið súrt að ná ekki enn lengra. „Auðvitað er maður sáttur og verður eflaust ánægðari með árangurinn því lengra sem líður frá síðasta leik. Miðað við það sem við lögðum upp með í sumar þá erum við að ná mun betri árangri en flestir áttu von á og það eitt að við skyldum vera búnir að tryggja okkur Evrópusæti þegar einhverjar fjórar til fimm umferðir voru eftir, var alveg frábært.“
Samstarf við Rangæinga
Haustið 2010 skrifuðu forsvarsmenn ÍBV íþróttafélags og Knattspyrnufélags Rangæinga undir samstarfssamning fyrir sumarið 2011. Samningurinn náði yfir samstarf í knattspyrnunni en félögin tvö munu halda úti æfingum í sínum sveitarfélögum en halda sameiginlegar æfingahelgar reglulega. Þá munu félögin tvö tefla fram sameiginlegu liði undir merkjum ÍBV í yngri flokkunum í Íslandsmótinu. Samningurinn er ótímasettur en skal endurskoðaður í lok hvers sumars.
Nýtt fjölnota íþróttahús tekið í notkun
Laugardaginn 8. janúar 2011 var nýtt fjölnota íþróttahús við Hásteinsvöll vígt, að viðstöddu fjölmenni. Framkvæmdir við grunn hússins hófust í ársbyrjun 2010 og fyrsta skóflustungan var tekin í september 2007. Húsið gjörbylti vetraræfingaaðstöðu knattspymufólks í Vestmannaeyjum og langþráð æfíngaaðstaða frjálsra íþrótta varð að veruleika með nýja húsinu. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, sagði í vígsluræðu, íþróttaaðstöðu í Vestmannaeyjum vera einstaka á landsvísu, jafnvel á heimsvísu. „Húsið markar tímamót í sögu íþróttaiðkunar í Vestmannaeyjum og því ber að fagna," sagði Elliði og bætti við að Vestmannaeyjabær hafi í gegnum tíðina lagt mikinn metnað í að búa öflugu íþrótta- og tómstundastarfí góða aðstöðu. „Við erum með fjóra grasvelli, þrjá stóra íþróttavelli innanhúss, lítinn íþróttasal, þrjá líkamsræktarsali, hálfan yfirbyggðan knattspyrnuvöll, 18 holu golfvöll, 25 metra innilaug, vatnagarð með rennibrautum og heitum pottum, motocrossbraut og tvö tjaldstæði."
Nýja knattspyrnuhúsið er 50x60 metrar, með gervigrasi. Kostnaður við byggingu hússins losar 500 milljónir króna.
Torfþak á sviðið í Herjólfsdal
ÍBV-íþróttafélag sótti um byggingaleyfi fyrir yfirbyggingu á stóra sviðið í Herjólfsdal, en neðri hæðin var byggð sumarið 2010. Umsóknin var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í byrjun mars en ráðið frestaði erindinu og óskaði eftir frekari gögnum. Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjórí ÍBV, sagði að félagið geri ráð fyrir að byggingin í Herjólfsdal yrði byggð í þremur áföngum. „Við erum búin að byggja fyrstu hæðina, gerum ráð fyrir að byggja efri hæðinni 2011 en í síðasta áfanga er gert ráð fyrir að klára bygginguna að utan. Þá verða settar grjóthleðslur utan á veggi og húsið gert þannig úr garði að það myndi samfellu og þakið tyrft. Þakið verður dregið yfir alla bygginguna og fellt niður til suðurs þannig að það falli inn í brekkuna," sagði Tryggvi Már.
Jón Óli sá besti
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var valinn besti þjálfari fyrri umferðar Pepsídeildar kvenna sumarið 2011. Það voru sérfræðingar á vegum KSÍ sem völdu hann bestan en þeir völdu einnig lið fyrri umferðarinnar og þar voru þær Elísa Viðarsdóttir og Birna Berg Haraldsdóttir. Jón Ólafur var einnig valinn besti þjálfari fyrri umferðarinnar á vefnum Fótbolti.net og skal engan undra enda komu nýliðar ÍBV mest á óvart í Íslandsmótinu.
Þegar nálgast Þjóðhátíð
Umræða um Þjóðhátíð er árviss. Ýmist er hún jákvæð eða neikvæð, flestir vilja henni vel, en með misjöfnu móti. Hlynur Guðlaugsson skrifað grein í Eyjafréttir þar sem hann var m.a. ekki sáttur við valið á Þjóðhátíðarlaginu árið 2011.
„Í vegabréfinu mínu stendur að fæðingarstaður minn sé Vestmannaeyjar og því fylgir ákveðinn kaleikur, heiður og ábyrgð. Ástæðan fyrir þessum greinarskrifum mínum er Þjóðhátíð Vestmannaeyja, en mikil umræða hefur farið fram í fjölmiðlum og í orðum á milli fólks um þessa frábæru hátíð sem skipar stóran sess í hjörtum okkar margra. Þegar hið nýja þjóðhátíðarlag Páls Óskars var gert opinbert held ég að margir hafi spurt sig hvar þessi hátíð sé stödd og hvert hún sé að fara?
Ég bíð bara eftir að götur hvítu tjaldanna verði nefndar í höfuðið á gosdrykkjum eða snakki. Hver vill tjalda á Pepsíbraut eða í Doritossundi? Fólk hefur einnig haft það á orði að goslokahátíðin sé að fara í sama farið.
Komnir í efsta sætið og Heimir hættir
Eyjamenn náðu efsta sætinu um tíma í Pepsídeildinni í knattspyrnu, með góðum sigri á Þór frá Akureyri, 3:1 þar sem Aaron Spear gerði tvö mörk og Andri Ólafsson eitt.
Strax eftir leik ÍBV og Þórs kvisaðist út að Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlaliðs ÍBV síðustu ár, myndi hætta þjálfun liðsins eftir tímabilið 2011, í hans stað kæmi Magnús Gylfason.
Skóflustunga
Fyrsta skóflustunga að nýrri stúku við Hásteinsvöll var tekin laugardaginn 3. desember 2011. Það var Eyjólfur Guðjónsson, útgerðarmaður, sem tók fyrstu skóflustunguna en Eyjólfur var einn þeirra sem söfnuðu fé í framkvæmdina.
ÍBV fær góða dóma
ÍBV-íþróttafélag fær góða dóma hjá KSÍ fyrir uppeldisstarf félagsins í knattspyrnunni. Þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSI og Dagur Sveinn Dagbjartsson, starfsmaður fræðsludeildar heimsóttu félagið í upphafi ársins 2012 og tóku út knattspyrnuhlutann í starfi félagsins.
1000 marka maðurinn
Í upphafi árs 2012 lék ÍBV við Víkinga í handboltanum. Þetta var tímamótaleikur hjá Sigurði Bragasyni sem skoraði sitt 1000. mark í Íslandsmótinu fyrir ÍBV. Fyrsta markið sem Sigurður skoraði fyrir ÍBV var árið 1994 og þá gegn Fjölni. Hann hafði verið á leikskýrslu í 332 leikjum sem gera þá rúmlega 3 mörk í leik. Alla tíð hefur Sigurður leikið með ÍBV utan veturinn 2000-2001 þegar hann lék með Víkingum. Hann er markahæsti leikmaður ÍBV frá upphafi.
Aðalfundurinn
ÍBV íþróttafélag hélt aðalfund sinn fyrir árið 2011 um miðjan apríl 2012. Það sem helst bar til tíðinda var mikill viðsnúningur í rekstri félagsins. Félagið tapaði 19.4 milljónum árið 2011 en hagnaðist um 34,8 milljónir árið 2010. Er þetta viðsnúningur uppá 54 milljónir króna. Skuldir félagsins námu í árslok 2011 136,2 milljónum.
Ný stúka
Veturinn og sumarið 2012 var unnið að byggingu nýrrar áhorfendastúku á Hásteinsvelli á vegum ÍBV íþróttafélags. Stúkan var í fyrsta skiptið notuð í bikarleiknum gegn KR sunnudaginn 8. júlí og var þétt setin.
Jónas Sigurðsson skrifaði í Eyjafréttir, skemmtileg grein um fyrstu notkun á stúkunni og þá hópa sem hafa verið fastheldnir á sín stæði á Hásteinsvelli.
Stúkan Fólk var svolítið feimið og vissi ekki alveg hvar það átti að setjast, einhver spurði hvar er Hóllinn? Einn mætti í KR-búningi, það settist enginn í sömu sætaröð, enginn í röðina fyrir aftan eða framan. Hugrakkur KR-ingur. En smátt og smátt þéttist í stúkunni og nánast setið í hverju sæti þegar leikurinn hófst. Það var góð stemmning og ágætis kór sem lét heyra vel í sér þegar dómarinn flautaði leikinn á.
Snautlegra líf
Páll Magnússon alþingismaður ritaði grein í Eyjafréttir um mitt sumar 2012. Í niðurlagi greinar sinnar skrifar hann: „Fyrir utan beinan og óbeinan fjárhagslegan ávinning, sem allt samfélagið hefur af starfi ÍBV, hefur svo til hver einasta fjölskylda hér í Eyjum nánast daglegan snertiflöt við félagið í gegnum íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga. Þannig skipar ÍBV afar stóran sess í öllu daglegu lífi okkar Eyjamanna og Eyjólfur á Gullberginu hitti naglann nákvæmlega á hausinn þegar hann sagði í viðtali við Moggann „...lífið væri snautlegt í Eyjum án ÍBV“.
Hálftími í brekkusönginn
Einn af hápunktum þjóðhátíða er brekkusöngurinn. Árið 2012 sáu Jarl Sigurgeirsson og Sæþór vídó um hann. Nema um þjóðsönginn, þar var komið að þætti Árna Johnsen sem átti að enda með þjóðsöngnum, Íslands þúsund ár, en það dugði Árna ekki. Hann kom því skilmerkilega á framfæri að hann væri hin eina sanna rödd Brekkusöngsins sem hann byrjaði með 1977. Þetta margítrekaði hann og til að undirstrika það söng hann í rúman hálftíma og var klukkan komin fram yfir hálf eitt þegar kom að þjóðsöngnum.
Íþróttaakademían
Íþróttaakademíur ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum (FÍV) annars vegar og Grunnskóla Vestmannaeyja (GRV) héldu sínu striki árið 2012 en alls voru 66 ungmenni sem æfðu handbolta og fótbolta á þeirra vegum eldsnemma á morgnana. Þjálfarar voru þeir Erlingur Birgir Richardsson, sem sá um handboltann og styrktarþjálfun og Ian Jeffs, sem sá um fótboltann. Erlingur hafði yfirumsjón með starfsemi akademíunnar en hann sagði að skipting nemenda hafi verið nokkuð jöfn. „Það er nokkuð jöfn skipting á milli FÍV og GRV og sömuleiðis á milli fótbolta og handbolta. Það eru tveir á framhaldsskólaaldri sem flakka á milli beggja greinanna og eru þá á einni æfingu í fótbolta og einni í handbolta, í stað þess að vera á tveimur æfingum í sömu greininni.“
Silfurstelpurnar okkar
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu sló heldur betur í gegn á lokakafla Íslandsmótsins 2012. Eftir niðurlægjandi tap gegn FH á Hásteinsvelli, brettu stelpurnar upp ermarnar og töpuðu ekki leik í síðustu sjö umferðunum. Og þegar upp var staðið, þá náði ÍBV 2. sætinu í Pepsídeildinni, sem er jöfnun á besta árangri kvennaliðs ÍBV í efstu deild. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Jóni Ólafi Daníelssyni, þjálfara ÍBV og lærimeyjum hans.
Styrkur frá UEFA
ÍBV, líkt og áður fékk sinn hlut af greiðslu UEFA til KSÍ vegna ágóða af Meistaradeild Evrópu 2011-2012. Féð var eyrnamerkt barna- og unglingastarfi en hlutur ÍBV var 3.620.000 kr. Alls fengu íslensk félög 43 milljónir, sem skiptust milli félaga í efstu deild karla. Því til viðbótar ákvað KSÍ að reiða fram 40 milljónir sem skiptust milli liða í öðrum deildum Íslandsmótsins. Eitt af skilyrðum var að félögin haldi úti yngri flokkum beggja kynja.
Nýr framkvæmdastjóri
Um miðjan janúar 2013 lét Tryggvi Már Sæmundsson af störfum sem framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags. Nýr framkvæmdastjóri er Dóra Björk Gunnarsdóttir. Hún er kennaramenntuð og hefur starfað við Grunnskóla Vestmannaeyja.
Páll Scheving hættir í stjórn ÍBV og Þjóðhátíðarnefnd
Páll sat í þjóðhátíðarnefnd í tólf ár, þar af tíu ár í röð og formaður í fjögur ár. Þjóðhátíðin tók miklum breytingum á þessum árum og margt gert í framfaraátt. Hátíðin var aðlöguð breyttum tímum og brugðist við auknum kröfum.
Það hefur blés hressilega um þjóðhátíðina þar sem Páll stóð í stafni. Gagnrýnin hefur á stundum verið bæði óvægin og óréttlát en stundum átt rétt á sér. Páll viðurkennir það en benti líka á að besta leiðin til að gera ekki mistök sé að gera ekki neitt.
Úrvalsdeildarsætið í höfn
Karlalið ÍBV í handbolta tryggði sér sæti í úrvalsdeild tímabilið 2012-2013 með glæsilegum sigri á Stjörnunni í Garðabæ. Mest náðu Eyjamenn átta marka forystu í leiknum en óvænt spenna hljóp í leikinn á lokakaflanum þegar Garðbæingar náðu að minnka muninn niður í tvö mörk. En lengra komust þeir ekki og lokatölur urðu 24:27. Þjálfarar liðsins voru Arnar Pétursson og Erlingur Richardsson.
David James semur við ÍBV
Enski landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi, David James, skrifaði undir samning hjá ÍBV vorið 2013. James er án efa þekktasti knattspyrnumaðurinn sem hefur verið á mála hjá íslensku liði og sannkallaður hvalreki fyrir ÍBV og í raun íslenska knattspyrnu. James lék með ÍBV um sumarið og starfaði einnig sem aðstoðarþjálfari við hlið Hermanns Hreiðarssonar. Eins og gefur að skilja vakti koma James til ÍBV verðskuldaða athygli. Enskir fjölmiðlar sýndu málinu mikinn áhuga og var m.a. sagt frá vistaskiptum markvarðarins á vef The Guardian, Sky Sports og BBC.
Þung undiralda á aðalfundi
Salurinn í Týsheimilinu var þétt setinn á aðalfundi ÍBV-íþróttafélags 17. apríl 2013. Stórkarlalegar yfirlýsingar stjórnarmanna dagana á undan höfðu örugglega átt sinn þátt í áhuga á fundinum. Það var áfram þungi í mönnum en umræðan var þó vel innan velsæmismarka. Það sem stóð uppúr var glæsilegur árangur félagsins árið á undan og öflugt starf en dökka hliðin að félagið skuldar of mikið. Um þetta var tekist á fundinum og féllu þung orð, m.a. sagt að þjóðhátíð skilaði ekki því sem gera mætti ráð fyrir miðað við umfang og veltu. Því var mótmælt og sýnt fram á að tekjur af þjóðhátíð skipta máli fyrir rekstur félagsins þó alltaf megi deila um hvað sé ásættanlegt og hvað ekki.
Á framhaldsaðalfundi nokkrum dögum síðar var Sigursveinn Þórðarson kjörinn formaður félagsins og með honum í stjórn, Íris Róbertsdóttir, varaformaður, Guðmundur Ásgeirsson, gjaldkeri og Arnar Richardsson, ritari. Aðrir í stjórn eru Páll Magnússon, Stefán Jónsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Styrmir Sigurðarson og Hannes Sigurðsson.
Fyrsti Íslandsmeistaratitill ÍBV íkarla handbolta
Tveir flokkar ÍBV í handbolta urðu Íslandsmeistarar 2013, yngra ár 4. flokks drengja og eldra ár 5. flokks kvenna.
Þessi sigur 4. flokks drengja var fyrsti Íslandsmeistaratitill í handbolta í sögu ÍBV íþróttafélags. Þjálfarar drengjaliðsins var Jakob Lárusson en þjálfari stúlknaliðsins var Unnur Sigmarsdóttir.
Skemmtilegur opnunarleikur
Það var augljóst að mikil eftirvænting ríkti í Vestmannaeyjum þegar blásið var til leiks í opnunarleik Íslandsmótsins í knattspyrnu 2013, sem að þessu sinni fór fram á Hásteinsvelli. Þar áttust við heimamenn í ÍBV og ÍA en í liði ÍBV var stórstjarnan David James. Það fór líka ekki á milli mála að stuðningsmenn liðsins vildu berja stórstjörnuna augum, enda voru ríflega eitt þúsund manns á vellinum og fjölmargir voru mættir mjög tímanlega. ÍBV hafði betur í leiknum 1:0 með marki Gunnars Más Guðmundssonar.
Stórveldi á íþróttasviðinu
ÍBV fékk afhentan unglingabikar HSÍ á lokahófi sambandsins 2013, þar sem ÍBV sópaði að sér verðlaunum. Unglingabikar er eftirsóknarverður bikar en hann fær það félag sem að mati HSÍ hefur sinnt unglingastarfi hvað best á tímabilinu. Undir unglingastarfið falla 3. flokkur og yngri iðkendur í karla- og kvennaflokki. ÍBV bætti því enn einni rósinni í hnappagatið og vel að þessum titli komið.
Heimir
Heimir Hallgrímsson er án efa sá þjálfari sem hefur náð lengst af þeim íþróttaþjálfurum sem Eyjarnar hafa alið af sér. Heimir náði frábærum árangri með karla- og kvennalið ÍBV og ekki síður yngri flokka félagsins. Hann var í kjölfarið ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari. Undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis náði íslenska karlalandsliðið sögulegum árangri, þótt sætið á HM hafi runnið úr greipum á lokasprettinum. Heimir var svo ráðinn landsliðsþjálfari.
90 nemendur í Íþróttaakademíunni 2013
Góður rómur hefur verið gerður af starfsemi Íþróttaakademíu ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og Grunnskóla Vestmannaeyja. Nemendur fá góða kennslu í viðkomandi íþróttagrein, þá er gerð krafa á nemendur beggja akademía um hollt líferni, góða framkomu og námsárangur. Tímabilið 2013-14 voru samtals 90 nemendur í íþróttaakademíu, 39 í FÍV og 51 í GRV.
Ian David Jeffs var skólastjóri en hann var þriðji til að sinna starfinu. Árni Stefánsson byrjaði, Erlingur Richardsson tók við af honum og nú Jeffsy, eins og hann er kallaður.
Baráttan um Íslandsmeistaratitlinn 2014 endaði með sigri ÍBV
Það varð enginn vonsvikinn af því að hafa fylgt karlaliði ÍBV í handbolta, til Hafnarfjarðar í síðasta leik liðsins í úrslitarimmunni. Verið var að leika hreinan úrslitaleik gegn Haukum og stuðningsmenn ÍBV voru sem fyrr frábærir. Meira en klukkutíma fyrir leik var stúkan orðin full Eyjamegin. Þetta sýndi hug Eyjamanna, - titlinum skyldi landað.
Örtröð myndaðist þegar byrjað var að selja miða í hópferð á leikinn. Forsalan fór fram í afgreiðslu Herjólfs og biðröðin náði langt út á bryggju.
Fjölmargir Eyjamenn tryggðu sér einnig miða í forsölu Hauka og svo síðar á leikdegi. Enda var það þannig að á leiknum á Ásvöllum voru um 2.500 manns og ekki minna en helmingur voru Eyjamenn. Þrautreyndur Haukamaður sagði að hann hefði aldrei áður séð jafn marga í íþróttahúsinu, ekki einu sinni þegar Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast. Hann bætti því líka við að hann hefði aldrei áður séð jafn mikla stemmningu á handboltaleik á Íslandi og þótti mikið til stuðningsmanna ÍBV koma. Stuðningsmenn ÍBV hafa farið á kostum í úrslitakeppninni, og reyndar fyrir hana líka. Hvítu riddararnir höfðu verið fremstir í flokki, haldið uppi stemmningunni og aðrir stuðningsmenn ÍBV ekki látið sitt eftir liggja. Stuðningsmenn ÍBV hafa lyft handboltanum á Íslandi upp á hærri stall í vetur. Þetta eru stór orð en full innistæða fyrir þeim.
Leikurinn sjálfur var nánast sem í blámóðunni fyrir mörgum, þvílík var spennan. Fyrri hálfleikur var jafn, Eyjamenn þó með undirtökin en í síðari hálfleik náðu Haukar fjögurra marka forystu og einhverjir farnir að velta því fyrir sér hvort draumurinn væri úti. „Fyrir það fyrsta, við erum að spila úrslitaleik strákar mínir. Njótiði þess. Smá bros og losum okkur við spennuna,“ sagði Arnar Pétursson, annar tveggja þjálfara ÍBV í leikhléi sem ÍBV tók um miðjan seinni hálfleikinn þegar staðan var 22:18. Arnar hitti naglann á höfuðið. Leikmenn byrjuðu að spila með gleðina að vopni og það sem fylgdi í kjölfarið fer í sögubækurnar. Peyjarnir okkar söxuðu á forskot Hauka og Theodór Sigurbjörnsson kom ÍBV yfir 23:24 þegar 12 mínútur voru til leiksloka. Lokamínúturnar voru æsispennandi þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna. Staðan var jöfn þegar mínúta var eftir. ÍBV fór í sókn, markvörður þeirra varði frá Agnari Smára Jónssyni, sem kastaði sér inn í teig, náði frákastinu og kom boltanum í netið í annarri tilraun. Þvílík tilþrif hjá Agnari Smára, sem skoraði þrettán mörk í leiknum, hvorki meira né minna. Vörn Eyjamanna stóð svo af sér síðustu sókn Hauka og fagnaðarlætin í leikslok voru mögnuð. Leikmenn og forráðamenn féllust tárvotir í faðma með stuðningsmönnum sínum. Fyrsti Íslandsmeistaratitill meistaraflokks karla ÍBV í handbolta staðreynd.
Árangurinn náðist því allir lögðust á eitt, leikmenn, þjálfarar, forráðamenn, stuðningsmenn og fleiri. Að nýliðar ÍBV skuli standa uppi sem sigurvegarar í Íslandsmótinu í fyrsta sinn er ótrúlegt, ekki síst í ljósi þess að fyrir aðeins rúmum tveimur árum var ÍBV næstlélegasta lið landsins. Þessi vegferð hófst ekki í haust, hún hófst fyrir nokkrum árum þegar deildin var í skuldaklafa. Skuldirnar voru greiddar upp og þá hófst uppbyggingin sem fjölmargir komu að. En uppskeran er góð, ÍBV er besta handboltalið landsins.
Heimkoma sem seint gleymist
„Við komum kl. hálftvö í nótt með Herjólfi og það var full bryggjan af fólki til að taka á móti okkur. Það var slegið upp flugeldasýningu og fleira til gamans gert. Þá var slegið upp veislu sem stóð fram eftir nóttu. Það var seint farið að sofa og snemma farið á fætur í morgun þar sem konan mín var að byrja að vinna eftir fæðingarorlof. Sonur minn 10 mánaða hafði engan skilning á að ég var þreyttur í morgun,“ sagði Gunnar Magnússon, annar þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik karla, glaður í bragði.
Íslands- og bikarmeistarar
Eyjamenn eignuðust enn á ný Íslandsmeistara í handbolta þegar 4. flokkur kvenna, yngri, vann Fram í úrslitaleik mótsins í Austurbergi. Lokatölur urðu 20:18 eftir framlengingu en eftir venjulegan leiktíma var staðan 17:17. Eyjaliðið var lengi í gang enda var Fram yfir í hálfleik 11:7. En stelpurnar unnu sig inn í leikinn með mikilli baráttu og eiga hrós skilið fyrir veturinn, enda bæði Íslands- og bikarmeistarar. Þjálfari liðsins var Unnur Sigmarsdóttir.
Loksins kom heimasigur
Gengi karlaliðs ÍBV í knattspyrnu stóð ekki undir væntingum sumarð 2014 en loksins tókst meistaraflokki karla að sigra í heimaleik í Pepsi-deildinni en sigurinn kom á Hásteinsvelli gegn Fjölni í mjög svo skemmtilegum leik þar sem Eyjamenn stjórnuðu ferðinni, þó aðallega í seinni hálfleik. Eyjamenn höfðu unnið síðustu tvo útileiki áður en kom að þessum en það voru útisigurinn í Keflavík og bikarsigurinn gegn Þrótti. Lokatölur voru 4:2 sem verður að teljast sanngjarnt.
Stærsta þjóðhátíðin
Sumarið 2014 hélt ÍBV íþróttafélag stærstu þjóðhátíð sína, en tæplega 15 þúsund gesti voru þá í Herjólfsdal. Hún tókst með ágætum. Veður var ágætt alla dagana, sól og blíða á föstudeginum, skúrir á laugardeginum og skýjað og nokkur vindur á sunnudeginum. Dóra Björk Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags sagði m.a. í viðtali við Eyjafréttir: „Það var líka gaman að sjá að hvítu tjöldunum er að fjölga, voru núna 326 á móti rúmlega 290 í fyrra.
6. flokkur Íslandsmeistari
Stelpurnar í 6. flokki kvenna hjá ÍBV urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu um mánaðamótin ágúst/september 2014. B- og C-lið flokksins náði einnig mjög góðum árangri, liðin tvö enduðu í þriðja sæti Íslandsmótsins. A-liðið hafði gríðarlega mikla yfirburði í sumar og vann til að mynda sinn riðil með fullt hús stiga og komst því leikandi í úrslitariðilinn sem fram fór nokkrum dögum síðar. Þar voru stelpurnar alls ekki hættar og ákváðu að vinna alla leikina þar. Þær gerðu það svo vel að ekkert annað lið í riðlinum var með jafn gott markahlutfall. Stelpurnar eru vel að titlinum komnar og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Athöfn var á bryggjunni við komu Herjólfs en stelpunum sem skiluðu sér til Eyja voru færðir blómvendir.
Evrópukeppni kvennaliðsins
ÍBV stelpurnar okkar héldu út til Ítalíu um miðjan október 2014 til þess að keppa tvo leiki gegn ítölsku liði í forkeppni Evrópudeildar. Fyrir ferðina var ljóst að ítalska liðið var gríðarlega sterkt og með nokkrar reyndar stelpur sem höfðu áður leikið í Meistaradeildinni.
Fyrri leikur liðanna fór fram á föstudegi og var mikið jafnræði á með liðunum. Stúlkurnar okkar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik en að honum loknum var staðan 14:14. Í síðari hálfleik fóru stelpurnar illa með færin sín og lokatölur urðu 27:24. Það var því ljóst að erfitt verkefni beið stelpnanna næsta dag. Mörk ÍBV í fyrri leiknum skoruðu Jóna S. Halldórsdóttir 7, Telma Amado 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Vera Lopes 3, Ester Óskarsdóttir 2 og Elín Anna Baldursdóttir 2.
Síðari leikurinn fór, eins og fyrri leikurinn, fram í höll þar sem mikill hiti var og margir stuðningsmenn ítalska liðsins, aðstæður sem stelpurnar þekkja ekki. Í leiknum varð snemma ljóst að þær myndu ekki ná að vinna upp muninn sem hafði myndast eftir fyrri leikinn. Allar stelpurnar fengu því að spila og tapaðist leikurinn með níu marka mun 34:25.
Mörk ÍBV skoruðu Jóna S. Halldórsdóttir 8, Vera Lopes 3, Telma Amado 3, Elín Anna Baldursdóttir 3, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Ester Óskarsdóttir 2, Bergey Alexandersdóttir 1, Sóley Haraldsdóttir 1 og Ásta Björt Júlíusdóttir 1.
Gríðarlegur ferðakostnaður
Ferðakostnaður ÍBV-íþróttafélags fyrir árið 2014 var kr. 56.500.000,-. Eingöngu er um að ræða ferðir í Íslandsmót en ekki í bikarkeppni, æfingaleiki, deildar og Lengjubikar, Faxaflóamót og fleira. Ferðajöfnunarsjóður kom til móts við þennan kostnað og úr honum komu nálægt kr. 6.000.000- Til þess að standa straum af þessum kostnaði hefur ÍBV notið mikillar góðvildar einstaklinga og fyrirtækja sem og Vestmannaeyjabæjar.
1200 leikir – 43 starfsmenn á launaskrá – 50% grunnskólabarna æfa íþróttir hjá félaginu
Á viðurkenningahátíð Íþróttabandalagsins ræddi Dóra Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags um félagið og starf þess. Hún sagði að á árinu 2014 hefði ÍBV spilað rúmlega 1200 leiki í Eyjum og félagið var þá sem oftast áður stærsti viðskipavinur Herjólfs í farþegaflutningum. Félagið átti 23 íþróttamenn sem léku fyrir Íslands hönd með landsliðum og þrír þjálfarar félagsins stýrðu landsliðum Íslands og félagið ætti þar að auki handboltaþjálfara eins besta félagsliðs heims. ÍBV íþróttafélag varð Íslandsmeistari í þremur yngri flokkum og bikarmeistari í tveimur. Og Íslandsmeistari í meistaraflokki karla í handbolta. ÍBV íþróttafélag hefði að jafnaði 43 starfsmenn á launaskrá, félagið verslaði við fyrirtæki og stofnanir í Eyjum fyrir rúmar 100 milljónir króna. 50% allra grunnskólabarna stunda íþróttir á vegum félagsins og uppeldismenntað fólk sem sér um kennslu yngstu iðkenda félagsins er 10 talsins. 80 ungmenni stunda nám í Íþróttaakademíunni
Bikarmeistarar - Hafa unnið 17 leiki í röð
Stelpurnar í þriðja flokki ÍBV í handbolta voru ótrúlegar. Þær töpuðu ekki leik á tímabilinu 2014-15 eftir slakan fyrsta leik gegn Selfyssingum. Þær mættu þeim einmitt í úrslitum bikarsins. Þrjár stelpur sem spila stórt hlutverk hjá meistaraflokki spila með liðinu. Þær Erla Rós Sigmarsdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir en þær spiluðu allan leikinn.
Í upphafi leiksins var mikið jafnræði á með liðunum en ÍBV virtist þó alltaf vera einu til tveimur skrefum á undan. Í hálfleik var staðan 12:10 eftir flottan kafla ÍBV undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik sást vel hvort liðið væri á toppi deildarinnar. Stelpurnar sýndu sínar bestu hliðar en það var þó ein sem stal senunni. Sóley Haraldsdóttir átti frábæran leik og skoraði ellefu mörk. Þegar sóknir stelpnanna virtust vera að renna út í sandinn gat Sóley bjargað málunum. Lokatölur leiksins urðu 24:18 og var Sóley valin kona leiksins.
Bikarinn til Eyja
Karlalið ÍBV í handbolta fékk FH sem mótherja í úrslitaleik bikarkeppninnar 2015 eftir að hafa unnið Hauka í dramatískum leik. - Það gekk allt upp hjá Eyjamönnum í upphafi og var staðan 6:6 eftir fimmtán mínútna leik. FH-ingar náðu þá góðum kafla, spiluðu ótrúlega vörn og góða sókn, þeir breyttu stöðunni í 6:10 á svipstundu.
Þá hófst frábær kafli Eyjamanna, áður en flautan gall í hálfleik höfðu strákarnir jafnað í 11:11. Þessi kafli hélt áfram í upphafi síðari hálfleiks og var staðan orðin 19:14 áður en síðari hálfleikur var hálfnaður. Kolbeinn Aron Arnarson var í ótrúlegu stuði í leiknum en hann varði alls þrjú vítaköst. Staðan var svo 23:19 þegar einungis sex mínútur voru eftir en þá voru flestir farnir að bóka sigurinn. Þá klikkaði nánast allt sem gat klikkað hjá Eyjamönnum þessar síðustu mínútur. FH-ingum tókst að minnka muninn niður í eitt mark og höfðu boltann þegar mínúta var eftir. Vörn ÍBV varði slakt skot frá ungri skyttu FH-inga og sigldi þar með sigrinum í höfn. Allt ætlaði um koll að keyra í Laugardalshöllinni en ótrúleg stemning var í húsinu.
Kolbeinn Aron Arnarson var ótrúlegur í úrslitaleiknum og varði nítján skot, þar af þrjú vítaköst. Hann varði einnig mörg skot úr opnum færum á mikilvægum tímapunktum í leiknum. Agnar Smári Jónsson skoraði mest Eyjamanna í leikjunum eða tíu mörk. Hann skoraði síðasta markið gegn FH.
Hvítu Riddararnir stjórnuðu stemningunni mjög vel en þessi stórkostlega stuðningsmannasveit hefur staðið sig ótrúlega vel síðustu tvö ár. Leikmenn og þjálfarar liðsins fara ekki í eitt einasta viðtal án þess að þakka fyrir stuðninginn og stemninguna sem hefur ekki verið meiri í íslenskum handbolta í mörg ár. Og uppskeran er fyrsti bikarmeistaratitill karla frá árinu 1991 þegar Íþróttabandalag Vestmannaeyja vann Víking eftir að hafa lent sjö mörkum undir.
Við heimkomu bikarmeistaranna með Herjólfi var skotið upp flugeldum og blys loguðu á Heimakletti, Miðkletti og Ystakletti.
Erfitt er að segja til um hvað margir voru samankomnir á bryggjunni til að samfagna Bikarmeisturunum en þeir voru eitthvað á milli 1000 og 2000 manns. Og til að undirstrika enn hvert hugur veðurguðanna beinist í handboltanum á Íslandi lagðist hvít slikja yfir Eyjarnar eftir móttökuna með Herjólfi. Hvítt er jú litur ÍBV. Þarna endurtók sig sagan frá síðasta vori þegar ÍBV kom heim með Íslandsmeistaratitilinn. Þá skartaði náttúran sínu blíðasta, stjörnubjörtu kvöldi, fullu tungli og logni.
Á eftir var sigurhátíð í Höllinni og á Háaloftinu fyrir strákana þar sem frítt var inn og sungið og dansað í fullu húsi fram á morgun.
5. flokkur Íslandsmeistari
Stelpurnar í 5. flokki kvenna eru með langbesta liðið á Íslandi í sínum flokki. Þær unnu öll fimm mótin sem voru í boði á árinu 2015, en ekki nóg með það, því liðið vann hvern og einn einasta leik. Rétt eins og það hafi ekki verið nóg þá vann liðið alla leikina nema tvo með tíu marka mun eða meira. Þetta er ótrúlegur árangur hjá stelpunum sem hafa svo sannarlega hælana þar sem önnur lið komast ekki með tærnar. Á síðasta tímabili urðu stelpurnar einnig Íslandsmeistarar. B-lið stelpnanna er einnig það besta á landinu, í síðasta móti vetrarins komst B-liðið upp í fyrstu deild. Engu öðru B-liði hefur tekist að tryggja sér sæti í efstu deild 5. flokks kvenna. Stelpurnar eru einnig með fyrirmyndarþjálfara en feðgarnir Björn Elíasson og Hilmar Ágúst Björnsson stýra þeim.
Tryggvi lét af störfum fyrirvaralaust
Tryggvi Guðmundsson, lét af störfum sem aðstoðarþjálfari knattspyrnuliðs karla ÍBV í endaðan júlí 2015. Hann var ekkert að fegra sinn hlut sinn í málinu. Tryggvi mætti undir áhrifum áfengis á æfingu og þá sem aðalþjálfari í forföllum Jóhannesar Harðarsonar yfirþjálfara. Í kjölfarið varð að samkomulagi milli hans og knattspyrnuráðs ÍBV að hann hætti.
Meistarar meistaranna 2015
ÍBV varð meistari meistaranna í karlaflokki í handknattleik eftir nauman sigur á Haukum, 25-24 sigur í Schenker-höllinni. Með sigrinum tókst strákunum að hefna fyrir tapið í fyrra gegn Haukum í sama leik en þá tapaði ÍBV með eins marks mun. Þjálfarar liðsins voru Arnar Pétursson og Sigurður Bragason.
Minningarathöfn, Abel kvaddur
Landakirkja var þéttsetin í minningarathöfn um Abel Dhaira, markmann ÍBV sem lést 27. mars 2016, aðeins 28 ára gamall eftir stutta baráttu við krabbamein. Það var ÍBV og vinir hans sem stóðu fyrir athöfninni þar sem sr. Guðmundur Örn Jónsson, sóknarprestur Landakirkju og Guðni Hjálmarsson, forstöðumaður Hvítasunnusafnaðarins í Eyjum fluttu minningarorð. Hvítasunnufólk sá um tónlist og Árný Heiðarsdóttir, sem gekk honum í einskonar móðurstað. ÍBV fáninn var í kór klæddur sorgarklæði þar sem leikmenn meistaraflokks karla sátu. Athöfnin var látlaus og í anda Abels sem ekki lét mikið fyrir sér fara nema þegar hann var mættur á milli stanganna í marki ÍBV.
3. flokkur Íslandsmeistari
ÍBV eignaðist Íslandsmeistara í 3. flokki karla í fyrsta skiptið, þessir sömu strákar unnu fyrsta Íslandsmeistaratitil ÍBV í 4.flokki árið 2013. Í ár var liðið undir stjórn Svavars Vignissonar og tefldi það fram tveimur liðum, einu sem spilaði í 1. deild og öðru sem spilaði í 3. deild. Liðið sem var í 3. deild var einungis skipað leikmönnum fæddir 1999, á yngra ári flokksins.
Ágúst Emil Grétarsson var útnefndur maður leiksins en hann skoraði átta mörk, í öllum regnbogans litum. Strákarnir fengu síðan móttöku við hæfi á Básaskersbryggju eftir leik þar sem þeir höfðu ferðast með bikarinn til Eyja í Herjólfi með tilheyrandi látum og söngvum.
Þriðji flokkur karla vann einnig í B-úrslitum. Liðið tapaði ekki leik á öllu tímabilinu. Þeir unnu 15 af sínum 16 leikjum í deildinni og voru með 178 mörk í plús.
Lengjubikarmeistarar 2016
Eftir mikla velgengni í Lengjubikarkeppninni tók meistaraflokkur kvenna á móti Breiðabliki í úrslitunum á Hásteinsvelli. ÍBV stelpurnar höfðu betur í 3:2 sigri og fengu því Lengjubikarinn í ár.
ÍBV stelpurnar byrjuðu frábærlega en eftir 25 mínútur var staðan orðin 3:0 fyrir okkar stelpum. Blikastelpurnar minnkuðu muninn í 3:1 á 27. mínútu. Staðan var 3:1 í hálfleik. Gestirnir skoruðu svo annað mark sitt á 85.mínútu leiksins og voru því lokatölur leiksins 3:2 og ÍBV stelpurnar því handhafar Lengjubikarsins 2016.
Mörk ÍBV skoruðu þær Chloe Lacasse, Lisa Marie Woods og Rebekah Bass.
Þannig fór það
Það var stór áfangi hjá ÍBV að eiga lið bæði í karla- og kvennaliði ÍBV í knattspyrnu í úrslitum Borgunarbikarsins 2016, sem fram fór á Laugardalsvelli dagana 12. og 13. ágúst. Því miður urðu Eyjamenn og konur að sætta sig við silfurverðlaunin en stuðningsmennirnir klikkuðu ekki og voru síst færri á pöllunum og létu vel í sér heyra.
ÍBV stelpurnar tóku á móti Blikum í úrslitaleiknum. Þær höfðu farið nokkuð erfiða leið þar sem þrjú Pepsi-deildar lið urðu á vegi þeirra. KR, Selfoss og Þór/KA slógu þær úr leik en leikurinn við Þór/KA fór alla leið í framlengingu þar sem Eyjakonur reyndust sterkari aðilinn. Í úrslitaleiknum byrjaði leikurinn alveg skelfilega. Olivia Chance, nýr leikmaður Blika, skoraði mark eftir rúma mínútu þar sem hún átti skot fyrir utan sem rataði í netið. Berglind Björg Þorvaldsdóttir, uppalin Eyjakona, skoraði annað mark Blika eftir rúmlega tuttugu mínútna leik þar sem hún skallaði í netið eftir hornspyrnu. Svona var staðan í hálfleik og Blikar líklegri til að bæta við marki heldur en ÍBV að minnka muninn.
Lið ÍBV kom þó virkilega ferskt út í seinni hálfleikinn þar sem Natasha Anasi minnkaði muninn eftir tæpar fimm mínútur í seinni hálfleik. Þá leit allt eins út fyrir að ÍBV gæti jafnað leikinn. Tíu mínútum seinna komust Blikastelpur í 3:1 þegar önnur Vestmannaeyjamær skoraði en Fanndís Friðriksdóttir átti þá hnitmiðað skot út við stöng.
Leikurinn fjaraði fljótt út og voru mínúturnar ekki lengi að líða þar sem ÍBV vantaði mörk, allt kom fyrir ekki og tap í bikarúrslitunum því staðreynd
Karlalið ÍBV spilaði við Valsara eftir að hafa farið erfiðu leiðina í bikarúrslitin, liðið sló út Huginsmenn, Stjörnuna, Breiðablik og FH. Í úrslitaleiknum mætti liðið Val og ekki byrjaði leikurinn gæfulega fyrir Eyjamenn. Valsarinn Sigurður Egill Lárusson fékk fyrsta færið og skoraði fyrsta markið eftir tæpar tíu mínútur, hann var síðan aftur á ferðinni þegar hann tvöfaldaði forystuna eftir tuttugu mínútna leik. Í millitíðinni hafði Gunnar Heiðar Þorvaldsson fengið gott tækifæri til að jafna leikinn fyrir Eyjamenn. Restin af leiknum var nokkuð tíðindalítill og ekki mikið sem gerðist í síðari hálfleik, ÍBV fékk fá eða engin færi til að minnka muninn og Valsarar í raun verðskuldaðir sigurvegarar.
Hrafnhildur til fyrirmyndar
Ansi áhugavert atvik átti sér stað í handboltaleik ÍBV og Hauka í Íslandsmótinu í handbolta haustið 2016. Hrafnhildur Skúladóttir, þjálfari kvennaliðs ÍBV, sýndi þá af sér afar íþróttamannslega hegðun. Forsaga málsins er sú að leikmaður ÍBV varð fyrir hnjaski í leiknum og var spurð af dómara leiksins hvort hún þyrfti aðstoð sjúkraþjálfara. Hún svaraði því neitandi en þá var sjúkraþjálfari Haukaliðsins engu að síður lagður af stað inn á völlinn til að hlúa að leikmanni ÍBV en Hrafnhildur hafði beðið sjúkraþjálfara Hauka um að aðstoða sinn leikmann þar sem sjúkraþjálfari ÍBV var staddur inni í klefa að hlúa að öðrum leikmanni. Þar sem dómarar leiksins höfðu ekki gefið sjúkraþjálfara Hauka leyfi til þess að stíga inn á völlinn fékk Haukaliðið tveggja mínútna brottvísun og þurfti að spila manni færri. Það fannst Hrafnhildi ósanngjarnt þar sem hún hafði beðið sjúkraþjálfarann um að fara inn á völlinn. Brá hún þá á það ráð að kippa einum af sínum leikmönnum útaf líka næstu tvær mínúturnar svo áfram yrði jafnt í liðum.Tekið skal fram að ÍBV var undir á þessum tímapunkti og liðið endaði líka á að tapa leiknum. Hrafnhildur fær þó mikið hrós fyrir þessa gríðarlega íþróttamannslegu hegðun en ætla má að afar fáir þjálfarar hefðu gert það sama í þessari stöðu.
Jafnréttisstefna ÍBV íþróttafélags
Stefnt skal að því að réttur hvers og eins einstaklings til að stunda íþróttir sé ávallt fyrir hendi. Uppbygging íþrótta, hvort sem um æfingar eða keppni er að ræða, þarf að tryggja að allir hafi sömu tækifæri. Þessi jafnréttishugsjón þarf að verða eitt megineinkenni íþrótta. Einstaklingur á rétt á að vera metinn af verðleikum sínum en ekki vegna uppruna, þjóðfélagsstöðu, litarháttar eða kyns.
Hvers vegna á íþróttahreyfingin að vinna að jafnrétti kynja? “Rannsóknir í íþróttaiðkun barna og unglinga sýna að þátttaka í íþróttum hefur bein áhrif á andlega og félagslega vellíðan og styrkir sjálfsmynd þeirra.” (RUM, Þórólfur Þórlindsson o.fl. 1994). Þessar sömu rannsóknir sýna einnig að þátttaka stúlkna og drengja er ekki sambærileg. Stúlkur stunda íþróttir síður en strákar og brottfall þeirra er mun meira en stráka. Það er óumdeilt að íþróttir hafa uppeldislegt, menningarlegt og heilsufarslegt gildi fyrir þá sem þær stunda. Því er mikilvægt að íþróttafélögin séu meðvituð um ábyrgð sína og áhrifamátt hvað þetta varðar og tryggi að allir hafi þar sambærilega möguleika.
ÍBV gerir sig út fyrir það að bjóða upp á æfingar í öllum flokkum í báðum kynjum. Reynt er að bjóða upp á sama æfingamagn hjá báðum kynjum með eins vel menntuðum þjálfurum og kostur er á hverju sinni.
(Heimildir: Eyjafréttir, Morgunblaðið, fundargerðir ÍBV íþróttafélags, Íþróttafélagið Þór í 100 ár)
Með þeirri sögu sem hér hefur verið sögð, er reynt að varpa ljósi á það umfangsmikla starf sem fram fer hjá ÍBV íþróttafélagi. Það gerist þó ekki af sjálfu sér. Mikill fjöldi sjálfboðaliða og stuðningsmanna leggja mikið á sig til að halda merki félagsins og Vestmannaeyja hátt á lofti og eru ástæða þess að félagið er jafn öflugt og raun ber vitni. Það nýtur líka mikils velvilja bæjarbúa sem seint verður fullþakkað. Meðan félagið nýtur slíks, er framtíð þess björt. Þetta afmælisblað ÍBV íþróttafélags er tileinkað öllu því góða fólki sem að baki félagsins stendur.
___________________________________________________________________________
Ótrúlegur árangur
Árangur af íþróttaiðkun er ekki einhlítur, fleira gott leiðir hún af sér en titla. En í þessari samantekt er eingöngu horft á titla félagsins frá því það var stofnað í lok ársins 1996. Á ýmsu hefur gengið á tímabilinu. Sigrar hafa unnist, en líka hafa sum árin valdið vonbrigðum eins og gengur. En óneitanlega hefur árangur félagsins verið glæsilegur. Alls hefur félagið hlotið 87 meistaratitla í handbolta og fótbolta, þar af 7 meistaratitla í efstu deildum þessara íþróttagreina. Að 4300 manna samfélag eins og Vestmannaeyjar geti státað af þeim árangri sem náðst hefur í handbolta og knattspyrnu, er sennilega einstakt. Og að eiga lið í öllum efstu deildum þessara íþróttagreina getur ekkert annað sveitarfélag státað af nema Reykjavík.
Lið Þjálfari
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Íslandsmeistari Bjarni Jóhannsson
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Deildarbikarmeistari Bjarni Jóhannsson
5. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari Erna Þorleifsd./Stefanía
1998
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Íslandsmeistari Bjarni Jóhannsson
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Bikarmeistari Bjarni Jóhannsson
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Meistarar meistaranna Bjarni Jóhannson
2. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari Heimir Hallgrímsson
4. flokkur B kvenna Íslandsmeistari Íris Sæmundsdóttir
1999
4. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari Íris Sæmundsdóttir
4. flokkur kvenna í innnahússknattsp. Íslandsmeistari
6. flokkur karla í knattspyrnu Shellmótsmeistari A-liða Jón Ólafur Daníelsson
4. flokkur karla í handbolta Bikarmeistari Sigurður Bragason/Akba
2000
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Íslandsmeistari Sigbjörn Óskarsson
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Meistarar meistaranna Sigbjörn Óskarsson
6. flokkur B kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari
2. flokkur kvenna í knattspyrnu Bikarmeistari
3. flokkur kvenna í innanhússknattsp. Íslandsmeistari
5. flokkur kvenna í handbolta Íslandsmeistari Stefanía Guðjónsdóttir
2001
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Bikarmeistari Sigbjörn Óskarsson
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Meistarar meistaranna Erlingur Richardsson
3. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari
2. flokkur kvenna í innanhússknattsp. Íslandsmeistari Sindri Grétarsson
4. flokkur kvenna í handbolta Deildarmeistari Michael Akbasev
2002
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Bikarmeistari Erlingur Richardsson
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Meistarar meistaranna Unnur Sigmarsdóttir
2003
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Íslandsmeistarar Unnur Sigmarsdóttir
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Deildarmeistarar Unnur Sigmarsdóttir
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Meistarar meistaranna Aðalsteinn Eyjólfsson
4. flokkur kvenna í innanhússknattsp. Íslandsmeistarar
2004
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Íslandsmeistarar Aðalsteinn Eyjólfsson
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Bikarmeistarar Aðalsteinn Eyjólfsson
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Deildarmeistarar Aðalsteinn Eyjólfsson
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Meistarar meistaranna Aðalsteinn Eyjólfsson
Meistaraflokkur karla í handbolta Íslandsmeistarar í 1. deild Erlingur Richardsson
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu Bikarmeistari Heimir Hallgrímsson
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu Deildarbikarmeistari Heimir Hallgrímsson
5. flokkur C kvenna í handbolta Íslandsmeistari
5. flokkur C kvenna í handbolta Deildarmeistari
4. flokkur B kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari
2005
3. flokkur kvenna í handbolta Íslandsmeistari í 2. deild
5. flokkur A kvenna í handbolta Íslandsmeistari
5. flokkur A kvenna í handbolta Deildarmeistari
5. flokkur B kvenna í handbolta Deildarmeistari
2006
Meistaraflokkur kvenna í handbolta Íslandsmeistari Alfreð Örn Finnsson
6. flokkur A karla í knattspyrnu Íslandsmeistari Heimir/Íris Sæmundsd.
6. flokkur karla í knattspyrnu Shellmótsmeistari Heimir/Íris Sæmundsd.
2007
4. flokkur A kvenna í handbolta Íslandsmeistari Unnur Sigmarsdóttir
4. flokkur B kvenna í handbolta Íslandsmeistari Unnur Sigmarsdóttir
3. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari 7 m/lið
3. flokkur kvenna í knattspyrnu Pæjumótsmeistari B-liða
3. flokkur kvenna í knattspyrnu Símamótsmeistari B-liða
2008
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Íslandsmeistari í 1. deild Heimir Hallgrímsson
6. flokkur C kvenna í handbolta Íslandsmeistari
2. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari Jón Ólafur Daníelsson
2009
6. flokkur C karla í handbolta Deildarbikarmeistari
2010
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari innanhúss Jón Ólafur Daníelsson
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari í 1. deild Jón Ólafur Daníelsson
2012
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Íslandsmeistari innanhúss Magnús Gylfason
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari innanhúss Jón Ólafur Daníelsson
2. flokkur karla í handbolta Deildarmeistari í 2. deild
2013
Meistaraflokkur karla í handbolta Íslandsmeistari í 1. deild Arnar Pétursson/Eringur
4. flokkur yngri karla í handbolta Íslandsmeistari Jakob Lárusson
5. flokkur eldri kvenna í handbolta Íslandsmeistari
2014
Meistaraflokkur karla í handbolta Íslandsmeistari Arnar Pétursson/Gunnar
4. flokkur eldri karlar í handbolta Bikarmeistari Stefán Árnason
4. flokkur yngri kvenna í handbolta Íslandsmeistari Unnur Sigmarsdóttir
6. flokkur eldri kvenna í handbolta Íslandsmeistari Elísa Sigurðardóttir
4. flokkur yngri kvenna í handbolta Bikarmeistari Unnur/Jón G.Viggósson
6. flokkur A kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari
5. flokkur kvenna í knattspyrnu Símamótsmeistari A-liða Sigríður Ása Friðriksd.
2015
Meistaraflokkur karla í handbolta Bikarmeistari Gunnar Magnúss/Sig.B.
Meistaraflokkur karla í handbolta Meistarar meistaranna Sigurður Bragas/Gunnar
3. flokkur kvenna í handbolta Bikarmeistari Jón Gunnl. Viggósson
3. flokkur kvenna í handbolta Deildarmeistari í 1.deild Jón Gunnl. Viggósson
5. flokkur yngri kvenna í handbolta Íslandsmeistari Hilmar Ágúst Björnsson
5. flokkur B kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari Sigríður Ása Friðriksd.
2016
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu Fótbolti.net meistari Bjarni Jóhannsson
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu Lengjubikarmeistari Ian Jeffs
3. flokkur karla í handbolta Íslandsmeistari Svavar Vignisson
3. flokkur karla í handbolta Deildarmeistari í 1. deild Svavar Vignisson
3. flokkur karla í handbolta Íslandsmeistari b-liða Svavar Vignisson
3. flokkur karla í handbolta Deildarmeistari í 3. deild Svavar Vignisson
3. flokkur kvenna í handbolta Deildarmeistari í 2. deild Hrafnhildur Ósk Skúlad.
4. flokkur eldri karla í handbolta Íslandsmeistari B-úrslit Hilmar Ágúst Björnsson
4. flokkur yngri kvenna í handbolta Deildarmeistari í 2. deild Björn Elíasson
5. flokkur eldri kvenna í handbolta Íslandsmeistari Hilmar Ágúst Björnsson
6. flokkur yngri kvenna í handbolta Íslandsmeistari Bergvin Haraldsson
(Samantekt: Gísli Valtýsson)
Verðlaun og meistarar
Íþróttamenn ársins
- 1978: Óskar Pálsson, lyftingar
- 1979: Gunnar Steingrímsson, lyftingar
- 1980: Páll Pálmason, knattspyrna
- 1981: Sigmar Þröstur Óskarsson, handbolti
- 1982: Sigfríð Björgvinsdóttir, sund
- 1983: Gylfi Garðarsson, golf
- 1984: Árni Sigurðsson, sund
- 1985: Þorsteinn Gunnarsson, knattspyrna
- 1986: Birgir Ágústsson, golf
- 1987: Sindri Óskarsson, golf
- 1988: Nökkvi Sveinsson, knattspyrna
- 1989: Sigurður Gunnarsson, handbolti
- 1990: Logi Jes Kristjánsson, sund
- 1991: Sigmar Þröstur Óskarsson, handbolti
- 1992: Þorsteinn Hallgrímsson, golf
- 1993: Þorsteinn Hallgrímsson, golf
- 1994: Andrea Atladóttir, handbolti
- 1995: Logi Jes Kristjánsson, sund
- 1996: Logi Jes Kristjánsson, sund
- 1997: Hlynur Stefánsson, knattspyrna
- 1998: Hlynur Stefánsson, knattspyrna
- 1999: Birkir Kristinsson, knattspyrna
- 2000: Ingibjörg Jónsdóttir, handknattleikur
- 2001: Íris Sæmundsdóttir, knattspyrna
- 2002: Vigdís Sigurðardóttir, handknattleikur
- 2003: Ingibjörg Jónsdóttir, handknattleikur
- 2004: Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
- 2005: Örlygur Helgi Grímsson, golf
- 2006: Sæþór Ólafur Pétursson, hnefaleikar
- 2007: Sigurður Bragason, handknattleiksmaður
- 2008: Andri Ólafsson, knattspyrnumaður
- 2009: Þórhildur Ólafsdóttir, knattspyrnukona
- 2010: Þórarinn Ingi Valdimarsson, knattspyrnumaður
- 2011: Tryggvi Guðmundsson, knattspyrnumaður
- 2012: Elísa Viðarsdóttir, knattspyrnukona
- 2013: Teódór Sigurbjörnsson, handknattleiksmaður
- 2014: Grétar Eyþórsson, handknattleiksmaður
- 2015: Teódór Sigurbjörnsson, handknattleiksmaður
- 2016: Sigríður Lára Garðarsdóttir, knattspyrnukona
Meistaraflokkur karla knattspyrnu
(Fram til ársins 1997 var keppt undir merkjum Íþróttabandalags Vestmanneyja. Eftir það var keppt undir merkjum ÍBV íþróttafélags í knattspyrnu og handbolta.)
Íslandsmeistarar í efstu deild:
- 1979
- 1997
- 1998
Bikarmeistarar:
- 1968 ÍBV-KRb 2:1
- 1972 ÍBV-FH 2:0
- 1981 ÍBV-Fram 3:2
- 1998 ÍBV-Leiftur 2:0
2. sæti í bikarkeppni:
- 1970 ÍBV-Fram 1:2
- 1980 ÍBV-Fram 1:2
- 1983 ÍBV-ÍA 1:2
- 1996 ÍBV-ÍA 1:2
- 1997 ÍBV-Keflavík 1:1, 0:0, 4:5 Víti
- 2000 ÍBV-ÍA 1:2
Deildarbikarmeistarar:
- 1997 ÍBV - Valur 3:2
Sigurvegarar í næstefstu deild:
- 1967
- 1976
- 1985
Meistarar Meistaranna:
- 1980 ÍBV-Fram 0:0, 4:3 í vítakeppni
- 1984 ÍBV-ÍA 2:1
- 1996 ÍBV-ÍA 5:3
- 1998 ÍBV-Leiftur 2:1
Drago-styttan (prúðasta lið deildar miðað við fæst gul og rauð spjöld):
- 1976 (næstefsta deild)
- 1996
- 1997
- 1998
Prúðmennskuverðlaun KSÍ og MasterCard: (prúðasta lið valið af nefnd):
- 1995
- 1996
- 1997
- 1998
Prúðasti leikmaður efstu deildar:
- 1996 Hlynur Stefánsson
- 1997 Ívar Bjarklind
- 1998 Steingrímur Jóhannesson
- 2003 Hjalti Jóhannesson
Besti leikmaður efstu deildar:
- 1997 Tryggvi Guðmundson
- 2000 Hlynur Stefánsson
Efnilegasti leikmaður efstu deildar:
- 1995 Tryggvi Guðmundson
- 1997 Sigurvin Ólafsson
- 2002 Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Markakóngar í efstu deild:
- 1972 Tómas Pálsson 15 mörk
- 1981 Sigurlás Þorleifsson 12 mörk
- 1982 Sigurlás Þorleifsson 10 mörk
- 1997 Tryggvi Guðmundsson 19 mörk
- 1998 Steingrímur Jóhannesson 16 mörk
- 1999 Steingrímur Jóhannesson 12 mörk
- 2004 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 12 mörk
Meistaraflokkur kvenna knattspyrnu
Bikarkeppnin:
- 2003 ÍBV-Valur 1:3, 2. sæti
- 2004 ÍBV-Valur 2:0, Bikarmeistarar
Deildarbikarmeistarar:
- 2004 ÍBV-Valur 3:1
Knattspyrnukona Íslands:
Markahæstar í efstu deild:
- 2004 Margrét Lára Viðarsdóttir, 23 mörk
Prúðasti leikmaður efstu deildar:
- 2003 Íris Sæmundsdóttir
- 2004 Olga Færseth
Kvennabikarinn (veittur fyrir gott starf í kvennaknattspyrnu):
- 1998
Meistaraflokkur karla handknattleik
Deildarmeistarar 2. deild:
- 1988
- 1995
Bikarmeistarar:
- 1991
Meistaraflokkur kvenna handknattleik
Íslandsmeistar:
- 2000
- 2003
- 2004
- 2006
Bikarmeistarar:
- 2001
- 2003
- 2004
Deildarmeistarar:
- 2003
- 2004
Meistarar meistaranna:
- 2000
- 2001
- 2002
- 2003
- 2004
Íþróttabandalag Vestm.eyja
Eftirtalin félög eru aðilar að Íþróttabandalagi Vestm.eyja:
- Golfklúbbur Vestmannaeyja
- ÍBV íþróttafélag
- Ungmennafélagið Óðinn
- Fimleikafélagið Rán
- Sundfélag Vestmannaeyja
- Körfuknattleiksdeild ÍV
- KFS-Knatspyrnufélagið Framherjar/Smástund
Stjórn Íþróttabandalags Vestm.eyja frá upphafi
Formenn
- Vigfús Ólafsson 1945 og 1950
- Sigurður Finnsson 1946-1948 og 1954-1958
- Gunnar Stefánsson 1949
- Jón Scheving 1951-1953
- Hrólfur Ingólfsson 1959
- Valdimar Kristjánsson 1960-1961
- Sigfús J. Johnsen 1962-1963
- Stefán Runólfsson 1964-1966 og 1968-1975
- Guðmundur Guðmundsson 1967
- Jóhann Pétur Andersen 1976-1978
- Óskar Sigurpálsson 1979-1981
- Gísli Magnússon 1982-1983
- Friðrik Óskarsson 1984-1985
- Guðmundur Þ. B. Ólafsson 1986-1988
- Ómar Garðarsson 1989-1992
- Sólveig Adólfsdóttir 1993-1997
- Ásmundur Friðriksson 1997-1999
- Birgir Sveinsson 1999-2001
- Þór Í. Vilhjálmsson 2001-2016
- Hjördís Steina Traustadóttir 2016-
Sjá einnig
- Komum fagnandi. Stuðningsmannalag ÍBV.
Tenglar
Heimildir
50 ára afmælisrit Íþróttabandalags Vestm.eyja, Eyjafréttir, Morgunblaðið, Íþróttafélagið Þór 100 ára