„Björn Bjarnason (Bólstaðarhlíð)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(mynd)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 19. september 2018 kl. 14:27

Björn Bjarnason
Perla,Kristín,Sigríður,Jón,Sigfríður,Halldóra. n.röð Bjarni Ólafur,Björn,Ingibjörg,Soffía
Fr.v. Sigríður, Jón og Halldóra og fremri röð Fr.v. Kristín, Soffía, Bjarni Ólafur, Perla og Fríða Björnsbörn Bjarnasonar og Ingibjargar Ólafsdóttur frá Bólstaðarhlíð

Björn Bjarnason var fæddur 3. mars árið 1893 á Ysta-Skála í Holtssókn og lést 25. september 1947. Hann var sonur Bjarna Einarssonar, f. 03.09.1869, frá Ysta-Skála og Halldóru Jónsdóttur, f. 28.02.1874, á Ysta-Skála í Holtssókn. Þau fluttu til Eyja árið 1901 og bjuggu í Hlaðbæ.

Björn var vélstjóri og útgerðarmaður í Bólstaðarhlíð (Heimagötu 39) í Vestmannaeyjum. Hann kom til Vestmannaeyja árið 1901. Líklegt er að Björn hafi byrjað að róa á m/b Haffara sem faðir hanns átti hlut í 1908, hann réri siðan á ýmsum bátum þar til hann keypti hlut í Emmu VE 219 árið 1920 og var vélstjóri á henni þar til hann hætti 1945.

"Björn var gæddur prúðmannlegri framkomu og hafði létta lund.Hann var mjög aðlaðandi persónuleiki. Betri heimilisfaðir en hann mun vand fundinn. Hann var gleðigjafi hvar sem hann fór og lífið og sálin á heimilinu meðan hans naut við" (sjá Blik 1987). Björn var hagyrðingur góður og nánast talaði stundum í vísum.

Niðjatal Björns Bjarnasonar

Björn Bjarnason, f. 3. mars 1893 á Ysta-Skála í Holtssókn., d. 25. sept. 1947 Vélstjóri og útgeðarmaður í Bólstaðarhlíð (Heimagötu 39) í Vestmannaeyjum (íbúaskrá, Manntal 1910) Kvæntur 12. júní 1921 Ingibjörgu Ólafsdóttur f. 12. apríl 1895 í Dalseli d. 22. júní 1976. For.: Ólafur Ólafsson, f. 6. júlí 1856, d. 1. apríl 1947 (Mt. 1910) og kona hanns Sigríður Ólafsdóttir, f. 9. sept. 1859 í Hlíðarendasókn Rang., d.7.sept. 1930 (Mt.1910)

Börn Björns og Ingibjargar:

  1. Halldóra Kristín Björnsdóttir, f. 3. apríl 1922.
  2. Sigríður Björnsdóttir, f. 8. apríl 1923.
  3. Jón Björnsson, f. 17. júní 1924.
  4. Kristín Björnsdóttir, f. 22. maí 1925.
  5. Sigfríður Björnsdóttir, f. 11. sept. 1926. d. 30 júní 2007.
  6. Perla Björnsdóttir, f. 11. ágúst 1928.
  7. Soffía Björnsdóttir, f. 13. ágúst 1933.
  8. Bjarni Ólafur Björnsson, f. 9. maí 1935. d. 4. júní 1959, hrapaði í Bjarnarey í Vestmannaeyjum.

Myndir