„Sigfinnur Árnason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Sigfinnur Árnason“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 16: Lína 16:
Börn þeirra:<br>
Börn þeirra:<br>
1. [[Óskar Sigfinnsson]] vélstjóri, skipstjóri í Neskaupstað og Reykjavík, lagerstjóri, f. 17. janúar 1911, d. 1. nóvember 2003.<br>
1. [[Óskar Sigfinnsson]] vélstjóri, skipstjóri í Neskaupstað og Reykjavík, lagerstjóri, f. 17. janúar 1911, d. 1. nóvember 2003.<br>
2. [[Sigurbjörn Sigfinnsson]] sjómaður í Reykjavík, f. 9. desember 1911, d. 22. september 1979.
2. [[Sigurbjörn Sigfinnsson]] sjómaður, skipstjóri í Eyjum, f. 9. desember 1911, d. 22. september 1979.
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  

Útgáfa síðunnar 24. janúar 2018 kl. 19:50

Sigfinnur Árnason frá Borgum í Norðfirði fæddist 10. maí 1890, drukknaði í fiskiróðri 2. ágúst 1913.
Foreldrar hans voru Árni Finnbogason bóndi og smiður á Borgum, f. 28. febrúar 1857, d. 27. júní 1921, og kona hans Guðlaug Torfadóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1863, d. 18. janúar 1932.

Bræður Sigfinns voru:
1. Valdimar Árnason sjómaður, formaður, verkamaður, f. 13. júlí 1885, d. 4. ágúst 1965.
2. Karl Árnason fyrri maður Vigdísar Hjartardóttur, en þau voru foreldrar Kristínar konu Arnmundar Óskars Þorbjörnssonar netagerðarmanns frá Reynifelli.

Sigfinnur var með foreldrum sínum á Borgum (Búlandsborg) í Norðfirði í æsku, og enn 1910.
Hann fluttist frá Norðfirði að Hnausum 1911. Þau Júlía bjuggu þar í byrjun árs við fæðingu Óskars, bjuggu í Bræðraborg, er þau giftu sig í apríl og Júlía ól Sigurbjörn í lok ársins hjá Margréti systur sinni á Hnausum.
Þau voru leigjendur á Hnausum 1912.
Sigfinnur drukknaði í fiskiróðri 2. ágúst 1913.
Drengirnir fóru í fóstur, Óskar til Norðfjarðar 1914 og Sigurbjörn að Grund u. Eyjafjöllum 1914.

I. Kona Sigfinns, (23. apríl 1911), var Júlía Sigurðardóttir húsfreyja, síðar í Dvergasteini, f. 7. júlí 1886 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 22. júlí 1979.
Börn þeirra:
1. Óskar Sigfinnsson vélstjóri, skipstjóri í Neskaupstað og Reykjavík, lagerstjóri, f. 17. janúar 1911, d. 1. nóvember 2003.
2. Sigurbjörn Sigfinnsson sjómaður, skipstjóri í Eyjum, f. 9. desember 1911, d. 22. september 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.