„Sigrún Sævarsdóttir (Grænuhlíð)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: 150px|thumb|''Sigrún Sævarsdóttir. '''Sigrún Sævarsdóttir''' kennari, skrifstofumaður frá Grænuhlíð 12 fæddist 9. febr...) |
m (Verndaði „Sigrún Sævarsdóttir (Grænuhlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 20. desember 2017 kl. 20:25
Sigrún Sævarsdóttir kennari, skrifstofumaður frá Grænuhlíð 12 fæddist 9. febrúar 1960 í Eyjum.
Foreldrar hennar eru Lárus Sævar Sæmundsson rafvirkjameistari, vélstjóri, f. 17. janúar 1940 í Reykjavík, og kona hans Sigrún Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 24. október 1939 á Þorvaldseyri
Sigrún ólst upp með foreldrum sínum, fyrst í Sólhlíð, síðan í Grænuhlíð 12 til Goss og þá í Reykjavík.
Hún varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1980, lauk kennaraprófi 1983.
Sigrún var kennari við Gagnfræðaskólann í Njarðvík 1983-1985, síðan við Laugarnesskólann í Reykjavík til 1998. Hún hefur unnið síðan hjá Tollstjóranum í Reykjavík.
Hún er ógift og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
- Prestþjónustubækur.
- Sigríður Sigurbjörnsdóttir.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.