„Jón Jónsson (Háagarði)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 16: | Lína 16: | ||
3. Guðbrandur bóndi á Fossi í Mýrdal, f. 6. apríl 1891, d. 21. maí 1840, kvæntur Gróu Vigfúsdóttur.<br> | 3. Guðbrandur bóndi á Fossi í Mýrdal, f. 6. apríl 1891, d. 21. maí 1840, kvæntur Gróu Vigfúsdóttur.<br> | ||
II. Síðari kona Jóns, (9. júlí 1816), var [[Kristín Stefánsdóttir (Háagarði)|Kristín Stefánsdóttir]] húsfreyja í [[Háigarður|Háagarði]], f. | II. Síðari kona Jóns, (9. júlí 1816), var [[Kristín Stefánsdóttir (Háagarði)|Kristín Stefánsdóttir]] húsfreyja í [[Háigarður|Háagarði]], f. 1779, d. 14. júlí 1869. Þau Jón voru barnlaus.<br> | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 14. október 2016 kl. 13:58
Jón Jónsson bóndi í Háagarði, fæddist 1768 á Ægissíðu, Rang., skírður 3. apríl það ár, og lést á Galtalæk á Landi 28. febrúar 1845.
Foreldrar Jóns í Háagarði voru Jón Þorsteinsson bóndi á Víkingslæk á Rangárvöllum, Arnþórsson, kona hans Guðrún, f. 1716, d. 1778, Brandsdóttir bónda á Rimahúsum undir Eyjafjöllum, Bjarnasonar.
Jón reisti bæ í Keldnaseli á Rangárvöllum og bjó þar 1798-1799, á Núpi þar 1799-1804.
Hann var bóndi í Háagarði í Eyjum 1816-1835. Þar voru þau Kristín á mt. 1816.
Síðast var Jón húsmaður á Galtalæk á Landi hjá Margréti dóttur sinni og Árna Finnbogasyni og lést þar 1845.
Jón var tvíkvæntur:
I. Fyrri kona Jóns var (24. maí 1798) Valgerður Guðbrandsdóttir, f. 1761, d. 16. apríl 1801.
Foreldrar hennar voru Guðbrandur bóndi á Geirlandi á Síðu, (flúði í Móðuharðindunum vestur í sveitir), síðar á Lágafelli í A-Landeyjum og víðar sunnanlands, síðast á Brú í Stokkseyrarhreppi, f. um 1728, d. 5. maí 1804 á Brú, Eiríksson bónda í Hörgsdal á Síðu, f. 1691, Bjarnasonar bónda á Geirlandi, f. 1655, Eiríkssonar og fyrri konu Bjarna, Fídesar Þorláksdóttur.
Móðir Valgerðar og fyrsta kona Guðbrands var Katrín húsfreyja, f. 1723, Vigfúsdóttir bónda á Hæðargarði í Landbroti, V-Skaft., f. 1653, Órækjusonar bónda á Arnardrangi þar Vigfússonar. Kona Vigfúsar Órækjusonar og móðir Katrínar var Valgerður Jónsdóttir, f. 1688.
Börn þeirra Jóns og Valgerðar voru:
1. Margrét, f. 27. apríl 1797, d. 24. mars 1860, gift Árna Finnbogasyni bónda á Galtalæk á Landi.
2. Bjarni bóndi á Strönd á Rangárvöllum, f. 21. febrúar 1799,
d. 25. apríl 1877, kvæntur Þuríði Eyjólfsdóttur, f. 22. ágúst 1794, d. 5. júlí 1863.
Bjarni var faðir Samúels Bjarnasonar mormónaprests og bónda í Görðum við Kirkjubæ, síðar bónda í Utah.
3. Guðbrandur bóndi á Fossi í Mýrdal, f. 6. apríl 1891, d. 21. maí 1840, kvæntur Gróu Vigfúsdóttur.
II. Síðari kona Jóns, (9. júlí 1816), var Kristín Stefánsdóttir húsfreyja í Háagarði, f. 1779, d. 14. júlí 1869. Þau Jón voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi, bls. 202. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
- Landeyingabók - A-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur–Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
- Manntöl.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.