„Sigurður Oddgeirsson (Ofanleiti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 200px|thumb|''Sigurður Oddgeirsson og Ágústa Þorgerður Högnadóttir. '''Sigurður Oddgeirsson''' frá Ofanleiti, verkamaður, tryggingama...)
 
m (Verndaði „Sigurður Oddgeirsson (Ofanleiti)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. september 2016 kl. 20:46

Sigurður Oddgeirsson og Ágústa Þorgerður Högnadóttir.

Sigurður Oddgeirsson frá Ofanleiti, verkamaður, tryggingamaður, vélstjóri í Reykjavík fæddist 24. apríl 1892 að Ofanleiti og lést 1. júní 1963.
Foreldrar hans voru sr. Oddgeir Þórðarson Guðmundsen prestur, síðast að Ofanleiti, f. 11. ágúst 1849, d. 2. janúar 1924, og kona hans Anna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 9. júní 1848, d. 2. desember 1919.

Sigurður var með foreldrum sínum til 1912, ínnanbúðarmaður og leigjandi í Þinghól 1920, verslunarmaður í Vatnsdal við giftingu 1921 og 1922, verkamaður með Ágústu Þorgerði og tveim dætrum þeirra í Vatnsdal 1927, með þeim og Sigurði syni þeirra í Vatnsdal 1928.
Þau fluttu til Reykjavíkur þar sem Sigurður var tryggingamaður um skeið. Hann starfaði síðar sem vélstjóri.
Sigurður bjó á Sólvallagötu 3 við andlát 1963.

Kona hans, (28. janúar 1921), var Ágústa Þorgerður Högnadóttir húsfreyja frá Vatnsdal, f. 17. ágúst 1901 á Norðfirði, d. 7. nóvember 1948 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Erna Sigríður Sigurðardóttir kölluð Stella, húsfreyja í Shawbury á Englandi, f. 31. maí 1921 í Eyjum, d. 10. febrúar 2012. Maður hennar var John Ernest Brown flugmaður og eftirlitsmaður á flugvelli, f. 14. nóvember 1921.
2. Anna Sigurðardóttir húsfreyja frá Vatnsdal, f. 12. september 1922 í Vatnsdal, d. 14. febrúar 2013.
Fyrri maður hennar var William Thomas Mountford flugmaður, f. 6. maí 1921.
Síðari maður hennar var Högni Sigurðsson vélstjóri frá Vatnsdal, f. 19. janúar 1929.
3. Sigurður Sigurðarson skipasmíða- og húsasmíðameistari í Eyjum, f. 22. júlí 1928 í Vatnsdal Kona hans var Jóhanna Margrét Friðriksdóttir verkakona, verkalýðsleiðtogi, f. 13. október 1930 í Reykjavík, d. 17. nóvember 2012.
4. Svanhildur Sigurðardóttir húsfreyja á Egilsstöðum, f. 26. desember 1929 í Reykjavík. Maður hennar var Bergur Guðlaugur Ólason bifvélavirki frá Hátúni á Héraði, f. 24. september 1919, d. 1. ágúst 2010.
5. Helga Sigurðardóttir, f. 5. desember 1932 í Reykjavík, d. 31. maí 1936 í Reykjavík.
6. Hilmir Sigurðsson skipasmiður í Kópavogi, f. 2. júní 1939 í Reykjavík. Kona hans er Erla Erlendsdóttir húsfreyja, auglýsingafulltrúi hjá Ríkisútvarpinu, f. 5. september 1942 á Patreksfirði.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.