„Guðmundur Jónsson (Stapa)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Guðmundur Jónsson''' verkamaður á Stapa fæddist 20. oktober 1897 á Ragnheiðarstöðum í Flóa og lést 15. júlí 1965 í Hafnarfirði.<br> Foreldrar hans voru J...)
 
m (Verndaði „Guðmundur Jónsson (Stapa)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 28. febrúar 2016 kl. 14:22

Guðmundur Jónsson verkamaður á Stapa fæddist 20. oktober 1897 á Ragnheiðarstöðum í Flóa og lést 15. júlí 1965 í Hafnarfirði.
Foreldrar hans voru Jón Egilsson bóndi, f. 7. nóvember 1860, d. 22. maí 1924 og Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 24. júlí 1864, d. 8. mars 1964.

Guðmundur var með með foreldrum sínum í Reykjavík 1910. Hann var kominn að Bergi 1923, leigjandi, sjómaður, bjó þar 1924 og Guðbjörg var bústýra hans.
Sigurbjörg fæddist þar 1924.
Við fæðingu Friðbjargar 1926 var Guðbjörg á Bólstað, en Guðmundur í París.
Þau bjuggu á Bessastíg 4 1929 og 1930, á Litlu-Eyri 1934, síðar á Stapa. Þar bjuggu þau 1940 og enn 1945, en voru flutt þaðan 1949.
Þau Guðbjörg fluttust í Hafnarfjörð þar sem hann vann við skipasmíðar. Þau bjuggu á Suðurgötu 44 við andlát Guðmundar 1965. Guðbjörg dvaldi síðast á Sólvangi þar. Hún lést 1976.

Bústýra Guðmundar var Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja frá Kagaðarhóli á Uppásum í Torfalækjarhreppi í A-Hún., f. 16. ágúst 1894, d. 2. maí 1976.
Börn þeirra voru:
1. Sigurbjörg (Kolbrún) Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1924, d. 12. apríl 1975.
2. Friðbjörg Guðmundsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 10. mars 1926 á Bólstað, d. 30. júlí 1997.
3. Þóra Egilsína Guðmundsdóttir, f. 4. janúar 1930 á Bessastíg 4, d. 9. júlí 2008.
Dætur Guðbjargar frá fyrri sambúð voru:
4. Jóna Ingibjörg Magnúsdóttir talsímakona, f. 19. september 1916, d. 20. október 1938.
5. Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir húsfreyja á Stapa, síðar í Hveragerði, f. 14. apríl 1920, d. 11. mars 2005. Maður hennar var Engilbert Þorbjörnsson bifreiðastjóri frá Kirkjubæ.
Fósturbörn Guðmundar og Guðbjargar.
6. Dóttursonur Guðbjargar, Arnar Semingur Andersen sjómaður, f. 12. október 1935, sonur Jónu Ingibjargar Magnúsdóttur.
7. Dótturdóttir þeirra Guðbjargar, dóttir Sigurbjargar, Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan, f. 12. júlí 1943.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.