„Matthildur Björnsdóttir (Litlabæ)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Matthildur Björnsdóttir''' frá Litlabæ, síðar húsfreyja í Utah fæddist 2. nóvember 1878 í Beggjakoti í Selvogi og lést 20. mars 1922 í Bliss, Owyhee í...) |
m (Verndaði „Matthildur Björnsdóttir (Litlabæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 1. febrúar 2016 kl. 17:51
Matthildur Björnsdóttir frá Litlabæ, síðar húsfreyja í Utah fæddist 2. nóvember 1878 í Beggjakoti í Selvogi og lést 20. mars 1922 í Bliss, Owyhee í Idaho.
Foreldrar hennar voru Björn Runólfsson trésmiður frá Stóra-Gerði, f. 7. febrúar 1849 í Gerði, d. 27. ágúst 1932 í Spanish Fork, og kona hans Sigríður Marín Sigvaldadóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1851 á Snæringsstöðum í Auðkúlusókn, A-Hún., d. 16. janúar 1939 í Utah.
Matthildur var með foreldrum sínum frá fæðingu og fluttist með þeim til Utah 1887.
Hún giftist John ... og bjó síðast í Bliss, Owyhee í Idaho-fylki.
Barna er ekki getið.
Hún lést 1922.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- The Icelanders in Utah. La Nora Allsted.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.