„Tómasína Elín Olsen“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|250px|''Tómasína Elín Olsen. '''Tómasína Elín Olsen''' fæddist 25. desember 1916 á Seljalandi og lést 20. febrúar 2006.<br> For...) |
m (Verndaði „Tómasína Elín Olsen“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. desember 2015 kl. 17:15
Tómasína Elín Olsen fæddist 25. desember 1916 á Seljalandi og lést 20. febrúar 2006.
Foreldrar hennar voru Guðrún Þórðardóttir verkakona frá Ormskoti í Fljótshlíð, f. 31. ágúst 1881 (1882 annarsstaðar), d. 1. mars 1978, og Ditlev Anton Olsen verkamaður af norskum ættum, f. 15. febrúar 1894, d. 10. júní 1988.
Hálfbróðir hennar í Eyjum, sammæddur, er
Jón Sigurðsson Þórðarson skipasmiður, f. 17. júní 1921.
Móðurbræður hennar í Eyjum voru:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius á Skansinum, f. 24. desember 1876, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson á Jaðri, f. 5. desember 1877, d. 7. nóvember 1943.
Tómasína var með móður sinni í æsku, á Fögruvöllum 1920, í Hólmgarði 1930. Hún giftist Aðalsteini 1940. Þau bjuggu á Vesturvegi 3b, síðar á Hólagötu 15.
Tómasína annaðist börn og heimili framan af, en vann síðan einnig við fiskverkun, á sjúkrahúsinu og á pósthúsinu í Eyjum.
Aðalsteinn lést 1991.
Hún fluttist til Reykjavíkur 1991, lést 2006, var jarðsett í Eyjum.
Maður Tómasínu Elínar, (21. desember 1940), var Aðalsteinn Júlíus Gunnlaugsson útgerðarmaður og skipstjóri frá Gjábakka, f. 14. júlí 1910, d. 27. febrúar 1991.
Börn þeirra eru:
1. Guðmundur Hreinn Aðalsteinsson tannlæknir, f. 7. mars 1936.
2. Edda Aðalsteinsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 25. nóvember 1939.
3. Atli Aðalsteinsson bókhaldari, f. 26. júní 1944.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 25. febrúar 2006. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.