Atli Aðalsteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Atli Aðalsteinsson bókhaldari, endurskoðandi fæddist 26. júní 1944 í Framnesi við Vesturveg 3b.
Foreldrar hans voru Aðalsteinn Júlíus Gunnlaugsson frá Vestari Gjábakka, útgerðarmaður, skipstjóri f. 14. júlí 1910, d. 27. febrúar 1991, og kona hans Tómasína Elín Olsen húsfreyja, f. 25. desember 1916 á Seljalandi við Hásteinsveg 10, d. 20. febrúar 2006.

Börn Tómasínu og Aðalsteins:
1. Guðmundur Hreinn Aðalsteinsson tannlæknir, f. 7. mars 1936.
2. Edda Aðalsteinsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 25. nóvember 1939.
3. Atli Aðalsteinsson bókhaldari, f. 26. júní 1944.

Atli var með foreldrum sínum.
Hann varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1961, var í endurskoðunarnámi 1975-1978.
Atli vann við bókhald, stofnaði bókhaldsþjónustu.
Þau Lilja Hanna giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Túngötu 7.

I. Kona Atla, (12. desember 1964), er Lilja Hanna Baldursdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 24. júlí 1944.
Börn þeirra:
1. Ívar Atlason tæknifræðingur, svæðisstjóri, f. 2. maí 1965. Kona hans Árný Richardsdóttir.
2. Andrea Elín Atladóttir fjármálastjóri, f. 3. september 1969. Fyrrum maður hennar er Stefán Þór Lúðvíksson blikksmiður, eigandi Eyjablikks, f. 26. janúar 1968. Maður hennar Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri, f. 3. desember 1960.
3. Birkir Atlason verkamaður, sjómaður, f. 12. nóvember 1981.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.