„Þorgerður Árnadóttir (Nýborg)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Þorgerður Árnadóttir''' húskona í Nýborg, síðar húsfreyja í Utah fæddist 28. mars 1845 á Dyrhólum í Mýrdal.<br> Foreldrar hennar voru Árni Indriðason bóndi ...) |
m (Verndaði „Þorgerður Árnadóttir (Nýborg)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 29. nóvember 2015 kl. 17:27
Þorgerður Árnadóttir húskona í Nýborg, síðar húsfreyja í Utah fæddist 28. mars 1845 á Dyrhólum í Mýrdal.
Foreldrar hennar voru Árni Indriðason bóndi í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, f. 17. desember 1823 í Pétursey í Mýrdal, d. 8. mars 1894 í Seljalandsseli u. Eyjafjöllum, og barnsmóðir hans Björg Þorgeirsdóttir vinnukona, f. 28. ágúst 1816 á Undirhrauni í Meðallandi, d. 1. apríl 1881 á Reyni í Mýrdal.
Þorgerður var með móður sinni í Reynishólum í Mýrdal til ársins 1846, á Suður-Hvoli þar 1846-1853. Hún var tökubarn á Dyrhólum þar 1853-1854, á Seljalandi u. Eyjafjöllum frá 1854, en var komin til föður síns í Neðri-Dal þar 1860, vinnukona á Seljalandi þar 1870.
Hún ól Árna son þeirra Vigfúsar 1878, kom úr Dalsókn að Sjólyst 1880 án barnsins, sem kom til þeirra Vigfúsar 1882 og á því ári voru þau húsfólk í Nýborg. Þar var hún 1883 við fæðingu Vigfúsínu, en Vigfús var vinnumaður í Boston með Árna hjá sér.
Þorgerður fór úr Eyjum með Vigfúsínu síðar á árinu. Vigfúsína lést 1884 og Þorgerður kom aftur til Eyja 1885 undan V-Eyjafjöllum.
Árni var sendur frá Boston til Utah 1885 með Jóni Þorlákssyni húsmanni frá Dufþekju í Hvolhreppi, og Vigfús fór Vestur 1886.
Þorgerður fór frá Frydendal til Utah 1887. Þau Vigfús munu hafa gift sig Vestra.
Maður Þorgerðar var Vigfús Eiríksson vinnumaður, húsmaður, ættaður úr Mýrdal, f. 1. desember 1843.
Börn þeirra hér:
1. Árni Vigfússon, f. 1878, fór til Utah 1885.
2. Vigfúsína Vigfúsdóttir, f. 25. mars 1883 í Nýborg, d. 20. ágúst 1884.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.