„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1992/Sjómannadagurinn 1991“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 2: | Lína 2: | ||
Árið 1991 var sjómannadagurinn haldinn sunnudaginn 2. júní en eins og venja er, hófust hátíðahöldin á laugardeginum kl. 13:30 við [[Friðarhöfn]]. Þar var að vanda keppt í róðri og milli róðra voru gamalkunnug atriði, svo sem koddaslagur og sjóskíðasýningar. En einnig var bryddað upp á nýjungum svo sem kappróðri á fiskikörum, kappsundi í flotbúningum og keppni í netabætningum. Þá fór einnig fram knattspyrnukeppni með nýstárlegu sniði.
| Árið 1991 var sjómannadagurinn haldinn sunnudaginn 2. júní en eins og venja er, hófust hátíðahöldin á laugardeginum kl. 13:30 við [[Friðarhöfn]]. Þar var að vanda keppt í róðri og milli róðra voru gamalkunnug atriði, svo sem koddaslagur og sjóskíðasýningar. En einnig var bryddað upp á nýjungum svo sem kappróðri á fiskikörum, kappsundi í flotbúningum og keppni í netabætningum. Þá fór einnig fram knattspyrnukeppni með nýstárlegu sniði.

Um kvöldið var borðhald í þremur samkomuhúsum þar sem Helgi og Hermann Ingi skemmtu matargestum og síðan voru dansleikir í fjórum húsum, Kiwanishúsinu, Hallarlundi, [[Samkomuhús Vestmannaeyja|Samkomuhúsinu]] og [[Alþýðuhúsið|Alþýðuhúsinu]]. Hljómsveitirnar Mömmustrákar, [[Papar]], Atlantic og [[Eymenn]] léku fyrir dansi á þessum skemmtunum sem flestar voru fjölsóttar.
| Um kvöldið var borðhald í þremur samkomuhúsum þar sem Helgi og Hermann Ingi skemmtu matargestum og síðan voru dansleikir í fjórum húsum, Kiwanishúsinu, Hallarlundi, [[Samkomuhús Vestmannaeyja|Samkomuhúsinu]] og [[Alþýðuhúsið|Alþýðuhúsinu]]. Hljómsveitirnar Mömmustrákar, [[Papar]], Atlantic og [[Eymenn]] léku fyrir dansi á þessum skemmtunum sem flestar voru fjölsóttar.

Á sunnudeginum hófust hátíðahöldin að vanda með messu í [[Landakirkja|Landakirkju]] þar sem séra [[Kjartan Örn Sigurbjörnsson]] prédikaði. Eftir messu minntist síðan [[Einar J. Gíslason]] drukknaðra sjómanna við minnisvarðann ásamt því að [[Lúðrasveit Vestmannaeyja]] lék.
| Á sunnudeginum hófust hátíðahöldin að vanda með messu í [[Landakirkja|Landakirkju]] þar sem séra [[Kjartan Örn Sigurbjörnsson]] prédikaði. Eftir messu minntist síðan [[Einar J. Gíslason]] drukknaðra sjómanna við minnisvarðann ásamt því að [[Lúðrasveit Vestmannaeyja]] lék.

Kl. 15:30 hófst svo skemmtidagskrá á [[Stakkagerðistún|Stakkó]] þar sem flutt var ræða dagsins, sjómenn voru heiðraðir og viðurkenningar veittar fyrir björgunarafrek og afrek laugardagsins. Þá skemmti hljómsveitin Papar og [[Leikfélag Vestmannaeyja]] ásamt því sem lúðrasveitin lék. Í safnahúsinu var sérstök sýning á bátateikningum og líkönum.
| Kl. 15:30 hófst svo skemmtidagskrá á [[Stakkagerðistún|Stakkó]] þar sem flutt var ræða dagsins, sjómenn voru heiðraðir og viðurkenningar veittar fyrir björgunarafrek og afrek laugardagsins. Þá skemmti hljómsveitin Papar og [[Leikfélag Vestmannaeyja]] ásamt því sem lúðrasveitin lék. Í safnahúsinu var sérstök sýning á bátateikningum og líkönum.

[[Slysavarnadeildin Eykyndill]] var að vanda með kaffisölu í Alþýðuhúsinu. Kl. 17 var bryddað upp á því nýmæli að hafa kvikmyndasýningu í Samkomuhúsinu og var þar sýnd mynd um fiskveiðar, tekin um borð í [[ms Breki|Breka]] og [[ms Suðurey|Suðurey]].
| [[Slysavarnadeildin Eykyndill]] var að vanda með kaffisölu í Alþýðuhúsinu. Kl. 17 var bryddað upp á því nýmæli að hafa kvikmyndasýningu í Samkomuhúsinu og var þar sýnd mynd um fiskveiðar, tekin um borð í [[ms Breki|Breka]] og [[ms Suðurey|Suðurey]].

Síðan lauk dagskrá sjómannadagsins með dansleik í Hallarlundi.
| Síðan lauk dagskrá sjómannadagsins með dansleik í Hallarlundi.

[[Sjómannadagsblað Vestmannaeyja]] kom út, mikið rit og vandað, undir ritstjórn [[SigurgeirJónsson|Sigurgeirs Jónssonar]]. | [[Sjómannadagsblað Vestmannaeyja]] kom út, mikið rit og vandað, undir ritstjórn [[SigurgeirJónsson|Sigurgeirs Jónssonar]]. | ||
Útgáfa síðunnar 8. október 2015 kl. 13:56
Árið 1991 var sjómannadagurinn haldinn sunnudaginn 2. júní en eins og venja er, hófust hátíðahöldin á laugardeginum kl. 13:30 við Friðarhöfn. Þar var að vanda keppt í róðri og milli róðra voru gamalkunnug atriði, svo sem koddaslagur og sjóskíðasýningar. En einnig var bryddað upp á nýjungum svo sem kappróðri á fiskikörum, kappsundi í flotbúningum og keppni í netabætningum. Þá fór einnig fram knattspyrnukeppni með nýstárlegu sniði.
Um kvöldið var borðhald í þremur samkomuhúsum þar sem Helgi og Hermann Ingi skemmtu matargestum og síðan voru dansleikir í fjórum húsum, Kiwanishúsinu, Hallarlundi, Samkomuhúsinu og Alþýðuhúsinu. Hljómsveitirnar Mömmustrákar, Papar, Atlantic og Eymenn léku fyrir dansi á þessum skemmtunum sem flestar voru fjölsóttar.
Á sunnudeginum hófust hátíðahöldin að vanda með messu í Landakirkju þar sem séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson prédikaði. Eftir messu minntist síðan Einar J. Gíslason drukknaðra sjómanna við minnisvarðann ásamt því að Lúðrasveit Vestmannaeyja lék.
Kl. 15:30 hófst svo skemmtidagskrá á Stakkó þar sem flutt var ræða dagsins, sjómenn voru heiðraðir og viðurkenningar veittar fyrir björgunarafrek og afrek laugardagsins. Þá skemmti hljómsveitin Papar og Leikfélag Vestmannaeyja ásamt því sem lúðrasveitin lék. Í safnahúsinu var sérstök sýning á bátateikningum og líkönum.
Slysavarnadeildin Eykyndill var að vanda með kaffisölu í Alþýðuhúsinu. Kl. 17 var bryddað upp á því nýmæli að hafa kvikmyndasýningu í Samkomuhúsinu og var þar sýnd mynd um fiskveiðar, tekin um borð í Breka og Suðurey.
Síðan lauk dagskrá sjómannadagsins með dansleik í Hallarlundi.
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja kom út, mikið rit og vandað, undir ritstjórn Sigurgeirs Jónssonar.
Hátíðahöldin fóru vel fram og án nokkurra óhappa.
Aðalstjórn Sjómannadagsráðs 1991 skipuðu þessir:
Formaður: Stefán Einarsson
Gjaldkeri: Ebeneser Guðmundsson
Ritari: Þorsteinn Árnason.