„Ragnheiður Böðvarsdóttir Westmann“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ragnheiður Böðvarsdóttir''' húsfreyja fæddist um 1746 á Oddsstöðum og lést 15. september 1836 í Kastala.<br> Foreldrar hennar voru [[Böðvar...) |
m (Verndaði „Ragnheiður Böðvarsdóttir Westmann“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 14. september 2015 kl. 20:03
Ragnheiður Böðvarsdóttir húsfreyja fæddist um 1746 á Oddsstöðum og lést 15. september 1836 í Kastala.
Foreldrar hennar voru Böðvar Jónsson sýslumaður í Eyjum, f. um 1715, d. í maí 1754, og kona hans Oddrún Pálsdóttir húsfreyja, f. um 1720, d. 25. apríl 1799.
Systkini Ragnheiðar voru:
1. Jósep Böðvarsson í Norðurgarði, f. 1748, d. 3. nóvember 1785.
2. Eggert Böðvarsson timburmaður í Noregi, f. (1750).
Ragnheiður var tvígift, mun hafa verið húsfreyja á Seltjarnarnesi. Hún finnst ekki á manntali 1801, en 1816 var hún sveitarómagi í Kornhól og enn 1821, í Dalahjalli 1822, í Kastala 1824-1826, í Stakkagerði 1828, í Kastala 1833-dd. 1836, níræð.
(Dánarskrár voru fyrst haldnar í Eyjum 1785, gloppóttar 1813-1816. Fermingar-, hjónabands- og fæðingaskrár voru fyrst haldnar 1786).
I. Fyrri maður hennar var Þórður Guðmundsson.
Barna er ekki getið.
II. Síðari maður Ragnheiðar var Jón Einarsson á
Seltjarnarnesi.
Barna er ekki getið.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.