„Hildur Árnadóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Hildur Árnadóttir''' frá Vilborgarstöðum fæddist 9. júlí 1873 á Vilborgarstöðum og lést 25. júní 1918.<br> Foreldrar hennar voru [[Árni Árnason...) |
m (Verndaði „Hildur Árnadóttir (Vilborgarstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 29. ágúst 2015 kl. 17:32
Hildur Árnadóttir frá Vilborgarstöðum fæddist 9. júlí 1873 á Vilborgarstöðum og lést 25. júní 1918.
Foreldrar hennar voru Árni Árnason bóndi og sjómaður á Vilborgarstöðum, f. 6. ágúst 1843, drukknaði af bátnum Gauki 13. mars 1874, og kona hans Vigdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1845, lést í Kanada 28. október 1925.
Systkini Hildar í Eyjum voru:
2. Ingveldur Árnadóttir, f. 28. júní 1867, d. 2. mars 1948 í Vesturheimi.
2. Árni Árnason sjómaður á Grund, f. 15. júlí 1870, d. 8. janúar 1924.
Hálfsystir Hildar, (sammædd), var
3. Jóhanna Sigríður Árnadóttir, f. 9. júlí 1864, d. 7. febrúar 1938 í Vesturheimi.
Faðir Hildar drukknaði, er hún var á fyrsta ári. Í lok ársins var hún með ekkjunni móður sinni í Vanangri, með henni í Helgahjalli 1875, í Kró 1876, á Löndum 1877, í Frydendal 1879 og þaðan fluttust mæðgurnar til Utah 1880.
Hildur giftist Ingimundi Jónssyni 1891 og bjó í Scofield þar sem hann vann við námugröft.
1903 fluttust þau til Raymond í Alberta í Kanada. Þau eignuðust 9 börn.
Hildur lést 1918 í Lethbridge í Kanada.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.