„Sigurður Sigurðsson (Frydendal)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Sigurður Sigurðsson (Frydendal)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 23: | Lína 23: | ||
*Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz 1952. | *Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz 1952. | ||
*Prestþjónustubók Landakirkju.}} | *Prestþjónustubók Landakirkju.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Formenn]] | [[Flokkur: Formenn]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Miðstræti]] | [[Flokkur: Íbúar við Miðstræti]] |
Útgáfa síðunnar 22. ágúst 2015 kl. 20:47
Sigurður Sigurðsson í Frydendal, formaður, fæddur í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum 1. apríl 1869, drukknaði 10. jan. 1912.
Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Sigurðsson bóndi, síðar á Kúfhól í A-Landeyjum, f. 6. ágúst 1833, d. 29. október 1885, og Sigríður Pétursdóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1830, d. 26. desember 1903.
Þau voru einnig foreldrar Elínar Sigurðardóttur húsfreyju í Ólafshúsum, fyrri konu Jóns Bergs eldri útvegsbónda.
Þá voru þau foreldrar Steinunnar Sigurðardóttur húsfreyju á Þingeyri, konu Jóns Jónssonar.
Einnig voru þau foreldrar Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga,
og foreldrar Vigfúsar fósturföður Þorsteins Þ. Víglundssonar.
Maki (sambýliskona) var Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen í Frydendal, f. 1855.
Barn þeirra: Jóhann Jörgen Sigurðsson, f. 1894.
Á vertíðinn 1912 var Sigurður formaður á v/b Íslandi. Í ofsaveðri 10. janúar 1912 ætlaði skipshöfnin að gæta að bátnum á bólinu í höfninni. Julið fórst með allri áhöfn, 6 manns. Líkin rak öll vestar í höfninni.
Þeir, sem fórust voru:
Sigurður Sigurðsson formaður í Frydendal;
Guðmundur Guðmundsson í Lambhaga, systurmaður Sigurðar formanns;
Einar Halldórsson í Sandprýði;
Hans Einarsson, Norðfirði, S-Múl.;
Vilhjálmur Jónsson, Norðfirði, S-Múl.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz 1952.
- Prestþjónustubók Landakirkju.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.