„Ritverk Árna Árnasonar/Pétur Lárusson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 3: Lína 3:
'''''<big>Kynning.</big>'''''
'''''<big>Kynning.</big>'''''

'''Jóhann Pétur Lárusson''' á [[Búastaðir|Búastöðum]] fæddist 16. desember 1876 og lést 18. október 1953.<br>
'''Jóhann Pétur Lárusson''' bóndi, verslunarmaður og fiskimatsmaður  á [[Búastaðir|Búastöðum]] fæddist 16. desember 1876 og lést 18. október 1953.<br>
Foreldrar hans voru [[Lárus Jónsson]] bóndi og hreppstjóri og formaður á Búastöðum, f. 30. janúar 1839 að Dyrhólum í Mýrdal, drukknaði af [[Hannibal, áraskip|Hannibal]] í innsiglingunni 9. febrúar 1895 og kona hans [[Kristín Gísladóttir (Búastöðum)|Kristín Gísladóttir]] húsfreyja, f. 13. janúar 1843, d. 30. desember 1922.<br>

Lína 17: Lína 17:
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Heimaslóð.}}
*Heimaslóð.}}{{Æviskrár Víglundar Þórs}}

Útgáfa síðunnar 19. ágúst 2015 kl. 11:32

Pétur Lárusson.
Pétur (t.v.) og félagar.

Kynning.

Jóhann Pétur Lárusson bóndi, verslunarmaður og fiskimatsmaður á Búastöðum fæddist 16. desember 1876 og lést 18. október 1953.
Foreldrar hans voru Lárus Jónsson bóndi og hreppstjóri og formaður á Búastöðum, f. 30. janúar 1839 að Dyrhólum í Mýrdal, drukknaði af Hannibal í innsiglingunni 9. febrúar 1895 og kona hans Kristín Gísladóttir húsfreyja, f. 13. janúar 1843, d. 30. desember 1922.

Kona Péturs var Júlíana, f. 19. júlí 1886, d. 29. október 1976, Sigurðardóttir snikkara í Nýborg Sveinssonar, en móðir hennar var Sigríður, d. 1901, Sighvatsdóttir frá Vilborgarstöðum.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Pétur var mjög stór maður vexti, og vel þrekinn, skolhærður, nokkuð langleitur með beint nef og há kinnbein. Hann var sterkur maður og beinastór, breiður um axlir, en niðurmjór, sem tíðkast um kraftamenn. Hann var skapléttur og söngvinn og kátur, vel fróður og góður heim að sækja, ræðinn og veitull.
Veiðimaður var hann góður, en hætti snemma og gerðist verslunarmaður, fiskmatsmaður og bóndi, ásamt ýmsum fleiri störfum. Hagleiksmaður mikill, smiður prýðilegur, drátthagur og útlærður skósmiður. Heilsuveill var hann síðustu árin, en sálarlega hraustur fram á síðasta dag. Vellátinn og drengur hinn besti.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Pétur Lárusson

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.