„Högni Sigurðsson (hreppstjóri)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 14: | Lína 14: | ||

[[Flokkur:Hreppstjórar]] | ==Frekari umfjöllun== | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á | '''Högni Sigurðsson''' bóndi á Seljalandi undir Eyjafjöllum, útgerðarmaður og hreppstjóri í [[Baldurshagi|Baldurshaga]], fæddist 4. október 1863 og lést 26. febrúar 1923.

[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]] | Faðir hans var Sigurður bóndi á Barkarstöðum í Fljótshlíð, f. 17. júlí 1810, d. 23. nóvember 1892, Ísleifsson bónda á Seljalandi 1816, f. 5. febrúar 1760 í Dalsseli undir Eyjafjöllum, d. 25. janúar 1835, Gissurarsonar bónda í Dalsseli og á Seljalandi, f. 1715, d. 1782, Ísleifssonar, og konu Gissurar Ísleifssonar, Steinunnar húsfreyju, f. 1719, á lífi 1801, Filippusdóttur.

Móðir Sigurðar á Barkarstöðum og kona Ísleifs á Seljalandi var Ingibjörg húsfreyja, f. 27. apríll 1772 í Hvammi undir Eyjafjöllum, d. 1. janúar 1829, Sigurðardóttir bónda í Hvammi og Seljalandi, f. 29. ágúst 1734 í Langholti í Meðallandi, d. 12. desember 1821, Ketilssonar, og konu Sigurðar Ketilssonar, Sesselju húsfreyju, f. 1729, á lífi 1801, Magnúsdóttur.

Móðir Högna í Baldurshaga og kona Sigurðar á Barkarstöðum var Ingibjörg húsfreyja, f. 26. október 1816, d. 27. mars 1891, Sæmundsdóttir bónda í Gaularási og Bakkahjáleigu í A-Landeyjum og Eyvindarholti u. Eyjafjöllum, f. 1776, d. 25. janúar 1837, Ögmundssonar prests á Hálsi í Hamarsfirði, S-Múl., í Sigluvík í Stórólfshvolssókn og á Krossi í A-Landeyjum, f. 1732 á Stafafelli í Lóni, S-Múl., d. 5. september 1805, Högnasonar Sigurðssonar, (Högna-prests-ætt), og konu sr. Ögmundar, Salvarar húsfreyju, f. 1733, d. 1. október 1821, Sigurðardóttur, Ásmundssonar, (Ásgarðsætt í Grímsnesi).

Móðir Ingibjargar á Barkarstöðum og kona Sæmundar í Gularási var Guðrún húsfreyja, f. 1772, d. 26. desember 1843, Jónsdóttir bónda í Hallgeirsey í A-Landeyjum, f. 1737, d. 1815, Ólafssonar bónda á Kirkjulandi þar 1733, f. 1701, Ólafssonar, og konu Ólafs Ólafssonar á Kirkjulandi, Hallberu húsfreyju, f. 1701, Jónsdóttur.

Högni var 6 ára barn hjá foreldrum sínum á Barkarstöðum 1870, kvæntur bóndi á Seljalandi 1890, sama í Seljalandsseli 1901, og þar voru synir hjónanna, [[Sigurjón Högnason|Sigurjón]] 10 ára og [[Ísleifur Högnason|Ísleifur]] 5 ára.

Hjónin fluttu til Eyja frá Seljalandsseli 1902. Þau bjuggu lengst af í [[Baldurshagi|Baldurshaga]]. Voru þau þar 1910 með synina tvo og dótturina [[Ingibjörg Högnadóttir|Ingibjörgu Guðrúnu]] 5 ára hjá sér.

Högni var sjómaður í byrjun. Hann keypti hlut í vélbát 1907.

Hann sat í hreppsnefnd 1915-1918 og var oddviti hennar. Hreppstjóri var hann 1916-1918.

Sæti átti hann í hafnarnefnd og í stjórn Styrktarsjóðs handa ekkjum og börnum þeirra Vestmannaeyinga, sem drukknuðu eða hröpuðu til bana, og Styrktarsjóði heilsubilaðra og aldurhniginna sjómanna.

Á stríðsárunum 1914-1918 átti hann sæti í bjargráðanefnd, sem annaðist skömmtun og úthlutun matvæla.

Högni hafði lengi á hendi verkstjórn við lagningu vega á Heimaey.

Hann átti sæti í stjórn [[Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja|Bátaábyrgðarfélagsins]] og var ritari hennar 1911-1912.

Í sögu félagsins 1937, sem rituð var af [[Jóhann Gunnar Ólafsson|Jóhanni Gunnari Ólafssyni]] í tilefni 75 ára afmælis þess, skrifar höfundur stuttlega sögu stjórnarnefndarmanna og starfsmanna þess.

Þar segir m.a. um Högna:

…„Tvisvar lenti hann í skipreika. Hann var með [[Þorvaldur Jónsson (Jómsborg)|Þorvaldi Jónssyni]] frá [[Jómsborg]]. Barst þeim á 30. júní 1903 út af [[Klettsnef]]i og drukknuðu þrír af skipshöfninni, en tveir komust af og var Högni annar þeirra. Vertíðina 1906 réri Högni með [[Magnús Þórðarson (Sjólyst(|Magnúsi Þórðarsyni]] í [[Sjólyst]]. Í róðri 12. marz gerði á þá norðanstorm og fengu þeir togara til að draga bátinn í var af Heimaey. Fór togarinn of hratt, svo að bátinn fyllti. Drukknuðu fjórir menn, en 10 varð bjargað og var Högni á meðal þeirra. Högni var með þeim, sem fengu sér hina fyrstu vélbáta árið 1907… “

Hér er glefsa úr tímaritinu Óðni frá 1925. Þar er hreppstjórans minnst:

„Hann var viðfeldinn í viðskiftum og samvinnufús, ef ekki var | |||
risið í móti heilbrigðum skoðunum hans, en hinsvegar | |||
ljet hann lítt hlut sinn í störfum, ef óvægilega var | |||
í móti risið. Hin opinberu störf rækti hann vel, svo | |||
sem raun bar vitni. Fátækum gjaldendum mun hann | |||
hafa vægur verið, enda fórnað fje úr sjálfs sín vasa, | |||
til lúkningar fyrir þá, heldur en að ganga hart að | |||
þeim. — Högni sál. var fastlyndur, glaðlyndur, tryggur | |||
og vinfastur. Frumlegur var hann á ýmsum sviðum, | |||
er í mörgu mátti marka af verkhygni hans. Auk | |||
heimilisstarfa munu ýmsir vegir í Vestmannaeyjum | |||
bera góð og glögg merki afskifta hans. — Hann | |||
hallaði mjög huga að frjálslyndum skoðunum í andlegum | |||
efnum og mat mikils einbeitta þrá til aukinna | |||
starfa í þá átt, leit svo á, að búsýsluhæfileikar væru | |||
ekki síður nauðsynlegir, út á hina huldu framtíð, til | |||
þess að vera í fullu samræmi við lögmál lífsins. | |||
Löghlýðni mat hann mikils…“ (''Óðinn''). | |||
Kona Högna, (9. júní 1890), var [[Marta Jónsdóttir (Baldurshaga)|Marta Jónsdóttir]] húsfreyja frá Sólheimum í Mýrdal, f. 31. desember 1867, d. 12. október 1948.

Börn þeirra voru:

1. [[Sigurjón Högnason|Sigurjón]] verslunarmaður, gjaldkeri, f. 7. júlí 1891, d. 21. mars 1958.

2. [[Ísleifur Högnason|Ísleifur]] kaupfélagsstjóri, alþingismaður, f. 30. nóvember 1895, d. 12. júní 1967.

3. [[Ingibjörg Högnadóttir|Ingibjörg Guðrún]] húsfreyja, f. 23. desember 1904, d. 3. september 1991.

{{Heimildir| | |||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | |||
*[[Saga Vestmannaeyja]]. [[Sigfús M. Johnsen]]. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946. | |||
*Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999. | |||
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973. | |||
*[[Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja]] 1862-1937. [[Jóhann Gunnar Ólafsson]]. Útg. [[Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja]]. Reykjavík 1939. | |||
*ÓÐINN, 21. árgangur 1925, 7-12. tbl., bls. 67. | |||
*Manntöl. | |||
*Íslendingabók.is.}} | |||
[[Flokkur: Hreppstjórar]] | |||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | |||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | |||
[[Flokkur: Íbúar í Baldurshaga]] |