„Magnúsína Eyjólfsdóttir (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga
m (Viglundur færði Magnúsina Eyjólfsdóttir (Vesturhúsum) á Magnúsína Eyjólfsdóttir (Vesturhúsum)) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 10: | Lína 10: | ||
Hún dvaldi síðast á Elliheimilinu Grund og lést 1968. | Hún dvaldi síðast á Elliheimilinu Grund og lést 1968. | ||
I. Maður Magnúsínu, (22. desember 1912 í Eyjum, skildu), var [[Einar Markús Einarsson]], þá vinnumaður á Vesturhúsum, síðar skipherra, f. 2. maí 1892, d. 18. september 1977.
| I. Maður Magnúsínu, (22. desember 1912 í Eyjum, skildu), var [[Einar Markús Einarsson skipherra|Einar Markús Einarsson]], þá vinnumaður á Vesturhúsum, síðar skipherra, f. 2. maí 1892, d. 18. september 1977.

Börn þeirra hér:
| Börn þeirra hér:

1. [[Jón Einarsson (Vesturhúsum)|Jón Einarsson]] forstjóri, kennari, f. 21. júlí 1912 á Vesturhúsum, bjó síðast á Seltjarnarnesi, d. 26. maí 1968.
| 1. [[Jón Einarsson (Vesturhúsum)|Jón Einarsson]] forstjóri, kennari, f. 21. júlí 1912 á Vesturhúsum, bjó síðast á Seltjarnarnesi, d. 26. maí 1968.

Útgáfa síðunnar 5. júlí 2015 kl. 15:34
Magnúsína Eyjólfsdóttir frá Vesturhúsum fæddist 16. september 1892 og lést 9. febrúar 1968.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Jónsson bóndi á Vesturhúsum, f. 18. ágúst 1862, d. 16. júlí 1906, og kona hans Valgerður Eiríksdóttir húsfreyja, f. 23. október 1856, d. 25. júní 1918.
Magnúsína var með foreldrum sínum í æsku og síðan með ekkjunni móður sinni við áframhaldandi búskap hennar á Vesturhúsum. Hún var við heimilisstörf hjá henni 1910.
Einar Markús kom að Vesturhúsum frá Reykjavík 1911, var þar vinnumaður.
Þau Magnúsína giftu sig 1912, voru á Vesturhúsum 1913. Börn þeirra fæddust bæði í Eyjum.
Hjónin skildu.
Magnúsína var með móður sinni á Eystri Vesturhúsum 1915 og enn 1917, en Óskar Guðmundsson var þar leigjandi 1917. Hún bjó síðan með Óskari í Eyjum, voru leigjendur á Vesturhúsum 1918, fluttust til Reykjavíkur 1919. Þau bjuggu í Skildinganesi í Seltjarnarneshreppi 1920 með tvö börn sín, Valgerði Magnúsínu, sem fædd var í Eyjum og ónefnda stúlku fædda á árinu, skírð síðar Eyvör Guðbjörg.
Magnúsína var ekkja á Franska spítalanum í Reykjavík 1930.
Hún dvaldi síðast á Elliheimilinu Grund og lést 1968.
I. Maður Magnúsínu, (22. desember 1912 í Eyjum, skildu), var Einar Markús Einarsson, þá vinnumaður á Vesturhúsum, síðar skipherra, f. 2. maí 1892, d. 18. september 1977.
Börn þeirra hér:
1. Jón Einarsson forstjóri, kennari, f. 21. júlí 1912 á Vesturhúsum, bjó síðast á Seltjarnarnesi, d. 26. maí 1968.
2. Einar Kristinn Einarsson, f. 16. desember 1913 á Vesturhúsum, d. 7. júlí 1929.
II. Sambýlismaður Magnúsínu var Óskar Guðmundsson, f. 8. apríl 1890.
Börn þeirra hér:
3. Valgerður Magnúsína Óskarsdóttir, f. 2. desember 1917 á Vesturhúsum, d. 10. október 2006.
4. Eyvör Guðbjörg Óskarsdóttir, f. 2. ágúst 1920.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.