„Tómas Tómasson (Nýjabæ)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Tómas Tómasson''' vinnumaður í Nýjabæ fæddist 22. apríl 1865 og drukknaði 12. janúar 1887.<br> Foreldrar hans voru Tómas Jónsson bóndi á Arnarhóli í V-...) |
m (Verndaði „Tómas Tómasson (Nýjabæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 16. apríl 2015 kl. 20:58
Tómas Tómasson vinnumaður í Nýjabæ fæddist 22. apríl 1865 og drukknaði 12. janúar 1887.
Foreldrar hans voru Tómas Jónsson bóndi á Arnarhóli í V-Landeyjum, f. 21. júlí 1836, d. 28. maí 1879, og kona hans Salvör Snorradóttir húsfreyja, f. 25. september 1840, d. 4. mars 1917.
Tómas var bróðir
1. Snorra Tómassonar skósmiðs og útgerðarmanns á Hlíðarenda, f. 11. október 1867, d. 28. nóvember 1936.
2. Guðnýjar Einarsdóttur húsfreyju á Arnarhóli. Þau voru af sömu móður.
Tómas var með foreldrum sínum í bernsku. Faðir hans lést, er hann var 14 ára og hann var með ekkjunni móður sinni á Arnarhóli 1880.
Hann fluttist til Eyja úr Krosssókn 1885, var vinnumaður í Nýjabæ til dd.
Hann drukknaðir af juli við Bjarnarey 1887 ásamt Jósef Valdasyni skipstjóra og tveim öðrum, en tveim var bjargað.
Þeir, sem fórust, voru:
1. Jósef Valdason í Fagurlyst.
2. Árni Árnason snikkari í Frydendal, 33 ára.
3. Tómas Tómasson vinnumaður í Nýjabæ, 21 árs.
4. Erlendur Ingjaldsson, þá vinnumaður á Búastöðum, 58 ára.
Tómas var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.