„Þorbjörg Halldórsdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Þorbjörg Halldórsdóttir''' húsfreyja í Norðurgarði og á Vilborgarstöðum fæddist um (1704), var á lífi um 1740.<br> Foreldrar ...) |
m (Verndaði „Þorbjörg Halldórsdóttir (Vilborgarstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 17. janúar 2015 kl. 20:10
Þorbjörg Halldórsdóttir húsfreyja í Norðurgarði og á Vilborgarstöðum fæddist um (1704), var á lífi um 1740.
Foreldrar hennar voru Halldór Jónsson bóndi í Stóra-Kollabæ í Fljótshlíð og Seli í A-Landeyjum, f. 1665, á lífi 1737, og kona hans Þóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 1669, á lífi 1713.
Maður Þorbjargar var Natanael Gissurarson bóndi og skólastjóri, f. um 1700, var á lífi við bændatal 1735 og 1762.
Börn þeirra hér voru
1. Jón Natanaelsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1734, hrapaði til bana 1774.
2. Guðrún Natanaelsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum, f. 1735, d. 15. nóvember 1785.
3. Árni Natanaelsson, f. um 1740, reipslagari Effersey, bóndi Stóra-Nýjabæ í Krýsuvík 1801.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Prestþjónustubækur.