„Jón Gíslason (Stakkagerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jón Gíslason''' bóndi í Stakkagerði var skírður 11. mars 1797 og lést 23. desember 1865.<br> Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi í Hallgeirsey og Kanastöðum ...)
 
m (Verndaði „Jón Gíslason (Stakkagerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 11. nóvember 2014 kl. 14:18

Jón Gíslason bóndi í Stakkagerði var skírður 11. mars 1797 og lést 23. desember 1865.
Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi í Hallgeirsey og Kanastöðum í A-Landeyjum, f. 1769 í Hallgeirseyjarhjáleigu, d. 19. júlí 1846 í Hallgeirsey, og fyrri kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, skírð 12. nóvember 1775, d. 13. september 1859 í Hallgeirsey.

Jón var bróðir Ólafs Gíslasonar á Gjábakka, þess sem lýstur var faðir Egerts Guðmundar Ólafssonar í Götu eftir dauða sinn.

Jón var með foreldrum sínum í æsku, með föður sínum og Gunnvöru Ólafsdóttur stjúpu sinni 1816.
Hann fluttist til Eyja 1823, vinnumaður að Stakkagerði. Þar bjuggu þá Guðfinna Guðmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir og Bergur Brynjólfsson bóndi. Guðfinna og Bergur skildu 1825 og fóru þau Jón og Guðfinna að Ofanleiti. Þeim fylgdi Vigfús sonur Guðfinnu. Bergur var þá enn í Stakkagerði, en 1827 var hann farinn þaðan, en Guðfinna og Jón komin þangað. Vigfús sonur hennar var hjá þeim til 1831, er hann kvæntist Sigríði Einarsdóttur. Jón og Guðfinna bjuggu þar 1827-1832, en hún lést á því ári.
Jón kvæntist Sesselju Sigurðardóttur í júlí 1832. Þau bjuggu í Stakkagerði meðan Sesselju entist líf. Hún lést 1860.
Þau Sesselja eignuðust 4 börn, en ekkert þeirra komst upp svo víst sé. Þau fóstruðu Kristínu Jónsdóttur úr Álftaveri frá 1838-fullorðinsára.
Jón var ekkill í Stakkagerði 1862, niðursetningur á Gjábakka 1864.
Hann dó 1865, þá ekkill og niðursetningur á Kirkjubæ.

I. Sambýliskona Jóns var Guðfinna Guðmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 1776, d. 27. júní 1932.
Þau voru barnlaus.

II. Kona Jóns, (25. júlí 1832), var Sesselja Sigurðardóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 14. okt. 1805, d. 31. marz 1860.
Börn þeirra hér:
1. Guðfinna Jónsdóttir, f. 13. maí 1833, á lífi 1837 í Stakkagerði, finnst ekki 1838 lífs né liðin.
2. Margrét Jónsdóttir, f. 11. ágúst 1834, d. 24. júní 1835 úr „Barnaveikindum“.
3. Sesselja Jónsdóttir, f. 18. nóvember 1836, d. 23. nóvember 1836 úr ginklofa.
4. Otti Jónsson, f. 26 nóvember 1838, d. 3. desember 1838 úr ginklofa.
5. Fósturbarn þeirra var Kristín Jónsdóttir vinnukona, f. um 1830 í Þykkvabæjarklausturssókn, d. 1. desember 1902 í Péturshúsi.


Heimildir

Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.

  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.