„Nikolína Ottadóttir (Hólshúsi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Nikolína Ottadóttir''' húsfreyja í [[Hólshús]]i fæddist 12. júní 1832 í Eyjum og lést 21. apríl 1912.
| '''Nikolína Ottadóttir''' húsfreyja í [[Hólshús]]i fæddist 12. júní 1832 í Eyjum og lést 21. apríl 1912.

Foreldrar hennar voru [[Otti Jónsson (Ottahúsi)|Otti Jónsson]] verslunarmaður og húsmaður í [[Ottahús]]i, f. 2. febrúar 1790, d. 29. desember 1841, og sambýliskona hans [[Sigríður Nikulásdóttir (Beykishúsi)|Sigríður Nikulásdóttir]] húskona í [[Beykishús|Beykishúsi (Ottahúsi)]], f. 12. nóvember 1788, d. 16. maí 1859.
| Foreldrar hennar voru [[Otti Jónsson (Ottahúsi)|Otti Jónsson]] verslunarmaður og húsmaður í [[Ottahús]]i, f. 2. febrúar 1790, d. 29. desember 1841, og sambýliskona hans [[Sigríður Nikulásdóttir (Beykishúsi)|Sigríður Nikulásdóttir]] húskona í [[Beykishús|Beykishúsi (Ottahúsi)]], f. 12. nóvember 1788, d. 16. maí 1859.

Nikolína var með móður sinni og föður í Beykishúsi 1840, tökubarn hjá Runólfi móðurbróður sínum á Brekkum í Holtum 1845, vinnukona á Brekkum 1850 og 1855, 29 ára vinnukona á Skíðbakka í A-Landeyjum 1860.
| Nikolína var með móður sinni og föður í Beykishúsi 1840, fór frá Eyjum að Selalæk á Rangárvöllum 1842, var tökubarn hjá Runólfi móðurbróður sínum á Brekkum í Holtum 1845, vinnukona á Brekkum 1850 og 1855, 29 ára vinnukona á Skíðbakka í A-Landeyjum 1860.

Hún giftist Vigfúsi Jónssyni í [[Hólshús]]i 1858 (mt 1910). Hann lést 1867.
| Hún giftist Vigfúsi Jónssyni í [[Hólshús]]i 1858 (mt 1910). Hann lést 1867.

Hún var ekkja í Hólshúsi 1870 með börn þeirra, Sigurð 8 ára, Kristínu 9 ára og Dagbjart 5 ára.
| Hún var ekkja í Hólshúsi 1870 með börn þeirra, Sigurð 8 ára, Kristínu 9 ára og Dagbjart 5 ára.

Útgáfa síðunnar 29. október 2013 kl. 20:02
Nikolína Ottadóttir húsfreyja í Hólshúsi fæddist 12. júní 1832 í Eyjum og lést 21. apríl 1912.
Foreldrar hennar voru Otti Jónsson verslunarmaður og húsmaður í Ottahúsi, f. 2. febrúar 1790, d. 29. desember 1841, og sambýliskona hans Sigríður Nikulásdóttir húskona í Beykishúsi (Ottahúsi), f. 12. nóvember 1788, d. 16. maí 1859.
Nikolína var með móður sinni og föður í Beykishúsi 1840, fór frá Eyjum að Selalæk á Rangárvöllum 1842, var tökubarn hjá Runólfi móðurbróður sínum á Brekkum í Holtum 1845, vinnukona á Brekkum 1850 og 1855, 29 ára vinnukona á Skíðbakka í A-Landeyjum 1860.
Hún giftist Vigfúsi Jónssyni í Hólshúsi 1858 (mt 1910). Hann lést 1867.
Hún var ekkja í Hólshúsi 1870 með börn þeirra, Sigurð 8 ára, Kristínu 9 ára og Dagbjart 5 ára.
Við manntal 1880 var hún 47 ára bústýra hjá Ögmundi Jónssyni á Löndum og bústýra hjá honum á Vilborgarstöðum 1890, hjú hjá Önnu Sigríði Árnadóttur í Frydendal 1901 og lausakona á ellistyrk og stundaði tóvinnu á Vesturhúsum 1910.
Nikolína lést 1912.
Maður Nikolínu var Vigfús Jónsson tómthúsmaður í Hólshúsi, f. 6. október 1822, d. í apríl 1867.
Börn þeirra hér:
Kristín Vigfúsdóttir, f. 1861.
Sigurður Vigfússon, f. 1862.
Dagbjartur Vigfússon (Anderson), f. 7. september 1865. Hann var vinnumaður í Stóra Gerði 1890, fluttist til Vesturheimns og var hermaður í kanadíska hernum í fyrri heimstyrjöldinni.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók I – Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.