„Sigríður Guðný Guðmundsdóttir (Mandal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: <br> '''Sigríður Guðný Guðmundsdóttir''' húsfreyja í Mandal fæddist 22. apríl 1857 og lést 12. maí 1914.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðmundur Guðmundsson...)
 
m (Verndaði „Sigríður Guðný Guðmundsdóttir (Mandal)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 12:32


Sigríður Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja í Mandal fæddist 22. apríl 1857 og lést 12. maí 1914.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, f. 30. mars 1827, d. 16. febrúar 1865, og kona hans Guðríður Oddsdóttir húsfreyja, f. 1826, d. 18. nóvember 1901.

Sigríður Guðný ólst upp með foreldrum sínum. Hún var með þeim í Litlakoti 1860 og á Kirkjubæ.
Hún giftist Jóni 1879 og bjó síðan í Mandal.

Maður hennar var Jón Ingimundarson skipasmiður og útvegsmaður í Mandal, f. 3. ágúst 1856 og lést 21. apríl 1937.
Börn Sigríðar Guðnýjar og Jóns hér:
1. Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Ási, f. 27. apríl 1878, d. 3. desember 1941.
2. Guðmundur Jónsson, f. 1880.
3. Hálfdán Jónsson, f. 22. júní 1892, d. 8. ágúst 1913.
4. Fóstursonur þeirra var dóttursonur þeirra Jón I. Stefánsson sjómaður í Mandal, f. 12. maí 1904, d. 6. júní 1969.


Heimildir