„Ritverk Árna Árnasonar/Ingvar Árnason (Hólshúsi)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Ingvar Árnason (Hólshúsi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 4: | Lína 4: | ||
Foreldrar hans voru [[Árni Einarsson (Búastöðum)|Árni Einarsson]] bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á [[Búastaðir|Búastöðum]] í Eyjum, f. 27. janúar 1827 og kona hans [[Helga Einarsdóttir (Búastöðum)|Helga Einarsdóttir]] húsfreyja, f. 1829.
| Foreldrar hans voru [[Árni Einarsson (Búastöðum)|Árni Einarsson]] bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á [[Búastaðir|Búastöðum]] í Eyjum, f. 27. janúar 1827 og kona hans [[Helga Einarsdóttir (Búastöðum)|Helga Einarsdóttir]] húsfreyja, f. 1829.

Ingvar var bróðir [[Einar Árnason (Búastöðum)|Einars Árnasonar]] og [[Kristmundur Árnason (Búastöðum)|Kristmundar Árnasonar]] föður [[Helga Kristmundsdóttir|Helgu í Hólshúsi]].
| Ingvar var bróðir [[Margrét Árnadóttir (Brekkuhúsi)|Margrétar Árnadóttur]] húsfreyju í [[Brekkuhús]]i, konu [[Árni Sigurðsson (Brekkuhúsi)|Árna Sigurðssonar]], [[Einar Árnason (Búastöðum)|Einars Árnasonar]] og [[Kristmundur Árnason (Búastöðum)|Kristmundar Árnasonar]] föður [[Helga Kristmundsdóttir|Helgu í Hólshúsi]].

Kona Ingvars var [[Gróa Þórðardóttir (Hólshúsi)|Gróa Þórðardóttir]], f. 18. febrúar 1853 að [[Lönd]]um, d. 9. júní 1935.
| Kona Ingvars var [[Gróa Þórðardóttir (Hólshúsi)|Gróa Þórðardóttir]], f. 18. febrúar 1853 að [[Lönd]]um, d. 9. júní 1935.

Útgáfa síðunnar 21. ágúst 2013 kl. 17:36
Kynning.
Ingvar Árnason sjómaður og verkamaður í Hólshúsi fæddist að Berjanesi undir Eyjafjöllum 1. október 1865 og lést í Hólshúsi 9. febrúar 1951.
Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á Búastöðum í Eyjum, f. 27. janúar 1827 og kona hans Helga Einarsdóttir húsfreyja, f. 1829.
Ingvar var bróðir Margrétar Árnadóttur húsfreyju í Brekkuhúsi, konu Árna Sigurðssonar, Einars Árnasonar og Kristmundar Árnasonar föður Helgu í Hólshúsi.
Kona Ingvars var Gróa Þórðardóttir, f. 18. febrúar 1853 að Löndum, d. 9. júní 1935.
Ingvar og Gróa voru barnlaus, en ólu upp:
1. Helgu Kristmundsdóttur, f. 19. desember 1897, d. 3. maí 1977. Hún var dóttir Kristmundar sjómanns, bróður Ingvars og Þóru Einarsdóttur frá Ormskoti undir Eyjafjöllum, f. 1855, d. 6. mars 1898.
Helga var gift Ormi Ormssyni, stofnanda firmans Ormsbræður hf. Þau gerðust síðar bændur í Hofgörðum í Staðarsveit og Laxárbakka í Miklaholtshreppi, en Ormur gerðist rafvirkjameistari í Borgarnesi 1946-dd. 1965.
2. Marinó Einarsson, f. 27. september 1900, d. 25. febrúar 1971. Marinó stundað sjó og var kvæntur í Reykjavík.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Ingvar var mjög hár vexti og þrekinn, enda afburða kraftamaður. Hann var hið mesta ljúfmenni, stilltur og gætinn. Hann var dökkur á brún og brá, nokkuð langleitur og fremur andlitsfríður. Hann var óframfærinn og blandaði sér lítt við almenning, en kurteis og orðvar í daglegri umgengni. Í vinahóp var hann ræðinn og skemmtilegur og góður félagi.
Hann fór snemma að stunda fuglaveiðar og var í mörgum úteyjum, bæði til eggja, fýla og lunda. Hann var veiðimaður allgóður og gætinn í fjallaferðum.
Við Ingvar eru kenndir þessir veiðistaðir: Ingvarsstaðir í Suðurey og Ingvarsstaðir í Álsey. Eru þeir staðir nú að mestu aflagðir, enda sennilegast í vitund fæstra, hvar staðirnir eru, og þess vegna uppgrónir. Ingvar stundaði alls konar vinnu á sjó og landi og var afkastamaður með ágætum.
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Borgfirzkar æviskrár. Ýmsir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.